Þjóðviljinn - 16.12.1984, Page 18

Þjóðviljinn - 16.12.1984, Page 18
islenska járnblendifélagið hf. óskar að ráða RAFEINDAVIRKJA til viðgerða og viðhalds á ýmsum rafeindabúnaði í verksmiðju félagsins á Grundartanga, svo sem PLC- kerfum, rafeindavogum, tölvum ofl. Nánari upplýsingar gefur Adolf Ásgrímsson tækni- fræðingur í síma 93-3944. og BIFVÉLAVIRKJA til starfa á fartækjaverkstæði við viðhald og viðgerðir á ýmsum vinnuvélum. Nánari upplýsingar gefur Adolf T ómasson tæknif ræð- ingur í síma 93-3944. Umsóknarfrestur er til 15. janúar n.k. Umsóknareyðublöð fást í Bókaverslun Andrésar Ní- elssonar h/f, Akranesi og skrifstofum félagsins í Reykjavík og á Grundartanga. Notum ljós í auknum mæli — í ryki, regni,þoku og sól. UMFERÐAR RÁÐ SpanSeb festíngar Fyrir smábáta eða mótorhjól og ____________| | vélsleða Hver festing fyrir 500 kg.-20 tonn. Enga spotta - Heldur handhægar og öruggar festingar Ósal Reykjavík BYKO Kópavogi & Hafnarfirði Axel Sveinbjörnss. hf. Akranesi K.B. byggingavörur, Borgarnesi Matthías Bragason, Ólafsvík Kaupfélag ísfirðinga, ísafirði Þórshamar hf., Akureyri Shell-stöðin, Neskaupstað K.A.S.K. Hornafirði Reykjavíkurnnótið Björn og Guð- mundur sigruðu Björn Eysteinsson og Guð- mundur Sv. Hermannsson urðu Reykjavíkurmeistarar í tvímenn- ingskeppni 1984. Þeir sigruðu í keppni 40 para, sem spiluð var um síðustu helgi. Röð efstu para varð þessi: stig: 1. Björn Eysteinsson - Guðm. Sv. Hermannss. 288 2. Jón Hjaltason - Hörður Arnþórsson 263 3. Guðmundur Páll Arnarson - Þórarinn Sigþórsson 257 4. Guðmundur Pétursson - Hörður Blöndal 240 4. Jón Asbjörnsson - Símon Símonarson 233 6. Asmundur Pálsson - Karl Sigurhjartarson 219 7. Jakob R. Möller - Haukur Ingason 177 8. Jón Páll Sigurjónsson - Sigfús O. Arnason 155 9. Jón Þorvarðarson - Þórir Sigursteinsson 130 10. Hjalti Elíasson - Orn Arnþórsson 117 11. Hermann Lárusson - Hrólfur Hjaltason 116 12. Hallgrímur Hallgrímsson - Sigmundur Stefánsson 110 Fleiri pör voru ekki yfir 100 stiga markinu. Peir Björn og Guðmundur náðu aðeins einu sinni forystu í þessu móti og það skeði í síðustu umferð. Mest- allt mótið leiddu þeir Jón Hjaltason og Hörður Arnþórsson, sem spilað höfðu mjög vel. Fyrir síðustu umferð höfðu þeir Jón og Hörður um 20 stiga forskot á þá Björn og Guð- mund, en gengið er fallvalt og barometerinn ber nafn sitt með rentu. Björn og Guðmundur fengu sinn stærsta plús í síðustu umferð á meðan Hörður og Jón töpuðu sinni setu. Öll sterkustu pör landsins tóku þátt í þessu móti. Mikil vandræði steðjuðu að þessu móti frá upp- hafi, vegna áhugaleysis spilara. Er ljóst að miklar breytingar verða gerðar á fyrirkomulagi Reykjavíkurmóts í tvímenning næsta ár. Það rýrir þó ekki góðan sigur þeirra Björns og Guðmund- ar, og góða frammistöðu annarra para. Þátturinn óskar Birni og Guðmundi innilega til hamingju með góðan sigur. Keppnisstjóri og útreiknings- meistari var Agnar Jörgensson og honum til aðstoðar var Halla Bergþórsdóttir. Þeirra starf í þessu móti verður seint fullþakk- að. Fullvíst má telja, að með þessu móti hafi stórir barometrar (40 pör eða stærri) gengið sér til húðar. Skortur á fólki sem er fært um að taka að sér útreikning í móti sem þessu gerir það að verk- um, að mótshaldarar (venjulega bridgesambandstjórn og Reykja- víkurdeildin) hugsa sig tvisvar um áður en lagt er út í verkefni sem þetta. Röfli einsog heyrst hefur eftir (og fyrir) mótið, að rangt hafi verið staðið að þessu móti (fjölgun keppenda og fækk- un samtölu spila) er vísað til föð- urhúsanna. í fyrra var til að mynda haldið úrtökumót fyrir Reykjavíkurmótið í tvímenning, þarsem 27 pör öðluðust þátttöku- rétt í úrslitum. Aðeins 39 pör mættu í þá úrtökukeppni, þannig að heildarfjöldi para varð 40 á síðasta ári. Þetta er sami fjöldi para og nú í ár, nema nú spiluðu ÖLL pörin í úrslitum. Það telur þátturinn vera framför. Reykja- víkurmót er og mun verða mót fjöldans frekar en einhver útvöld keppni fárra úrvalsspilara, sem „nenna“ ekki að vera að gutla í þessu með óæðri spámönnum. Þetta er hættulegt hugarfar, jafnt fyrir úrvalsspilarana sem mót- shaldara og leiðir ekki til neins nema stöðnunar. Og þeir sem vilja, vita að stöðnun er íslensku bridgelífi erfiðasti andstæðingur, ásamt þeirri einangrun sem við búum við í landfræðilegu tilliti. Næsta skrefið í Reykjavíkur- mótum framtíðarinnar verður endurskoðun á þróun (ferli) keppna í þessu móti og hvernig best er að bregðast við því áhuga- leysi sem virðist ríkja á þessu móti. Er helst áð grípa niður í tímasetningu mótsins, en þetta mót hefur ávallt verið spilað í desember. Kannski lausnin liggi þar. Nánar síðar. íslandsmótið í einmenningskeppni Eftirtaldir einstaklingar munu spila í A-riðli (16 efstu) í 3. um- ferð íslandsmótsins í ein- menningskeppni, sem lýkur á mánudaginn kemur: stig Hannes R. Jónsson 237 Eggert Benónýsson 222 Júlíana Iscbarn 221 Sverrir Kristinsson 206 Bernharður Guðmundsson 205 Erla Ellertsdóttir 205 Gunnar Þorkelsson 205 Stefán Guðjohnscn 204 Arnar Ingólfsson 196 Sveinn Jónsson 196 Ólafur Lárusson 195 Sigrún Pétursdóttir 190 Kristján Jónsson 190 Óli Valdimarsson 188 Valdimar Elíasson 188 Þorsteinn Kristjánsson 184 Til vara: Magnús Sigurjónsson 184 stig. Athygli er vakin á því að spilað verður í eins mörgum riðlum og spilarar mæta í. Þó með því for- orði að þeir sem mætt hafa áður ganga fyrir um þátttökurétt. Spil- að er í 16 manna riðlum, 2 spil ' milli para. Spilað er í Domus Medica á mánudag og hefst spilamennska kl. 19.30. Spilað er án endur- gjaldsfyrirþátttakendur. Keppn- isstjóri er Agnar Jörgensson. Fró Bridgesambandi Reykjavíkur Reykjavíkurmótið í sveita- keppni, undanrásir, hefst þriðju- daginn 8. janúar í Domus Me- dica. Þeir sem hafa áhuga á að vera með í þessu móti, sem jafn- framt er undankeppni fyrir ís- landsmótið í sveitakeppni 1985, eru vinsamlegast beðnir um að láta skrá sveitir sínar til Ólafs Lárussonar hjá Bridgesambandi fslands (s: 18350) fyrir 1. janúar n.k. Áætlaðir spiladagár í sveita- keppninni (undankeppni) eru: 8. janúar, 16. janúar, 19. janúar, 23. janúar, 26. janúar og 27. jan- úar. Spilaðir verða 3x10 spila leika, allir v/ alla í undanrásum og 6 efstu sveitirnar munu síðan kom- ast í úrslit og spila þar allir v/alla. 32 spila leik um Reykjavíkur- hornið. Stefnt er að þátttöku yfir 20 sveita og er skorað á spilara í Reykjavík að fjölmenna í þetta mót og gera veg þess sem mestan. Einsog sést af upptalningu spila- daga í undanrásum, verður lítið um helgarspilamennsku, en það hefur aðallega staðið í spilurum hér á höfuðborgarsvæðinu fram að þessu. Einnig er rétt að vekja athygli á því að þetta mót er einn- ig undankeppni fyrir íslandsmót- ið í sveitakeppni 1985. Keppnis- stjóri verður að venju Agnar Jörgensson. Keppnisgjaldi verður haldið í lágmarki pr. sveit. Spilað verður um silfurstig. Frd Briedgefélagi Reykjavíkur Eftir 11 umferðir í aðalsveitak- eppni félagsins, er staða efstu sveita þessi: stig 1 .Sv. Úrvals 239 2 .Sv. Þórarins Sigþórssonar 228 3. Sv. Jóns Baldurssonar 203 4. Sv. Júlíusar Snorrasonar 197 5. Sv. Sturlu Geirssonar 180 6. Sv. Ólafs Lárussonar 168 7. Sv. Stefáns Pálssonar 167 8. Sv. Sigurðar B. Þorsteinss. 163 Næstu 3 umferðir verða spilað- ar næsta miðvikudag og mætast þá m.a. sveitir Úrvals-Júlíusar, Þórarins-Jóns Hj., Sturlu-Þórar- ins og Úrvals-Ólafs. Aðalsveitakeppninni lýkur svo miðvikudaginn 9. janúar. Tvo þar næstu miðvikudaga á eftir (16. jan. og 23. jan.) mun félagið lána til Reykjavíkursambands- ins, í undanrásir fyrir Reykjavík- urmótið. Fró Bridgesambandi íslands Eftirtaldar bækur' fást hjá Bridgesambandi íslands þessa dagana: Bridge the Modern game Reese/Bird kr. 500 Hringsvíningar/Hrærings- þvinganir, G.Herm. kr. 400 The Complete Book of Patience, Morehead kr. 100 Improve your bidding skill Kantar kr. 250 Play Bridge with Reese Reese kr. 150 Bridge play for beginners Sheinwould kr. 150 Spilaðu bridge við mig Reese, (S.Guðjohnsen) kr. 350 Winners and losers at bridge, Goldman kr. 200 The Bridge players Alphabetical handbook Reese/Dormer kr.400 Bridge Course Complete Mollo kr. 400 Bridge Conventions Horton kr. 200 Öryggisspilamennska í bridge, Reese/Trezel (E.Guðmundsson) kr. 100 First book in bridge Sheinwould kr. 200 Winning Declarer play D.Hayden-Truscott kr. 200 Reese on play Reese kr. 300 Bridge is my game Goren kr. 300 Point count bidding Goren kr. 250 Master play Reese kr. 180 Precision club We kr. 100 Introduction to bridge Gore kr. 100 Lög um keppnisbridge þýð. Jakob R. Möller kr. 100 Kennslubók í keppnisbridge þýð. Kristj. Jónasson kr. 150 Auk þessara titla, er á leiðinni frá USÁ glæný sending af nýjum bókum, sem vonandi nást fyrir jólin. Skrifstofa Bridgesambands íslands er að Laugavegi 28, 3.hæð. Síminn er þar 91-18350 (Ólafur). 18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 16. desember 1984

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.