Þjóðviljinn - 27.04.1985, Síða 2
FREIHR
Sementsverksmiðjan
Starfsmennimir
hafna frumvarpi Sveiris
Fjölmennur fundur í starfsmannafélaginu hafnar
hugmyndum Sverrir Hermannssonar um að gera
verksmiðjuna að hlutafélagi.
Steingrímur er sennilega fyrsti
sjúkdómurinn í stjórninni.
Sverrir Hermannsson iðnaðar-
ráðherra sendi frumvarpið
um að gera Sementsverksmiðj-
una að hlutafélagi til umsagnar
starfsmanna verksmiðjunnar. Á
dögunum var svo haldinn fjöl-
mennur fundur í starfsmannafé-
laginu þar sem frumvarpinu var
Staða
kvennaá
þjóðveldis-
öld
Gunnar Karlsson
flytur erindi
í dag, laugardag kl. 14.00 mun
Gunnar Karlsson sagnfræðingur
flytja erindi á aðalfundi Sögufél-
agsins um stöðu kvenna á þjóð-
veldisöld. Aðspurður um efni
fyrirlestursins sagði Gunnar
Karlsson að það hafi verið við-
tekin skoðun allt fram undir 1970
að hlutskipti kvenna hafi verið
tiltölulega mjög gott á þjóðveld-
isöldinni. Þessi hefðbundna
söguskoðun hafi síðan komið
fram í ritgerð Ólafíu Einarsdótt-
ur í Tímaritinu Sögu 1984. Gunn-
ar sagðist þeirrar skoðunar að
hlutskipti kvenna hafi ekki verið
jafn gott á þessum tíma og þau
Ólafía og Sigurður Nordal hafa
haldið fram, og myndi hann færa
rök fyrir því í fyrirlestri sínum.
Aðalfundur Sögufélagsins
verður haldinn í Duus-húsi og
hefst kl. 14.00. -ólg.
Vopnafjörður
Kviknað í
hjá Tanga hf
Tjón naumast
verulegt
Um kl. 7 að morgni sumar-
dagsins fyrsta varð þess vart, að
eldur var laus í húsum Tanga hf. á
Vopnafirði. Mikill reykur var í
vélasal slátur- og frystihússins og
raunar sláturhúsinu öllu, en
eldur ekki orðinn verulegur.
Hann var einkum í rafleiðslum og
gekk slökkvistarfið fljótt og vel
fyrir sig.
Ekki er talið að frystivélar hafi
skemmst og tókst fljótlega að
gangsetja eina þeirra. Líkur eru á
að kindakjötið, um 220 tonn, sé
óskemmt, en það er í plastpok-
um. Um 20 tonn af nautakjöti er
hins vegar í grisjupokum og
leikur meiri vafi á hvort það hefur
sloppið. Á sunnudag er von á
dýralækni og matsmanni til þess
að ganga úr skugga um hvort
skemmdir hafi orðið.
-mhg.
hafnað. Fundurinn gerði eftirfar-
andi samþykkt:
„Starfsmenn Sementsverk-
smiðju ríkisinsá Akranesi hafa
kynnt sér efni frumvarps til laga
um stofnun hlutafélags um Sem-
entsverksmiðju ríkisins. Við
fögnum því að háttvirt Alþingi
ætli að setja löggjöf um Sements-
verksmiðju nkisins, en sjáum
ekki að nægileg rök styðji það að
brevta fyrirtækinu í hlutafélag.
Við teljum rétt að það verði
áfram í ríkiseign. Hvað stjórnun
fyrirtækisins varðar þá teíjum við
ábyrgð stjórnenda þá sömu
gagnvart ríkinu sem eiganda og
hluthöfum, þó vissulega geti
breytingar á núverandi fyrir-
komulagi verið æskilegar. Ekki
er ljóst hvort einhverjir starfs-
menn kynnu að hafa hug á
hlutabréfakaupum, þar eð engar
verðupplýsingar er að finna í um-
ræddu frumvarpi til að byggja
slíkar ákvarðanir á“.
-S.dór.
Eins gott að vanda sig þegar Landsmót skólalúðrasveita er tramundan en það mót hefst einmitt í íþróttahúsinu
Digranesi í Kópavogi. Ljósm. E.OI.
Tónlist
Lúðrahljómar í
Kópavogi
Landsmót íslenskra skólalúðra- Mótið hefst kl. 13.30 með leik endað á Skólahljómsveit Kópa-
sveita verður haldið í dag, Hornaflokks Kópavogs. Kl. vogs. Lýkur mótinu með því að
laugardaginn 27. aprfl í íþrótta- 14.00 mun Krigtján Guðmunds- allir þátttakendur sameinast um
húsi Digranesskóla í Kópavogi. son bæjarstjóri Kópavogs setja að spila tvö lög; mars eftir J. Ph.
Þar verður ys og þys því mótið mótið en að því loknu hefst leikur SousaogÚrútsærísaíslandsfjöll
sækja rúmlega tuttugu sveitir sveitanna. Munu Reykjavíkur- eftir Pál ísólfsson. Kynnir á mót-
víðs vegar að af landinu eða alls sveitirnar hefja leikinn og svo far- inu verður Jón Múli Árnason.
um 500 ungir hljóðfæraleikarar. ið réttsælis umhverfis landið og -v.
íðnaðarráðuneyti
Hagvangur
makar
krókinn
Úttektá
ríkisstofnunum
fjármögnuð með sölu
hlutabréfa í
Iðnaðarbankanum.
Engar heimildir á
fjárlögum
Á síðasta ári fékk Hagvangur
um 3,5 miljónir króna fyrir úttekt
á Rafmagnsveitum ríkisins,
Orkustofnun, Rafmagnseftirliti
ríkisins og Jarðborunum ríkisins.
Aðrir aðilar fengu samtals tæpar
tvær miljónir króna fyrir úttekt á
Sementsverksmiðjunni, Land-
smiðjunni, Kísiliðjunni,
Þörungavinslunni og Sjóefna-
vinnslunni.
Þetta kemur fram í skriflegu
svari iðnaðarráðherra við fyrir-
spurn Hjörleifs Guttormssonar á
alþingi. Þar kemur einnig fram að
aðeins 985 þúsund krónur voru til
ráðstöfunar í þessi verkefni á
fjárlögum, og að afgangurinn,
4,7 miljónir var greiddur af and-
virði hlutabréfa ríkisins í
Iðnaðarbankanum.
Dýrasta úttektin var á Raf-
magnsveitunum, 1,6 miljón, en
úttektin á Orkustofnun kostaði
1,4 miljónir. Hagvangur sá um
hvoru tveggja. Aðrir sem unnu
að þessum úttektum eru
Kaupþing, 429 þúsund, Partek,
75 þúsund, Helgi G. Þórðarson
170 þúsund, Rekstrarstofan 416
þúsund, Sigurjón Arason 51 þús-
und og Iðntæknistofnun 624 þús-
und vegna Sjóefnavinslunnar á
Reykjanesi.
Niðurgreiðslur
240% samdráttur á 2 ánim
Mjólkin er 43 % dýrari núen ef niðurgreiðslur vœruþcer sömu og
1982.
Hlutfall niðurgreiðslna af sölu-
verði landbúnaðarvara hefur
aldrei verið lægra en nú á fyrsta
ársfjórðungi þessa árs. Niður-
greiðslur nema nú aðeins 9% af
útsöluverði mjólkur, 11% af út-
söluverði kindakjöts og 23% af
útsöluverði smjörs. Ef hlutfallið
væri það sama og á árinu 1982
væri. mjólkurlítrinn tæpum 9
krónum ódýrari, kflóið af kind-
akjöti væri 42 krónum ódýrara og
kfló af smjöri væri 108 krónum
ódýrara en nú er.
Þetta kemur fram á skriflegu
svari landbúnaðarráðherra við
fyrirspurn Hjörleifs Guttorms-
sonar á alþingi. Þar kemur einnig
fram að samdrátturinn í niður-
greiðslum frá árinu 1982 nemur
240%! Á árinu 1984 námu niður-
greiðslur 770 þúsund krónum, en
á árinu 1982 námu þær 1860 þús-
undum og ' er hvoru tveggja
reiknað á verðlagi síðasta árs.
Hlutfall niðurgreiðslna af út-
söluverði landbúnaðarafurða
hefur hríðfallið síðan núverandi
ríkisstjórn tók við og afleiðing-
arnar eru sífellt hærra söluverð,
sem ekki er bætt í kaupi. Nú kost-
ar kíló af kindakjöti 177 krónur
en ef hlutfall niðurgreiðslna væri
hið sama og 1982 myndi það
kosta 135,30. Mjólkin kostar nú
28,60 hver lítri, en myndi kosta
20.05 með sömu niðurgreiðslum
og 1982. Smjörið kostar 319
krónur kflóið en yrði 108 krónum
ódýrara eða selt á 210,80 ef
niðurgreiðslurnar hefðu ekki ver-
ið lækkaðar.
-ÁI
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 27. apríl 1985