Þjóðviljinn - 25.01.1985, Side 21

Þjóðviljinn - 25.01.1985, Side 21
UM HELGINA Tónlist Sænskur blásara- kvintett Leiklistarskólinn Aljona og ívan Myrkir músíkdagar í vœndum. Forsmekkur af þeim fœst um helgina en þá leikur hérfrœgur sænskur blásarakvintett Litli Kláus og Stóri Kláus eru á fullu hjá Revíuleikhúsinu í Bæjarbíói í Hafnarfirði og hefur mælst vel fyrir, ekki síst hjá yngri kynslóðinni. Er ómaksins vert að fara með litla fólkið að sjá þessa skemmtilegu sýningu. Næstu sýningar verða kl. 2 síðdegis á laugardag og sunnudag. Á myndinni eru þær Sólveig Pálsdóttir, Margrét Ákadóttir og Guðrún Alfreðsdóttir í hlutverkum sínum Þriðji bekkur Leiklistarskólans og nemendur úr Tónlistarskólanum frumsýna sovéskt barnaleikrit á sunnudag Blásarakvintettinn frá Falu var stofnaður árið 1976 og hefur unn- ið sér sess sem einn fremsti blás- arakvintett á Norðurlöndum og hefur einnig unnið til verðlauna í alþjóðlegri tónlistarsamkeppni í Frakklandi. Kvintettinn skipa Hans Malmsten á flautu, Par Sjöberg á óbó, Per-Olow Pell á klarinett, Bengt Olerás á horn og Lars Hill- eskár á fagott. Það er orðin árviss hefð að halda Myrka músíkdaga á þess- um árstíma og hefjast þeir af full- um krafti um aðra helgi. Þó verð- ur eins konar forstart núna um helgina þegar sænski Falu blásar- akvintettinn heldur hljómleika í Norræna húsinu en hann gat ekki komið við að heiðra okkur með nærveru sinni um aðra helgi þar sem hann er mjög eftirsóttur. Þriðji bekkur Leiklistarskóla íslands ásamt nemendum úr Tónlistarskólanum í Reykjavík frumsýna barnaleikritið „Aljonu og ívan“ kl. 5 n.k. sunnudag í Lindarbæ. Þetta er sovéskt ævin- týri um töfratréð í skóginum, en það getur talað og læknað alla sjúkdóma og systkinin Aljonu og fvan sem reyna að fá áheyrn hjá trénu. Tónlistina í sýningunni samdi Finnur Torfi Stefánsson, nem- andi í tónfræðadeild Tónlistar- skólans, en búninga gerði Anna Jóna Jónsdóttir. Gestaleikari í sýningunni er Jóhann Sigurðs- son. Leikstjóri: Þórunn Sigurðar- dóttir. Nemendur þriðja bekkjar Leiklistarskólans eru þau Bryn- dís Bragadóttir, Eiríkur Guð- mundsson, Guðbjörg Þórisdótt- ir, Inga Hildur Haraldsdóttir, Skúli Gautason og Valdimar Örn Flygenring, en nemendur úr tón- listarskólanum þau Ásdís Arnar- dóttir, Hanna Margrét Sverris- dóttir, Herdís Jónsdóttir, Jóhann Ingólfsson og Kristín Guðmunds- dóttir. Hljómleikarnir verða á laugar- dag kl. 17 og á efnisskrá eru verk eftir Kokkonen, Malmlöf- Forssling, Bo Nilsson, Hans Hol- ewa og Leif Þórarinsson. -GFr Leikendur og aðrir aðstandendur Aljonu og ívans Leikfélag Reykjavíkur Síöasta sýning á Félegu fési Á laugardagskvöldið verður síðasta sýning í Austurbæjarbíói á skopleiknum FÉLEGU FÉSI eftir Dario Fo en þetta bráð- skemmtilega leikrit hefur verið leikið þar við góðar undirtektir frá því í haust. Ellefu leikarar koma fram í sýningunni, þar á meðal nokkrir sem ekki hafa leikið áður hjá Leikfélaginu: Viðar Eggertsson, Kjartan Bjargmundsson og Guðmundur Ólafsson en stærstu hlutverkin eru í höndum Aðalsteins Bergdal, Bríetar Héðinsdóttur, Þorsteins Gunnarssonar, Hönnu Maríu Karlsdóttur, Kjartans Ragnars- sonar og Guðmundar Pálssonar. Leikstjóri er Gísli Rúnar Jónsson en þýðandi Þórarinn Eldjárn. í kvöld (föstudagskvöld) er nýjasta viðfangsefni Leikfélags- Iðnó. Þetta bandaríska verð- ins Agnes - barn Guðs, sýnt í launaleikrit hefur vakið mikla at- Úr Félegu fési: Allt í pati á sjúkrahúsinu hygli og þykir mjög spennandi. Annað kvöld er DAGBÓK ÖNNUR FRANK sýnd og er það 25. sýning á verkinu. Þessi sýning hefur failið í mjög góðan farveg og leikur og sviðsetning hlotið hrós, ekki síst þykir Guðrún Kristmannsdóttir standa sig vel í hlutverki Önnu Frank, en Guð- rún er aðeins 16 ára gömul. Á sunnudagskvöldið er svo GÍSL í 65. skipti en ekkert lát er á aðsókn á þetta verk og hefur það nú verið sýnt á annað ár fyrir fullu húsi. Fimmtán leikarar leika, syngja og spila í sýningunni, sem .gerist á Irlandi, þar sem írski lýð- veldisherinn hefur handtekið breskan pilt og heldur honum í gíslingu innan um gleðikonur og galgopa af ýmsu tagi. Föstudagur 25. janúar 1985 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 21 Gedda forfallast Vegna veikinda Nicolai Gedda falla tónleikarnir sem vera áttu mánudaginn 28. janúar nk. nið- ur. Vonir standa til að hann geti komið til íslands næsta haust og verða þeir tónleikar þá hluti af tónleikaáætlun næsta vetrar. Þessir tónleikar áttu að vera þeir síðustu á fyrri hluta starfsvetrar og í stað Nicolai Gedda hefur Tónlistarfélagið fengið KARL JOHAN FALKMAN, bariton frá Konungl. óperunni í Stokk- hólmi ásamt Jan Eyron, píanó- leikara, til að halda tónleika í Austurbæjarbíói laugardaginn 2. febrúar nk. kl. 14.30. Á efnis- skránni verða m.a. lög eftir Ra- vel, Rangström og ýmsar óperu- aríur. Miðar sem ætlaðir voru á tón- leika Nicolai Gedda gilda á þessa tónleika. Ef óskað er, fást auka- miðar sem seldir voru, endur- greiddir þar sem þeir voru keyptir. Þjóðleikhúsið Síðustu sýningar á Skugga- Sveini Nú fer hver að verða síðastur til að sjá leikrit Matthíasar Joc- humssonar, Skugga-Svein, í Þjóðleikhúsinu, í uppfærslu Brynju Benediktsdóttur. Leikrit- ið verður sýnt í kvöld, föstudags- kvöld og eru þá aðeins tvær sýn- ingar eftir á þessum alkunna al- þýðugamanleik. Ný tónlist við verkið er eftir Jón Ásgeirsson. Akureyri Tónleikar í Borgarbíói Tónlistarskólinn á Akureyri efnir til tónleika í Borgarbíói næstkomandi laugardag 26. jan. kl. 17. Tónleikarnir eru haldnir fyrir Minningarsjóð Þorgerðar, en sjóðurinn var stofnaður til minn- ingar um Þorgerði S. Eiríksdótt- ur, en hún var einn af efnilegustu nemendum Tónlistarskólans á Akureyri og lést árið 1972. Sjóð- urinn hefur styrkt fram til þessa 15 nemendur skólans vegna framhaldsnáms í tónlist. Á tónleikunum á laugardaginn verður boðið upp á fjölbreytta efnisskrá. Flytjendur eru úr hópi nemenda og k.ennara skólans. Tekið verður við frjálsum ffam- lögum viðinnganginn,errenna í minningarsjóðinn.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.