Þjóðviljinn - 29.08.1984, Side 9
„Heimilið og fjölskyldan ’84“
Eitthvaðfyrir alla
Leiðin að hjörtum mann-
anna liggur svo sannarlega í
gegnum magann og ieiðin að
pyngjum foreldranna í gegn-
um börnin. Þessi ágætu mál-
tæki eru í fullu gildi í Laugar-
dalshölinni þessa dagana en
þar stendur nú yfir 6ta heimil-
issýningin sem Kaupstefnan
hf gengst fyrir á þessum stað.
Öll hefur sýningin fagmann-
legt yfirbragð, - menn láta
auglýsingateiknara og aðra
hönnuði sjá um gerð básanna
og lokka mannskapinn til að
stoppa með því að bjóða upp á
alls kyns góðgæti og vinnings-
von.
Stórar vörusýningar af þessu
tagi hafa þegar unniö sér vissan
sess í skemmtanalífi borgarinnar.
Þó sumum lítist ekki allt of vel á
fyrirbærið er þessi tilbreyting
greinilega vel þegin, ekki hvað
síst fyrir þá sök að þarna getur öll
Sovétmenn og Tékkar eru með sér-
staka bása á sýningunni og er sá so-
véski m.a. skreyttur stórri mynd af
Chernenko forseta ríkisins, eins og
hér má sjá. Ljósm.-Atli.
fjölskyldan gert eitthvað sam:
eiginlega. Fullorðna fólkið
skoðar vörurnar, fær upplýsingar
og sýnikennslu, smakkar á kaffi,
mjólkurdrykkjum, sælgæti, mat-
vælum, alls konar kökum og gos-
drykkjum á hverju horni og tívo-
líið, hattarnir fínu, skrautlegir
límmiðar og vonin um fiðring í
maga eða vinning dregur krakk-
ana að sér.
Það er í rauninni ekki skrítið þó
kaupahéðnar af öllum toga leggi
mikið á sig því þessi markaður er
ótrúlega stór. Um helgina komu
þarna 16 þúsund manns og þegar
sýningunni lýkur er búist við að
milli 50 og 70 þúsund manns hafi
lagt leið sína þangað. Það er þessi
stóri markaður sem dregur að sér
félagasamtök eins og Neytenda-
samtökin og auralítil blöð eins og
Þjóðviljann þó ýmsum finrist
furðulegt að sjá þessa aðila í hópi
kaupahéðna. Þessi staðreynd
tryggir líka að þarna fái allir
eitthvað við sitt hæfi!
Á síðunum hér á eftir má sjá
svipmyndir af sýningunni
„Heimilið og fjölskyldan 1984“
en henni lýkur 9. september.
-ÁI
UMSJÓN: JÓNA PÁLSDÓTTIR Mlðvlkudagur 29. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9