Þjóðviljinn - 05.09.1985, Page 11
HUS OG INNBU
gróðri og hins vegar þeir sem líta
á frágang lóðanna sem illa nauð-
syn.
í mínum huga er frágangur
lóða óaðskiljanlegur hluti hús-
byggingar. Komið hafa fram á
sjónarsviðið heilu starfsgreinarn-
ar í þessu sambandi þ.e. um-
hverfishönnuðir, jarðvinnslu-
verktakar og garðyrkjumenn.
Undirtektir hvað varðar starf-
semi BG-Verktaka hafa verið
þess eðlis að við sjáum fulla á-
stæðu til þess að halda henni
áfram. Á mesta álagstímanum
fram í ágústlok höfum við verið
með 4-6 menn í vinnu en einnig
fjölda undirverktaka á okkar
snærum. Við höfum leitað til
þeirra t.d. hvað sprengingar
varðar, alla þungavinnuvéla-
vinnu og ýmsa sérfræðilega að-
stoð.
Að drepa vindinn
Girðingum má skipta í tvo flokka að sögn Bjarna Þórðarsonar. Hvern flokkinn
skyldi þessi girðing heyra undir? Myndin sýnir hluta lóðarinnar við Árbæjar-
skóla áður en þeir Bjarni og Guðlaugur tóku þar til starfa. Ljósmyndari: - sig.
Nánar um hina ýmsu verkþœtti
Bjarni, t.d. girðingar?
„Girðingum má skipta í tvo
flokka annars vegar varanlegar
girðingar s.s. skjólgirðingar og
hins vegar girðingar sem ekki er
ætlað að standa nema kannski
nokkur ár s.s. girðingar til af-
mörkunar, til þess að halda börn-
um inn í garði eða til þess að
vernda trjágróður í uppvexti.
Skjólgirðingar eru t.d. reistar
vegna eindreginnar ákveðinnar
vindáttar sem pirrar húseigend-
ur. Þær geta verið allt að tveggja
metra háar. Stundum eru staurar
grafnir niður eða steyptir í frost-
frítt efni, á þá eru síðan negld
borð. Best er að heilklæða ekki
og snöggdrepa með því vindinn,
við þá getur myndast yfirsveifla
sem gustar af. Skjólgirðingin ætti
að drepa vindinn með því að
borðum sé t.d. víxlað, rifur hafð-
ar í milli, þá hefur girðingin lík
áhrif og trjábelti.
Nú orðið eru menn hættir að
reisa steingirðingar en viðurinn
hefur komið í stað járnbentrar
steinsteipunnar, hér kemur að
sjálfsögðu tískan inní eins og al-
mennt í sambandi við frágang
lóða. Hvað hellulagninguna
varðar eru menn farnir að nota
minni hellur af hinum ýmsu gerð-
um en hellusteypurnar bjóða
uppá margbreytilegar hellur. Þá
hefur tískan sín áhrif hvað við-
kemur trjáplöntum og uppsetn-
ingu runna. Fólk hefur í seinni tíð
farið inn á ýmsar nýstárlegar
brautir varðandi plöntuval og
skipan þeirra í garðinum. í þessu
sambandi ráðlegg ég fólki ein-
dregið að leita ráða hjá garð-
hönnuðum.
Snjóbræðslurör
Einn er sá þáttur í frágangi lóða
sem mætir vaxandi vinsældum en
það er snjóbræðslurör undir hell-
um. Rörum þessum er komið
fyrir ca. 5 cm undir neðri brún
hellnanna í sandlagi, um þau geta
menn síðan látið streyma af-
gangshitaveituvatn, en á því ber
að sjálfsögðu að hafa góða stjórn
þannig að vatn frjósi ekki í rörun-
um. Einnig ber þess að gæta að
fyrir hendi séu örugg og vönduð
niðurföll þannig að afbræðslan,
vatnið, eigi greiða leið. Efvelerá
haldið getur fólk með þessu móti
haldið snjófríum innkeyrslum og
gangstígum. Hér við Árbæjar-
skóla höfum við einmitt nýtt okk-
ur þá möguleika sem snjó-
bræðslukerfi gefur. Mikilvægt er
að fólk kynni sér vel viðhald og
rekstur slíks kerfis láti það leggja
slíkt við hús sín.“
Hvenœr áœtliö þið að Ijúka
framkvæmdum hér við Arbœjar-
skóla?
„Mér þykir líklegt að það verði
um mánaðamótin september-
október n.k. Jú það eru sem sagt
möguleikar á því að halda þessu
áfram fram eftir haustinu ef tíð er
góð og veður leyfir. - Hvað fram-
tíðina varðar erum við mjög
bjartsýnir því við höfum orðið
varir við aukinn áhuga á fegrun
umhverfis hjá bæði einstak-
lingum og bæjarfélögum, sagði
Bjarni Þórðarson að lokum.
PJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Guðlaugur við mælingar við Árbæjarskóla ásamt einum starfsmanna BG-
verktaka. Margs er að gæta við frágang lóða - millimetrarnir hafa einnig sína
þýðingu. Ljósmyndari: - sig.
og
BEINT ÚR FRYSTINUM -TILBÚIÐ Á ÍO MÍN
HEITAR KJÚLLETTUR MEÐ FRÍSKANDI
KARTÖFLUSALATI
Hrærið saman 2 dl jógúrt, 2 dl
rjóma, 2 tsk sítrónusafa, salti
og pipar. Sneiðið 400 g af
soðnum kartöflum út i. Bragð-
bætið með fínt skornu dilli.
KJÚLLETTUR í HÁDEGINU
Heit eða kæld KJÚLLETTA á
smurðu rúgbrauði. Skreytt
með salatblaði, tómötum,
gúrkusneiðum. Einnig má
bragðbæta með súrmeti eða
fleski og brúnuðum sveppum.
KJÚLLETTUR í HAMBORGARABRAUÐI
Hitið hamborgarabrauð. Setjið
salatblað, remúlaði og KJÚLL-
ETTU í brauðið, ásamt sinnepi
og tómatsósu, einnig hráan
eða steiktan lauk.
SUNNUDAGSTILBREYTING
Brúnið 375 g af sveppum í 5
mín í 30 g af smjöri. Blandið
250 g af grænum baunum
saman við. Kryddið með salti
og 1 tsk af múskati. Berið fram
með steiktum KJÚLLETTUM og ristuðu franskbrauði
eða rúgbrauði.
KJÚLLETTUR Á ÍTALSKAN MÁTA
Stráið basilikum yfir KJÚLL-
ETTURNAR. Steikið á annarri
hliðinni í 2 mín. í 73 g af smjöri.
Snúið og þekið KJÚLLETT-
URNAR með feitum, mildum
osti. Steikið í 5 mín. (hafið lok á pönnunni) eða þar til
osturinn er þráðinn. Gott er að hafa með soðið spag-
hetti i smjöri.
DÁLÍTIÐ LÉTT OG GOTT
Setjið heita KJÚLLETTU á sal-
atblað ásamt rækjum; og
sveppum. Hellið salatsósu
yfir, t.d. sýrðum rjóma, bland-
aðan persillu, salti, pipar og
hvítlauk ef vill. Berið fram með hituðu snittubrauði.
PAPRIKU KJÚLLETTUR MEÐ HRÍGRJÓNUM
Mýkið 12 perlulauka i 25 g af
smjöri. Setjið 2 tsk af papriku
og örlítinn kanil út í, síðan 2 dl
af tómatpúrru og 2 dl rjóma.
Hellið þessu yfir hrísgrjónin.
Við kynnum KJÚLLETTUR
á sýningunni Heimilið 85.
ísfugl
fremstur
fug/a
Varmá Reykjavegi 36 Mosfellssveit
Sími: 666103