Þjóðviljinn - 04.10.1985, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 04.10.1985, Blaðsíða 4
LEIÐARI Linka Framsóknar Eitt mikilvægasta mál sérhverrar ríkisstjórnar er gerö fjárlaga. Fjárlögin ákvaröa að verulegu leyti skatta og framkvæmdir á hverju ári, og ætli flokkur sem á sæti í samsteypustjórn að koma stefnumálum sínum í framkvæmd, þá þýöir ekki fyrir hann aö standa álengdar hjá og horfa á hinn stjórnarflokkinn smíða lögin, hann verður aö berjast fyrir stefnumálum sínum meö oddi og egg- Linkan í Framsóknarflokknum er hins vegar oröin slík, og hræöslan við stjórnarslit og kosn- ingar svo mögnuö, aö viö fjárlagagerðina viröist hann bara lufsast meö Sjálfstæöisflokknum einsog klepri aftan á kú, og reynir ekki einu sinni aö koma málum sínum fram. Stóreignaskatturinn er mjög gott dæmi um linku Framsóknar. Á fundum talar Framsóknar- forystan hátt og mikið um nauösyn þess aö koma slíkum skatti á. Það er líka Ijóst, aö meðal almennra Framsóknarmanna er mikill og víö- tækur stuöningur fyrir stóreignaskatti, einsog flestir óbreyttra þingmanna Framsóknarflokks- ins viöurkenna í einkasamtölum. Ungir Fram- sóknarmenn hafa líka æ ofan í æ gert sam- þykktirsem lúta einmitt aö því. Innan ríkisstjórn- arinnar hefur hins vegar Sjálfstæöisflokkurinn variö hagsmuni stóreignamanna eöli sínu sam- kvæmt, og staðið harkalega gegn stóreigna- skatti. Og linkan í Framsókn er oröin slík, aö hún lét kúga sig í málinu án teljandi mótspyrnu. Þaö er raunar eftirtektarvert, aö Framsókn- arflokkurinn er orðinn svo hræddur viö kosning- ar, aö í hvert sinn sem úr herbúðum Sjálfstæðis- flokksins berst eitthvað sem hægt er aö túlka sem hótun um stjórnarslit, þá reisir Framsókn hvíta flaggið og gefst upp. Flokkurinn óttast kosningar og dóm kjós- enda, og þaö er raunar skiljanlegt miðað við frammistöðuna í ríkisstjórninni. Þaðereftirtektarvert, aö Framsóknarforystan er svo upptekin viö aö halda sér á ráðherrastól- unum, að flokkurinn viröist hafa lítinn áhuga og þarafleiðandi óskýra afstööu til fjárlaganna. Þannig var þingsveit flokksins í upphafi hjartan- lega sammála tillögum sem komu úr ríkisstjórn- inni um fjárlög. En þegar þingflokkur Sjálfstæð- ismanna skipti um skoðun á fjárlögunum vegna innanflokksátaka um ráðherrastóla, þá ber svo við að Framsóknarflokkurinn skiptir líka um skoðun. Allt í einu er hann orðinn sammála Sjálfstæöisflokknum um aö fjárlagadrögin sem flokkarnir voru aö enda viö aö samþykkja að væru góð, séu nú orðin vond! Þessi röklausa hegðun Framsóknarflokksins er vægast sagt mjög furðuleg. Hún bendir tili þess aö annaðhvort sé ekki lengur til vottur af sjálfstæðri hugsun í kollinum á Framsóknarfor- ystunni, eða þá Framsóknarflokkurinn sé reiðu- búinn að gleypa allt til að forðast stjórnarslit ogi kosningar. Enn furöulegri eru þó ummæli forsætis- ráöherrans, Steingríms Hermannsspnar, sem ríkisfjölmiðlar höföu eftir honum frá ísrael. Þar lýsti hann því yfir án þess að blikna, aö hann hafi í rauninni alltaf veriö meö því aö skera meira niöur úr fjárlagadrögunum! Auövitaö datt ríkis- fjölmiðlunum ekki í hug aö spyrja, hví í ósköpn- um blessaður maðurinn var þá að samþykkja drögin nokkrum dögum fyrr. í sama viðtali var ekki hægt aö skilja annaö á forsætisráöherra en að þar sem ráðuneyti Sjálf- stæðisflokksins ráöið 80 af hundraði fjárlag- anna, þá væri það í rauninni honum aö kenna aö fjárlagadrögin væru of há. Framsókn bæri þar ekki nokkra ábyrgð. í sama streng er tekið í leiðara NT, málgagns Framsóknarflokksins í gær. Þetta er auðvitað fráleitt viöhorf. Fram- sóknarflokkurinn ber nákvæmlega sömu ábyrgð á fjárlagaöngþveitinu og Sjálfstæöis- menn og getur á engan hátt skotið sér undan henni. Hitt er svo annað mál, að Framsókn virðist gleypa allt sem Sjálfstæðisflokkurinn réttir henni. Linka flokksins er orðin slík og óttinn við kosningar svo mikill að Sjálfstæðismenn geta gert það sem þeir vilja. Og flokkur sem ekki getur annað en skolfið einsog hlaup í hvert sinn sem samstarfsflokkurinn reisir hárin, hann á einfaldlega lítið erindi á valdastóla. -ÖS KUPPT OG SKORIÐ Hvaða læti eru þetta Menn eru ekkert mikið fyrir það nú um stundir að taka stórt upp í sig. Stílstefnan virðist vera sú að segja heldur færra en fleira. Og þegar komið er að hinum stærstu málum er eins víst, að þeir sem um þau fjalla á prenti gangi í hring í þykkri þoku. t>ó kemur það fyrir að skríb- entar hleypa í sig einhverjum fít- onsanda. A dögunum var birt grein í DV um þá Jón Helgason dómsmálaráðherra og Ólaf Þórð- arson þingmann og er höfundur hennar Baldur Hermannsson. Þar segir m.a.: „f uppvextinum markaðist sjóndeildarhringur þeirra af fjós- haugnum við bæjardyrnar og fjallinu handan vogsins. Þeim var ekki kennt neitt um menningu nútímans. Lífsreynsla þeirra var öll af toga rollurassa og þorsk- hausa og þekkingu sína supu þeir þakklátir af brunnum kýrhalavís- indanna, sem vissulega þótti bærilegt veganesti til forna, en hrekkur ekki langt í siðmenntuðu borgarsamfélagi". Og hvert er svo tilefni þessa hrokafulla gusugangs? Það eitt, að fyrrgreindir Framsóknarhöfð- ingjar hafa leyft sér að vera and- stæðingar sterks bjórs. Þá er í ís- lenskri umræðu komið að því ör- lagamáli að allar stflrænar púður- birgðir verður að sprengja í einu. Ógnar hverjum? Það var forsíðugrein í Alþýðu- blaðinu í gær undir fyrirsögninni „Útbreiðsla alnæmis 'í Afríku ógnar Evrópu“. Það er engin lygi, að ef það reynist rétt að um 30 miljónir Afríkumanna hafi tekið þessa banvænu pest, eins og í greininni segir, þá er mikill háski uppi í Evrópu og víðar. En eitthvað er það leiðinlegur hugsunarháttur, sem beinir ekki athyglinni að því fyrst og fremst, að útbreiðsla al- næmis í Afríku ógnar fyrst og fremst Afríkumönnum sjálfum. Þessi hugsunarháttur kemur líka fram í svofelldri klausu í greininni, en þar er haft eftir dönskumprófessorað „núværi nauðsynlegt, að ríkisstjórnir á Vesturlöndum legðu fram mikla fjármuni til að afla upplýsinga frá þeim löndum, þar sem sjúkdóm- urinn herjar“. Afla upplýsinga stendur þar, til að VIÐ getum varað okkur bet- ur. Það er alltaf verið að stofna fé- lög og þau eru orðin svo mörg að allir Islendingar gætu komist í stjórn þeirra ef þeir kærðu sig um. Og nú er enn eitt á döfinni og er mjög sérstætt. Það kallar sig Frjálsir vegfarendur og ætlar að stofna sig á Gauki á Stöng á sunnudaginn kemur. Þetta er félag þeirra, sem vilja að aðrir viti sem best um það frelsi sem þeir njóta, sem fara ferða sinna í strætó, hjólandi eða gangandi og er þetta satt best að segja óvenju gott tilefni til að stofna félag. Þorvaldur Örn Árnason skrifar grein um málið í DV á dögunum og rekur meðal annars eftirfar- andi rök fyrir því að ganga eða hjóla í stað þess að nota einkabfl: Það er miklu ódýrara. Engin hætta á að slasa aðra. Sparar orku, gjaldeyri, viðhald á götum og bflastæði. Dregur úr mengun og umferðarþunga. Veldur öðr- um vegfarendum minni óþægind- um, slakar á streitu, vinnur gegn offitu, bætir svefn, eykur þrek og kraft og tryggir lágmarksútivist. Og sá sem svo fer að ráði sínu nýtur betra útsýnis en aðrir menn og „skynjar nánar umhverfið". Segi menn svo að það sé aldrei neitt jákvætt borið fram fyrir blaðalesendur! Geðþóttavald og meiðyrði Saksóknari er eina ferðina enn kominn á kreik með meiðyrða- mál og nú eru það samtök lögreglumanna sem vilja fá Þorg- eir Þorgeirsson rithöfund dæmd- an fyrir óviðurkvæmileg ummæli um stéttina og hennar fram- göngu, með tilvísun í frægan laga- bókstaf og illræmdan um að „að- dróttun þótt sönnuð sé varðar sektum ef hún er borin fram á ótilhlýðilegan hátt“. Síðast í gær ber lögmaður Þorgeirs fram ýmisleg gagnrök í málinu í opnu bréfi til dómsmálaráðherra, en ákærði telur, að kæran og málsmeðferð öll brjóti bæði gegn stjórnar- skránni og ýmsum gildandi lögum. Lögmaður segir m.a. um kæruefnið: „Rithöfundi hlýtur að vera heimilt að fjalla almennt um framkvæmd opinbers valds og vara við að því sé beitt þannig að það valdi líf- og heilsutjóni. Hon- um hlýtur einnig að vera heimilt að viðhafa þau efnistök, orð og stfl, sem hann telur rétt, meðan ekki er vikið að ákveðnum mönnum. Lesendur geta síðan látið sér líka vel eða illa“. Þetta er rétt afstaða og skyn- samleg og ástæða til að menn taki undir hana sem best þeir mega. Það hefur margsannast að meiðyrðalöggjöfin íslenska er ekki nema til bölvunar, ekki síst þar sem reyndin verður sú hvað eftir annað, að hún er fyrst og síðast vopn í höndum þeirra sem nógu hátt hafa prílað í valdapýr- amída og geta beitt henni að geð- þótta til að ná sér niðri á mönnum. Notkun þessarar lög- gjafar hefur oftar en ekki haft á sér sterkan blæ pólitískra hefnd- araðgerða og gerir hana háska- lega málfrelsi í landinu. -ÁB DJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóöfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergman, össur Skarphéðinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson. Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Garðar Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla- son, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson, Þór- unn Sigurðardóttir, Þröstur Haraldsson. Handrtta- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Ljósmyndir: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Utlit: Sævar Guðbjömsson, Garðar Sigvaldason. Símvarsla: Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmæður: Agústa Þórisdóttir, Ölöf Húnfjörð. Bflstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjórl: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Lftbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir. Auglýsingar: Ragnheiður Óladóttir. Auglysingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga Clausen. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Utkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, simi 81333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 35 kr. Sunnudagsblað: 40 kr. AskrMt ó mónuði: 400 kr. 4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. október 1985

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.