Þjóðviljinn - 29.08.1984, Qupperneq 13
10.39
MANNLÍF
MANNLIF
indasam
llra hagu
Kaupir Pú kðtJ
sekknur.i í
Markmiðiðerað
tvöfalda félagatalið
Rœtt við Jóhannes Gunnarsson formann Neytendafé-
lags Reykjavíkur og nágrennis í Laugardalshöll.
KynningarverÓ
hjá Rosenthal
á sýningunni „HeimiliÖ ’84”
Utveggjaklϗnlng
fyrir
íslenskar aöstœöur
áótrúlega
hagstœöu veiöi!
Jóhannes Gunnarsson í kynningarbás Neytendasamtakanna á heimilissýn-
ingunni. Ljósm. Atli.
„Jú, svona sýningar geta
auðvitað verið gagnlegar ef
fólk nýtir sér þær til að skoða
vörur, bera saman gæði og
verð og kynna sér framboðið.
Það er auðvitað handhægara
en að labba milli margra versl-
ana. Þetta getur verið mjög
gagnlegt fyrir fólk meðan það
lætur ekki kaupæðið grípa sig
og fer að kaupa gagnslausar
vörur á kynningarverði, vörur
sem það hefur kannski engin
not fyrir". Það er Jóhannes
Gunnarsson, formaður Neyt-
endafélags Reykjavíkur og
nágrennis, sem segir þetta,
þar sem við hittum hann í
Laugardalshöllinni.
Það kann að koma ýmsum á
óvart að hitta Neytendasamtökin
fyrir í hópi kaupahéðna í Laugar-
dalshöll. Hvað eru samtök sem
þessi að gera á vörusýningu?
„Tilgangurinn er að spjalla við
fólk, kynna starfsemi Neytenda-
samtakanna með það fyrir augum
að fá fólk í samtökin. Aðeins
þannig geta Neytendasamtökin
orðið að virku afli“, sagði Jó-
hannes. „Hér munum við dreifa
bæklingi með upplýsingum um
samtökin, ýmsum sparnaðar-
ráðum og hvatningu til sparnaðar
í heimilishaldi. Þá munum við
kynna og selja heimilisbókhald
og Neytendablaðið sem nú kem-
ur út í nýju formi. Við höfum
ákveðið að gefa það út í dagblað-
abroti enda er það ódýrari útgáfa
og gefur möguleika á örari útgáf-
utíðni og betri tengslum við fé-
laga“.
- Hvað eru margir félagsmenn
hjá ykkur?
„I Neytendasamtökunum og
Neytendafélagi Reykjavíkur og
nágrennis eru nú 4800 félags-
menn. Þetta er í fyrsta sinn sem
samtökin taka þátt í sýningu sem
þessari og ástæðan er sú að við
fáum ekki betri tækifæri til að ná
Það var ekki laust við að fiðringur færi um vélritunarputtana þegar þessar girnilegur
garnhespur blöstu allt í einu við. Þetta er garnbúðin Tinna sem sýnir og selur óvenjulega
fjölbreytt og fallegt úrval af ullargarni, silkigarni og bómullargarni. Því miður sjást litirnir ekki
á þessari mynd en þeir eru svo sannarlega í öllum regnbogans! Ljósm - Atli.
Hina stílhreinu Plagan Populár útveggja-
klæöningu fáiö þiö hjá okkur.
Hentar bæöi nýbyggingum og gömlum húsum,
t.d. ef auka þarf einangrun þeirra.
Veggklæðning í hæsta gæðaflokki.
Lítiö inn og kynnið ykkur kosti Plagan Populár
veggklæöningarinnar.
4?^
Skemmuvegi 2, Kópavogi.
Sími 41000.
Dalshraun 15, Hafnarfiröi.
Sími 54111 — 52870.
BYKO
Vaxtarræktin
Unglingamir eru þeir sem sýna Vaxtarræktarbásnum hvað opinskáastan áhuga. Þeir sem
eru orðnir aðeins eldri, sitja í bílnum og á skrifstofunum alla daga og veitti svo sannarlega
ekki af því að stoppa og fræðast hjá vaxtarræktarfólki, virðast hins vegar feimnir við að
kíkja almennilega inn í básinn. Ljósm. Atli.
til jafn margra. Við hyggjumst
því nýta okkur það og markmiðið
er að tvöfalda félagatöluna.
Það myndi gerbreyta stöðu
Neytendasamtakanna. Við höf-
um nú aðeins einn starfsmann og
höfum lengi gælt við að geta ráðið
einn til viðbótar í útgáfustarf-
semina þannig að Neytendablað-
ið verði fastur liður í tilverunni.
Blaðið hefur hingað til komið
nokkuð stopult út, enda hefur út-
gáfan eingöngu byggst á sjálfboð-
aliðunT'.
- Nú hafa sýningar af þessu
tagi, auglýsingasýningar og vöru-
sýningar þar sem fólk þarf að
kaupa sig inn verið gagnrýndar
oft og á tíðum.
„Já, og þátttaka Neytendasam-
takanna í þessari sýningu
jafngildir ekki því, að samtökin
hvetji til frekari neyslu, langt í
frá. Ég hef sjálfur gagnrýnt svona
sýningar. Ég hef t.d. orðið fyrir
geysihörðum kröfum frá börnun-
um þegar svona sýningar hafa
verið út af tívolíinu. Manni finnst
eiginlega verið að draga mann
bakdyramegin inn á þetta, enda
segir einhvers staðar að besta
leiðin að pyngjum foreldranna
liggi í gegnum börnin. Þessi sýn-
ing virðist mér sigla á þeim sömu
miðum. Hins vegar er þetta ekki
eina landið þar sem menn verða
að borga sig inn á vörusýningar.
Kaupandi borgar í öllum tilfell-
um þann tilkostnað sem verður af
vörunni, t.d. auglýsingar og ann-
að, og spurningin er hvort
neytandinn fengi ekki að borga
tilkostnaðinn af svona sýningu í
hærra vöruverði ef ekki væri sett-
ur á aðgangseyrir". -ÁI
Usdnaðlifa...
. ..erað lijia með lisánm
Ásýningunni „Heimilið
’84“ erum við meðá
kynningarverði kristal-
kertastjakann „Rose in
Glas" eftir Johan van
Loon og vasann
„Arundo" eftirBjorn
Wiinblad. Fallegar
smágjafir sem gleðja við
ölltækifæri.
Kristalkertastjaki
„Rose in Glas“ kr. 240,-
Vasi „Arundo" kr. 290.-
studio-linie
Á.EINARSSON & FUNK HF
Laugavegi 85
Ótrúlegt en satt, - heilt 100 fermetra einbýlishús fullbúið húsmunum og heimilstækjum
trónir í miðri höllinni. Það eru 20 sýnendur sem hafa sameinast um að að reisa og búa
húsið og hefur það vakið hvað mesta athygli sýningargesta til þessa. Húsgögnin sem
mannskapurinn er hér að prófa eru yfirdekkt með leðri og koma frá TM-húsgögnum.
Ljósm. - Atli.
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINhl
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13