Þjóðviljinn - 29.08.1984, Blaðsíða 8
Kindakjötið
FRETTIR
Engin
Birgðir 1. ágúst 1
en á sama
ann 1. ágúst sl. voru til í
landinu samtals 2.322 tonn af
dilkakjöti og um 256 tonn af kjöti
af fullorðnu. Heildarsala á kinda-
kjöti innanlands frá 1. sept. í
fyrra til 1. ágúst í ár var samtals
9.522 tonn. A þessu tímabili voru
flutt út 3.739 tonn og er 1.680
tonnum meira en sömu mánuði á
síðasta verðlagsári.
Ekki er gert ráð fyrir að efnt
útsala
300 tonnum minni
tíma í fyrra
verði til útsölu á dilkakjöti nú svo
sem gert var í fyrra. Reikna má
með nokkurri verðhækkun á
dilkakjöti nú þegar slátrun hefst
en það kjöt, sem til er í landinu
verður selt áfram á því verði, sem
það kostar nú.
Birgðir af kindakjöti 1. ágúst
sl. voru 1.300 tonnum minni en á
sama tíma í fyrra.
- mhg.
Sjóslys
Geislavirk úrgangsefni
við strendur Belgíu
Franskt flutningaskip, sem var
á leið til Riga við Eystrasalt
með geislavirk úrgangsefni, lenti í
árekstri við ferju undan strönd-
um Belgíu og sökk nú um helgina.
Talsmenn útgerðarfélagsins hafa
haldið því fram að engin mengun-
arhætta sé af þessum farmi, en
Grænfriðungar eru á öndverðum
meiði og telja að mikill voði sé á
ferðum. Talið er að erfitt verði að
ná farminum upp aftur.
Verið var að flytja úrgangsefn-
ið, sem er úraníum hexaflúoríð,
til endurvinnslu í Sovétríkjunum
og var það geymt í tunnum, sem
síðan voru í gámum, en óvíst er
hvort umbúðirnar voru nægilega
vandaðar til að þola þær aðstæð-
ur sem eru á sjávarbotni. Græn-
friðungar halda því fram að svo sé
ekki, og telja þeir að ef hinn
minnsti leki kemur að gámunum,
kunni það að leiða til spreng-
ingar, sem verði til þess að allt
úrgangsefnið leki út. Mengun af
völdum úraníum hexaflúoríðs
muni orsaka mjög alvarlegt tjón á
umhverfi. Grænfriðungar draga í
efa að auðvelt verði að ná gámun-
um upp, þótt þeir séu aðeins á 15
m dýpi; björgunarfyrirtæki verði
treg til að reyna slíkt vegna þess
hve mikil hætta fylgdi slíkum til-
raunum.
Frönsk stjórnvöld hafa farið
þess á leit við útgerðarfélagið að
reynt verði hið fyrsta að fjarlægja
eiturefnin.
Togarar
Heimildir
Aþriðjudaginn var ákveðið í sjávarútvegsráðu-
neytinu að rýmka heimildir til botnvörpuveiða
útaf Breiðafirði, Vestfjörðum og Héraðsflóa í því
rýmkaðar
skyni að auka veiðar á skarkola og steinbít.
Hefja má veiðar á þessum svæðum 1. september
en reglugerð ráðuneytisins gildir til áramóta.
Útflutningur Norðmanna vex
Norðmenn seldu 2200 tonnum um tíma. Laxútflutningurinn (112% aukning), Frakklands
mcira af laxi á erlenda mark- nam 9.750 tonnum frá 1. janúar 1800 tonn, Vestur-Þýskalands
aði fyrstu sex mánuði ársins held- til 31. júní. H00 tonn og Danmerkur 1100
ur en á sama tíma í fyrra. Útflutn- Útflutningur á laxi skiptist tonn. Það sem eftir er skiptist
ingur á urriða minnkaði hinsveg- þannig á helstu markaði: Til niðuráSvíþjóð,Holland,Belgíu,
ar um 15% og var350tonn áþess- Bandaríkjanna fóru 3000 tonn Sviss, Spán og Japan. J.J.E.Kúld.
NÝ LEIÐ
^ til sparnaðar
Byggingavöruverslunin lækjarkot sf.
býður viðskiptavinum sínum að ganga í
SP AR-klúbbinn sem veitir eftirtalin rétt-
indi í viðskiptum við verslunina:
1. Staðgreiðsla minus 5% afsláttur, ef versiad er fyrir
0-2.000 krónur.
2. Staðgreiðsla mínus 10% afsláttur ef verslaö er fyrir
2.000 krónureöa irieira.
3. Safnnóta: Staögre'ðsla mínus 5% afslattur strax, mínus
aukaafsiáttur 5% óegar notan er útfylit, eöa fram-
kvæmd lokiö.
4. Kredit-kort.
5. Hefðbundinn mánaðarreíkningur. Úttekt greiöist
fyrir 20. næsta manaöar á eftir úttektarmánuði.
6. Sérstakirgreiðslusamningarvegna stórra úttekta, allt
aö 5 mánaöa greiðslufrestur (skuidabref).
7. verksmiðjuverd. Hjá okkur ersama verö á málningu og
í verksmiöjunum, og auk ofangreindra greiðslukjara,
veitum við sama magnafsiátt og_verksmiðjurnar.
KLÚBBSKÍRTEINI LICCJA FRAMMI í VERSLUNINNI
111 LEIÐIN LIGGUR í
li=E LÆIf JARIfOT
LÆKJARGATA 32 POSTH.53 HAFNARFIRDI SIMI50449
Fljótt, fljótt
Alþjóðlegt
hraðboðafyrirtæki
tyllir niður tánum
Hvað sem er, hvert sem er,
á svipstundu en lágmarksgjaldið
er nœstum 3000 kall
Sumum nægir ekki hraði póst-
þjónustunnar og það öryggi
sem hún veitir. Þessum standa nú
til boða viðskipti við íslandsdeild
bandarísks hraðboðafyrirtækis
sem teygir anga sína um rúmlega
110 ríki. Nafn íslenska dóttur-
fyrirtækisins er DHL Hraðflutn-
ingar.
Starfsmenn fyrirtækisins sækja
það sem senda á, bréf, skjöl eða
smápakka, til sendanda og fylgja
sendingunni eftir til móttaka eins
hratt og örugglega og kostur gefst
á. Á blaðamannafundi fyrir
skömmu sagði Hafsteinn Vil-
helmsson framkvæmdastjóri að
hámarkstími sendinjgar til Banda-
ríkjanna væri tveir dagar, til
Norðurlands einn, og þrír til ann-
arra Evrópulanda. Deildir fyrir-
tækisins um heiminn hafa á að
skipa um 9000 starfsmönnum
sem fara um á bílum, þyrlum og
flugvélum í eigu kompanísins,
þarsem slíkt þykir henta betur en
venjulegar áætlunarferðir.
Dótturfyrirtækið á íslandi hef-
ur tryggt sér ákveðið rými með
Flugleiðavélum til Kaupmanna-
hafnar og New York óháð öðrum
farangri, og taka starfsmenn ytra
við sendingunum á flugvöllum og
koma þeim áfram.
Flutningur sem fyrirtækið ann-
ast er fyrst og fremst ýmiskonar
bissnesdót, samningar, við-
skiptakröfur, útboðsgögn,
verklýsingar, vörureikningar,
bankapappírar, varahlutir, og
helstu viðskiptavinir ýmis fyrir-
tæki, bankar osfrv.
Lágmarksgjald fyrir hverja
sendingu er 2640 króna þjónustu-
gjald plús 180 krónur fyrir hvert
hálft kíló og er því nokkuð dýrt
drottinsorðið, en framkvæmda-
stjóri íslandsdeildarinnar kvað
rekstur ganga bærilega síðan far-
ið var í gang í vor. _ m
Das Kapital í Safari
Hliómsveitin Das Kapital heldur tónleika í Safari annað kvöld
(fimmtudagskvöld) og kynnir þar efni af væntanlegri hljómplötu.
Hljómsveitina skipa Bubbi Morthens (gítar, söngur), Mike Pollock
(gítar, söngur), Jakob Magnússon (bassi), óuðmundur Gunnarsson
(trommur) og aðstoðarmaður, Björgvin Gíslason (gítar). Hljóm-
sveitin mun í vetur leika á skólaböllum og fást upplýsingar um starf-
semi hennar í síma 19620.