Þjóðviljinn - 06.02.1985, Blaðsíða 5
Seyðisfjörður
Séð niður í Seyðisfjörð ofan af Fjarðarheiði.
fyrir skip í því augnamiði að
styðja og efla þennan þýðingar-
mikla þátt í atvinnulífinu. Sú
stefna íslenskra stjórnvalda að
hætta nýsmíði íslenskra fiskiskipa
fær ekíci staðist til lengdar og
mikil vinna er framundan í við-
haldi og endurnýjun íslenska
bátaflotans. Og þó að nú um
stundir sé útlitið dökkt í þessum
málum þá má ætla að bjartara sé
framundan þannig að þessi tvö
fyrirtæki, sem lagt hafa drjúgan
skerf til viðhalds og endurnýjun-
ar fiskiskipaflotans verði áfram
sú máttarstoð í seyðfírsku
atvinnulífi sem þau hafa verið
hingað til.
Rafmagnsverkstæði, trésmíða-
verkstæði, steypustöð, netagerð,
bakarí og fjölritunarstofa veita
að staðaldri um 30 manns atvinnu
og um mesta álagstímann - að
sumrinu - 50-60 manns. Tíu
verslanir og þrír söluskálar eru í
kaupstaðnum og starfa þar um 25
manns. Við banka vinna 12 og við
skóla 18. Skrifstofur veita 25
manns vinnu og 10 vinna hjá
Seyðisfjarðarkaupstað. Við dag-
heimili vinna 7, við sjúkrahúsið 8
og við höfnina 3.
Inn- og útflutningur ferða-
manna og vöruflutningar á sjó er
vaxandi grein. Nýtt fyrirtæki var
stofnað í vor og sinnir það ein-
göngu þessum þætti.
íbúafjöldi 1. des. 1983 var 993.
Heildaraukning frá 1971-1983
var 16,2%. Meðaltalsaukning á
sama tímabili var 1,3%. Mest
varð aukningin 1972, 5,7%.
Fækkun varð árin 1976, 1977,
1980, 1981 og 1983. Mest varð
hún 1980, 2,8%. - mhg.
Fær ekki staðist til lengdar aðflytja
nýsmíði skipa úr landi
Um Seyðisfjarðarkaupstað
gildir hið sama og um flesta
þéttbýlisstaði austanlands, að
þar er undirstaða atvinnulífs-
ins sjávarútvegur, fiskvinnsla
og tengdar greinar.
Tvö frystihús, tvær mjölverk-
smiðjur og tvær söltunarstöðvar
eru í kaupstaðnum og tveir aðilar
verka saltfisk. Seyðfirðingar hafa
tvo skuttogara, eitt 150 tonna
skip, fjóra 10-12 tonna báta og 35
smærri trillur. Láta mun nærri að
60-70% íbúanna fái tekjur sínar
frá þessum fyrirtækjum.
Síðustu árin hefur atvinna ver-
ið næg í þessum undirstöðuat-
vinnugreinum. Þó hefur nokkurs
atvinnuleysis gætt kringum ára-
mót af og til. A sl. sumri stc
ist stærsta fyrirtækið, sem
frystihús og togara og olli það til-
finnanlegu atvinnuleysi. Flest
önnur fyriTtæki í kaupstaðnum
eru meira og minna háð afkomu
útgerðar og fiskvinnslu, svo sem
netagerð, vélsmiðjur, rafvirkjun
og trésmíði. Og komi brestur í
undirstöðuna er því hætt, sem á
henni hvflir.
Tvær vélsmiðjur eru í kaup-
staðnum, Stál hf. og Vélsmiðja
Seyðisfjarðar. Par vinna stöðugt
50-70 manns. Þessi fyrirtæki búa
yfir mikilli þekkingu á nýsmíði og
viðgerðum skipa og ýmiss konar
málmsmíði. Hafnarsjóður hefur
ákveðið að byggja dráttarbraut
Raskist
undirstaðan
er öðm hætl
Bændaskólarnir
Hestamennskan
blómstrar
Istékk - Glóbus
Zetor-dráttarvéla
Hestamennskan lifir góðu
lífi í bændaskólunum enn sem
fyrr við báða skólana, Hvann-
eyrar og Hóla, starfa hesta-
mannafélög nemenda.
Við höfum fregnað að á
Hvanneyri séu 40 nemendur með
hesta. Haldinn hefur verið
fræðslufundur um hesta-
mennsku. Nemendur fá tilsögn í
jámingum og tamningum og ann-
ast hana Sigurður Oddur Ragn-
arsson frá Oddsstöðum. Ne-
mendur hafa með sér hesta-
mannafélag, sem nefnist Grani.
Formaður þess er Víkingur
Gunnarsson frá Akureyri.
Víkur nú sögunni til Hóla. Þar
verða 19 nemendur með hross.
Ingimar Ingimarsson kennir
tamningar enn sem fyrr, með að-
stoð Eyrúnar Önnu Sigurðar-
dóttur frá Flugumýri. Formaður
Hestamannafélagsins Hreins á
Hólum er Helgi Leifur Sigmars-
son frá Breiðdalsvík. Kennari í
hrossarækt er Hjördís Gísladótt-
ir, búfræðikandidat frá Hofi í
Vatnsdal.
- mhg.
Ný gerð
Á þessu ári mun íslensk-
Tékkneska verslunarfélagið
hf. (ístékk), í samvinnu við Gló-
bus hf., hefja innflutning á
nýrri gerð Zetor-dráttarvéla. Er
það gerð 5245, 47 hestafla,
með drifi á öllum hjólum. -
Með tilkomu þessarar dráttar-
vélar teljum við að mætt sé
brýnni þörf fyrir hentuga
heimilisdráttarvél á einstak-
lega góðu verði, sögðu for-
ráðamenn fyrirtækisins á
fundi með fréttamönnum nú
nýlega.
Á þessa gerð verður mest
áhersla lögð á næstunni í von um
að bændur taki þessari nýjung
vel. Auk hinnar nýju vélar flytur
fyrirtækið inn þrjár aðrar gerðir
og stærðir af Zetor-dráttarvélum:
gerð 5211, 47 ha., 7211 65 ha. og
7245, 65 ha. og er hún með fjór-
hjóladrifi.
Hinni nýju vél fylgir margvís-
legur aukaútbúnaður „og má full-
yrða að engin dráttarvél hefur
verið seld hér á íslandi með eins
fullkomnum útbúnaði og þessar
nýju vélar frá Zetor“. Meðal nýj-
unga og breytinga er nýtt
olíuverk, sem gerir vélina mun
þýðgengrari, breytingar á vél,
sem tryggir betri endingu og
minni eldsneytiseyðslu, kröftu-
gra vökvakerfi, sem eykur veru-
lega lyftigetu þrítengibeislis og
annarra viðtengdra tækja,
breytingu á vökvastýri, sem gerir
það mun léttara en áður, öflugri
miðstöð, nýtt, rúmbetra og
hljóðeinangrað hús, með opnan-
legum hliðar- og afturgluggum,
Nýja Zetor-dráttarvélin.
nýr dráttarkrókur, ryðvörn, ster-
eóútvarp og segulband og loks
má nefna að leiðbeiningar um
notkun og hirðingu vélarinnar
hafa verið lesnar inn á snældu,
sem fylgir henni. Telja þeir hjá
ístékk þessar vélar fyllilega
sambærilegar við bestu dráttar-
vélar, sem framleiddar eru í
Vestur-Evrópu. Verðið er kr.
297 þús. án söluskatts.
Síðan 1969 hefur ístékk hf.
annast innflutning og sölu á
Zetor-dráttarvélum hérlendis.
Félagið hefur verið rekið í náinni
samvinnu við Glóbus hf. og í
sömu húsakynnum, enda eigend-
ur og stjórnendur fyrirtækjanna
að mestu leyti þeir sömu. Hlut-
verk ístékks hf. er einkum að
flytja inn og selja Zetor-
dráttarvélar frá 'lékkóslóvakíu
og aðrar vörur, sem talið er hag-
kvæmt að kaupa þaðan.
Fyrstu dráttarvélarnar, sem
ístékk hf. flutti inn, komu til
landsins 1969, 17 að tölu. Síðan
hefur innflutningurinn síaukist
og í mörg ár hefur Zetorinn verið
mest selda dráttarvélin hér á
landi, segja forráðamenn fyrir-
tækisins. Árið 1984 voru t.d. tæp
40% þeirra dráttarvéla, sem þá
voru fluttar inn, af Zetor-gerð.
Hæst var hlutfallið 1980, 53%.
„Það, sem öðru fremur hefur
skapað vinsældir vélanna er mjög
hagstætt verð, mikil gæði og ný-
tísku útbúnaður. Síðan Glóbus
hf. tók við umboðinu árið 1969
hafa alls 2500 vélar verið fluttar
inn á vegum ístékks hf.“ - mhg.
Þriðjudagur 5. febrúar 1985 ÞJÓÐVILJINN - SfÐA 5