Þjóðviljinn - 29.08.1984, Side 23
Snœfellsnes
IÞROTTIR
Grundar-
fjarðar-
stúlkurnar
sigruðu
Mikið fjör var á Grundarfjarðar-
velli er héraðsmót i knattspyrnu
kvenna fór þar fram á fimmtudags-
kvöld.
Fyrst léku Reynir frá Hellissandi
og Snæfell Stykkishólmi. Reynis-
stúlkurnar sóttu fast og áttu mun
meira í fyrri hálfleik. Áberandi voru
þær Sigfríður no. 9 og Hildigunnur
no. 10 í liði Reynis. Sigfríður skoraði
fyrsta mark leiksins eftir fyrirgjöf frá
Hildigunni á 13. mínútu fyrri hálf-
leiks. Staðan 1-0 fyrir Reyni og aftur
voru þær stöllur á ferð á 23. mínútu,
staðan 2-0 og enn bættu þær marki við
á 2.5. mínútu, staðan 3-0 og þrenna
hjá Sigfríði. Á þriðju mínútu síðari
hálfleiks varði markvörður Snæfells
hörkuskot frá Sigfríði og enn var Sig-
fríður á ferð á 7. mínútu með þrum-
uskot hárfínt framhjá. En þá fara
Snæfelisstúlkurnar að sækja í sig
veðrið og á 20. mínútu síðari hálfleiks
minnkar Elín muninn í 3-1. Ekki
tókst Snæfellsstúlkunum að skora
meira og leiknum lauk með verð-
skulduðum sigri Reynisstúlkna 3-1.
UMF Grundarfjöröur - Reynir
Hellissandi
Reynisstúlkurnar mæta til leiks
eftir tiltölulega stutta hvíld. Mjög
fjörugur og jafn leikur framan af.
Fyrsta marktækifærið var þegar Hug-
rún í UMFG átti þrumuskot í stöng á
4. mínútu. Vöm Grundfirðinga var
feikna sterk og þær stöllur Sigfríður
og Hildigunnur eignuðust fá tækifæri.
Grundarfj arðarstúlkurnar voru að ná
yfirhöndinni og eftir nokkrar mis-
heppnaðar sóknir skoraði Vilborg
fyrir UMFG á 25. mínútu. Staðan 1-
0. Á 30. mínútu sólar svo Gunnhildur
UMFG völlinn á enda og gefur fyrir
markið en markvörður Reynis var vel
á verði og bægði hættunni frá. Staðan
í leikhléi 1-0.1 síðari hálfleik var auð-
sætt að Grundfirðingar höfðu töglin
og hagldirnar í leiknum og á 7. mín-
útu skoraði Hugrún fyrir Grundarf-
jörð eftir fallega fyrirgjöf frá Matt-
hildi. Staðan 2-0. A 15. mínútu kom-
ust Sandarar í dauðafæri en Eydís
markvörður UMFG varði glæsilega
og Grundfirðingar snúa vörn í sókn
og Gunnhildur skorar 3. mark
UMFG og staðan þá orðin 3-0, og enn
skorar Gunnhildur á 22. mínútu
síðari hálfleiks og staðan þá 4-0. Á
síðustu mínútunum fengu Reynis-
stúlkurnar aukaspyrnu inn í vítateig
Grundfirðinga en brenndu af. Vörn
Grundfirðinga þeim Ingibjörgu,
Olöfu Hildi, Kristínu og Ragnheiði
ásamt Eydísi markverði tókst að
halda hreinu marki og sóknin skilaði
sínu. Tilþrifamiklum leik lokið með
4-0 sigri UMFG.
UMF Snæfell - UMF Grundar-
fjarðar
Grundfirðingar mættu til leiks
óhvfldir eftir erfiðan leik gegn Reyni.
Eignuðust þó framan af nokkur góð )
marktækifæri en tókst ekki að skora.
Stykkishólmsstúlkurnar ná síðan
góðum tökum á sókninni, en vörn
Grundfirðinga gliðnar og á 12. mín-
útu skorar Kolbrún fyrsta mark
leiksins fyrir Snæfell. Síðan er leikur-
inn í jafnvægi, grimmt sótt og varist á
báða bóga fram að leikhléi. Staðan
var 1-0 er síðari hálfleikur hófst.
Nokkuð var tekið að rökkva og lítið
varð um fallegar sóknir. Þó komst
Hugrún UMFG nokkrum sinnum í
dauðafæri en heppnaðist ekki að
skora. Hólmararnir áttu nokkur stór-
glæsileg skot en Eydís markvörður
UMFG sýndi hreint undraverða
markvörslu og leiknum lauk með sigri
Snæfells 1-0.
ÖU félögin með 3 stig og var marka-
hlutfallið látið ráða og voru því
Grundfirðingar héraðsmeistarar.
Parna réð ríkjum íþróttamennskan
eins og hún best gerist. íþróttaandinn
og áhuginn leyndu sér ekki. Knatt-
spyrnuráð HSH ætti að gera kvenn-
aknattspýrnu hærra undir höfði og
láta héraðsmótið fara fram með eðli-
legum hætti, en ekki ljúka mótinu af á
einu kvöldi eins og nú var gert.
pessi íþrótt virðist ekki vera tekin
alvarlega af forráðamönnum HSH og
er það von mín að á því verði ráðin
bót strax næsta vor.
IHJ/Grundarfírði
Fagna Skagamenn einnig sigri á Is-
landsmótinu í kvöld? Mynd: Atli.
ÍA
meistari
í kvöld?
Verður ÍA íslandsmeistari í
knattspyrnu í kvöld, annað árið í
röð? Svo gæti vel farið, Skaga-
menn fá Víkinga í heimsókn og
takist þeim að sigra, er meistara-
titillinn í Akraneshöfn.
Leikurinn hefst kl. 18.30. íA er
með 34 stig og á fjóra leiki eftir en
ÍBK er með 27 stig og á þrjá leiki
eftir og getur því aðeins náð 36
stigum. Með sigri í kvöld fer ÍA
uppí 37 stig. Leikurinn er einriig
afar þýðingarmikill fyrir Víkinga
sem eru komnir í fallbaráttuna
eins og sjá má á stöðunni í 1.
deild:
(A...............14 11 1 2 27-13 34
ÍBK..............15 8 3 4 18-14 27
Valur............15 6 5 4 21-14 23
Þróttur..........16 4 7 5 17-17 19
Þór A............15 5 3 7 22-22 18
KR...............15 4 6 5 16-23 18
Víkingur.........14 4 5 5 21-22 17
Brel&ablik........15 3 7 5 15-16 16
KA................16 4 4 8 23-34 16
Fram..............15 4 3 8 1 5-20 15
-VS
4. deild
Tveir leikir verða háðir í úrslit-
akeppni 4. deildarinnar í knatt-
spyrnu í kvöld. ÍR og Léttir leika
á IR-vellinum í SV-riðli og Tjör-
nes mætir Reyni Arskógsströnd á
Húsavík í NA-riðli.
V. Þýskaland
Stuttgart skellti
Braunschweig!
Asgeir Sigurvinsson og félagar í
Stuttgart komust heldur betur á
skrið í vestur-þýsku „Bundeslig-
unni“ í knattspyrnu í gærkvöldi.
Þeir sigruðu Eintracht
Braunschwcig, Iið Magnúsar
Bergs, með miklum yfirburðum í
Stuttgart, 6-1. Hvorki sjónvarp
né útvarp í V. Þýskalandi greindu
fra gangi leiksins eða markaskor-
urum í gærkvöldi og ekki náðist
samband við Ásgeir. Tveir aðrir
leikir fóru fram í „Bundeslig-
unni“. Bayer Uerdingen, lið Lár-
usar Guðmundssonar, sigraði
Dortmund 2-1 og Frankfurt bar
sigurorð af Leverkusen, 2-0.
-JHG/VS
Guido Buchwald, hinn geysi-
sterki leikmaður Stuttgart, var
skorinn upp í fyrradag vegna
meiðsla sem hann hlaut í leiknum
gegn Kaiserslautern á laugar-
daginn. Ljóst er að hann getur
ekki leikið með Stuttgart fyrr en
eftir áramót og er það mikið áfall
fyrir liðið.
England
Fjögur jafntefli
Ekki voru enskir knattspyrnu-
menn neitt sérlega á skotskónum
í gærkvöldi, allavega ekki í 1.
deild. Þar fóru fram fjórir leikir, í
þeim voru skoruð alls fjögur
mörk og enduðu allir með jafn-
tefli.
Úrslit urðu þessi:
1. deild:
Coventry-Norwich...............0-0
Ipswich-LutonTown..............1-1
Southampton-Manch.Utd..........0-0
Watford-Q.P.R..................1-1
2. deild:
Brighton-Notts County..........2-1
Charlton-Huddersfield..........2-2
Mjólkurbikarinn
1. umferð - fyrri leikir:
Aldershot-Bournemouth..........4-0
Blackpool-Chester..............1-0
Bolton-Oldham..................2-1
Brentford-Cambridge............2-0
Brlstol City-Newport...........2-1
Bumley-Crewe...................1-2
Darlington-Rotherham...........1-2
Doncaster-York Clty............2-3
Gillingham-Colchester..........3-2
Halifax-Chesterfield...........1-1
Orient-Southend................2-1
Portsmouth-Wimbledon...........3-0
Port Vale-Bury.................1-0
Scunthorpe-Mansfield...........0-1
Sheff.Utd-Peterborough.........1-0
Swansea-Walsall................0-2
Tranmere-Preston...............2-3
Wrexham-Wigan..................0-3
Leikur Southampton og
Manch. Utd. var slakur en bar-
áttan gífurleg. Mikill hraði og
harðar tæklingar á báða bóga.
Joe Jordan átti besta færið fyrir
Southampton snemma í leiknum
er hann skailaði naumlega fram-
hjá. Man. Utd. náði síðan
skyndiupphlaupi á lokamínútun-
um, Gordon Strachan og Jesper
Olsen lögðu upp færi fyrir Bryan
Robson sem kom á fleygiferð og
skallaði en knötturinn fór í varn-
armann og afturfyrir markið.
QPR náði forystunni gegn
Watford á 74. mínútu er Gary
Bannister skoraði, mjög gegn
gangi leiksins, en fimm mínútum
síðar jafnaði George Reilly.
Mörk frá í fyrrakvöld: Mark
Walters 2 og Peter Withe
skoruðu fýrir Aston Villa í 3-1
sigrinum í Stoke og Steve Hunt
og Garry Thompson voru marka-
skorarar WBA sem vann Evert-
on 2-1. -VS
Ítalía
Hateley byrjar
ekki gæfulega
Rekinn útafí bikarleik meðan Francis gerði
þrennu og Maradona eitt mark
Enski landsliðsmiðherjinn
Mark Hateley byrjar ekki feril
sinn í ítölsku knattspyrnunni á
gæfulegan hátt. AC Milano
keypti Hateley frá Portsmouth í
sumar og á sunnudaginn lék hann
sinn fyrsta opinbera leik með fé-
laginu, gegn 3. deildarliði Brecia í
ítölsku bikarkeppninni. Leiknum
lyktaði með óvæntu jafntefli, 1-1,
og Hateley var rekinn af ieikvelli
fyrir að slá til andstæðings.
Trevor Francis sem nú leikur
þriðja árið með Sampdoria var í
öðru og betra formi, skoraði öll
þrjú mörk liðsins í 3-0 sigri á 3.
deildarliðinu Leece. Diego Mar-
adona skoraði í sínum fyrsta leik
með Napoli, í 3-1 sigri á Catanz-
aro. Juventus vann Cagliari á úti-
velli 3-1 og skoraði Zbigniew
Boniek eitt markanna en AS
Roma gerði aðeins jafntefli, 2-2,
á heimavelli gegn 3. deildarliði.
-VS
Mark Hateley, sem hér hefur betur í
skallaeinvígi við Brasilíumann fyrr í
sumar, er strax kominn í vandræði á
Italíu.
V. Þýskaland
1
hér í landi út-
skömmu Toni Schu-
macher, hinn fræga markvörð
Kölnar og vestur-þýska landsliðs-
ins, Knattspyrnumann ársins.
Asgeir Sigurvinsson hlaut annað
sætið í kosningunni og þriðji varð
markaskorarinn mikli frá Brem-
en, Rudi Völler. Frammistða
Schumachers í Evrópukeppni
landliða í sumar mun hafa gert
útslagið en eins og menn muna
var Asgcir valinn Knattspyrnu-
maður ársins af leikmönnum
„Bundesligunnar" sl. vor.
✓
Asgeir annar
og Rudi Völler
þriðji
Frá Jóni H. Garðarssyni
fréttamanni Þjóðviljans í V.
Þýskalandi:
Blaðamenn völdu
Ardiles frá
í mánuð
Argentínumaðurinn Osvaldo Ardi-
les mun ekki leika með Tottenham í
ensku knattspyrnunni næsta mánuð-
inn. Ardiles, lék aðeins níu leiki í
fyrravetur vegna meiðsla, á við þrálát
meiðsli í hné að stríða.
Blikar fá
markvörð
Nýliðar Breiðabliks í 1. deildinni í
handknattleik hafa náð sér í mark-
vörð fyrir slaginn í vetur. Sá er Guð-
mundur Hrafnkelsson, unglinga-
landsliðsmaður úr Fylki.
Getraunir
Enginn seðill með 12 réttum
leikjum fannst í fyrstu leikviku Get-
rauna. Tveir voru með 11 rétta og var
vinningur fyrir hvora röð kr. 88,470.
Þá voru 70 raðir með 10 rétta og vinn-
ingur fyrir hverja kr. 1,083.
Miðvikudagur 29. ágúst 1984 ÞJÖÐVIUINN - SÍÐA 23