Þjóðviljinn - 05.09.1985, Page 13
HÚS OG INNBÚ
leigumiðlurum skylda til þess að
sjá til þess að eftir lögum um
húsaleigusamninga sé farið. Þeir
hjá Húsaleigufélaginu hafa hins
vegar lýst því yfir að þeir fylgi
ekki lögunum.
Þegar leigumiðlun á okkar veg-
um féll niður var ljóst að við gát-
um ekki unnið að skamm-
tímamarkmiðum almennra leigj-
enda þ.e. að útvega þeim þak yfir
höfuðið. Síðan dró mjög úr
áhuga þeirra á starfsemi félagsins
þar sem meðvitund fæstra
leigjenda er á nægilega háu stigi
til þess að þeir gefi sig að hug-
sjónabaráttu ef svo mætti segja.
Þá skortir tilfinningu fyrir því að
þeir séu hluti hagsmunahóps..
Stundum koma þó nokkrir til liðs
við okkur, jafnvel nokkur fjöldi,
eins og t.d. í sambandi við
hjónagarðsmálið fyrr í sumar.
Tvöfalt óréttlætl
Engin löggjöf hefur verið sett
varðandi leiguverð sérstaklega.
Þrátt fyrir að Lögum um húsa-
leigusamninga hafi verið dreift
meðal leigjenda og leigusala og
menn hvattir til þess að fylgja
þeim, þá er mikið um það að farið
sé í kringum þau. Enn eru það
leigusalar sem setja leigjendum
kosti, sem þeir síðarnefndu verða
í flestum tilfellum að sætta sig
við, því mikil eftirspurn er eftir
leiguhúsnæði.
Hefur jafnvel komið fyrir að
leigjendum sem neyðst hafa til
þess að gera ólöglega leigusamn-
inga hefur verið neitað um aðstoð
af hálfu félagsmálastofnanna
vegna hins ólöglega leigusamn-
ings. Óréttlæti það sem bitnar á
leigjendum er þannig tvöfalt ef
svo mætti segja. Við hljótum jú
að dæma samfélag það sem við
lifum og hrærumst í mikið eftir
því hvernig það fólk hefur það
sem verst er statt.
Húsaleigunefndirnar sem sam-
kvæmt lögunum skulu skipaðar
af sveitarstjórnum til starfa í
hverju sveitarfélagi hafa verið að
koma til - starfsemi þeirra er í
áttina. Er þeim t.d. ætlað að gera
úttekt á húsaleigumálum, hverri í
sínu sveitarfélagi, einu sinni á
kjörtímabili. Væntum við slíkrar
úttektar mjög bráðlega og erum
að sjálfsögðu boðin og búin til
þess að hjálpa til.
Starfsemi samvinnufélagsins
Búseta, óskabarns Leigjenda-
samtakanna ef svo mætti segja,
en þar kom hugmyndin um stofn-
un þess fyrst fram, hefur m.a.
grundvallast á starfi okkar, ég á
t.d. einnig sæti í stjórn Búseta, og
því tekið töluverðan tíma frá
samtökunum. Búsetuhugmyndin
hefur mætt harðri andstöðu, t.d.
frá hendi vissra afla innan Sjálf-
stæðisflokksins, en hún á jafn-
framt miklu fylgi að fagna sem
sést reyndar best á þeim fjölda
sem gerst hefur félagi í Búseta.
Með starfi Búseta nást fram
mikilvæg markmið Leigjenda-
samtakanna. Samtökin munu
einnig eflast mjög, þeim mun
fleiri sem leigja munu samkvæmt
búsetufyrirkomulagi því þeir ger-
ast félagar í þeim. - Það er því
bjartara yfir samtökum leigjenda
nú en verið hefur um skeið,“
sagði Sigurjón Þorbergsson að
lokum.
-já
GRÆNT HREINOL
Þetta gamla góöa í uppþvottinn
sem aldrei bregst.
ÞAÐBLAA
ER ALLT ÖÐRUVÍSI
Nú er Hreinol til í þremur geröum:
Fyrst er auðvitað það
gamla góða græna í uppþvottinn,
svo eFglænýtt gult
með sítrónuilmi, líka í uppþvottinn
og að lokum er svo það bláa,
sem auðvitað er allt öðruvísi þvíþað er
til hreingerninga — með salmíaki
og hvaðeina.
Allar gerðir Hreinols fást
í 530 ml, 2,0 I og 3,8 I pakkningum.
Er það ekki á hreinu?
HREINN
Barónsstíg 2-4, sími: 28400
GULT HREINOL
Nýr mildur uppþvottalögur meö
sítrónuilmi.
BLÁTT HREINOL
Afbragös hreingerningalögur
meö salmiaki.