Þjóðviljinn - 25.01.1985, Page 6

Þjóðviljinn - 25.01.1985, Page 6
ATVINNULIF Rœkja Tífölduð framleiðsla Niðursuðuverksmiðjan á ísafirði hefur tífaldaðframleiðslu sína á 4 árum og er stœrsta rækjuverksmiðja landsins. Rœtt við Eirík Böðvarssonforstjóra Eiríkur Böðvarsson er ungur athafnamaður á ísafirði, ekki orðinn þrítugur, en hefur mörg járn í eldinum víða um land. Niðursuðuverksmiðjan hefur undir hans stjórn og fjölskyldu hans tífaldað framleiðslu sína á undanförnum árum og fyrirtækið hefur allt verið endurnýjað. Enn- fremur keypti Eiríkur stóran hlut í Siglósíld á síðasta ári, hann á í útflutningsfyrirtækinu Marbakka í Kópavogi og ennfremur fragt- skipinu ísbergi. Blaðamaður Þjóðviljans gekk á fund hans í hina nýju og glæsilegu verk- smiðju á ísafirði um síðustu helgi og spjallaði við hann um rekstur- inn. Hann var spurður að sögu fyrirtækisins. - Niðursuðuverksmiðjan var upphaflega stofnuð af bæjarfé- laginu á Isafirði, sem þá var undir stjórn Alþýðuflokksins. Þá var hún í Neðstakaupstað og eigin- lega fyrsta rækjuverksmiðja landsins þó að Norðmennirnir Olsen og Syre hefðu soðið niður í smáum stíl áður. Guðmundur G. Hagalín, sem var um langt skeið forseti bæjarstjórnar, fékk svo þá flugu í höfuðið að selja atvinnu- tæki bæjarins og faðir minn, Böðvar Sveinbjörnsson, keypti þá Niðursuðuverksmiðjuna. Hann rak hana síðan um skeið á sama stað í Neðstakaupstað en árið 1955 byggði hann uppáTorf- nesi og þar var verksmiðjan rek- in í 25 ár eða þangað til við flutt- um í þetta hús. Kom með úthafsrækjunni - Og umsvifin hafa stóraukist? - Já, skilyrðin til þess að auka framleiðsluna komu með út- hafsrækjunni á árunum 1978- 1980 og þá var farið að byggja fyrirtækið upp að ráði. Við tókum þetta nýja hús í notkun árið 1981 og sama ár keyptum við 350 tonn af rækju af Rússum og var það fyrsta Rússarækjan sem barst til landsins. Þar með var rækjumagnið tvöfaldað frá því sem áður var. Á síðasta ári unn- um við 2-3000 lestir og er það tíföldun frá árinu 1980. Þessi þró- un hefurekki bara gerst í okkar fyrirtæki heldur líka annars stað- ar og það fyrst og fremst með til- komu úthafsrækjunnar. atriði að finna nýjan markað þeg- ar markaðurinn fellur eins og í fyrra og við höfum lagt mikið á okkur að komast úr þeirri úlfa- kreppu. Þetta er m.a. afrakstur- inn af því. - Er ekki heitsjávarrækja ráð- andi á suðlægum mörkuðum? - Það er svona þumalputta- regla að 60% af heimsmarkaðn- um sé heitsjávarrækja en 40% kaldsjávarrækja. Ég tel að við höfum mikla möguleika á að auka hlut þeirrar síðartöldu þar sem hún er betra hráefni. Hitt kemur svo á móti að okkar rækja er að vísu dýrari í vinnslu. Niðursuðuverksmiðjan á Isafirði. A síðasta ári voru unnar þar 2-3000 lestir af rækju, mest úthafsrækju. Þar er unnið allt árið en áður fyrr var aðeins unnið í 3-4 mánuði. Helmingur í Siglósíld - Hefur ekki orðið mikil vél- væðing? - Alveg geysileg. 1 vor setjum við t.d. upp fullkomna pökkunar- línu og verður þá öll rækja flutt út héðan í neytendapakkningum beint á markaðinn. Það þarf ekki nema tvær manneskjur að vinna við þessar vélar. - Er það nýjung að flytja beint út í neytendapakkningum? - Já, hingað til hefur t.d. Sölu- miðstöðin haft ;'i sír.um snærum pökkunarverksmiðju fyrir rækju á Evrópumarkað í Bretlandi. - Var ekki síðasta ár erfitt? - Árin 1982 og 1983 voru hrein veltiár en síðasta ár var erfitt. Þá varð verðhrun á rækju og eftir- spurn minnkaði stórlega. Fyrir- tækið er því í járnum núna eftir nokkur góð ár. - Hvernig stendur á þessu verðhruni? - Það kemur margt inn í það, m.a. Hollandsslysið og einnig kemur stóraukin framleiðsla inn í dæmið. Þessi mikla keyrsla hjá okkur gerir samt ekki stórt strik í reikninginn því að samkeppnis- þjóðirnar eru mjög stórar í snið- um. Það er reyndar fyrst og fremst þessi aukning á fram- leiðslunni hjá okkur sem hefur skapað aukinn arð og gerir það að verkum að nú er verksmiðjan rekin allt árið í stað 3-4 mánaða áður. Það að við sitjum uppi með miklar birgðir hefur hins vegar skapað okkur vanda og einnig lækkuð afurðalán. Bilson Langholtsvegi 115 Mótor - hjóla og ljósastillingar. Fullkomin tölvutæicni. Fast verð á ljósastilingu. Vönduð og góð vinna. Sími 81090 Blikkiðjan Iðnbúð 3, Garðabæ Onnumst þakrennusmiði og uppsetningu — ennfremur hverskonar blikksmíöi. Gerum föst verðtilboö SÍMI 46711 Eiríkur Böðvarsson 29 ára; með umsvifamikinn atvinnurekstur í þremur landsfjórðungum. Ljósm.: GFr. - Eigið þið eigin rækjubáta? - Það má segja að á okkar veg- um hér á ísafirði séu þrír bátar sem við eigum að einhverju leyti. Þar á meðal er gamall síðutogari, Arnarnesið, sem var breytt í frystiskip að hluta og í næstu viku fáum við afhent riýsmíðað skip frá Njarðvík sem hefur fengið nafnið Haukur Böðvarsson eftir bróður mínum sem er látinn. - Hversu mikið magn fáið þið af úthafsrækju? - Við unnum úr 1800 tonnum á síðasta ári, þar af 1000 tonnum sem við keyptum ekki en unnum fyrir breskt fyrirtæki. Einn skipsfarmur af Rússarækju er jafnmikill og tvær heilar vertíðar af Djúprækjunni. Viðerum núað byggja stóran frystiklefa og hann gerir okkur kleift að þýða fryst hráefni allt árið til vinnslu. - Hversu margt starfsfólk er hér í Niðursuðuverksmiðjunni? - Hér vinna um 30 manns en með gamla laginu hefði þurft 100 manns að vinna allt hráefnið sem berst á land. Þess má geta að sú breyting hefur orðið að fleiri karlmenn vinna nú við fyrirtækið en konur. Það gerir uppþýðingin, löndunin og fleira. Af starfsfólk- inu eru 8-10 konur í hreinsuninni og 2-4 í pökkuninni. - Þið flytjið sjálfir út ykkar framleiðslu? - Já, við stofnuðum þrír saman fyrirtækið Marbakka h.f. í Kópa- vogi og það flytur út alla rækuna. Auk mín eru eigendur fyrirtækis- ! 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN ins Jón Guðlaugur Magnússon, mágur minn, og Magnús Aspe- lund. Annars höfum við alla tíð verið frjálsir söluaðilar nema 1-2 ár. - Og þið hafið eigið farskip í förum? - Já, við stofnuðum til þess ásamt nokkrum öðrum aðilum að kaupa frystiskipið ísberg og höf- um notið þess verulega hvað það skapar mikið öryggi. Það hefur flutt framleiðsluna frá okkur, togaranum Örvari á Skagaströnd ásamt öðrum tilfallandi flutning- um. Við erum einu framleiðend- urnir á landinu sem eigum eigið skip og þetta er mjög farsæl út- gerð. Nýr markaður í suðri - Mér skilst að það hafi verið haft eftir þér að næst því að eiga olíulind í Arabíu sé best að eiga farskip á íslandi? - Já, það breytist að vísu núna með lækkunum á farmgjöldum en eignin á skipinu hefur skilað sér í því að fyrirtækið hefur byggst upp. Ég tek það fram að við skiptum einnig mikið við Eimskip og önnur skipafélög. - Hafið þið unnið einhverja nýja markaði? - Okkar hefðbundnu markaðir eru íEvrópu, aðallega Bretlandi, Þýskalandi og Danmörku. Á síð- asta ári gerðum við svo fimm ára samning við Spán og er það í fyrsta skipti sem pilluð rækja er seld þangað. Það er grundvallar- - Þú ert með umsvif á Siglufirði líka? - Já, um síðustu áramót var Siglósfld seld og stofnað fyrirtæk- ið Sigló h.f. Eg og Jón Guð- laugur, mágur minn, eigum helming í fyrirtækinu á móti Siglfirðingum. - Hvernig hefur rekstur Siglós h.f. gengið? - Við vorum nú svo ópheppnir að lenda í verstu markaðskrísu í mörg ár rétt þegar fyrirtækið var að fara af stað. En reksturinn hef- ur samt gengið sæmilega. Fyrir- tækið var áður mjög ofsetið af fólki og höfum við því fækkað starfsmönnum verulega en þar kemur á móti að við höfum kom- ið upp rækjuvinnslu í verksmiðj- unni og hún hefur skapað vinnu þó að utn aukna vélvæðingu hafi líka verið að ræða. - Hvað hefur starfsfólkinu fækkað mikið? - Það var áður á 2. hundrað manns en er komið niður í um 50 manns. — Nú skilst mér að Niðursuðu- verksmiðjan á ísafirði sé stærsta rækjuverksmiðja landsins. Hversu mikinn hluta af allri rækju sem barst á land í fyrra fékk verksmiðjan og svo Sigló h.f.? - Af úthafsrækjunni einni barst um 30% til þessara tveggja fyrir- tækja. - Og þú ert bjartsýnn? - Já. Þrátt fyrir erfitt ár nú að undanförnu höfum við öll skil- yrði til þess að standa okkur, höf- um gott fyrirtæki, starfsfólk og vélakost. -GFr H/TT LfikhÚsiÖ 7. syning laugardag 26. jan. kl. 21.00. Osottar pantanir seldar i dag. 8. syning sunnudag 27. jan. kl. 21.00. 9. syning manudag 28. jan. kl. 21.00. 10. syning þriðjudag 29. jan. kl. 21.00. 11. syning miðvikudag 30. jan. kl. 21.00 t ntr»l A APInUV W/ninAI'A F7& ÓDÝRARI barnaföt bleyjur leikföng

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.