Þjóðviljinn - 05.09.1985, Side 23

Þjóðviljinn - 05.09.1985, Side 23
ÍÞRÓTTIR Hástökk Heimsmetið hækkar! Sovétmenn sigursœlastir á stúdentaleikunum Sovétmaðurinn Igor Paklin setti í gær nýtt heimsmet í há- stökki karla á heimsleikum stúd- enta í Kobe í Japan. Hann vippaði sér yfir 2,41 metra og bætti rúm- lega mánaðargamalt met landa síns, Rudolfs Povarnitsyn, um einn sentimetra. Heimsleikunum lauk í gær en á þeim var keppt um alls 122 gullverðlaun í hinum fjölbreyti- legustu íþróttagreinum. Þessar þjóðir skipuðu efst sætin í keppn- inni um verðlaunapeningana: gull sllfur brons Sovétríkin.. 44 21 19 Bandaríkin.. 22 21 23 Kúba..... 9 8 5 Kina..... 6 7 6 Japan.... 6 3 7 Rúmenía..... 5 10 6 Ítalía... 4 6 5 Búlgaría. 3 5 5 Norður-Kórea 3 3 2 Holland.. 3 2 3 Oddur Sigurðsson keppti í 400 m hlaupi á leikunum. Hann komst í milliriðil en ekki áfram í úrslitahlaupið. -VS/Reuter Frjálsar Sjöberg mistókst Einar á Italíu Aouita úr leik? Patrick Sjöberg frá Svíþjóð gerði í gærkvöldi tilraun til að setja nýtt heimsmet í hástökki karla, en Igor Paklin frá Sovét- ríkjunum stökk 2,41 metra í gær, fyrstur manna, eins og fram kem- ur hér til vinstri. Sjöbert keppti á sterku móti í Rieti á Ítalíu og sigraði með 2,35 metra. Hann lét síðan hækka rána í 2,42 metra en var aldrei nálægt því að fara yfir. Einar Vilhjálmsson var í Rieti í gær en keppti ekki á mótinu. Hann býr sig nú undir lokamót Grand Prix sem fer fram í Róm á laugardaginn og kemur til borg- arinnar í dag. Hlauparinn snjalli frá Marokkó, Said Aouita, tognaði á fæti þegar hann reyndi að bæta heimsmet Steve Cram í 2000 m hlaupi á mótinu í gær- kvöldi. Allt bendir til þess að hann missi af mótinu stóra í Róm af þessum sökum. -VS/Reuter V. Þýskaland Asgeir bestur Aftur útisigur hjá Stuttgart. fýBremen áfram efst þrátt fyrir jafntefli rSigurvins- son lék mjög vel og skoraði í Hann over. t Ásgeir Sigurvinsson var í ess- inu sínu I gærkvöldi þegar Stutt- gart sigraði Hannover 3-1 á úti- velli í vestur-þýsku Bundeslig- unni í knattspyrnu. Hann lék mjög vel, var telinn besti maður vallarins, og skoraði þriðja mark Stuttgart úr vítaspyrnu. Annar sigur Stuttgart í fimm leikjum og báðir hafa verið á útivöllum. Werder Bremen heldur forystu sinni í deildinni þrátt fyrir 3-3 jafntefli í Köln í gærkvöldi. Dick- el og Steiner komu Köln í 2-0 á fyrstu 2 mínútunum. Völler svar- aði fyrir Bremen á 14. mínútu, 2-1, en Geils skoraði jafnharðan fyrir Köln - staðan 3-1 eftir kort- er. Snemma í síðari hálfleik gerði Evrópuúrvalið Maraþonið ÍR-sveitin sigraði ÍR-ingar sigruðu örugglega í sveitakeppni Reykjavíkur maraþons- ins sem fram fór fyrir skömmu. Sveit ÍR skipuðu Ágúst Ásgeirsson, Birgir Þ. Jóakimsson og Steinn Jóhannsson og fengu þeir samanlagt tímann 1:14,39 klst. Sveit Bifreiðabygginga (Valdimar Jónsson, ísak Örn Jónsson og Finnur Thorlacius) varð í öðru sæti á 1:18,59 klst. og sveit Aspar 1 (Jón Grétar Hafsteinsson, Guðjón Árni Ingvarsson og Sigurður Pétursson) í þriðja sæti á 1:23,11 klst.. Alls tóku 24 sveitir þátt í keppninni. Firma- keppni ÍR Hin árlega firmakeppni Knatt- spyrnudeildar ÍR utanhúss verður haldin dagana 13.-15. september. Þátttökugjald verður kr. 3.500. Þátt- taka tilkynnist í síma 82855, Bcrgþór eða Hans, fyrir þriðjudaginn 10. sept- ember. Nánari upplýsingar fást einnig í sama síma. Stjömur hætta við! Bresku hlaupagarparnir Se- bastian Coe og Steve Cram og norska hlaupadrottningin Ingrid Kristiansen hafa öll dregið sig útúr Evrópuúrvalinu í frjálsum íþróttum sem keppir í heimsbik- arkeppninni í Ástralíu eftir mán- uð. Tveir aðrir öflugir hlauparar, David Redmond frá Bretlandi og Ralf Lúbke frá V.Þýskalandi, hafa einnig hætt við þátttöku. Þetta veikir Evrópuliðið talsvert og ritari Frjálsíþróttasambands Evrópu sagði í gær að endanlegt lið yrði ekki tilkynnt fyrr en eftir lokamót Grand Prix í Róm um næstu helgi. Sem kunnugt er var Einar Vilhjálmsson valinn full- trúi Evrópu í spjótkasti karla fyrir keppnina. -VS/Reuter Skotland Dalglish úr leik Kenny Dalglish, fram- kvæmdastjóri Liverpool og lykilmaður í skoska landslið- inu, getur ekki leikið hinn þýðingarmikla leik Skota gegn Walesbúum á þriðjudag- inn kemur. Hann er meiddur á hné og Ijóst er að hann verður ekki orðinn nógu góður í tæka tíð. Dalglish hefur leikið 97 landsleiki fyrir Skota, fleiri en nokkur annar. Skotar þurfa a.m.k. jafntefli í Wales til að komast í lokakeppni HM í knattspyrnu. -VS/Reuter Enska knattspyrnan Besta byrjun í 80 ár! Man. Utd. malaðiNewcastle. Tottenhamtókvið sér Það stöðvar ekkert Manchcster Un- ited þessa dagana. I gærkvöldi vann liðið sinn sjötta sigur í jafnmörgum leikjum í 1. deild ensku knattspyrn- unnar og hefur ekki byrjað svona vel í 80 ár. Það var ósigrað lið Newcastle sem var tekið í bakaríið á Old Traff- ord í gærkvöldi - Frank Stapleton skoraði á 5. mínútu og aftur á 11. mínútu en yfirgaf leikvöllinn meiddur á fæti skömmu síðar. Mark Hughes skoraði þriðja markið á 61. mín. Úrslit í Englandi í gærkvöldi: Tottenham-Chelsea 4-1 W.B.A.-Aston Villa 0-3 2. deild: Brighton-Leeds 0-1 Stoke-Grimsby 1-1 Tottenham tók heldur betur kipp eftir þrjú töp í röð og malaði nágrann- ana úr Chelsea sem voru taplausir og 1. deild: Leicester-Watford...... Manch.Utd-Newcastle .... . 2-2 . 3-0 Noregur Islendingaliðin í fallbaráttu Staða beggja „Islendingalið- anna“ í norsku 1. deildinni í knattspyrnu er slæm. Á sunnu- daginn var töpuðu bæði, Brann 2-1 fyrir Molde á útivelli og Start 2-1 heima gegn Rosenborg. „Allir sjá að ekki er hægt að láta sig dreyma um að Tony Knapp geti gert Brann að topp- liði þegar hann tekur við því á næsta ári,“ segir í umsögn iiorska Dagblaðsins um leik Brann og Molde. Blaðið gefur engum leik- manni Brann stjörnu fyrir leikinn en það metur frammistöðu leik- manna á svipaðan hátt og Þjóð- viljinn. „Enginn sem ann góðri knattspyrnu grætur stöðu Brann í deildinni," segir ennfremur í greininni. Lítið er minnst á Bjarna Sigurðsson markvörð en hann hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðu sína í sumar. Guðbjörn Tryggvason lék síð- ustu 16 mínúturnar með Start gegn Rosenborg. Það var jafn leikur og Start nálægt því að jafn í lokin. Þegar 5 umferðum er ólok- ið hefur Lilleström 24 stig, Ros- enborg 23, Vaalerengen, Kongs- vinger og Viking 19, Molde 18, Moss 16, Bryne 15, Mjöndalen og Start 14, Brann 13 og Eik 6 stig. -VS Sviss Luzem steinlá Mark dæmt af Sigurði Sigurður Grétarsson og fé- lagar í Luzcrn fengu skell í gærkvöldi þegar þeir töpuðu 5-1 fyrir nágrannaliðinu Aar- au i svissnesku 1. deildinni í knattspyrnu. Sigurður skoraði mark í leiknum en það var dæmt af vegna rangstöðu. Aarau leiddi 1-0 í hálfleik en Luzern jafnaði fljótlega eftir hlé. Tvö mörk á sömu mínútunni brutu síðan niður Luzern en sigur- inn var of stór miðað við gang leiksins. Luzern datt úr öðru sætinu niður í fimmta við þetta tap en Aarau komst í þriðja sæti. Servette er efst sem fyrr. -VS svo Bremen tvö mörk á þremur mínútum, Pezzey og Völler voru þar að verki, og þar með lauk markaskoruninni. Hamburger malaði Mönc- hengladbach 4-1. Magath, Grundel, Jakobs og Lux komu Hamburger í 4-0 áður en Bruns kom Gladbach á blað. Dússeldorf vann góðan sigur á Dortmund, 4-2, og Núrnberg sigraði Leverkusen 3-2. Staða efstu liða: Bremen............5 3 2 0 15- 6 0 Numberg...........5 3 1 1 11- 6 7 Gladbach..........5 3 1 1 10- 6 7 Mannheim..........5 2 2 1 8- 6 7 Bochum...........5 3 0 2 10-10 6 Uerdingen.........5 3 0 2 7- 9 6 Hamburger.........4 2 11 9-5 5 Bayern............4 2 11 6-3 5 Stuttgart.........5 2 1 2 8- 7 5 -VS Hercules Jafntefli Hercules, lið Péturs Péturs- sonar, gerði jafntefli, 2-2, við hið sterka lið Atletico Madrid í 1. deild spænsku knattspyrnunnar í gærkvöldi. Hercuies er þá með 1 stig eftir tvær fyrstu umferðir deildarinnar. -VS HM unglinga Spánn-Brasilía Það verða Spánn og Brasilía sem leika til úrslita í heimsmeistarakeppni unglingalandsliða í knattspyrnu. Undanúrslitin voru leikin í Moskvu í gær, Spánvcrjar lögðu Sovétmenn 4-3 í vítaspyrnukeppni eftir að staðan hafði verið 2-2 eftir framlenginu og Brasiliumenn sigruðu Nígeríu 2-0. -VS/Reuter höfðu aðeins fengið á sig eitt mark í fimm leikjum. Graham Roberts og Paul Miller komu Tottenham snemma í 2-0 og John Chicdozie skoraði þriðja markið fyrir hlé. Kerry Dixon lagaði stöðuna í 3-1 en Mark Falco svaraði fljótlega, 4-1. Colin Pates hjá Chelsea var rekinn útaf og fimm voru bókaðir. Glenn Hoddle, sem lagði upp öll fjögur mörk Totten- ham haltraði síðan af leikvelli, meiddur í nára. Mikið áfall fyrir enska landsliðið sem mætir Rúmen- um í næstu viku ef meiðsli hans reyn- ast alvarleg. Staða efstu liða í 1. deild: Man.Utd...............6 6 0 0 15-2 18 Everton...............6 4 1 1 14-6 13 Sheff.Wed............6 4 11 9-8 13 Liverpool.............6 3 2 1 13-5 11 Chelsea...............6 3 2 1 8-5 11 Newcastle.............6 3 2 1 9-8 11 Watford............. 6 3 1 2 14-9 10 Arsenal...............6 3 1 2 8-8 10 -VS/Reuter Frank Stapleton - tvö mörk í byrjun og svo beint útaf! Kvennaboltinn Jafntefli á KR-velli KR og Valur skildu jöfn, 1-1, á KR- vcllinum í 1. deild kvenna í knatt- spyrnu í gærkvöldi. Þetta var síðasti leikur KR-stúlkna og hlutu þær 20 stig en Valur, sem einnig hefur 20 stig, berst við Þór (19) um þriðja sætið. Mikið rok var í gærkvöldi og setti það strik í spilið. Valsstúlkurnar sóttu heldur meira til að byrja með og á 17. mínútu skoraði Kristín Arnþórsdóttir eftir gott samspil. KR-ingar gáfust ekki upp heldur sóttu meira eftir markið en fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik. KR-stúlkurnar spiluðu á móti í seinni hálfleik en höfðu betur og jöfnuðu á 7. mínútu. Þær fengu vít- aspyrnu og úr henni skoruðu víta- skyttan þeirra, Arna Steinsen. Valss- túlkurnar sóttu nær látlaust það sem eftir var. „Lína“ markvörður KR varði oft á tíðum mjög vel og var besti maður liðsins. Á síðustu sekúndu leiksins voru svo KR-stúlkurnar heppnar að fá ekki á sig vítaspyrnu. Því miður gat leikurinn ekki hafist á réttum tíma vegna þess að dómara vantaði, eins og oft vill brenna við í kvennaleikjunum. Vonandi fer þetta ástand að lagast! -MHM Fimmtudagur 5. september 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 23

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.