Þjóðviljinn - 29.08.1984, Síða 14
MANNLIF
Kúttersíld
margar tegundir
marineruð síld
kryddsíld
síldarrúllur
síldarsalat
reyksíldarsalat
gæðavara úrfyrsta flokks hráefni
Ný orðabók upp um alla veggi í básnum hjá bókaforlaginu Erni og Örlygi.
Ljósm. -Atli.
Örn og Örlygur:
Ný
ensk-íslensk
oröabók
MÚSÍKFÓLK-TÓNLISTARNEMAR
Leiöin sem viö bjóöum hentar bæðitil að
kynnast vel hljóöfæri sem ætlunin er að
eignast - og létta átakiö sem til þess þarf.
* Leigusamningurergerðurtil a.m.k.
12 mánaða.
* Verð hljóðfærisins er óbreytt allt
leigutímabilið.
* Leigutaki getur gert kaupsamning hvenær
sem er á tímabilinu og fengið allt að
6 mánaða leigu dregna frá kaupverðinu.
* Mánaðarleigan er 2,2% af útsöluverði
hljóðfærisins.
Lampar8cglerhf
Lampar og gler hf
Suðurgötu 3 - Reykjavík
Sími91-21830
Seljum píanó, flygla, blásturs- og strengjahljóð-
færi. Höfum nýlega fengið umboð fyrir stærstu
píanóframleiðendur í V-Evrópu, SCHIMMEL í
V-Þýskalandi. SCHIMMEL merkið er aldar-
gamalt - tengt hefð, gæðum og fjölbreytni.
Gefum nánari upplýsingar með aðstoð
myndbands, litprentaðra bæklinga og
sýnishorna á sýningunni Heimilið
og fjölskyldan í Laugardalshöll -
og í verslun okkar.
mm
Eitt af því sem er nauðsyn-
legt á hverju heimili er góð
orðabók, ekki síst ensk-
íslensk, nú þegar enskan
glymur í eyrum alla daga og er
helsta alþjóðamálið í okkar
heimshluta. Á sýningunni í
Laugardalshöll kynnir bókaút-
gáfan Örn og Örlygur nýja
ensk-íslenska orðabók sem
kemur út hjá forlaginu í haust
og verða fyrstu 2000 eintökin
seld á sérstöku kynningar-
verði, 7.904 kr. en eftir það
hækkar verðið í nálega
10.000 krónur.
Hér er á ferð viðamikið upp-
sláttarrit og liggur margra ára
vinna að baki útgáfunnar. Sören
Sörensen, þekktur þýðandi fjöl-
margra bóka úr ensku hóf að
þýða bandarísku orðbókina
Thomdike-Barnhart High School
Dictionary eftir að hann komst á
ellilaun og lauk þýðingunni án
aðstoðar á sjö árum. Jóhann S.
Hannesson, fyrrum skóla-
meistari var ráðinn til að búa
handrit Sörens til útgáfu og vann
hann síðustu þrjú ár ævinnar
sleitulaust að því verki. Undir
hans stjórn fékk orðabókin þá
mynd sem nú kemur fyrir al-
menningssjónir.
Meðal þeirra sem lagt hafa
hönd á plóginn og yfirfarið orða-
forða fræðigreina sinna eru
Reynir Axelsson, eðlisfræðingur,
Sigrún Helgadóttir, reiknifræð-
ingur, Einar Torfason, efnafræð-
ingur, Hálfdán Ómar Hálfdánar-
son, líffræðingur, Jakob Ingva-
son, eðlisfræðingur, Jóhanna Jó-
hannesdóttir, rannsóknartækni-
fræðingur, Þorsteinn Vilhjálms-
son, eðlisfræðingur, Sigurður
Steinþórsson, jarðfræðingur,
Þorgeir Örlygsson, Iögfræðingur
og Kristján Karlsson, bók-
menntafræðingur og skáld. Auk
þeirra hefur verið leitað til fjöl-
margra ráðgjafa á tilteknum svið-
um.
Á sýningunni í Laugardalshöll
gefst gestum kostur á að kynna
sér þessa nýju bók en lokaáfanga
verksins unnu þau Helgi Bern-
ódusson, Þorbjörg Jónsdóttir og
Þuríður Kvaran.
en of snemma.
14 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN