Þjóðviljinn - 04.10.1985, Blaðsíða 5
Spilamenn
Breiðari hópur en haldið hefur verið fram
Guðrún Kristinsdóttir: Herða verður eftirlit með
aldurslágmarkinu, og bæta úrféiagsaðstöðu í hverfunum.
Gestir
á öllum aldri
Ný könnun Útideildar
• Færri stelpur en þaulsætnari.
• 10% undir leyfilegu aldursmarki.
• Salirnir eru félagsmiðstöðvar fyrir þá
sem enga hafa í sínu hverfi.
Á einu og hálfu ári hefur fara fækkandi á næstunni. En
leiktækjasölum í Reykjavik fækk- hverjir sækja leiktækjasalina? Er
að úr 8 í 5 og nú eru á þeim 133 þetta þröngur hópur „vandræða-
leiktæki en voru 240 í apríl 1984. unglinga" sem hangir þar alla
Einum var lokað í sumar og uppi daga eða hinn „venjulegi" ung-
eru raddir um að þeim muni enn lingur sem kíkir inn af og til? Eru
10% gesta eru undir leyfilegu aldursmarki. Ekki vitum við hvort þessi er orðinn
14, en allir grunnskólar borgarinnar nema Fossvogsskóli eiga nemendur á
leiktækjasölunum, mjög mismunandi marga þó. Ljósm. E.ÓI.
„Gildi þessarar könnunar
liggur í því að nú eru í fyrsta sinn
til taks haldbærar upplýsingar
um þessa staði og hópinn sem
sækir þá en ekki bara vangavelt-
ur, getgátur og áhyggjur", sagði
Guðrún Kristinsdóttir, forstöðu-
maður fjölskyldudeildar Félags-
málastofnunar. „Upplýsingarnar
eru að vísu takmarkaðar, því
könnunin veitir ekki svör við því
sem menn hafa einkum haft
áhyggjur af, þ.e. tengsl innbrota
eða slælegrar skólasóknar við
þessa staði“.
„En þó skýrslan sé takmörkuð
hvað varðar alvarlegustu stað-
hæfingarnar um þennan hóp, þá
staðfestir hún ekki sumar þeirra.
T.d. hefur verið fullyrt að 10-12
ára börn væru áberandi stór hluti
af hópnum, en þetta er miklu
breiðari hópur en haldið hefur
verið fram.“
„Hins vegar staðfestir könnun-
in að töluverður hluti gestanna
eða 10% er undir aldri. Þetta
þýðir að herða verður eftirlit með
því að aldurslágmarkið sé haldið.
Sú ábyrgð hvílir fyrst og fremst á
eigendum staðanna en einnig hjá
lögreglu og barnaverndarnefnd.
Leiktækjasalir virðast reyndar
stundaðir hér af miklu yngri hópi
en þar sem ég þekki til erlendis og
barnaverndarnefnd vildi á sínum
tíma halda lágmarkinu við 16 ár.
Á það var ekki fallist.
„Meginniðurstaðan sýnist mér
sú“, sagði Guðrún, „að leik-
tækjasalirnir þjóna hlutverki fé-
lagsmiðstöðva einkum fyrir
krakka úr hverfum þar sem engin
slík aðstaða er. Mér finnst þurfa
að bæta úr því í framhaldi af
könnuninni."
„Þá er athyglisvert hvernig sá
hópur sem er atvinnulaus notar
staðina, þ.e. aðallega til að hitta
vini og kunningja. Tæp 70%
þeirra koma í þeim tilgangi en
aðeins 40% hinna. 89% þeirra
koma líka oft á dag en aðeins
40% hinna.
„Munurinn á því hvernig strák-
ar og stelpur nota staðina kemur
mér ekki á óvart, enda er það
svipað og hvernig félagsmið-
stöðvar eru notaðar erlendis“,
sagði Guðrún Kristinsdóttir að
lokum.
-ÁI
Leiktœkjasalirnir
: skipti. Ljósm
krakkarnir haldnir spilafíkn og
eyða stórfúlgum í spilakassana
eða koma þeir bara til að hitta vini
sína og kunningja? Koma þessir
krakkar frá ákveðnum borgar-
hverfum? Eru þeir margir undir
leyfilegu aldursmarki, sem er 14
ár?
Föstudagur 4. október 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5