Þjóðviljinn - 04.10.1985, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 04.10.1985, Blaðsíða 2
FRETT1R Lárus Björnsson látinn Nýiátinn er á Akureyri Lárus Björnsson, trésmíðameistari, há- aldraður orðinn, fæddur 1. janú- ar 1893. Lárus var húnvetningur, bróðir hins landskunna rithö- fundar og fræðimanns, Magnús- ar heitins Björnssonar, bónda á Syðra-Hóli. Á yngri árum stundaði Lárus sjóróðra sunnanlnds svo sem títt var um norðlendinga, og gekk þá jafnan í ver og úr. Til Akureyrar mun Lárus hafa flutt upp úr 1930. Um margra ára skeið rak Lárus amboðaverksmiðjuna Iðju á Ak- ureyri, ásamt Sveinbirni Jónssyni. Lárus Björnsson var mikill og heill sósíalisti og lét þar aldrei sitja við orðin tóm. Hann lét sig ekki muna um það að færa Al- þýðubandalaginu á Akureyri heila húseign að gjöf, sem að sjálfsögðu er við hann kennd og nefnd Lárusarhús. Lárusar Björnssonar mun nán- ar verða minnst hér í blaðinu. -mhg Leikbrúðuland. Pað er geysimikil upphefð fyrir íslenskt brúðuleikhús að fá fyrstu verðlaun í landi þar sem brúðuleikhúshefð er fyrir hendi, sögðu Helga Steffensen, Bryndís Gunnarsdóttir, Hallveig Thorlacíus og Þórhallur Sigurðsson sem eru nýkomin heim úr sex vikna ferðalagi um Júgóslavíu, Frakkland og Italíu, þar sem Leikbrúðuland sýndi Tröllaleiki á fimm stöðum. ( Frakklandi tókum við meðal annars þátt í alheimshátíð brúðuleikhúsa sem kölluð er hátíð heimsálfanna fimm. í Júgóslavíu sýndum við í Ljubljana, Belgrad og Zagreb þar sem Tröllaleikir unnu til fyrstu verðlauna. Við fengum stórkostlegar móttökur og það er gaman að koma í þessi lönd þar sem brúðuleikhús er tekið í alvöru. Fólk er alið upp við brúðuleikhús frá blautu barnsbeini og hefðin birtist meðal annars í því að það eru mest karlar sem fást viö brúðuleikhús. Það má segja að Island sé svo sannarlega komið á kortið og í framahldi af þessari ferð fengum við boð til landa bæði í Evrópu og öðrum heimsálfum. Við leggjum af stað til Vínar eftir hálfan mánuð og sýnum Tröllaleiki þar. Það getur komið til greina að sýna Tröllaleiki hér heima því sýningin er töluvert breytt frá því við sýndum fyrst. Allar sjónvarpsstöðvar á Norðurlöndum hafa keypt verkin fjögur sem Tröllaleikir samanstanda af og er búið að sýna þá í Finnlandi. Verktakasambandið Vantraust á Landsvirkjun Verktakasamband íslands hefur miklar áhyggjur afhiður skurði Landsvirkjunar og ríkisins íframkvæmdum. Virkjanaáœtlanir Landsvirkjunar út í hött Ef haldið verður áfram að skera virkjanaframkvæmdir og framkvæmdir á vegum hins opinbera niður eins og fyrirsjáan- legt er, er ekkert framundan í verktakaiðnaði annað en upp- sagnir og svartnætti. Stjórn Landsvirkjunar hcfur sýnt fullkomið ábyrgðarleysi í stjórn virkjanaframkvæmda og niður- skurðurinn við Blöndu nú kemur mjög harðlega niður á okkur, sagði Pálmi Kristinsson fram- kvæmdastjóri Verktakasam- bands íslands á fundi með frétta- mönnum í gær, en eins og kunn- ugt er ákvað stjórn Landsvirkj- unar nýverið að skera fram- kvæmdir við Blöndu niður um 450 miijónir króna. „Þegar hefur komið til upp- sagna hundruða manna í verktak- aiðnaði og það verður enn meiri samdráttur í vetur ef ekkert verð- ur að gert. Við lýsum yfir fullu vantrausti á stjórn Landsvirkjun- ar og áætlanagerð hennar í virkj- anaframkvæmdum, sem byggðar eru á forsendum sem eru algjör- lega úr lausu lofti gripnar. Virkj- anaframkvæmdir hafa verið mjög sveiflukenndar og þær sveiflur hafa verið alltof krappar. Topp- arnir hafa leitt til offjárfestingar í verktakaiðnaði og nú sitja menn uppi með rándýr tæki sem líklega verður að selja úr landi. Ef fram- kvæmdir hefjast að nýju af krafti eftir nokkur ár er alls ekki víst að hér á landi verði til nógu sterkir aðilar til að annast þær, og þá verður að fá erlenda aðila til.“ Pálmi lýsti einnig miklum áhyggjum yfir þeirri fyrirætlan ríkisstjórnarinnar að leggja 25% vörugjald á byggingarefni og taldi það myndi leiða til 5% hækkunar byggingarkostnaðar. „Byggingariðnaðurinn er á hraðri niðurleið og þetta mun valda algjöru hruni ef til kemur.“ gg Jafntefli Karpov og Kasparov gerðu stórmeistarajafntefli Tólftu skákinni lauk með jafn- tefli eftir aðeins átján leiki. Kasp- arov fórnaði peði í áttunda leik og þegar hann var síðan búinn að koma liði sínu út og vinna peðið til baka sömdu meistararnir um jafntefli. Staðan í einvíginu eftir að það er hálfnað er því 6-6. Hvítt: Anatoly Karpov Svart: Garry Kasparov Taimanov afbrigðið í Sikileyjar- vörn. 1. e4 c5 5. Rb5 d6 2. Rf3 e6 6. c4 Rf6 3. d4 cxd4 7. Rlc3 a6 4. Rxd4 Rc6 8. Ra3 d5 Nýjung. Svartur fórnar peði en nær smá frumkvæði í staðinn. 9. exd5 exd5 10. cxd5 Eftir 10. Rxd5 Rxd5 svarar svartur 11. cxd5 með Bb4+ og 11. Dxd5 með De7+ 12. Be3 og Be6 og hefur sómastöðu í báðum tilvikum. 10. - Rb4 15. Rc2 Rxe3 11. Bc4 Bg4 16. Rxe3 De6 12. Be2 Bxe2 17. 0-0 Bc5 13. Dxe2+ De7 18. Hfel 0-0 14. Be3 Rbxd5 jafntefli. 8 1 I# 1 7 Mti mmi 6 i wm ■ 5 W i !§ H 4 Í JB, ■ 3 m a ■ 2 &u i m&Ms 1 n m 2 á? Alþýðubandalagið ABR sendir 85 fulltnía á landsfundinn Fulltrúar ABR á landsfund Al- þýðubandalagsins 7.-10. nóv- ember n.k. voru kjörnir á fjöl- mennum fundi s.l. fimmtudags- kvöld. Félagið sendir 85 fulltrúa á landsfundinn og voru jafnmargir kjörnir til vara. Aðalmenn voru kjörnir (at- kvæðatölur í sviga): Adda Bára Sigfúsdóttir, borgarfulltrúi (70), Arna Jónsdóttir, fóstra, (62), Arnór Pétursson, fulltrúi (63), Áifheiður Ingadóttir, blaðamað- ur (63); Árni Bergmann, ritstjóri (45), Ásdís Skúladóttir, félags- fræðingur (43), Ásmundur S. Hilmarsson, form. Félags bifvél- avirkja (48), Ásmundur Stefáns- son, forseti ASf (68), Baldur Óskarsson, háskólanemi (47), Bergþóra Gísladóttir, kennari (52), Bjargey Elíasdóttir, skrif- stofumaður (54), Bragi Guð- brandsson, félagsmálastjóri (36), Dagný Haraldsdóttir, húsmóðir (38), Einar Olgeirsson, fyrrv. þingmaður (56), Elísabet Þor- geirsdóttir, skáld (47), Emil Bóasson, landfræðingur (62), Er- lingur Viggósson, skipasmiður (59), Esther Jónsdóttir, varafor- maður Sóknar (47), Gerður G. Óskarsdóttir, kennari (45), Gils Guðmundsson, fyrrv. alþingism. (36), Gísli B. Björnsson, auglýsingateiknari (38), Gísli Gunnarsson, sagnfræðingur (53), Grétar Þorsteinsson, formaður Trésmiðafélags Reykjavíkur (66), Guðjón Jónsson, formaður Málm- og skipasmiðasamb. ísl. (53), Guðmundur J. Guðmunds- son, alþingism. formaður VMSÍ (56), Guðmundur Hallvarðsson, verkamaður (47), Guðmundur Þ. Jónsson, formaður Landssamb. iðnverkafólks (51), Guðni A. Jó- hannesson, formaður Búseta (38), Guðrún Ágústsdóttir, borg- arfulltrúi (63), Guðrún Guð- mundsdóttir, framkvæmdastjóri (41) , Guðrún Guðvarðardóttir, skrifstofumaður (36), Guðrún Hallgrímsdóttir, verkfræðingur (59), Guðrún Helgadóttir, al- þingism. (68), Gunnar Guttorms- son, deildarstjóri (45), Gylfi Páll Hersir, eðlisfræðingur (58), Hanna Kristín Stefánsdóttir, kennari (39), Haraldur Steinþórsson, framkvæmdastj. BSRB (59), Helga Sigurjónsdótt- ir, kerfisfræðingur (48), Helgi Guðmundsson, trésmiður (55), Hrafn Magnússon, form. SAL (42) , Ingi R. Helgason, forstjóri (40), Ingibjörg Haraldsdóttir, skáld (47), Jóhannes Gunnars- son, formaður Neytendasamtak- anna (41), Jónína Benediktsdótt- ir, skrifstofumaður (60), Kjartan Ólafsson, fyrrv. ritstjóri (58), Kristín Á. Ólafsdóttir, leikari (62), Kristján Valdimarsson, skrifstofustjóri (53), Lena M. Rist, kennari (49), Loftur Gutt- ormsson, sagnfræðingur (41), Margrét S. Björnsdóttir, þjóðfé- lagsfræðingur (49), Margrét Guðnadóttir, prófessor (47), Margrét Pála Olafsdóttir, vara- form. Fóstrufélagsins (49), Mar- grét Tómasdóttir, ritari (42), Már Guðmundsson, hagfræðingur (43), Nanna Rögnvaldsdóttir, nemi (32), Ólöf Ríkarðsdóttir, ritari (57), Óskar Guðmundsson, ritstjórnarfulltr. (44), Óttar Magni Jóhannsson, sjómaður (43), Páll Bergþórsson, veður- fræðingur (49), Pétur Tyrfings- son, verkamaður (42), Ragna Öl- afsdóttir, kennari (42), Ragnar A. Þórsson, verkamaður (40), Reynir Ingibjartsson, fram- kvæmdastjóri (45), Sigurdór Sig- urdórsson, blaðam. (55), Sigurð- ur Harðarson, arkitekt (36), Sig- urður G. Tómasson, fulltrúi (42), Sigurjón Pétursson, borgarfull- trúi (67), Sigurlaug Gunnarsdótt- ir, verkakona (36), Silja Aðal- stcinsdóttir, ritstjóri (56), Skúli Thoroddsen, lögmaður (55), Stefanía Harðardóttir, fram- kvæmdastjóri (36), Steinar Harð- arson, formaður ABR (68), Steinunn Jóhannesdóttir, leikari (60), Svanur Jóhannesson, bók- bindari (37), Svava Jakobsdóttir, rithöfundur (61), Svavar Gests- son, formaður ÁB (73), Tryggvi Þór Aðalsteinsson, framkvæmd- astj. MFA (62), Ulfar Þormóðs- son, framkvæmdastj. (37), Vil- borg Harðardóttir, útgáfustjóri (70), Þorbjörn Broddason, lektor (62), Þorbjörn Guðmundsson, varaform. Trésmiðafél. Reykja- víkur (35), Þórhallur Sigurðsson, leikari (36), Þráinn Bertelsson, rithöfundur (40), Þröstur Ólafs- son, framkvæmdastj. Dagsbrún- ar (49) og Össur Skarphéðinsson, ritstjóri (61).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.