Þjóðviljinn - 12.02.1985, Page 6
FLÓAMARKAPURINN
Gömul teppi
fást fyrir lítið. Einnig handlaug og lítill
grillofn. Uppl. eftir kl. 19 í síma 13092.
Til sölu
er Sinclair Spectrum tölva, 48k ásamt
200 leikjum, Interface stýripinna,
blöðum og bókum. Er til í skipti á
Commondore 64. Á sama stað er til
sölu Binatone leiktæki ásamt 10
leikjum á 1500 kr. Sími 28189.
Til leigu
Skrifstofuhúsnæði í Vogunum, við-
bygging (herb., forstofa og snyrting).
Hentar vel t.d. fyrir minni félaga-
samtök. Tilboð merkt SHA-88 send-
ist afgreiðslu Þjóöviljans fyrir 16. febr.
nk.
Er einhver
sem vill gefa gamalt svart hvítt litsjón-
varpstæki. Uppl. í síma 22681.
Vantar eldavéi
Vantar notaða eldavél í góðu ásig-
komulagi. Upplýsingar í síma 22426
eða 19987.
Til sölu
410 lítra frystikista með eða án mót-
ors. Selst ódýrt. Stór rauður Electro-
lux ísskápur, sem nýr, tvennir kven-
skautar, skíðaskór nr. 8 og 38, og
hjólaskautar nr. 37. Hvað með barn-
agönguskíðaskó nr. 31 og lítið eld-
húsborð með 2 stólum í kaupbæti
eða gefins?. Uppl. í síma 26297 eftir
kl. 18.
Glaðir músiksveinar
óska eftir æfingahúsnæði strax.
Uppl. í síma 74304 milli kl. 5 og 7.
Til sölu
Tvær svampdýnur sem nýjar,
90x200. Uppl. í síma 79564.
Til sölu
í eins mannsherbergi; rúmstæði,
náttborð og hægindastóll með tré-
örmum og ennfremur barnarúm
sundurdregið með dýnu, hvítt. Uppl. í
síma 33094.
Ýmis húsgögn
til sölu
Sem dæmi má nefna rúm á 4000,-
kr., borstofuborð á 3500,- kr., dívanar
á 200 kr. og ýmislegt fleira. Sjón er
sögu ríkari, komið á Langholtsveg
112A eftir kl. 6 í dag eða næstu daga,
annars er símanúmerið 30672.
Bíll óskast
Óska eftir mjög ódýrum og spar-
neytnum bíl. E.t.v. staðgreiðsla.
Uppl. í síma 13317.
Til sömu
Myndrammar og málverkaprentanir
á góðu verði. Myndabúðin Njálsgötu
44. Opið frá 16-18.
Læða týndist
Þrílit 9 mánaða gömul læða (aðallitur
hvítur, röndótt skott) týndist frá Týs-
götu, 2. feb. s.i. Finnandi vinsamlega
hringi í síma 37294. Fundarlaun.
Til'sölu
Flauelsúlpa nr. 38, ný drapplituð úlpa
með hettu, mjög hlý og góð. Tvennir
skíðaskór ca. nr. 35 og 38 og einnig
nokkur stk. af bast rúllugardínum.
Uppl. í síma 37865 e.h.
Vantar þig ísskáp?
Ég þarf að losna við ísskáp vegna
flutninga. lágt verð. Hef einnig til sölu
7 nýjar bárujárnsþakplötur fyrir 2000
kr. Uppl. í síma 685974.
Óskast
Tvíburakerra óskast á góðu verði.
Sími 11302.
Til sölu
eldhúsborð og þrír bakstólar. Selst á
hálfvirði. Uppl. í síma 75723.
Viltu læra tauþrykk?
Komdu þá á námskeið á
fimmtudagskvöldum. Námskeiöið
byrjar 21. feb. kl. 20-23.30 og stendur
í 6 vikur. Uppl. í s. 81699 á daginn og
77393 á kvöldin og um helgar.
Rúm til sölu
Ársgamalt fallegt blágrátt málmrúm
til sölu. V/2 breidd. Uppl. í síma
27272 eftir kl. 17.
BORGARSPÍTALINN
LAUSAR STÖDUR
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Lausar eru stöður hjúkrunarfræðinga við eftirtaldar deildir:
Slysa- og sjúkravakt,
Skurðlækningadeildir
Geðdeild A-2
Grensásdeild
Öldrunardeildir B-5 og B-6
Heilsuverndarstöð.
SJÚKRALIÐAR
Sjúkraliðastöður eru lausar á:
Öldrunardeildir B-5 og B-6
Grensásdeild
Heilsuverndarstöð
Hafnarbúöir, Hvítaband.
STARFSSTÚLKUR
Starfsmenn vantar á Grensásdeild og Heilsuverndarstöð,
fullt starf, hlutastarf.
Upplýsingar veittar á skrifstofu hjúkrunarforstjóra í síma
81200 milli kl. 11-12 virka daga.
*
BÓKASAFNSFRÆÐINGUR
Staða bókasafnsfræðings við bókasöfn Borgarspítalans er
laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 10. mars n.k.
Upplýsingar um stöðuna veitir Matthildur Marteinsdóttir yfir-
bókavörður í síma 81200/303
Reykjavík, 10. febrúar 1985.
BORGARSPÍTALINN
Blikkiðjan
lönbúö 3, Garðabæ
Onnumst þakrennusmiöi og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verðtilboö
SÍMi 46711
VIÐHORF
Af hverju . . .
Framhald af bls. 5
hyggjuaflanna í þjóðfélaginu,
sem í seinni tíð hafa gert sig æ
meira gildandi í þjóðfélagsum-
ræðunni og ekki síður innan vald-
akjarna Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn saman-
stendur af fjöldamörgum ólíkum
hagsmuna- og skoðanahópum, á
seinni árum hafa ntálsvarar
óhefst frelsis (í raun helsi) daðrað
við þessa frjálshyggjupostula.
Félagshyggjufólk á að reka upp-
lýsandi pólitík um áhrif frjáls-
hyggjuhugmynda á þjóðfélags-
gerðina og ekki síður vekja at-
hygli almennings á nauðsyn sam-
hjálpar, jöfnuðar og mannúðar.
Með virkri, heilsteyptri og um-
fram allt hreinskiptinni umræðu
gætu félagshyggjumenn náð fram
tveimur grundvallarmarkmiðum:
í fyrsta lagi hreinsað andrúms-
loftið sín á milli og ýtt úr vegi
ýmsum „ágreiningsmálum" sem
eru í raun aðeins tilbúin en ekki
raunveruleg. í annan stað ein-
faldað og virkað samhentari í
framsetningu á aðalatriðum fé-
lagshyggjunnar og þeim valkost-
um sem hún býr yfir umfram aðr-
ar pólitískar kenningar.
Dægurmála-
þrasið
Menn skulu aldrei gleyma
meginmarkmiðum pólitískrar
þátttöku. Það er ekki tilvera ein-
stakra flokka eða einstaklinga,
heldur það að koma fram málum
til hagsbóta fyrir land og þjóð.
Og af þeim sökum er nauðsynlegt
að félagshyggjufólk slíðri sverðin
í dægurmálaþrasinu og metingi
milli einstakra flokka og foringja.
Það er vegið að velferðarkerf-
inu og afkomumöguleikum
launafólks. Helmingaskipta-
stjórn íhalds og framsóknar hefur
kinnroðalaust ráðist að velferð-
inni í landinu og kippt fótum
undan lífsafkomu þúsunda ís-
lenskra launamanna. Hvorki
verkalýðshreyfingin né heldur
vinstri flokkarnir hver fyrir sig,
hafa megnað að berja á bak aftur
þessa atlögu íhaldsaflanna. Ef til
vill vegna þess að hver baukar í
sínu horni.
Málfundafélag félagshyggju-
fólks gerir engin kraftaverk eða
breytir þróun íslenskra stjórn-
mála á stuttum tíma. Þetta félag
gæti hins vegar með tíð og tíma
opnað augu fólks fyrir nauðsyn
þess, að skoðanabræður starfi
saman að tilteknum mikilvægum
verkefnum, en láti ekki aukaat-
riði og metorðagirnd standa í vegi
fyrir slfkri eðlilegri samvinnu.
Verðugt
viðfangsefni
í lokin vil ég einnig nefna
mikilvægi þess, að félagshyggju-
öflin taki höndum saman á þeim
vettvangi, sem þau standa hvað
veikast. Það er fjölmiðlakostur-
inn á vinstri vængnum. íhaldsöfl-
in hafa yfirburðarstöðu á dag-
blaðamarkaðnum; honum er
stjórnað af hægri öflunum og ým-
islegt bendir til þess að sama þró-
un komi til með að eiga sér stað
hvað varðar útvarpsrekstur, þeg-
ar að því kemur að hann verður
rýmkaður. Er ekki tími til kom-
inn að félagshyggjuöflin sameini
kraftana í fjölmiðlamálum, þann-
ig að hnekkja megi einokun
þeirri, sem íhaldsöflin hafa náð á
því sviði?
Guðmundur Árni Stefánsson
er ritstjóri Alþýðublaðsins.
NÝJAR BÆKUR
Straumfjörður á Mýrum
✓
Arsrit
Borgfirsk blanda
Þjóðlífs- ogpersónuþœttir o.fl.
Út er komið 8. bindi Borgfirsk-
ar blöndu og er þetta allt orðin
mikil blanda og góð. Efni bókar-
innar er skipt í fimm meginkafla:
Þjóðlífsþætti, persónuþætti,
hrakninga og slysfarir, drauma
og dulrænar sagnir og gamanmál,
og lýkur svo með nafnaskrá.
Bókin hefst með þætti um
kirkjur og presta skráðum af Þór-
unni Eiríksdóttur á Kaðalstöð-
um, eftir Jóni Snorrasyni frá Lax-
fossi. Jón Sigmundsson rekur
sögu rafvæðingar á Akranesi.
Arnbergur Stefánsson í Borgar-
nesi rifjar upp minningar frá
fyrstu árum bílanna í Borgarfirði.
Jón Magnússon á Hávarstöðum
segir frá drykkjum og drykkju-
siðum, smíðum og smíðisgripum
allskonar. Óskar Þórðarson frá
Haga greinir frá örlögum sauð-
nauta, sem vistuð voru á Litlu-
Drageyri í Skorradal. Sigurður
Guðmundsson á Kirkjubóli segir
frá því þegar hann „komst á flot“,
m.ö.o. lærði að synda. Valgarður
L. Jónsson ritar um mataræði til
sjós og lands á fyrstu áratugum
aldarinnar. Magnús F. Jónsson
frá Torfastöðum í Miðfirði segir
frá réttarferð suður í Borgarfjörð
haustið 1909 og fólki, sem hann
kynntist þá. Bragi Þórðarson
fræðir okkur um sjósamgöngur
Borgfirðinga fyrir daga Skalla-
gríms hf. Þjóðlífsþáttunum lýkur
svo með því að Jóna Fanney
Gunnarsdóttir frá Fellsaxlarkoti
rifjar upp bernskuminningar úr
Borgarfirði.
Taka þá við persónuþættirnir.
Er þá fyrst viðtal Kjartans Sigur-
jónssonar, skólastjóra á ísafirði
við Bjarna Bjarnason, bónda,
organista og söngstjóra í Skáney,
sem segir: „líf mitt hefur verið
skemmtiferð“. „Með ljúfu geði
og léttri lund“ nefnast minninga-
þættir Guðrúnar Jónsdóttur á
Akranesi og hefur Bragi Þórðar-
son tekið þá saman. „Plægingar
og pólitík“, rabb Eiðs Guðna-
sonar alþm. við Ingimund Ein-
arsson í Borgarnesi. Sigríkur Sig-
ríksson segir frá ýmsu þvf, sem á
daga hans dreif, í spjalli við
Braga Þórðarson. Þorsteinn
Jónsson á Úlfsstöðum segir frá
tveimur prestum, sem fluttust úr
Árnessýslu í Borgarfjörð, þeim
sr. Magnúsi Andréssyni á Gils-
bakka og sr. Guðmundi Helga-
syni í Reykholti. Guðmundur
Björnsson á Arkarlæk lýsir lífinu
á skútunum fyrir 70 árum í viðtali
við Daníel Ágústínusson.
„Læknirinn í Laxárholti“ nefnist
frásögn Magnúsar Sveinssonar af
föður sínum, Sveini Þórðarsyni.
Árni Böðvarsson, sparisjóðs-
stjóri á Akranesi, rifjar upp ýms-
ar minningar í spjalli við Þorstein
Matthíasson.
Hrakninga- og slysfarasögur
eru þarna þrjár. Halldór Krist-
jánsson í Heynesi segir frá því er
faðir hans lá úti 7. janúar 1905 er
hann var að sækja meðul til Sig-
urðar Jónssonar í Lambhaga.
Valgarð L. Jónsson skráir frá-
sögn Jóns Oddssonar af eftir-
minnilegri sjóferð, sem hann fór
á jólaföstu 1935. Þann 21. nóv.
1955 fórst herflugvél á Akrafjalli.
Óskar Þórðarson frá Haga segir
frá þeim atburði.
Sumt af efni Blöndunnar hefur
áður birst á víð og dreif en margir
þættirnir koma hér á prent í fyrsta
sinn.
-mhg.
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 12. febrúar 1984