Þjóðviljinn - 05.09.1985, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 05.09.1985, Blaðsíða 17
FRETTIR Símon ivarsson og Siegfried Kobilza skemmta Vestfirðingum með klassískum gítarleik. Vestfirðir Gítarsnillingar á ferð Innanbúðar í hinni nýju íþróttavöruverslun þeirra Seltirninga, tveir verslunar- þjónar standa við diskinn, f.v. Guðbjörg Vernharðsdóttir, annar eigenda versl- unarinnar, Margrét Leifsdóttir, starfsstúlka. Sportlíf á Seltjamamesi Gítarleikararnir Siegfried Ko- bilza frá Austurríki og Símon ívarsson munu halda tónleika víða á Vestfjörðum á næstu dögum. Þetta er í fjórða sinn sem þeir félagar leika saman hér á íslandi, en í fyrsta sinn sem þeir heimsækja Vestfirði. Siegfried og Símon fara í þessa tónleikaferð um Vestfirði í fram- haldi af velheppnuðu námskeiði í gítarleik sem haldið var á vegum Tónskóla Sigursvein D. Kristins- sonar í Reykjavík og var þátttaka þar einstaklega góð. Fyrstu tónleikarnir á Vest- fjörðum verða í Bolungarvík föstudagskvöldið 6. sept. kl. 21:00 í Félagsheimilinu. Laugar- daginn 7. sept. kl. 16:00 leika þeir félagar í ísafjarðarkirkju. Dag- inn eftir, sunnudaginn 8. sept. leika þeir á Flateyri, og eru tón- leikarnir þar kl. 20:30 í Mötu- neyti Hjálms hf. Á mánudags- kvöldið 9. sept. leika þeir í Fél- agsheimilinu á Þingeyri kl. 21:00. Síðustu tónleikar Símonar og Si- egfried á Vestfjörðum eru á Pat- I reksfirði þriðjudaginn 10. sept. kl. 20:30. Á efnisskránni er létt klassísk tónlist, sem ætti að falla flestum í geð. Þar er m.a. að finna verk eftir Beethoven, J.C. Bach. M. Praetorius, Boccherini og fleiri þekkt tónskáld. Siegfried Kobilza er nú einn fremsti fulltrúi klassískrar gítar- tónlistar í Austurríki. Hann ferð- ast víða og heldur tónleika og leiðbeinir á námskeiðum. Símon ívarsson þekkja flestir velunnarar góðrar tónlistar, en hann hefur á undanförnum árum Hjálparstarf Haustsöfnun aðventista Hjálparstarf aðvcntista hefur að venju sína árlegu fjársöfnun í ágúst og september. Þessi söfnun mun vera ein sú elsta í landinu eða nálægt því að vera hálfrar aldar gömul. Hjálparstarfið er alþjóðlegt starf og á undanförnum ára- tugum hefur fjölda stofnana ver- ið komið á fót, svo sem: Sjúkra- stöðvar, sjúkrahús, heilsugæsl- ustöðvar, verknámsskólar og aðrir skólar. Þessar stofnanir eru mannaðar árið um kring af fórn- fúsu hugsjónafólki. Meðlimir að- ventsafnaðarins um heim allan leggja fram fjármuni vikulega í þetta starf, en auk þess fer fram þessi árlega, almenna söfnun, venjulega í ágúst og september. A síðasta ári nam söfnunin tæpum tveim milljónum og fyrir hönd þeirra sem hjálpina fengu færum við ykkur bestu þakkir. haldið tónleika víða úti á lands- byggðinni, svo og komið fram bæði í sjónvarpi og útvarpi. (Fréttatilkynning) Veiði 3 gæsir á 500 kall Bændur bjóða skot- veiðimönnum þjón- ustu og gistingu Gæsaveiðitímabilið er hafíð og samkvæmt heimildum Þjóðvilj- ans hafa veiðarnar byrjað þokka- lega. Ferðaþjónusta bænda hefur ákveðið viðmiðunarverð á veiði- leyfum fyrir skotmenn sem vilja njóta þjónustu bænda, auk þess sem veiðimönnum er boðið uppá gistingu og fæði. Veiðileyfi fyrir gæsaveiði kost- ar 500 krónur fyrstu þrjár gæsirn- ar og í rjúpnaveiði kostar 500 krónur á dag að skjóta fyrstu 10 fuglana. Nýlega var opnuð sportvöru- verslun sem ber heitið Sportlíf í nýju verslanamiðstöð- inni við' Eiðistorg. í 160 fm. björtu og rúmgóðu verslunarhús- næði er viðskiptavinum boðið að velja úr fjölbreyttu úrvali vand- aðs sportfatnaðar og íþróttavara frá ýmsum virtum framleiðend- um. Þar má nefna Adidas, Don Cano, H,0, Arena, Henson Spee- do o.fl.,j Þar sem verslunin er á yfirráða- svæði Seltjarnarnesskaupstaðar er hægt að hagræða opnunartíma eftir þörfum. já ÍSLENSK HÖNNUN ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA INNRÉTTINGAR ÍALLT HÚSIÐ Skeifan 7 - Reykjavik - Símar 83913 -31113 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.