Þjóðviljinn - 05.09.1985, Blaðsíða 10
HÚS OG INNBÚ
Þegar um hellulagningu er aö ræða er sandur lagður ofan á grúsina, þeim mun betur sem til hefur tekist við jöfnun hennar
þeim mun minna þarf af sandi og þess þá þetra. Bjarni og Guðlaugur við hellulagningu við Árbæjarskóla. Ljósmyndari:-
sig.
Frágangur lóða
Óaðskiljanlegur hluti
húsbyggingar
Bjarni Þóröarson verktaki tekinn tali
Við Guðlaugur Valgeirsson
hófum starfsemi BG-
Verktaka í fyrravor, verk-
svið fyrirtækisins er ný-
vinnsla lóða, endurskipu-
lagning, lagfæring og lóða-
lögun almennt, sagði Bjarni
Þórðarson þá Þjóðvilja-
menn hittu hann fyrir, að
störfum, ásamt vinnufé-
lögum á lóð Arbæjarskóla í
Reykjavík.
Hverjir eru helstu verkþœttir,
Bjarni?
„Flestar lóðir skiptast gróflega
í eftirtalda þætti: hellulagðar
gangstéttar og innkeyrslur, mal-
bikuð svæði s.s. innkeyrslur,
stíga og plön, kantsteinslagnir,
hlaðna kanta af ýmsu tagi, trjá-
beð og gróðursetningar, girðing-
ar og svo að sjálfsögðu grasvelli.
Hvað gangstíga varðar,
innkeyrslur og alla reiti þar sem
leggja á hellur, tröppur o.þ.l.
verður að tryggja undirstöðuna.
Undir verður að leggja frostfrítt
/ísKunnarajý^gerast
fyrir K „nhlcidsins
•askrifenfÆölublöðunn
L-nn°r a tZ háin árgJald'
iessa ars W'n u gefa
un Þar sem ^jl vasatölvu
>pptOlYrnPM verðlcwn-
'PPeöa bœkur * Min0|ta4
:abúð /€**>"£sem '
velkomm M
Stígar, plön, kantsteinslagnir, hlaðnir kantar, trjábeð og gróðursetningar, girð-
ingar og grasvellir eru meðal þeirra þátta sem lóðin skiptist í. Hér er verið að
setja niður kantstein. Ljósmyndari: - sig.
efni, þ.e. efni sem ekki þenst út í
frosti, hrein efni (grús eða möl)
en alls ekki myldin. Skipta verður
um jarðveg allt niður á 80 cm
dýpi. Grúsinni verður síðan að
þjappa vel saman og tryggja að
mishæðir séu nánast engar. Þegar
um hellulagningu er að ræða er
sandur lagður ofan á grúsina,
þeim mun betur sem til hefur tek-
ist við jöfnun hennar þeim mun
minna þarf að sandi og þess þá
betra. Rúmmál sands tekur
breytingum vegna vætu og
þurrka og slíkt getur að sjálf-
sögðu skekkt hellulögn.
Að mínu áliti skiptir það miklu
máli að fólk hafi gert sér grein
fyrir skipulagi lóðar þegar bygg-
ing húss er hafin. Oft þarf að
framkvæma jarðvegsskipti svo
um munar, fjarlægja allt að
tveggja metra þykkt moldarlag,
slíkt er að sjálfsögðu best að gera
þegar í upphafi þegar grafið er
fyrir húsinu. Skipta má húsbyggj-
endum í tvo hópa hvað fyrir-
hyggju varðar í þessum efnum.
Þeir eru annars vegar sem hafa
tilfinningu fyrir umhverfi og
Einar Sveinsson markaðsstjóri Völundar hf. staddur í hinum nýja sýningarsal
fyrirtækisins Skeifunni 19: Afgreiðslusalur fyrirtækisins og sýningaraðstaða
hefur verið stækkuð verulega og öll aðstaða fyrir starfsfólk jafnt sem viðskipta-
vini stórbætt. Ljósmyndari: E.OI.
Timburverzlunin Vöiundur
Opnar
nýjan sýningarsal
Timburverslunin Völund-
ur hf. hef ur að undanförnu
staðið í stórræðum hér í
Skeifunni 19. Við opnum nú
sýningarsal hér og þar mun
fólk geta kynnt sér hina f jöl-
breyttu framieiðslu okkar,
sagði Einar Sveinsson
markaðsstjóri Völundar hf.
í Reykjavík þá blaðamenn
Þjóðviljans sóttu heim fyrir-
tækið við opnun hins nýja
sýningarsalarfyrir
skömmu.
„Afgreiðslusalur fyrirtækisins
og sýningaraðstaða hefur verið
stækkuð verulega og öll aðstaða
fyrir starfsfólk jafnt sem viðskipta
vini stórbætt. í sýningarsalnum
hver er um 200 fermetrar að
stærð er aðaláherslan lögð á að
sýna framleiðslu Völundar,
dönsku uno form innréttingarn-
ar, D-line hurðarhúna og baðher-
bergisvörur auk Velux þakglugga
en þeir hafa einmitt reynst mjög
vel við íslenskar aðstæður.
Meðal framleiðslu Völundar
má nefna útihurðir, innihurðir,
bílskúrshurðir, glugga og fög. Inn
flytjum við uno form eldhúss-,
baðherbergis-, forstofu-, borð-
stofu- og skrifstofuinnréttingar.
Þessar innréttingar hafa hlotið
frábæra dóma jafnt hjá hönn-
uðum, arkitektum, iðnaðar-
mönnum sem notendum og þykja
einstaklega stílhreinar og vand-
aðar.
Timburverzlunin Völundur
mun að sjálfsögðu verða starf-
rækt að Klappastíg 1 eftir sem
áður. f>ar munum við afgreiða
mótatimbur, spónaplötur, park-
ett, lista, glugga, klæðningar,
þakjárn og pappa, saum og margt
fleira til viðskiptavina. - Hér í
Skeifunni 19 verða hins vegar á
boðstólunum hurðir,
innréttingar, gluggar og fleira,“
sagði Einar að lokum og blaða-
menn kvöddu. -já
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 5. september 1985