Þjóðviljinn - 16.12.1984, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 16.12.1984, Qupperneq 14
BÆJARROLT Kristinn Sigmundsson ó hljómplötu Út er komin hjá Erni og Örlygi hljómplata með söng Kristins Sigmundssonar. Jónas Ingi- mundarson leikr.r með á píanó. Á plötunni eru vinsæl íslensk og erlend iög, svo sem „Fögur sem forðum", „í fjarlægð“, „On the road to Mandalay" og „The foggy, foggy dew“, einnig lög eftir Tosti og Richard Strauss. Alls eru á plötunni 16 lög. Mjög hefur verið vandað til útgáfunnar og m.a. fer pressun fram á sér- stakan gæða vínyl sem ekki h$fur verið notaður hérlendis áður og gefur plötunni tærari og hreinni tón og betri endingu. Allir textar eru prentaðir og fylgja með þýð- ingar. Hljóðritun annaðist Hall- dór Víkingsson að Logalandi í Reykholtsdal í Borgarfirði í sum- ar, en þar er úrváls hljóðfæri af gerðinni Steinway & Sons. Upp- takan er einnig fáanleg á kas- settu. Njóttu lífsins Iðunn hefur gefíð út nýja bók eftir norska unglingasagnahöf- undinn Evi Bögenœs. Nefnist hún Njóttu lífsins. Margrét Jónsdóttir þýddi. Evi Bögenæs er kunnur og vin- sæll höfundur í Noregi og víðar og allmargar sagna hennar hafa áður verið þýddar á íslensku. Þær fjalla yfirleitt um ungar stúlkur og svo er um þessa nýju sögu. Um efni hennar segir svo í kynningu forlagsins: „Anna Elín er nítján ára. Hún býr yfir miklum tónlist- arhæfileikum og dreymir um að verða píanóleikari. Samt er hún óhamingjusöm. Þá hittir hún Andrés, ungan og glæsilegan pilt. Kápumynd á Njóttu lífsins gerði Brian Pilkington. (fftl BSAB Aöalfundur almennrar deildar (væntanlegir byggjendur) Byggingasamvinnufélagsins Aðalbóls, B.S.A.B., veröur haldinn mánu- daginn 17. desember n.k. kl. 20.00 í mötu- neyti félagsins í Kringlunni 87 (vestan Hvassaleitis). Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Stjórnin Hjúkrunarfræðingar Ráðgert er að stjórnunarnám fyrir hjúkrunarfræðinga hefjist í Hjúkrunarskóla íslands á vorönn 1985. Gert er ráð fyrir þriggja missera námi, ca. 10 einingar á misseri. Umsóknareyðublöð, ásamt upplýsingum um námið, fást í Hjúkrunarskóla (slands, Eiríksgötu 34, 101 Reykjavík. Skólastjóri Frá Vísindasjóði Umsóknarfrestur um styrki ársins 1985 rennur út 1. febrúar 1985. Athugið breytingu á umsóknarfresti frá því sem verið hefur undanfarin ár. Upplýsingar um styrkina veita Þorleifur Jónsson bókavörður á Lands- bókasafni fyrir Hugvísindadeild og Sveinn Ingvarsson konrektor Menntaskólans við Hamrahlíð fyrir Raun- vísindadeild. Vísindasjóður. Kalt er Kvennaráð Ég sat á löngum borgar- stjórnarfundi í fyrri viku og bar þar margt merkilegt á góma eins og gerist og gengur og var margt viturlegt sagt. Samt voru umræð- urnar nú hálf sofandalegar á köflum og þá vildi hugurinn hvarfla víða, jafnvel langt út í ómælisgeim. Svo fór maður að dunda sér við að skotra augum á háttvirta kvenborgarfulltrúa, ekki þó alla jafnt. Það er nú bara mannlegt. ' Allt í einu glaðvaknaði ég og það var reyndar kvenfólkið sem því olli. Ekki svo að skilja að amor hefði skotið ör í hjarta. Sei, sei, nei, nei. Það var annars kon- ar ör sem mér var skotið í hjarta og það gerði borgarfulltrúi Guð- rún Jónsdóttir. Hún var að lýsa tillögum Kvennaframboðs og þar kom máli hennar að hún lagði til að stofnað yrði nýtt yfirráð í borg- inni sem kallað yrði Kvennaráð. Ég sperrti eyrun. Kvennaráð á að vera forsvars- og frumkvæðisaðili um þau mál- efni borgarinnar sem snerta kon- ur sérstaklega og hafa eftirlits- skyldu gagnvart öðrum ráðum borgarinnar að framlfvæmdir verði samþykktir um hvað eina sem verða má til að bæta hag kvenna. Þetta var svo sem gott og bless- að en hitt var verra að eingöngu áttu að sitja konur í þessu ráði. Þetta snerti viðkvæman streng í brjósti mínu. Ég fann hvernig léttur roði færðist upp í kinnar og hjartað sló aðeins örar. Ástæðan fyrir geðshræringu minni var sú að ég haf talið mér trú um að ég væri lýðræðissinni og tilhugsunin um að ætti að úti- loka mig frá opinberri nefnd vegna kynferðis gerði mig óðan. Já, svei mér þá. Ég var verulega sár út í þær Gunnu og Sollu sem ég hef þó að öðru leyti hinar mestu mætur á. Ég get nefnt sem dæmi að mig hefur lengi dreymt um að verða fjármálaráðherra og ef það ætti enginn að fá að gegna því emb- ætti sem ekki er annaðhvort við- skiptafræðingur eða forstjóri eða þá kominn yfir sextugt hefði ég sáralitla möguleika. Að útiloka MIG frá ráðherradómi vegna menntunar, kynferðis, litarháttar eða aldurs væri hneyksli. Ég segi nú bara ekki margt. Já, borgarfulltrúi Guðrún Jónsdóttir kom blóðinu svo sann- arlega á hreyfingu í mér og eftir þetta var ég glaðvakandi í blaða- mannastúkunni langt fram á nótt og hlustaði á hvert orð sem sagt var - hvort sem í hlut áttu karlar eða konur. Ég er ekki bara lýðræðissinni heldur líka sósíalisti en ég er þeirrar skoðunar að í sæmilega upplýstu landi eins og íslandi eigi einn hópur ekki að hafa vit fyrir öðrum nema hann Sé til þess kos- inn í almennum kosningum. Ég gæti til dæmis vel sætt mig við að borgarstjórn Reykjavíkur og all- ar hennar nefndir og ráð væru skipuð konum - en því aðeins að þær væru kosnar til viðkomandi embætta. Mjög skynsamlegt hjá mér! Þegar ég gekk út í milda vetrar- nóttina klukkan að ganga þrjú sagði ég upphátt án þess að nokk- ur heyrði um leið og ég reyndi að koma bflnum í gang: Kalt er Kvennaráð. -Guðjón ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Börn og barnafólk Opið hús Kristín Þórhallur verður á Hverfisgötu 105'laugardaginn 15. desember kl. 14-17. Myndverkstæði, leikfangahorn, veitingar svo og sérstök barna- dagskrá milli kl. 14 og 15. Söngur, upplestur o.fl. verður í umsjá Silju Aðalsteinsdóttur, Kristínar Ólafsdóttur og Þórhalls Sigurðs- sonar. M.a. verður flutt þula Theódóru Thoroddsen „Tíu litlar Ijúf- lingsmeyjar". Hvílið ykkur frá jólainnkaupunum og lítið inn í Opna húsið! ABR Flokksfélagar Greiðið gjöldin! Ágætu flokksfélagar í AB. Munið að greiða heimsenda gíróseðla vegna flokks- og félagsgjalda ársins. Gíróseðla má greiða í öllum pósthúsum og bankaútibú- um. Markmiðið er að allir verði skuldlausir um áramót. - Gjald- kerar. Stjórn ABR Stálfélagið hf. auglýsir: Aöalfundur Stálfélagsins hf. verður haldinn þriðjudag- inn 18. des. 1984 kl. 17.30 í Domus Medica, Egilsgötu 3, Reykjavík. Dagskrá: Venjuleg aðalfundastörf. 1. Skýrsla stjórnar. 2. Lagðir fram reikningar félagsins. 3. Umræður um framangreind atriði. 4. Lagabreytingar. 5. Stjórnarkjör og kjör endurskoðenda. 6. Önnur mál. Stjórnin Lilli jdln- pnkkinn STAFA- SPILIÐ Þroskandi Spennandi ódýrt Í-S/MLQiG Sími 91-73411

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.