Þjóðviljinn - 21.07.1985, Blaðsíða 2
Einsog fiskur í
menningar-
vatninu
Fornleifar
Dökkar
framtíðarhorfur
Þorvaldur Friðriksson fornleifafrœðingur:
Fjdrskortur kemur í veg fyrir rannsóknir.
Vantar nauðsynlega fagfólk.
Norrænir fornleifafræðingar
undirbúa nú ráðstefnu, sem hald-
in verður í Gautaborg í nóvember
og verður aðalumræðuefni henn-
arfrumbyggð á Norður-
Atlantshafssvæðinu. Ætlunin er
að endurvekja norrænt samstarf
fornleifafræðinga, sem hefurver-
ið næsta lítið á þessu svæði á
undanförnum áratugum, allt frá
því aö unnið var að uppgreftrin-
um í Þjórsárdal árið 1939.
„Það er brýnt að slíkt samstarf
eigi sér stað, bæði til að knýja á
um fjármagn til fornleifarann-
sókna og til að auðvelda túlkun
og samanburð á fornleifum.
Þetta verkefni um frumbyggjend-
urna myndi líka auðvelda öflun
fjár til ýmissa annarra verkefna
sem tengjast þessu höfuðverk-
efni. Þá mun það auðvelda útveg-
un fullkominna rannsóknartækja
og aðgang að rannsóknar-
stofnunum, sem greina sýni, en
hvort tveggja er geysilega mikil-
vægt í nútímafornleifafræði",
sagði Þorvaldur Friðriksson.
Þorvaldur var við nám í háskól-
anum í Gautaborg og vinnur nú
að doktorsritgerð um keltnesk
menningaráhrif á íslandi í ljósi
fornleifa. Arne B. Johansen pró-
fessor í fornleifafræði við Gauta-
borgarháskóla hefur haft frum-
kvæði að undirbúningi fundarins
og verður haft samráð við skoska
og írska fornleifafræðinga sem
vinna að verkefnum sem tengjast
samstarfsverkefninu um frum-
byggð á N-Atlantshafssvæðinu.
Fyrir íslands hönd tekur Þjóð-
rpujjasafnið þátt í samstarfinu og
tveir fornleifafræðingar auk Þor-
valds, þau Bjarni Einarsson og
Margrét Hermannsdóttir, en þau
eru öll í framhaldsnámi í Svíþjóð.
Við spurðum Þorvald að lok-
um hvernig framtíðarhorfur
ungra fornleifafræðinga á íslandi
væru.
„Þær eru ekki glæsilegar. Þar
veldur mestu fjárskortur. Þjóð-
minjasafnið og önnur söfn hér á
landi geta ekki ráðið nauðsynlegt
fagfólk vegna fjárskorts. Nú þeg-
ar eru nokkrir fornleifafræðingar
útskrifaðir úr erlendum há-
skólum og aðrir eru enn við nám,
en ljóst er að atvinnumarkaður-
inn á íslandi er mjög þröngur og
óvíst að þetta fólk fái störf innan
síns sviðs eins og málin standa í
dag. Vonandi er að með nýjum
fornminjalögum, sem alltof lengi
hafa legið í salti, verði einhver
breyting á þessu ófremdar-
ástandi“, sagði Þorvaldur að lok-
um.
Sem kunnugt er hefur Þorvald-
ur unnið aö undanförnu að upp-
greftri vestur á Dagverðarnesi
við Hvammsfjörð, en hann er nú
á förum af landinu, enda engar
fjárveitingar til að halda áfram
við uppgröftinn að sinni.
þs.
Þorvaldur Friðriksson: Endurvekja þarf samstarf norrænna fornleifa-
fræðinga.
Nú ætla ungir menningar- og
menntamenn að fara að gefa
út tímarit sem á að fjalla um
gervallan menningarvöllinn á
frísklegan og gáfulegan máta.
Undirbúningur mun vel á veg
kominn og er ætlunin að
koma út fyrsta hefti með
haustinu. Þetta á að verða eitt
af fáum menningartímaritum
sem koma út í fleiri en eitt
skipti, og mannval aðstand-
enda vekur reyndar vonir um
að slíkt takist: Gunnar Ágúst
Harðarson skáld og
heimspekingur, Guðmundur
Andri Thorsson bókmennta-
fræðingur, Hallgrímur
Helgason myndlistarmaður
og Páll Valsson bókmennta-
fræðingur og blaðamaður.
Nafnið er enn óákveðið, en sú
saga gengur um bæinn að
tímaritið eigi að heita næstum
því í höfuðið á öðru riti eldra:
Sjóbirtingur! ■
Ritstjórinn
og ráðningin
Ráðning Einars Karls Har-
aldssonar í stöðu ritstjóra
Nordisk Kontakt fór fyrir
brjóstið á ýmsum hægri garpi,
til að mynda munu Sjálfstæð-
ismenn ekki ýkja glaðir yfir því
að Ólafi G. Einarssyni,
þeirra manni í málinu tókst
ekki betur til. Ráðning Einars
mun hins vegar vera afrakstur
af einkar góðri samvinnu
Guðrúnar Helgadóttur og
Páls Péturssonar, forseta
Norðurlandaráðs og góðs
Framsóknarmanns. Páll bjó
svo um hnútana, að fulltrúar
Islands myndu fá heimild til að
styðja af alefli þann íslensku
umsækjendanna tveggja,
sem hefði betri möguleika á
að hreppa stöðuna eftir fyrstu
umferð. Auk Einars Karls sótti
líka um stólinn kunnur hægri
sinni, Sigurður J. Sigurðs-
son. Eftir fyrstu lotuna var
Ijóst að hann átti ekki séns, og
Páll beitti þá áhrifum sínum til
að styðja Einar. En sökum
samkomulagsins sem hann
hafði áður gert gátu Sjálf-
stæðismenn ekki haldið sín-
um manni til streitu, og kratinn
Eiður Guðnason, sem ekki
þótti gott að þurfa að styðja
„kommann", varð sömuleiðis
að hafa hljótt um sig. Einar
fékk stöðuna og nú bíta
íhaldsmenn sig í handarbökin
yfir þeim refskap sem Páll
Pétursson þykir hafa sýnt
með því að tryggja í rauninni
fyrirfram að öll íslenska
deildin styddi Einar. ■
■>í
Doktor
í Lárusi
Árni Blandon leikari er nú að
undirbúa doktorsritgerð við
háskóla í New York um leikar-
ann og leikstjórann Lárus
Pálsson. Hefur Árni að und-
anförnu safnað gögnum hér
heima og hlýtt á upptökur
með Lárusi heitnum. Arni er
annars meira en menntaður
leikari, hann er einnig bæði
húsasmiður og sálfræðingur
að mennt. ■
Grófu upp
gömiu
bæjarhelluna
Miklar framkvæmdir hafa ver-
ið í miðbæ Hafnarfjarðar í
sumar fyrir framan hús Bjarna
riddara og Byggðasafnið þar
sem verið er að leggja gapg-
stéttar og útbúa útivistar- og
sýningarsvæði.
Ákveðið var að lækka flöt-
ina fyrir framan húsin um 30
cm frá því verið hefur. Þegar
verið var að grafa burt jarð-
veginn fyrir utan hús Bjarna
Riddara sem er elsta húsið í
Hafnarfirði komu menn niður
á hart. Páll V. Bjarnason
arkitekt var staddur á svæð-
inu og sá fljótt að þarna var
komin gamla bæjarhellan og
viö nánari athugun kom í Ijós
að hún lá svo til í nákvæmlega
sömu hæðarlínu og mæld
hafði verið út og náði jafn
langt út frá húsinu og ráðgert
hafði verið að leggja nýja
bæjarhellu.
Gamla bæjarhellan sem er
frá því um 1800 og sett saman
úr hraunhellum er því fyrir
hreina tilviljun búin að taka við
sínu fyrra hlutverki. ■
Brotthlaupið
_____byrjað
í vikunni kom skoðanakönnun
sem sýndi umtalsverða
minnkun á fylgi kratanna. Af
því tilefni orti einn af velunnur-
um Þjóðviljans eftirfarandi:
Brakaði í og burtu hlupu,
blandnir mjög í trúnni,
Kratar sem að áður krupu
karlinum í brúnni. ■
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 21. júlí 1985