Þjóðviljinn - 21.07.1985, Síða 14
BÆJARROU
K3RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir aö ráöa 3 raf-
eindamenntaða starfsmenn til starfa á rafeindadeild
stofnunarinnar.
Deildarstjóra. Starfið er fólgiö í stjórn rafeindadeildar,
m.a. umsjón meö áætlanagerð, hönnun, fram-
kvæmdum og tæknilegum rekstri á fjargæslu- og
fjarskiptakerfum auk umsjónar meö starfrækslu raf-
eindastofu deildarinnar. Hér er um mjög fjölbreytt og
sjálfstætt starf að ræöa sem krefst alhliða þekkingar
á rafeindabúnaði og tölvum og hugbúnaði almennt.
Leitað er að manni með próf í rafeindaverkfræði/-
tæknifræði eða með sambærilega menntun.
Tæknimaður. Starfið er aðallega fólgið í áætlana-
gerð, hönnun og verkumsjón með framkvæmdum
og tæknilegum rekstri á fjargæslukerfum. Starfið
býður upp á fjölbreytt og áhugaverð verkefni á sviði
rafeinda- og hugbúnaðar. Leitað er að manni með
próf í rafeindaverkfræði/-tæknifræði eða með
sambærilega menntun.
Rafeindavirki. Starfið er fólgið í viðgerðum og dag-
legum rekstri á ýmis konar rafeindabúnaði og býður
upp á fjölbreytt og áhugaverð verkefni. Leitað er að
manni með sveinspróf í rafeindavirkjun, símvirkjun
eða sambærileg réttindi. Laun eru skv. kjarasamn-
ingi við Rafiönaðarsamband íslands.
Upplýsingar um störfin veitir yfirverkfræðingur raf-
magnsdeildar, tæknisviðs RARIK í síma 91-17400.
Umsóknum er greini menntun og fyrri störf ber að skila
til starfsmannadeildar Rafmagnsveitna ríkisins, fyrir 1.
ágúst 1985.
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegur118,
105 Reykjavík.
0St. Jósefsspítali,
Landakot
Lausar stöður
Starfsstúlkur óskast til ræstinga á allar deildir spítal-
ans.
Einnig vantar starfsstúlku í eldhús .spítalans.
Upplýsingar gefur ræstingarstjóri í síma 19600-259.
Skrifstofa hjúkrunarforstjóra.
Gleði fyrir augað
Ég á heima í Pingholtunum og
það finnst mér gaman. Stundum
á síðkvöldum fer ég í göngutúra
til að horfa á hús og garða og
teyga að mér ilm gróðurs og
sumars. Ég er búinn að gera það
hundrað sinnum og í hverri ferð
uppgötva ég eitthvað nýtt. Stund-
um finn ég bakhús sem ekki sjást
frá götunni, jafnvel lágreista bæi
sem minna á Lákabæ í Inn-
ansveitarkróníku, stundum tek
ég eftir fagurlega útskornum
gluggum á húsum sem eru svo
kyrfilega faldir bak við hálfrar
aldar gömul tré að það þarf að
laumast inn í garðinn til að taka
eftir þeim, stundum sé ég óvænt
risatré í húsaskotum, kannski
gullregn sem hrynur fagurgult frá
stofni sínum, stundum torfþak á
húsi eða vafningsjurt sem fléttar
sig upp eftir húsveggjum. Um
daginn sá ég óvænt fullan garð af
myndastyttum eftir Porbjörgu
Pálsdóttur. Það var óvænt upp-
götvun. Stundum sé ég svo Íítil
hús að mann undrar að nokkur
skuli búa í þeim og stundum svo
stór að mig rekur í rogastans.
Sum húsin eru ósköp mjó og sum
svo feit að það er eins og þau séu
að springa, sum eru há og renglu-
leg, sum fátæk og sum rík.
Bjargarstígur, Óðinsgata,
Fjölnisvegur, Sjafnargata, Urð-
arstígur, Bragagata, Laufásveg-
ur, Fjólugata. Götur sem leyna
stöðugt á sér, fullar af uppáfinn-
ingum. Ég efast um að nokkurt
hverfi í Reykjavík sé jafn auðugt
og fj ölbreytilegt og holtin sunnan
og vestan við Skólavörðuhæð,
ekki einu sinni gamli Vestur-
bærinn. Það er munaður að búa í
hverfi sem er stöðug uppspretta
nýrra uppgötvana, hverfi sem er
gleði fyrir augað.
Sums staðar er verið að reisa ný
hús og fylla upp í skörðin, það er
ágætt en menn mega ekki vera of
gírugir í að rífa. Þeir eru það
reyndar ekki. Hvarvetna er verið
að flikka upp á gömul og falleg
hús, járna þau upp á nýtt, setja í
þau glugga sem hæfa þeim, mála
þau og dedúa við þau á alla enda
og kanta. Niðurrifsaldan mikla
sem náði hámarki á 7. áratug ald-
arinnar hefur brotnað við strönd-
ina og rís aldrei aftur.
Hver gæti hugsað sér að gamla
biskupssetrið í Laufási sem
Laufásvegur er kenndur við væri
rifið? Það er líklega eina húsið í
holtunum sem ekki hefur númer.
Það heitir einfaldlega Laufás við
Laufásveg og er ákaflega fallegt.
Fjósið og hlaðan hans Þórhalls
biskups eru að vísu horfin en enn
má sjá gamlar garðhleðslur ef
gægst er inn í garðinn á þessu
gamla höfðingjasetri. Þar býr
tengdadóttir biskupsins í hárri
elli, búin að vera ekkja í hálfa
öld. Oft hef ég horft á þetta hús
og trén fyrir utan og oft hefur mig
langað til að líta inn. Þar hlýtur
margt forvitnilegt að vera að sjá.
En ég læt nægja að ímynda mér,
hugsa og láta mig dreyma. Ég er
svoddan draumóramaður.
-Guðjón
ALÞYÐUBANDALAGHD
Sumarferð Alþýðubandalagsins á Austurlandi
sunnudaginn 21. júlí
Eins og undanfarin sumur gengst kjördæmisráð Alþýðubanda-
lagsins á Austurlandi fyrir gönguferð, sem að þessu sinni er ráð-
gerð yfir Stuðlaheiði milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar. Gert
er ráð fyrir að leggja upp frá eyðibýlinu Stuðlum í Reyðarfirði kl. 09
og þaðan gengið inn Hjálmadal og yfir Stuðlaskarð og niður Stuðl-
aheiði að Dölum í Fáskrúðsfirði. Fararstjóri verður Hjörleifur Gutt-
ormsson. Rútuferðir verða skipulagðar eftir því sem þörf krefurfrá
Egilsstöðum, Neskaupstað og úr Breiðdal að Stuðlum og síðan til
baka frá Dölum. Væntanlegir þátttakendur láti skrá sig sem fyrst
hjá einhverjum eftirtalinna:
Ónnu Þóru Pétursdóttur, Fáskrúðsfirði, sími 5283.
Margréti Óskarsdóttur, Eskifirði, sími 6299.
Sigurjóni Bjarnasyni, Egilsstöðum, sími 1375.
Jóhönnu illugadóttur, Reyðarfirði, sími 4377.
Hjörleifi Guttormssyni, Neskaupstað, sími 7665.
Ferðin er öllum opin. - Munið nesti og góöa gönguskó. - Stjórn
kjördæmisráðs.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Sumarferð ABR 17. ágúst
Árleg sumarferð Alþýðubandalagsins í Reykjavík verður laugar-
daginn 17. ágúst. Að þessu sinni verður ekiö um Hvalfjörð og áð
við Saurbæ og á Akranesi við kútter Sigurfara. Þaðan verður ekið
að Leirá. Frá Leirá verður farið um Svínadal og að Reykholti. Síðan
verður ekið um Uxahryggi og áð í Biskupsbrekku á Kaldadalsleið.
Þaðan verður ekið um Þingvelli til Reykjavíkur. Fararstjórn að
þessu sinni verður í höndum Árna Björnssonar og Kjartans Ólafs-
sonar.
Áningastaðir og allt fyrirkomulag ferðarinnar verður nánar kynnt í
Þjóðviljanum síðar en ferðanefnd hvetur alla flokksmenn og stuðn-
ingsmenn að panta miða tímanlega til að auðvelda allan undirbún-
ing. Skráning farþega er'í síma 17500. - Ferðanefnd ABR.
Tilkynning til
miðstjórnarmanna
Alþýðu-
bandalagsins
Framkvæmdastjórn Alþýðu-
bandalagsins hefur ákveðið
að haustfundur miðstjórnar
verði haldinn í Reykjavík dag-
ana 21.-22. september n.k.
Meginefni fundarins verða
utanríkismál.
Miðstjórnarmenn eru beðnir
að festa sér þessa dagsetn-
ingu í minni og hafa í huga að
berist óskir um að á dagskrá
verði tekin mörg mál gæti orö-
ið að hefja miðstjórnarfundinn
föstudagskvöldið 20. sept-
ember.
Þá er miðstjórnarmönnum
bent á ráðstefnu um Þjóðvilj-
ann og ný viðhorf í fjölmiðlun
sem ákveðið hefur verið að
halda eftir hádegi sunnudag-
inn 22. september, en gert er
ráð fyrir að Ijúka miðstjórnar-
fundinum fyrir hádegi sama
dag. - Flokksskrifstofan.
Vesturland - Sumarferðalag
Eins og undanfarin sumur efnir Alþýðubandalagið á Vesturlandi til
útivistar og ferðalaga um verslunarmannahelgina.
Nú verður farið um Snæfellsnes og Nesið skoöað undir leiðsögn
gagnkunnugra heimamanna. Gist verður í tvær nætur í svefnpoka-
plássi á Lýsuhóli í Staðarsveit.
Brottför frá Borgarnesi kl. 10 á laugardagsmorgni 3. ágúst.
Heimkoma síðdegis á mánudag 5. ágúst.
Auglýst verður síðar um frekari tilhögun ferðalagsins en þar til sú
auglýsing birtist gefa upplýsingar þau Ólöf Hildur formaður í síma
8811 og Skuli þingmaður í síma 6619.
Þetta er fjölskylduferðalag - Allir velkomnir. - Kjördæmisráð.
ÆSKULÝÐSFYLKINGIN
Ferðalangar Ath.
Sumarferð Æskulýðsfylkingarinnar er frestað vegna
óviðráðanlegra ástæðna. - Ferðanefnd.
14 SÍÐA - ÞJÓÐV NN Sunnudagur 21. júlí 1985