Þjóðviljinn - 15.01.1985, Síða 4
LEIÐARI
Aumkunarverð þögn
Fyrir helgina sendi fulltrúi Alþingis í stjórn
Landsvirkjunar frá sér greinargerö, þar sem
sýnt var með gildum rökum fram á margvísleg
mistök í stjórnun orkumála okkar. Hér er um mál
aö ræöa sem skiptir þjóðina miklu þar sem um
geipilegar upphæðir er aö tefla. í hnotskurn
voru niðurstöður greinargerðarinnar þessar:
• Umframorkugeta Landsvirkjunar - þ.e.
óseld orka sem ekki er þörf fyrir - er nú 700
til 750 gígavattstundir á ári.
• Þetta svarar til 4 - 4,5 miljarða offjárfesting-
ar hjá Landsvirkjun, eða tíunda hluta allra
erlendra skulda íslensku þjóðarinnar.
• Einungis vaxtakostnaðurinn af þeim lán-
um sem hafa verið tekin til að standa undir
þessari offjárfestingu nemur 500 miljónum
króna.
• Þetta veldur því, að orkuverð til okkar,
neytendanna, er 40 prósent hærra fyrir
vikið.
í frjálsu þjóðfélagi er það ekki einungis hlut-
verk, heldur beinlínis meginskylda allra fjöl-
miðla, að veita aðhald. í því felst að
sannleikanum skuli komið á framfæri, hvað
sem það kostar og hversu sár þorn sem hann
kann að reynast, jafnvel í eigin holdi. Undan-
farna daga hefur hins vegar komið sárlega í Ijós,
að íslenskir fjölmiðlar rísa ekki undir þessari
skyldu. Aðra ályktun er ekki hægt að draga af
meðferð þeirra á greinargerð Finnboga Jóns-
sonar.
Þar er því haldið fram með fullum rökum að
skipulagsmistök Landsvirkjunar hafi kostað ís-
lensku þjóðina gífurlegar upphæðir. Þar er líka
lagt til, að tilteknum framkvæmdum í orkuvirkj-
un verði frestað, og með því verði unnt að draga
úrerlendum lántökum sem svarartil mjög hárra
upphæða á allra næstu árum. Fyrir þjóð sem
sér ekki fram úr afborgunum af erlendum lánum
eru þetta mikilvægar upplýsingar svo ekki sé
meira sagt, og þær ásakanir um skipulagsmi-
stök Landsvirkjunar sem þar koma fram eru
mjög alvarlegar.
Þessar ásakanir hitta fyrir valdamikla aðila í
þjóðfélaginu og einsog við er að búast reynir
kerfið að þagga slíkar upplýsingar niður, reynir
að koma í veg fyrir að þær komist til almennings
sem auðvitað borgar að síðustu brúsann. Undir
slíkum kringumstæðum kemur til kasta fjöl-
miðla: þora þeir að gegna frumskyldu sinni um
upplýsingamiðlun til fólksins - eða láta þeir
flokkspólitíska hagsmuni þvinga sig til hlut-
deildar í samsæri þagnarinnar?
Enn hefur þó enginn fjölmiðill að Þjóðviljan-
um undanskildum birt greinargerð Finnboga
Jónssonar. Hvorki útvarp né sjónvarp hafa enn-
þá birt við hann ítarlegt viðtal, og raunar má um
nær alla fjölmiðlana segja, að þeir hafa beitt
meginþunga sínum að því að koma á framfæri
skoðunum þeirra sem ásakanirnar hafa beinst
að. Þýðingarmiklir fjölmiðlar einsog DV hafa
sokkið svo djúpt að þora hvorki að æmta né
skræmta um málið.
I þessu máli hafa íslenskir fjölmiðlar einfald-
lega fallið á prófinu. Þeir hafa sýnt, að þeir rísa
ekki undir upplýsingaskyldu sinni við fólkið í
landinu, en þrælsok samtryggingarkerfisins
bera þeir með prýði.
Misskilningur
Morgunbla&ins
Morgunblaðið staðhæfir í leiðara um helgina
að fullyrðing Finnboga Jónssonar um að 250
gígavatta öryggismörk Landsvirkjunar séu of
há, standist ekki. Máli sínu til stuðnings vísar
blaðiðtil eftirdæmis Ný-Sjálendinga. Hérna hef-
ur eitthvað skolast til hjá Morgunblaðsmönnum.
í Nýja-Sjálandi er nefnilega reiknað með því að
geta keríisins sé um 7 prósent umfram orkueft-
irspurn. Svipað öryggishlutfall hér á landi myndi
þýða um 100 gígavattstundir, miðað við að
orkusala Landsvirkjunar til almenningsveitna
verði 1342 gígavattstundir á árinu 1985, einsog
er áætlað. Þetta er mjög nálægt þeim 90 gíga-
vattstundum sem Finnbogi Jónsson telur eðli-
legt.
Væru hin ný-sjálensku mörk höfð sem viðmið
hérlendis, má halda fram með fullum rétti að
fjárfesting sökum of hárra öryggismarka nemi
nær einum miljarði.
-ös
KLIPPT 0G SK0RIÐ
Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstaeðisflokksins. Þetta er nú meiri „misskiln-
ingurinn". Það er ekki nóg að Mogginn og DV séu með hálfgerð ónot í Þorstein,
heldur hafa þeir landbúnaðarráðherra og félagsmálaráðherra líka snúið við
Mogginn í
Albert
Einsog á var bent í leiðara
Þjóðviljans í sl. viku, er það sér-
kennileg ósamkvæmni hjá fjár-
málaráðherra að vilja selja
eignarhlut ríkisins í Flugleiðum,
en heimta jafnframt að ráða hver
verður forstjóri fyrirtækisins.
Morgunblaðið furðar sig einnig á
þessu atriði í leiðara á laugardag-
inn og gerir gott betur, skensar
ráðherrann. „Ástæða er til að-
vara við íhlutun ríkisins í málefni
fyrirtækja á þessum forsendum“
(þ.e. þeim sem Albert gefur sér),
segir Mogurtblaðið og vill ekkert
við svona ráðherra kannast.
Mogginn í
Porstein?
Samkvæmt lausafréttum á Al-
bert Guðmundsson ekki einn að
hafa staðið á bakvið þá kröfu að
Sigurgeir Jónsson aðstoðar-
bankastjóri Seðlabankans ætti að
verða forstjóri Flugleiða, heldur
hafi fleiri flokksmenn krafist þess
arna. Fremstur í þeim flokki er
sagður vera sjálfur formaðurinn
Þorsteinn Pálsson. Þegar Morg-
unblaðið hjólar í Albert vegna
þessa - er verið að skamma eftir
Albaníu/Kína aðferðinni. Albert
höndlar í umboði Þorsteins og
geldur fyrir. Steingrímur og
Framsóknarflokkurinn vildi ekki
Sigurgeir í forstjórastólinn, - og
enn einu sinni varð Framsókn
ofan á. Mogginn er að gagnrýna
Þorstein um leið og hann hjólar í
Berta.
Misskilningur
Þorsteins
Landbúnaðarráðherra Fram-
sóknarflokksins, Jón Helgason,
gaf út nýja reglugerð um
kjarnfóðurgjaldið þannig að það
hækkaði hjá svína og alifugla-
bændum en lækkaði hjá fjár- og
nautgripabændum.
Þorsteinn Pálsson gefur út
tímamótayfirlýsingu, stjórnar-
samstarfið liggur við: „Þarna
hafa orðið veruleg mistök í sam-
skiptaháttum stjórnarflokkanna
sem ekki er hægt annað en líta
mjög alvarlega á“, segir Þor-
steinn í DV á laugardaginn. Það
er ekkert lítið sem gengur á og
engu líkara en stjórnin sé að
leysast upp. En hvernig skyldi
landbúnaðarráðherra meta þá
hótun um stjórnarslit. (mistök í
samskiptaháttum, mjög alvarlegt
mál)? Jú, í DV í gær segir Jón:
„Þetta er alger misskilningur hjá
Þorsteini Pálssyni, annað er ekki
um það að segja“.
Jamm, ekki er annað um það
að segja!
honum bakinu.
Skilur ekki
Alexander
Þorsteinn Pálsson er greinilega
í miklum vandræðum með að
skilja Framsóknarráðherrana og
þeir hann. Á forsíðu DV segist
Þorsteini svo frá í tveggja hæða
fimmdálk: „Átta mig ekki á hvað
Alexander er að fara“. Um það er
að ræða, að félagsmálaráherra
hefur lýst því yfir að ætlunin sé að
efna til skyldusparnaðar á hátekj-
ur og leggja á stóreignaskatt til að
nota í sjóð til aðstoðar íbúða-
byggjendum og -kaupendum.
Þorsteinn segir þetta „fráleitt“ -
og hugmyndir af þessum toga
hefðu verði lagðar til hliðar við
afgreiðslu fjárlaga.
Ef tekið skal mark á yfirlýsing-
um Þorsteins og Framsóknarráð-
herranna hafa reglugerðir og til-
kynningar um væntanlega laga-
setningu ekki einu sinni verið
ræddar í ríkisstjórninni, hvað þá
þingflokkum stjórnarflokkanna.
Á síðasta
snúning
Fréttirnar og skrifin, sem hér
hefur verið til vitnað, frá síðustu
þremur dögum, gefa ótvírætt til
kynna mikið ósamkomulag innan
nkisstjórnarinnar um öll mál sem
upp koma: flugleiðaforstjóra,
kjarnfóðurgjaldið, húsnæðis-
sjóðinn og svo framvegis.
í sjálfu sér er ekkert nýtt að
ósamkomulags verði vart innan
ríkisstjórnarinnar, - hitt er nýrra
að formaður Sjálfstæðisflokksins
skuli ekki skilja Framsóknarráð-
herra og að Framsóknarráðherra
skuli fjalla opinberlega um „alg-
eran misskilning" formanns
Sjálfstæðisflokksins. Þá ber og
nýrra við að Morgunblaðið og
DV skuli óbeint taka þátt í að
gera lítið úr formanni Sjálfstæðis-
flokksins einsog tilvitnuð skrif
bera vott um.
Sumir draga þá ályktun af
þessu, að ekki sé nóg með að Þor-
steinn hafi klúðrað síðustu atlög-
unni að ríkisstjórninni og verði
sjálfur því ekki ráðherra í ríkis-
stjórninni, heldur beri þetta og
vott um að valdastofnanir innan
Sjálfstæðisflokksins séu að gefa
honum reisupassann. Og þá er
komið að næsta formanni. -óg
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Rltstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fróttastjórl: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Guðjón
Friðriksson, Helgi Guðmundsson, Jóna Pálsdóttir, Lúðvík Geirsson,
Magnús H. Gíslason, Mörður Árnason, Ólafur Gíslason, Sigurdór
Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir).
Ljósmyndir: Einar Ólason, Einar Karlsson.
Útllt og hönnun: Filip Franksson, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Framkvaemdastjóri: Guörún Guðmundsdóttir.
Skrtfstofustjóri: Jóhannes Haröarson.
Auglýsingastjórl: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýslngar: Anna Guðjónsdóttir, Margrót Guðmundsdóttir.
Afgrelðslustjórl: BaJdur Jónasson.
Afgrslðsls: Bára Siguröardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Slmavarsls: Ásdís Kristinsdóttir, Sigriður Kristjánsdóttir.
Húsmseöur: Bergljót Guðjónsdóttir, Óiöf Húnfjörö.
Innhelmtumenn: Brynjóffur Vilhjálmsson, Óiafur Bjömsson.
Útkeyrsla, afgrelðsla, auglýsingar, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðvlljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Var6 í iausasóki: 30 kr.
Bunnudagsverð: 35 kr.
Aakriftarvarö á mánuðl: 300 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN' Þriðjudagur 15. janúar 1985