Þjóðviljinn - 04.10.1985, Blaðsíða 3
*
______________________FRETTIR__________
P Ríkisstjórnin
Otryggtundir
Alexander og Jóni
Hugmyndir uppi innan Framsóknar aðfá ráðherrastóla undir Guðmund
Bjarnason ogDavíð Aðalsteinsson.
Við ungir framsóknarmenn
höfðum mikil áhrif á það hverjir
urðu ráðherrar á sínum tíma
fyrir Framsóknarflokkinn og við
munum styðja við bakið á núver-
andi ráðherrum, sagði Finnur
Ingólfsson formaður SUF í viðtali
við Þjóðviljann í gær, en innan
Framsóknarflokksins eru nú
komnar upp raddir um að nota
tækifærið og losa sig við Alexand-
er Stefánsson félagsmálaráðherra
og Jón Helgason landbúnaðar-
ráðherra um leið og Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur mannaskipti í
ráðherrastólunum.
Þeir sem helst eru nefndir sem
ráðherraefni um þessar mundir
eru þeir Davíð Aðalsteinsson sem
taka ætti við landbúnaðarráðu-
neytinu og Guðmundur Bjarna-
son sem ætti að gerast húsnæð-
ismálaráðherra. Uppúr sl. ára-
mótum kom sú hugmynd fram
innan Framsóknarflokksins m.a.
í blaðaviðtali við forsætisráð-
herra, að skipt yrði um ráðherra
Framsóknarflokksins um leið og
Sjálfstæðisflokkurinn umstokk-
aði sínum ráðherralista, en það
rann allt út í sandinn einsog
kunnugt er.
Þegar Þjóðviljinn bar viðhorf
formanns SUF undir áhugamenn
í Framsóknarflokknum um
mannabreytingar, sögðu þeir, að
það væri pólitískt glapræði að
reyna ekki að lappa uppá fram-
sóknarráðherrana ef Sjálfstæðis-
flokkurinn gerði það hjá sér. -óg,
Kjarabarátta
Verkfall
hjá
Securitas
Dagsbrún boðar verkfall
áfyrirtœkið Securitas nk.
miðvikudagskvöld eftir
árangurslausar
samningaviðrœður
Verkamannafélagið Dagsbrún
hefur boðað vinnustöðvun á Sec-
uritas frá og með miðnætti n.k.
mánudagskvöld. Um 50 félags-
menn Dagsbrúnar starfa hjá
fyrirtækinu sem annast öryggis-
gæslu.
í gær slitnaði uppúr samninga-
fundi deilduaðila hjá ríkissátta-
semjara en samningaviðræður
hafa staðið yfir síðustu tvær vik-
ur.
Að sögn Guðmundar J. Guð-
mundssonar formanns Dags-
brúnar hefur enginn árangur orð-
ið af þessum samningaviðræðum
og ekki hefur verið boðað til nýs
fundar eftir að slitnaði uppúr í
gær. -|g.
Vorhvöt
Geir
á það
skilið
Þann 19. sept. sl. var Geiri
Hallgrímssyni utanríkisráðherra
Islands veitt embætti heiðursfor-
manns ráðs Atlantshafsbanda-
lagsins.
Eins og skýrt hefur verið frá í
Morgunblaðinu er hér um virð-
ingartitil að ræða, en heiðursfor-
setinn fær það í sinn hlut að fara
með ræður í upphafi beggja aðal-
funda ráðsins í desember og júní.
Kvenfélagið Vorhvöt fagnar
því hve skjótt bandarísk og ís-
lensk yfirvöld hafa í sameiningu
brugðist við hvatningu félagsins
(frá 29. ág. sl.) um verðskuldaða
viðurkenningu til handa Geiri
Hallgrímssyni og þakkir fyrir
dygga þjónustu í þágu beggja
þjóðanna, þeirrrar íslensku og
hinnar bandarísku.
Það ef einmitt í Atlantshafs-
bandalaginu sem þessar tvær
nánu vinaþjóðir eiga sameigin-
legan vettvang, sem öðrum frem-
ur er við hæfi þegar heiðra skal
Geir Hallgrímsson utanríkisráð-
herra íslands.
Að lokum óskar Kvenfélagið
Vorhvöt fulltrúum á næstu
tveimur aðalfundum ráðs Atl-
antshafssbandalagsins til ham-
ingju með að mega verða þeirrar
ánægju aðnjótandi að hlýða á
Geir Hallgrímsson fara með
ræður.
Reykjavík 22. sept. 1985
Kvenfélagið Vorhvöt
Frá v.: Guðmundur Daníelsson, rithöfundur, Steingrímur Jónsson, bókavörður á Selfossi og Leó Löveforstjóri isafoldar. Mynd: Sig.
ísafold
Ný bók Guðmundar Dan
Skáldið 75 ára í dag og gefur ísafold út nýja skáldsögu,
Tólftónafuglinn enforlagið gafútfyrstu bókþessfyrir hálfri öld
Guðmundur Daníelsson rithöf-
undur er 75 ára í dag. í tilefni af
því gefur ísafold út nýja skáld-
sögu eftir hann, Tólftónafuglinn.
Er það vel til fundið því ísafold
gaf einnig út fyrstu skáldsögu
Guðmundar fyrir 50 árum.
Þá mun Bæjar- og héraðsbóka-
safnið á Selfossi efna til sýningar
á öllum bókum Guðmundar
Daníelssonar, handritasafni, vél-
riti og próförkum af flestum
bókunum. Eina bók vantar þó í
þetta mikla safn en það er þýsk
þýðing á skáldsögunni Á bökkum
Bolafljóts, sem kom út í Þýska-
landi árið 1940. Upplagið týndist
í heimsstyrjöldinni og hefur ekki
fundist síðan. Sýningin er í Bóka-
safninu á Selfossi og verður opin
fram eftir októbermánuði mánu-
daga til föstudaga kl. 1-9 e.h.
Guðmundur Daníelsson hefur
verið geysilega mikilvægur og
fjölhæfur rithöfundur. Hafa
komið út eftir hann um 50 bækur,
sú fyrsta 1934 og síðan, að heita
má, ein á ári hverju, stundum
tvær. Eru þær af margvíslegum
toga: stærri skáldsögur, smá-
sögur, ljóð, leikrit, ferðasögur,
viðtalsbækur o.s.frv.
Um Tólftónafuglinn mun síðar
verða fjallað hér í blaðinu.
-mhg
Margt nýtt í vetrardagskrá
Leiðrétting
Nokkur orð í grein Jóhanns JE.
Kúld í blaðinu í gær féllu út þar
sem verið var að fjalla um tillögur
Skúla Alexanderssonar. 5. gr B-
liðar á að vera: „Janúar, febrúar
og mars skal ekki nota minni
möskva í þorskanet en 1VV‘ frá
Hvalbak að Látrabjargi. Annan
tíma ekki minni en 7“ möskva.“
Eins og setningin var í greininni
var hún óskiljanleg en með þess-
ari bragarbót ætti hún að komast
til skila.
Morgunvaktin sem fréttastofa
útvarps hefur umsjón með hefur
nú komið í stað morgunútvarps-
ins milli klukkan 7.15 og 9. Um-
sjónarmenn Morgunvaktarinnar
eru þrír hverju sinni, tveir frétta-
menn og einn fulltrúi tónlistar-
deildar.
Fyrst um sinn hafa fréttamenn-
irnir Gunnar E. Kvaran og Sig-
ríður Ámadóttir og fulltrúar
tónlistardeildar Hanna G. Sig-
urðardóttir og Magnús Einarsson
umsjón með Morgunvaktinni.
Margar aðrar nýjungar em á döf-
mm hjá útvarpinu og skulu
nokkrar tíndar til hér.
Fyrir hádegi fjóra daga vikunn-
ar verða fluttir 20 mínútna þættir
undir nafninu Úr atvinnulífinu og
hefjast þeir klukkan 11.10. Má
þar nefna þætti um stjórnun og
rekstur, þætti um málefni iðnað-
ar, um sjávarútveg og fiskvinnslu
og þætti um málefni verkalýðs-
ins.
Dagskrárdeild hefur einnig út-
sendingar fastra þátta kl. 13.30
um fjölskyldumál, heilsurækt,
skóla og samstarf heimila og
skóla og þættir um umhverfismál
og neytendamál.
Þá munu og þættir um menn-
ingarmál setja ríkan svip á dag-
skrána til dæmis bókaþættir og
umræðuþættir um listir og bók-
menntir. Þættir um málefni
kvenna verður fastur liðru á mán-
udagskvöldum fram að ára-
mótum, sagnfræðinemar sjá um
vikulegan þátt og á sunnu-
dagsmorgnum verður rætt við
lærða menn og leika um íslend-
ingasögurnar, og svo mætti lengi
telja.
útvaps
Barna og unglingadeild út-
varpsins hefur látið gera tíu hálf-
tíma þætti úr íslenskum þjóð-
sögum og rás 2 mun flytja efni
fyrir böm tvisvar í viku.
Frá tónlistardeild koma þær
fréttir að dreifikerfi rásar 2 verði
á sunnudagskvöldum notað til
flutnings viðameiri tónleika en
unnt er að flytja í almennri dag-
skrá og einnig verður boðið uppá
tónlist tveggja kynslóða þar sem
sonur eða dóttir og foreldri velja
tónlist og skiptast á skoðunum
um hana.