Þjóðviljinn - 29.08.1984, Síða 24
Aðalsfmi: 81333. Kvöldsími: 81348. Helgarsími: 81663.
Miðvikudagur 29. ágúst 1984 194. tölublað 49. árgangur
DJÓÐVIUINN
Ratsjárstöðvar
Þjóna ekki skipaumferð
Ratsjárstöðvarnar ekkert með varnir Islands að gera.
Koma að mjög takmörkuðu haldifyrir almenna flugumferð. Engar vélar birtast skyndilega
og án viðvörunar í námunda við lofthelgi Islands
Mér er ekki kunnugt um það
að nokkurs staðar í heimin-
um sé loftvarnarradar brúklegur
til þess að þjóna skipaumferð,
segir Malcolm Spaven upplýs-
ingastjóri ADIU við Sussex há-
skóla í Brighton. „Upplýsingai
utanríkisráðherra íslands
skýrslu hans til Aiþingis frá því í
aprfl koma mér því afar spánskt
fyrir sjónir. Þar segir hann m.a.
um nýju ratsjárstöðvarnar sem
ætlunin er að setja upp á Vest-
Qörðum og Austfjörðum: „Stöðv-
arnar myndu koma að miklu
í gagni við upplýsingamiðlun til
Radarstöðvarnar
Andstaðan
styrkist
flugmálastjórnar og landhelgis-
gæslu varðandi skipa- og flugum-
ferð“.
í viðtali við Malcolm Spaven
sem birt verður í heild í Þjóðvilj-
anum síðar í vikunni segir hann
að hinar nýju ratsjárstöðvar séu
hlekkir í hinni svokölluðu DEW-
keðju sem hafi það hlutverk að
vara bandarísku herstjórnina við
árásum mannaðra sovéskra
sprengjuflugvéla á Bandaríkin.
Þessi ratsjárkeðja komi vörnum á
íslensku landsvæði ekkert við. Þá
telur Spaven einnig að sé um loft-
varnarradar í DEW-keðjunni að
ræða komi hann ekki að miklum
notum fyrir almenna flugumferð,
til þess sé hann of sérhæfður til
hernaðarnota og sérstök mót-
tökutæki þurfi í flugvélum sem
hann nýta.
Malcolm Spaven: Skýrsla utanríkis-
ráðherra um varnar- og öryggismál
kemur mér afar spánskt fyrir sjónir.
Malcolm Spaven gerir það
einnig að sérstöku umtalsefni að
Geir Hallgrímsson utanríkisráð-
herra hljóti að hafa farið rangt
með er hann sagði í skýrslu sinni:
„Rætt hefur verið um byggingu
nýrra ratsjárstöðva til að bæta úr
brýnni þörf á eftirliti með her-
flugvélum, er birtast skyndilega í
námunda við lofthelgi Islands án
nokkurrar viðvörunar eða til-
kynningar." „Þetta fær ekki stað-
ist“, segir Spaven. „Engar flug-
vélar birtast skyndilega hér um
slóðir. Áður en þær koma svo
sunnar og vestarlega hafa þær
fyrir löngu verið uppgötvaðar af
hlustunarstöðvum í Noregi og
gervihnöttum. í raun er það svo
að NATO fylgist með þeim frá
því að þær búa sig til flugtaks á
flugvöllum í Sovétríkjunum".
Kristinn Gunnarsson: Staðfestingá
fyrri samþykktframsóknarmanna.
Þrýstingur á stjórnvöld eykst
Hornstrandir
Þessi niðurstaða er bara stað-
festing á samþykkt þcirra i
fyrra þar sem þeir lögðust gegn
radarstöðinni, og er verulegur
styrkur fyrir þá sem eru andvígir
henni, sagði Kristinn Gunnars-
son bæjarfulltrúi Alþýðubanda-
lagsins á Bolungarvík um þau
átök sem urðu á kjördæmisþingi
framsóknarmanna þar vestra um
síðustu helgi út af uppsetningu
radarstöðva á Bolungarvík.
„í fyrra kom fram mjög sterk
andstaða almennings við stöð-
ina“, sagði Kristinn: „Kjördæm-
isþing framsóknarmanna, Al-
þýðuflokks og Alþýðubandalags
gerðu öll samþykkt gegn henni,
og auk þess prestastefna - og
þessi niðurstaða framsóknar-
manna sýnir að þessi andstaða
hefur ekíci minnkað“.
„Vinnubrögð Steingrfms við
að berja þetta niður minna
óneitanlega á vinnubrögðin al-
mennt í þessu máli - það er reynt
að hjúpa það þögn og um leið er
verið með leynimakk. Ýmsir að-
iljar í bænum voru á sínum tíma
látnir vita hvað til stæði.
Steingrímur fékk sitt ekki í gegn
núna og það sýnir að innan Fram-
sóknarflokksins er meirihluta-
andstaða gegn stöðvunum".
Kristinn sagði að allt makkið í
kringum þetta mál og leyndin
hefði gert það að verkum að
bæjarbúar hafi beðið með að taka
afstöðu, en taldi niðurstöðuna af
þingi framsóknarmanna auka
verulega þrýstinginn á stjórnvöld
að svipta leyndarhulunni af mál-
inu og veita einhverjar upplýsing-
ar. -ga‘
Refurinn réttdræpur
4ágúst s.l. rann út frestur til
■ að skila athugasemdum við
nýja reglugerð um friðlandið á
Hornströndum og má búast við
að hún taki gildi fljótlega með
haustinu. Nýja reglugerðin mun
þó í engu breyta þeirri staðreynd
að refur er réttdræpur á Horn-
ströndum sem annars staðar
meðan í gildi eru lögin um eyð-
ingu minka og refa.
Viðtal Þjóðviljans við
Hallvarð Guðlaugsson um skot-
gleði manna og refadráp á Horn-
ströndum nú um helgina vakti
mikla athygli en þar gagnrýndi
Hallvarður m.a. Náttúruvernd-
arráð og landeigendur fyrir að
sitja með hendur í skauti þegar
friðlýst svæði væri orðið það sem
hann kallar „æfinga- og dráps-
svæði fyrir skotveiðimenn".
„Ég er sammála því að þó dráp
refa á Hornströndum sé löglegt
þá er það siðlaust", sagði Gísli
Gíslason framkvæmdastjóri
Náttúruverndarráðs í gær, „en
mér finnst ekki að gagnrýninni sé
beint til réttra aðila, þar sem er
Náttúruvemdarráð. Ráðið hefur
sökum fjárskorts haft eftirlit
þarna í lágmarki og ég er sam-
mála því að það verði að taka upp
samstarf við heimaaðila þarna til
að auka það. Samstarf milli Nátt-
úruverndarráðs og Landeigenda-
félagsins hefur líka verið gott og
nýja reglugerðin er einmitt af-
rakstur þess“.
Gísli sagði að nú væri unnið að
því að yfirfara athugasemdirnar
sem bárust vegna nýrrar reglu-
gerðar, en taki hún gildi óbreytt
mun öll skotveiði bönnuð á tíma-
bilinu júní til september og að-
eins landeigendum heimilt að
fara með skotvopn á öðrum árs-
tíma til hefðbundinna nytja.
Hann sagði einnig að Náttúru-
verndarráð myndi fljótlega láta
eitthvað frá sér fara í tilefni af
ummælum Hallvarðs.
-ÁI
Sjá einnig bls. 2
GuðmundurJ. í
hryllingsmynd!
Draugafantasía - Magnús Gunn-
arsson leikur ekki aðalhlutverkið.
Kaupir VSÍsýningarréttinn?
(gær klukkan 17 hélt samstarfsnefnd um kvennaáratuginn fund I Rúgbrauðsgerðinni. Á fundinum voru reifaðar tillögur
sem hafa komið fram um aðgerðir til að minna á kvennaáratuginn. Á myndinni má sjá frá vinstri Elínu Pálsdóttur
Flygenring, framkvæmdastjóra jafnréttisráðs, Guðríði Þorsteinsdóttur ásamt Vilborgu Harðardóttur. Atli tók myndina.
Hvar í fjandanum náðirðu
þessu upp, drengur? spurði
Guðmundur Jóhann Guðmunds-
son, formaður Dagsbránar og hló
svo drundi í húsinu þegar blaða-
maður spurði hann hvort rétt
væri að hann hefði nýlokið að
leika í hryllingsmynd, sem Viðar
Víkingsson stjórnar.
„Jú, það þýðir víst ekkert að
neita þessu. Þetta var ægilegt
grín, maður. Ég var rifinn útaf
samningafundi í síðustu viku til
að leika sjálfan mig upp í sjón-
varpi og ég held myndin eigi að
heita Rauðhærða afturgangan.
Heldurðu að það sé nafn, lags-
maður?“ sagði Guðmundur og
hló öðru sinni svo djúpum hlátri
að glerið í glugganum nötraði.
Þess má geta að myndin, sem
gekk undir vinnunafninu Rauð-
hærða afturgangan, mun verða
kölluð Draugasaga og höfundur-
inn er Oddur Björnsson. Ein að-
alpersónan er snyrtidama í sjón-
varpinu og samkvæmt heimildum
Þjóðviljans kemur Guðmundur
þar sem stjórnmálamaður í förð-
un fyrir upptöku og segir meðal
annars þessa ódauðlegu setningu
sem mun ekki hafa verið sam-
kvæmt handritinu:
„Reyndu að ná fram festunni í
svipnum en tapaðu þó ekki æsku-
töfrunum, - sem nóg er af!“
-ÖS
Utanríkismálanefnd AB
Opinn fundur
með Malcolm
Spaven
Utanríkismálanefnd Alþýðubanda-
lagsins efnir til opins fundar í kvöld
kl. 21 að Hverfisgötu 105 þar sem
Malcolm Spaven, höfundur bókar-
innar Fortress Scotland, mun ræða
vígbúnað á Norður-Atlantshafi og
tengsl fjarskipta- og ratsjárstöðva við
hann. Fundurmn er öllum opinn.