Þjóðviljinn - 04.10.1985, Qupperneq 20
Aðalsími: 81333. Kvðldsími: 81348.,Helgarsími: 81663.
Föstudagur 4. september 1985 228. tölublað 50. örgangur
DJOÐVIUINN
Jarðskjálftar
4 vísindamenn til Mexíkó
Landsnefnd um jarðskjálftavarnir stendurfyrirferðinni. Ragnar Stef-
ánsson jarðskjálftafrœðingur: Ætlum að reyna að lcera eitthvað af
þessum jarðskjálftum
Fjórir íslenskir vísindamenn
halda í dag áleiðis til Mexíkó,
þar sem þeir munu dvelja í viku
og draga lærdóma af þeirri jarð-
skjálftahrinu sem gengið hefur
yfir Mexíkóborg undanfarnar
vikur. Þeir sem fara utan eru
Ragnar Stefánsson jarðskjálfta-
fræðingur, Júlíus Sólnes og
Ragnar Sigurbjörnsson frá verk-
fræðideild Háskólans og Guðjón
Petersen framkvæmdastjóri Al-
mannavarna ríkisins. Það er
Landsnefnd um jarðskjálftavarn-
ir sem stendur fyrir för fjórmenn-
inganna til Mexíkó.
„Við ætlum að reyna að læra
eitthvað af þessum jarðskjálfta,
bæði um undirstöður bygginga og
viðbrögð," sagði Ragnar Stefáns-
son er Þjóðviljinn hafði tal af
honum í gær.
Landsnefnd um jarðskjálfta-
varnir sendi stjórnvöldum nýlega
beiðni um fjárveitingu til að geta
sent íslenska vísindamenn á jarð-
skjálftasvæði þar sem byggingar-
lag er svipað og hérlendis. Eftir
að jarðskjálftarnir urðu í Mexíkó
var fljótlega ákveðið að senda
menn til að kynna sér aðstæður
þar.
Ragnar Stefánsson sagði að
reynt hefði verið að ná sambandi
við vísindamenn og stjórnvöld í
Mexíkó til að greiða götu íslend-
inganna. Þrátt fyrir afar lélegt tel-
exsamband væri búið að ná sam-
bandi við fulltrúa stjórnvalda og
menn teldu sig einnig vera búna
að ná sambandi við vísindamenn.
-lg-
Uppstokkun
„Verður að breyta“
Sverrir Hermannsson í Neskaupstað í
gœrkvöld: Nú skulu skrefin stigin tilfulls.
Nœstu dagar fréttnœmir
Menn skulu búa sig undir það
að næstu dagar verða frétt-
næmir. Við ætlum okkur að
breyta og það verður að breyta.
Mætti ég segja að þessi ungi mað-
ur við hliðina á mér hafi ekki náð
að stjórna þcssum flokki sem for-
maður en nú skal því breytt og
skrefín stigin til fulls, sagði Sverr-
ir Hermannsson iðnaðarráð-
herra m.a. í hvassri ræðu á al-
mennum fundi Sjálfstæðismanna
í Neskaupstað í gærkvöld.
Ungi maðurinn við hlið ráð-
herrans, Þorsteinn Pálsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, tal-
aði Iangt og varfærnislegt mál á
fundinum, og forðaðist að nefna
uppgjörið innan flokksins.
Sverrir var öllu ákveðnari í
sinni örstuttu framsöguræðu og
bjó menn undir stórtíðindi næstu
daga. Hann sagði að 6 ráðherrar
hefðu verið að velkjast með fjár-
lagagerðina í sumar en hvorki
Sjálfstæðisflokkurinn né forysta
hans hefðu komið þar nálægt.
Samþykkt framkvæmdastjórnar
og þingflokks í Stykkishólmi á
dögunum hefði verið vantraust á
ráðherra flokksins og þessi sam-
þykkt hefði bæði verið rétt og
nauðsynleg því íjárlögin væru
ónothæf.
-Ig/EMS Neskaupstað.
Suðureyri
Allur kvóti
að klárast
Jón Víðir Njálsson verkalýðsfélaginu
Súganda: Mjögsvart útlit framundan og ótti í
mönnum. Búið að segja öllu starfsfólki Freyju
upp störfum
að er mjög svart útlit fram-
undan með atvinnu hér eins
og í flestum sjávarplássum þegar
allir kvótar eru að klárast, og það
Engin
gengisfelling
Stefnt er að því að ekki komi til
gengisfellingar vegna lækkunar
dollars amk fram að áramótum.
Á hinn bóginn mun verða leitað
til ríkisstjórnarinnar um rýmkað-
ar heimildir til gengissigs á næst-
unni, að því er heimildir Þjóðvilj-
ans í fjármálaheiminum hermdu í
gær.
Þrátt fyrir lækkun dollars hefur
þróunin að undanförnu verið
fremur hagstæð fyrir gengi krón-
unnar. Utflutningstekjur hafa
farið vaxandi og nokkuð hefur
dregið úr innflutningi. Heimildir
Þjóðviljans í fjármálaheiminum
kváðu í gær trúlegt að á næstunni
sigi krónan um 1% til 2Vi% til
viðbótar við þau 10% sem hún
hefur rýrnað um á árinu. -óg
er óneitanlega mikill ótti í
mönnum, sagði Jón Víðir Njáls-
son gjaldkeri verkalýðsfélagsins
Súganda á Suðureyri í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Fyrir skömmu var öllu starfs-
fólki hraðfrystihússins Freyju,
um 60 manns, sagt upp störfum
vegna fyrirséðs hráefnisskorts.
Úr rættist í bili og því hafa upp-
sagnimar enn ekki tekið gildi.
Hjá Freyju er mannahald nú
með minnsta móti, engir að-
komumenn starfa hjá fyrirtækinu
en á sama tíma í fyrra voru þeir
fjölmargir.
Skuttogarinn Elín Þorbjarnar-
dóttir sem leggur upp hjá Freyju
á aðeins eftir tæp 200 tonn af
karfakvóta en fékk nýlega
keyptan 40 tonna þorskkvóta.
Sigurvon ÍS-500 sem er á dragnót
hefur fiskað mjög vel í haust, að
meðaltali 35-40 tonn á viku, og
hefur sá afli tryggt mjög atvinnu-
ástandið en Sigurvon á aðeins um
100 tonn eftir af sínum kvóta. Þá
eru tveir litlir línubátar gerðir út
frá Suðureyri og eiga þeir rúm 70
tonn eftir af sínum kvóta. -*g-
Nýliftarnir (úrvalsdeildinni í körfuknattleik, Keflvíkingar, komu geysilega
á óvart í gærkvöldi er þeir sigruðu bikarmeistara Hauka 59-58 í fyrsta leik
Islandsmótsins í Hafnarfirði. Jón Kr. Gíslason tryggði ÍBK sigur á lokasek-
úndunum. Á mynd E.ÓI. freistar Ólafur Gottskálksson þess að stöðva
risann í Haukaliðinu, ívar Webster.
Sjá bls. 19
ABR
Forval
í einni
umferð
Steinar Harðarson
formaður ABR: Sýnir
einhug flokksmanna
Fjölmenni var á framhaldsað-
alfundi Alþýðubandalagsins í
Reykjavík sem haldinn var í fyrr-
akvöld. A fundinum var m.a.
rætt um samstarf vinstri flokk-
anna fyrir borgarstjórnarkosn-
ingar næsta vor, samþykktar nýj-
ar reglur varðandi forval og kosn-
ir fulltrúar á Landsfund Alþýðu-
bandalagsins í næsta mánuði.
„Ég get ekki séð annað en þessi
kosning um fulltrúa félagsins á
landsfund sé ótvíræð traustsyfir-
lýsing flokksmanna á forystu
flokksins,“ sagði Steinar Harðar-
son formaður ABR í samtali við
Þjóðviljann.
Steinar flutti framsögu á fund-
inum um vinstra samstarf í
Reykjavík. Hann sagði að ein-
hugur hefði verið meðal fundar-
manna um að Alþýðubandalagið
gengi eitt og sér til komandi kosn-
inga en slíkt hindraði að sjálf-
sögðu ekki samvinnu í einhverju
formi við aðra flokka í borgar-
stj órnarminnihlutanum.
Þá var samþykkt á fundinum
að forval verði nú í einni umferð í
stað tveggja áður og einnig að
hver tillaga um þátttakanda í for-
vali þurfi að hljóta meðmæli
minnst 5 félagsmanna. Steinar
sagði að ekki væri búið að dag-
setja forval en að öllum líkindum
færi það fram fyrir n.k. áramót.
-lg*
Sjá bls. 2.
Síldveiðar
Einn
ámóti
þremur
Síldveiðikvötar
ganga kaupum og
sölum. Reknetabátar
selja síldarkvóta sinn
til hringnótabáta og
fá þorskkvóta ístað-
inn. Verðið erþrjú
kíló afsíld á móti einu
afþorski
Mikið brask á sér nú stað með
sfldar- og þorskkvóta þeirra fiski-
skipa sem leyfi hafa fengið til sfld-
veiða á þessu hausti. Margir rek-
netabátar selja hringnótabátum
sfldarkvóta sinn og fá í staðinn
þroskkvóta þeirra. Verðið er
þrjú kfló af sfld fyrir eitt kfló af
þorski.
Sjómannasamband íslands
hefur sem kunnugt er alltaf verið
andvígt kvótasölu í hvaða formi
sem er, enda eru sjómenn aldrei
spurðir álits á þessu braski.
Hólmgeir Jónsson starfsmaður
Sjómannasambands íslands
sagði í gær í samtali við Þjóðvilj-
ann að andstaða SÍ gegn kvóta-
sölu hefði ekkert breyst og ef sjó-
menn kvörtuðu yfir henni til sam-
bandsins yrði málið að sjálfsögðu
tekið upp á réttum vettvangi.
- S.dór