Þjóðviljinn - 07.07.1985, Side 16
LEIÐARAOPNA
Nanna Helga
Sigurðardóttir,
skrifstofumaður
Bœði með
og á móti
,,Ég er bæði með og á móti.
Eg gæti ímyndað mér að
kennslan verði betri í einka-
skólum, þar sem kennar-
arnir fá hærri laun, og fyrir
vikið er hægt að velja þá
bestu.
Og svo finnst mér þetta líka
óréttlátt gagnvart þeim krökkum
sem ekki hafa tækifæri til að kom-
ast í slíkan skóla, út af fjárleysi.
Hans Sigurbjörnsson
smiður
Það œtti
að vera
frjálst val
„Mér finnst einkaskólar sjálf-
sagöir, og finnst mér ekki ver-
iö aö mismunafólki þegar þeir
eru stofnaðir. Þaöerfrjálstval
hér á höfuðborgarsvæðinu
hvortforeldrarsendi börnin í
þáeðaekki.
Úti á landsbyggðinni er því
þannig farið að foreldrar verða
að borga háar fjárhæðir fyrir
menntun barna sinna.
Ég tel að flestir geti sent börn
sín í slíka skóla, þetta er spurning
um að velja og hafna. Einka-
skólar eru starfræktir víðast hvar
erlendis og hafa gefið góða
raun“. -SP
Hvers eiga þau að gjalda? Það
virðist vera að komast á sú þróun
að tvær þjóðir búi í þessu landi.“
-sp
Magnús Sœmundsson
flokksstjóri
í Vinnuskóla Rvík
Sennilega fer
rjóminn af
kennara-
liðinu í...
„Ég er eiginlega hlutlaus í
þessu máli, hvorki meö eðaá
móti. Efforeldrarhaldaað
krakkarnirfái betri kennslu í
einkaskóla, þá er það þeirra
mál að senda þau í slíka skóla
og borga fyrir kennsluna.
Ég þori ekki að segja eitthvað
um hvort kennslan verði betri í
einkaskólum, en vafalaust fá
forsvarsmenn skólans tækifæri til
að velja úr rjómanum af kennar-
aliðinu". —sp
Hvað finnst
Nœr að hlúa að
grunnskólunum
segir Jóhonnes Pétursson, kennori
„Ég tel að það eigi frekarað
hlúa að grunnskólunum en
einkaskólum, sem reknireru
aðmestu fyriropinbertfé.
Þetta er ekki ólöglegt, en
leysir á engan hátt vanda
grunnskólanna, sem eru í
miklu fjársvelti. Á meðan svo
er hlýtur þetta að vera óeðli-
leg þróun,” sagði Jóhannes
Pétursson, sem á sæti í
Fræðsluráði. Jóhannes er
kennari í Laugalækjarskóla
og hefur kennt samtals í 36 ár.
—LEHDARI-------------
Við spurðum hann ennfremur
um viðbrögð kennara og for-
eldra.
„Um viðbrögð foreldra veit ég
ekki, þessi umræða er svo ný.
Hins vegar verður maður ekki
var við annað en flestir kennarar
telji þetta óeðlilega stefnu-
breytingu í skólamálum eftir allar
þær umræður sem fram hafa farið
að undanförnu um bætta aðstöðu
grunnskólanna og starfsfólks
þeirra. Einkaskóli hlýtur að
stefna í öfuga átt við grunnskóla-
lögin, þar sem hér er verið að
mismuna börnum eftir efnahag
foreldra. Hér er um þær upphæð-
ir að ræða að það er augljóst að
foreldrar með fleiri en eitt barn á
þessum aldri ráða ekki við skóla-
gjöldin, nema tekjur þeirra séu
allháar. Þessa umræðu um einka-
skóla ber mjög brátt að og ég tel
hana ekki í samræmi við það sem
undanfarið hefur verið mest til
umræðu og er brýnast í skólamál-
um. Það þarf að auka fjárveiting-
ar til grunnskólanna og hlúa að
þeim, en ekki stefna að einka-
skólum, sejn verða ekki fyrir
börn láglaunafólks,” sagði Jó-
hannes að lokum.
Öhœft yfirvald viki
Vinstrimenn eru ekki á móti skólastarfi til hliðar við
hinn almennaskóla. Þjóðviljanum hefuraldrei komið
til hugar að andæfa því að settir séu upp skólar sem
veita börnum og unglingum almenna og lögskylda
menntun með sérstökum trúarlegum eða
heimspekilegum áherslum, - skólar einsog Landa-
kotsskóli kaþólikka eða Hlíðardalsskóli aðventista í
Ölfusi. Foreldrar eru sjálfráðir um að senda börn sín í
slíka skóla.
Því ber aukinheldur að fagna þegar einstaklingar
eða samtök þeirra stofna skóla til að hafa frjálsari
hendur um þarfar nýjungar og bætta menntun, -
einsog ísak Jónsson gerði árið 1926 og hefur skóli
hans æ síðan með stuðningi opinberra aðila gefið
gott fordæmi um kennslu yngstu nemendanna.
Af hverju stafar þá sú umræða um hinn nýja Tjarn-
arskóla sem íhaldsmenn í borgarstjórn kalla „pöli-
tískt moldviðri1' í þeim fjölmiðlum sem hafa einhvers-
konar félagshyggju að sameiginlegu leiðarljósi?
Nýi einkabarnaskólinn við Tjörnina er ekki stofn-
aður utanum nýjungar í skólastarfi eða önnur lífsvið-
horf en landslög telja hæfa hinum almenna grunn-
skóla. í nýja skólanum eru nákvæmlega sömu mál á
dagskrá og í öðrum skólum landsins. Þar á hins
vegar að gefa nemendum sem eiga efnaða foreldra
kost á vel launuðum kennurum, einsettu skólahúsi,
traustum tækjakosti, hæfilega fjölmennum bekkjar-
deildum og samfelldum skóladegi. Fyrir þetta á að
borga 3167 krónur á mánuði, en ríki og borg kosta
skólahaldið að öðru leyti.
Það er augljóst að sá skóli sem fær um þrjátíu
þúsund krónum meira fé á hvern nemanda en aðrir
skólar getur búið betur að nemendum sínum. Það er
líka augljóst að nemendur skóla sem krefst jafn
óvægilegra skólagjalda verða ekki úr öllum hópum,
stéttum og lögum samfélagsins. Tjarnarskóli verður
efnaskóli fyrir efnafólk.
Þetta eykur misrétti þar sem síst skyldi, og samtök
kennara hafa lýst því yfir að stofnun skólans og
þáttur Davíðs Oddssonar borgarstjóra og Ragnhild-
ar Helgadóttur menntamálaráðherra í undirbúningn-
um brjóti í bága við anda og stefnu grunnskólalag-
anna ef ekki sjálfan bókstaf þeirra.
Hið hlálega í einkabarnaskólamálinu er þó það að
tilboð eigenda Tjarnarskóla til efnaðra foreldra er
samhljóða þeim ræðum sem yfirmenn fræðslumála
halda á tyllidögum um hinn almenna skóla. Lið fyrir
lið er lýsing hins fyrirhugaða Tjarnarskóla eins og
Ijósrit af kröfum kennara, foreldra og nemenda um
úrbætur í grunnskólum landsins: samfelldur dagur,
einsetinn skóli, laun handa kennurum, góðurtækja-
kostur, hæfilega margir í bekk.
Fyrir 3167 krónur á mánuði fær nemandi í nýja
skólanum aðeins nákvæmlega hið sama og grunn-
skólalögin gera ráð fyrir að hver einasti nemandi á
landinu skuli njóta. Stofnun þessa skólagjaldaskóla
sýnir því öðru fremur dugleysi yfirvalda í
menntamálum á undanförnum árum, og í raun
jafngildir nýi einkabarnaskólinn vantrausti á frammi-
stöðu ráðherrans Ragnhildar Helgadóttur. Meðan
menntamálaráðherrann og aðstoðarmenn hans
leggja sig í framkróka við að veita einkaskólanum
brautargengi drabbast almenni skólinn niður.
Nú kynni einhver að halda að orsökin sé dugleysi
Ragnhildar eða vanmáttur ráðherrans innan ríkis-
stjórnarinnar. Ýmsar blikur benda þó til að ástæður
menntamálaráðherra og flokks hans séu aðrar. Til
dæmis segir Inga Jóna Þórðardóttir aðstoðarmaður
ráðherrans í viðtali við Þjóðviljann í dag að „ekkert sé
að óttast þó fleiri kennarar fylgi í kjölfarið". Hún
hafnar rökum um að verið sé að mismuna nemend-
um með því að segja að hægt sé að nota sömu rök
„um allt annað sem boðið er uppá og fólk getur
keypt". Og aðstoðarmaðurinn lýsir því yfir að hinn
almenni grunnskóli muni halda áfram „til að tryggja
að allir eigi kost á námi".
Hér má skýrlega greina framtíðarhugmyndir að-
stoðarmannsins um skólaskipulag í anda markaðs-
hyggjunnar. í landinu á að vera tvenns konar skóla-
kerfi, annarsvegar einkakerfi fyrir efnafólkið, hins-
vegar olnbogaskólar á vegum ríkisins.
Þjóðviljinn telur að við sem ætlum að halda áfram
að búa sem ein þjóð í þessu landi eigum ekki að
bregðast við þessum íhaldsuppvakningi í
menntamálum með því að veitast á nokkurn hátt að
eigendum, kennurum og nemendum hins nýja skóla
við Tjörnina. Við eigum að taka höndum saman um
að bæta og treysta sameign okkar, skólakerfið í
landinu, efla það að fé og tryggja því hæfa starfs-
menn.
Og reynslan virðist sýna að brýnast allra þarfa-
verka í menntamálum þessa dagana sé að losa sig
við óhæfasta starfsmanninn í skólakerfinu, sjálft yfir-
valdið Ragnhildi Helgadóttur.
-m
16 SÍÐA - Þ, 7ILJINN Sunnudagur 7. júlí 1985