Þjóðviljinn - 29.08.1984, Side 21
U-SIÐAN
Ritstjórnin rekin
í heilu lagi
Það þykir alltaf fréttnæmt þeg-
ar ný blöð koma á markaðinn. Því
ákvað U-síðan að forvitnast svo-
lítið um blaðið Birti sem Æsku-
lýðsfylking Alþýðubandalagsins
gefur út. Ég hitti að máli Helga
Hjörvar menntaskólanema, en
hann situr ásamt þeim Ólafi Ól-
afssyni og Runólfi Ágústssyni í
ritstjórn blaðsins.
- Hvernig blað er Birtir?
„Það er almennt tíðindablað
ungra vinstrisinna, málgagn
ÆFAB“.
- Er blaðið ætlað einhverjum
ákveðnum lesendahópi?
„Já ungu fólki aðallega, og
leggjum við sem mesta áherslu á
að gera blaðið lifandi og
skemmtilegt. Síðan er því dreift
ókeypis í alla framhaldsskóla á
landinu“.
- Og hvernig viðtökur hefur
það fengið?
„Þær hafa almennt verið mjög
góðar. Til dæmis gengum við
nokkrir félagar um skóla einn hér
á höfuðborgarsvæðinu þar sem
við fyrr um daginn höfðum dreift
500 eintökum til nemenda og
hirtum öll þau blöð sem við fund-
um undir borðum, í ruslakörfum
ofl. og voru þau 40“.
- Þá hafa hin 460 semsagt verið
tekin með heim?
„Já“.
- Ég heyrði einhversstaðar að
mikil uppstokkun hefði orðið á
ritstjórn Nýs skóla, málgagns
Heimdellinga þegar Birtir kom
út?
„Já það var þannig að Birtir og
Nýr skóli komu út á sama tíma,
þannig að það gafst tækifæri til
samanburðar á móttökum, frá-
gangi og efni blaðanna. Skömmu
síðar var ritstjórninni sparkað í
heilu lagi“.
- En það hafa ekki allir verið
eins hrifnir af blaðinu?
„Nei, t.d. voru ungir íhalds-
menn í M A sem tóku blaðinu eins
og búist var við, þ.e.a.s. eins og
böm, því þeir rifu í tætlur um
helming sendingarinnar. Einnig
varð uppi fótur og fit í gamla lat-
ínuskólanum þar sem upprenn-
andi athafnamenn stóðu og æptu
hver í kapp við annan: „Passið
ykkur, þetta er bara djöfuls kom-
múnistaáróður", líkt og um forb-
oðinn ávöxt væri að ræða. En þau
skilaboð fóru nú svona ofangarðs
og neðan hjá nemendunum“.
- En hvernig er þessi útgáfa
fjármögnuð?
„Það gengur nú hálf erfiðlega
að fá auglýsendur til að auglýsa í
blaðinu, svo að það mæðir mest á
styrktaráskrifendunum. Því
hvetjum við alla sem áhuga hafa á
að styrkja blaðið að hringja í síma
17500 og gerast áskrifendur, því
enn vantar svolítið á að endar nái
saman“,
- Hafiði eitthvað sérstakt í
hyggju til að reyna að hala inn
það sem á vantar?
„Já ritstjórnin ætlar sér að
halda svokallaða Birtishátíð, þar
sem ágóði af henni rynni til blaðs-
ins, en einnig er ætlunin að fjölga
áskrifendunum".
- En hvenær má búast við því
að 3. tbl. Birtis komi á götuna?
„Það verður svona í kringum
20.-24. september ef allt fer eftir
áætlun“.
Já, við óskum blaðinu alls hins
besta og þökkum Helga fyrir við-
talið.
Tímarnir breytast og mennirnir með...
Vinsældalistar
í hverri viku eru gerðar þúsundir af vinsældalistum úti um allan heim
og þeir gömlu verða úreltir. En það getur þó verið skemmtilegt að
skoða gamla vinsældalista. Sjá hvaða lög voru vinsælust t.d. þegar
mamma og pabbi voru ung. Hér að neðan er vinsældalisti yfir þau lög
sem hvað vinsælust voru fyrir 15 árum.
1. /don’tlike Mondays....
2. Wedon’ttalkanymore....
3. Reasonstobecheerful....
4. Can’tstandloosingyou...
5. The diary ofhorace wimp
6. Angeleyeslvoulezvous...
7. Hershamboys...........
8. Afterthelovehasgone....
9. Wanted................
10. Beattheclock.........
...........Boomtown Rats.
..............Cliff Richard.
lan Dury and The Blokheads.
...................Police.
.....Electric light orchestra.
.....................Abba.
..................Sham69
.......Earth Wind And Fire
..................Dooleys.
...................Sparks.
Miðvikudagur 29. ágúst 1984 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21
Spennandi
að sofa í tjaldi
Hún Olga Kristrún Ingólfsdótt-
ir er þriggja ára og var í tjaldi á
Laugarvatni með mömmu sinni
og pabba.
Olga sagðist alltaf vera í
sumarbústaðnum hennar ömmu
sinnar en nú langaði hana að sofa
í tjaldi. Það væri nefnilega þannig
að hún byggi núna í Kópavogi en
væri að flytja til Danmerkur í
haust af því að pabbi hennar ætlar
að læra meira.
Olga sagði okkur að hún væri
með dúkkuna sína með sér og
hún ætti líka að koma með til út-
larida. Olga sagði að hún væri
búin að vera veik, hún var með
mislinga um seinustu helgi og þá
hefði hún ekki komist í ferðalag
en núna væri henni næstum því
batnað.
Henni Olgu var ekkert vel við
myndavélina, hún varð hálf
feimin en hún sagði þó að lokum:
„Viltu láta myndina koma í blað-
Olga Kristrún Ingólfsdóttir