Þjóðviljinn - 06.10.1985, Page 7

Þjóðviljinn - 06.10.1985, Page 7
VHDTAUÐ Robert Wyatt er ekki og hefur aldrei verið dæmigerð poppstjarna. Hann hefur verið talinn einn af frumkvöðlum djassrokkbræðingsins og hann var ítrekað kosinn besti trommuleikari Breta á hippaárunum. Hann var leiðtogi „framúrstefnuhljómsveitarinnar" Soft Machine en hefur verið bundinn við hjólastól í röskan áratug. Hann hefur komið mörgum lögum hátt á vinsældalista, t.d. „I’m a Believer" (74), „Yesterday Man“ (75) og „Shipbuilding" (’82). Þessi lög voru öll útnefnd bestu lög ársins af bresku poppblöðun- um. Robert Wyatterjafnframttalinn ábyrgurfyrirbresku djasspoppbylgjunni og hann er eftirsóttur gestasöngvari. Hann hefur m.a. sungið með Elvis Costello, Henry Cow, Brian Eno, Scritti Politti, Cörlu Bley o.fl. Robert Wyatt er poppstjarna með skoðanir. „Gott hjá Bubba að stela frá J.J. Cale“ segir breski söngvarinn Robert Wyatt í samtali við Þjóðviljann Robert Wyatt: ( hjólastól í heilan áratug. „Litla útvarpstækið mitt bjarg- aði mér út úr þeirri speglahöll sem hin svokallaða vestræna menning er,“ segir Róbert Wyatt þegar rætt er um þá fjölbreytni sem ræður ríkjum á síðustu plötum hans. Þarer m.a. að finna söngva frá Afr- íku, Chile, Kúbu, Spáni og suðurríkjum Bandaríkjanna, aukfrumsmíða. „Það 'þarf ekki meira til en ofurlítið fikt við útvarpstækið og út úr því streymir gnsk þjóðlag- amúsík eða stalínískar áróðurs- ræður frá Útvarpi Tirana í Alban- íu,“ heldur Robert áram og hlær lágum rómi. „Og hugsið ykkur bara: Óvinur númer eitt, Útvarp Moskva, er, þegar á reynir, skemmtilegra og víðsýnna en okkar blálitaða BBC útvarp. Hvað vita margir að allar útsend- ingar í Útvarpi Moskvu hefjast með stuttum brandara? Síðan kemur kannski lag úr James Bond kvikmynd leikið á ballalæka-gítara við undirleik big-bands. Smá trompetsóló, ef vel stendur á. Rússar eru á kafi í djassi og allrahanda þjóðlagam- úsík“. Ætli áhugi Róberts á músík annarra landa hafi fengið hann til að sperra eyrun við okkar heimsfrægu Kuklurum eða Mezzoforte? „Aðeins Bubba. Hans ferill er hreint sagt frábær! Ég sá á síðustu plötunni hans að hann skrifar sig fyrir lagi eftir JJ Cale. Mér finnst gott hjá Bubba að stela lagi frá JJ Cale. Músíkin hans JJ Cales er nefnilega stolin frá svertingjun- um í Suðurríkjunum, öll eins og hún leggur sig. Það er hræðilegt hvernig engilsaxnesku plötu- risarnir undiroka litlu menningarsvæðin allsstaðar." Henti sér út um glugga og lamaðist Róbert Wyatt er síðasti maður til að troða á menningararfleifð hinna minni máttar sér til fram- dráttar Músík Roberts hefur alla tíð einkennst af sköpun og leitun nýrra leiða. Á miðjum sjöunda áratugnum gerði Robert tilraun með að blanda djassi og rokki saman. Þá var þess háttar bræð- ingur óþekkt fyrirbæri. „CBS útgáfufyrirtækið vissi aldrei hvort það átti að flokka plöturnar með okkur í Soft Mac- hine sem djassplötur eða rokk- plötur“. Soft Machine vakti feikna- mikla athygli fyrir djassrokkið sitt, sem þótti svo framandi að það var kallað framúrstefnurokk. Hver veit nema djassrokkbræð- ingur Mezzoforte myndi hljóma öðruvísi í dag ef Robert Wyatt hefði ekki spilað og þróað djassrokkið á þennan hátt með Soft Machine á hippaárunum svokölluðu. Svo mikið er þó víst að Robert Wyatt var leiðandi á þessu sviði fram til ársins 1973. Pá henti Robert sér, í eiturlyfja- vímu, út um glugga á fjórðu hæð. Hann hryggbrotnaði og hefur verið bundinn við hjólastól síðan. Vissi ekki að Peter Gabriel var höfundur Biko lagsins! Með Soft Machine spilaði Ro- bert á trommur og söng. Hann var árum saman valinn besti trommuleikari Bretlands í vin- sældakosningum bresku músík- blaðanna. Eftir slysið snéri Ro- bert sér að sólósöng. Trommurn- ar voru að mestu lagðar til hliðar en hlutur hljómborða stækkaður. Robert er eftirsóttur gesta- söngvari. Sem slíkur hefur hann m.a. sungið inn á plötur með Lindsay Cooper og Fred Frith í Henry Cow, Nick Mason úr Pink Floyd, Scritti Politti, Cörlu Bley, Raincoats, Michael Mantler o.m.fl. 1982 fékk Elvis Costello Ro- bert til að syngja lagið „Shipbu- ilding" inn á plötu. Lagið sat mánuðum saman í efsta sæti breska vinsældalistans, þess óháða. Bresku poppblöðin út- nefndu „Shipbuilding" lag ársins í áramótauppgjöri sínu og það hratt af stað öflugri djasspopp- bylgju í Bretlandi og víðar. Hver veit nema síðustu plötur Bubba og Með nöktum hefðu hljómað öðruvísi en þær gera ef Robert Wyatt hefði ekki tekist svona vel upp með djasspoppballöðuna hans Elvisar um stríðshörmungar og atvinnuleysi? „Ég varð bæði glaður og undr- andi þegar Elvis bað mig um að syngja „Shipbuilding". Ég var og er einlægur aðdáandi Elvisar og þótti vænt um að hann skyldi vita nægilega mikið um mig og mína pólitík til að biðja mig um að syngja „Shipbuilding“.“ í fyrra náði Robert Wyatt aftur hátt á vinsældalista. í það skipti með sönglag um Steve Biko eftir Peter Gabriel, fyrrum söngvara Genesis. „Forsaga þess er sú að hljóm- sveitin Special Aka átti smell sem hét „Free Nelson Mandela". Það lag náði að vekja upp víðtæka andúð á aðskilnaðarstefnunni í S- Afríku á sama tíma og Botha heimsótti Tatcher. Heimsóknin varð því tvíeggjuð fyrir þau skötuhjú. Ég vildi leggja mitt af mörkum. Ég þekkti sönglagið um Biko í flutningi þjóðlagasöngva- rans Martins Simpson. Ég vissi ekki að Peter Gabriel væri höfu- ndurinn. Pó var mér kunnugt um að Peter hefði gert sönglag um Biko. Ég ætlaði meira að segja að hafa það lag á bakhlið smáskí- funnar um Biko. Þegar ég svo kynnti mér málið betur kom í ljós að þetta var eitt og sama lagið“. Robert hlær lágværum rómi. Eurovision keppnin er þrœl- pólitísk Hláturinn er reyndar aldrei langt undan hjá Robert Wyatt. Þótt hann syngi um alvarlega hluti eins og innrás Bandaríkj- anna í Grenada, fasisma, kyn- þáttahatur o.þ.h. þá fær kímni- gáfan að njóta sín í útsendingum laganna ef ekki sjálfum textun- um. „Skemmtun án alvöru er ekki til“, fullyrðir Robert. „Ópólitísk- ir skemmtikraftar fyrirfinnast hvergi. Síst af öllu í okkar hægri sinnaða fjölmiðlafári þar sem íhaldsáróðrinum er duglega troðið ofan í kok á okkur. Annað hvort dansar þú með eða, ef þú hefur sjálfsvirðingu, þá veitir þú viðnám. Sá skemmtikraftur sem telur sig vera ópólitískastan allra er í raun að biðja um að fá að vera allra gagn. f því felst náttúrulega heilmikil afstaða. Tökum Euro- visionsöngvakeppnina sem dæmi. Hún á að vera ópólitískust frá öllum hliðum séð. Nafnið sjálft, Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, segir heilmikið. Hvað myndi gerast éf íslendingar kæmu með þjóðlegar íslenskar rímur eða íslensk einsöngslög í þessa keppni? Hvers vegna held- ur þú að það finnist engin þjóðleg sérkenni í lögunum sem Skandin- avar, Spánverjar, Portúgalir, Austurríkisbúar eða austlægari þjóðir senda í keppnina? Jú, eitt sinn reyndu Spánverjar að standa á eigin fótum. Þeir sendu Reme- dios Ameya í keppnina. Hún söng með sínum fagra tatarastíl rafmagnað ska-lag. Lagið kolféll náttúrulega. En í stað þess að gagnrýna engilsaxnesku glimm- erfroðuna sem keppnin gengur út á þá skelltu Spánverjar allri skuldinni á Remedios Ameya. Spænsku blöðin sögðu: „Við átt- um ekki að senda tatara í keppn- ina. Hún var ekki einu sinni í skóm. Hún var berfætt.“ Eintóm sárindi og sjálfsásakanir. Engu að síður heitir það skemmtun. Saklaus skemmtun. Þegar stig- ataflan í Eurovisionkeppninni er skoðuð kemur líka margt annað í ljós. T.d. það að V.-Þjóðverjar gefa aldrei Tyrkjum, Spánverj- um eða öðrum tataralöndum stig. Líklega vegna andúðar Þjóðverja á útlendu vinnuafli. Og það er gaman að velta því fyrir sér hvers vegna ísraelar sigra tvisvar í keppni sem er bundin við evr- ópskar sjónvarpsstöðvar. Það minnir mann jafnframt á þá staðreynd að Þjóðverjar o.fl. hefðu ekki undir neinum kring- umstæðum gefið gyðingum stig fyrir þremur áratugum eða svo. Óg þetta er víst sú ópólitískasta skemmtun sem til er! Enn hlær Robert sínum lág- róma hlátri. Sungið fyrir Hannes Hólmstein um miðjumoðarana Það verður gaman að vita hvernig íslendingum reiðir af í næstu söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Það er þess virði að athuga hvort spá Roberts um stöðu íslenskra rímna og ein- söngslaga eigi við rök að styðjast. Væri ekki gaman að heyra í og sjá Sveinbjörn Beinteinsson alls- herjargoða hrista svolítið upp í engilsaxnesku glimmerfroðunni? Robert má ekki missa af því. Hvað verður Robert annars að fást við í nánustu framtíð? „Ég er að vinna að tveggja laga 12“ skífu með lögunum „The Wind of Change" og „When I Think About My Country". Fyrr- nefnda lagið er um væntanlegan sigur meirihlutans í Afríku og um þessar mundir í Namibíu. Síðar- nefnda lagið er um samvisku- fanga. Mér til aðstoðar eru gaml- ir kappar úr Specials og Fun Boy 3, auk nokkurra unglinga frá Swapo. Ég er einnig að leggja síð- ust hönd á stóra plötu, sem á að heita „Old Rotten Hat“. Þar deili ég lítillega á miðjumoðarana,“ segir Robert glottandi að lokum. Við glottum líka. Okkur dettur harðasti andstæðingur miðju- moðsins, Hannes Hólmsteinn, í hug. Þið munið eftir fína hattin- um sem hann fékk þegar hann var við nám í Bretlandi. Væri ekki tilvalið að Hannes fengi sér „Qld Rotten Hat“ svo hann eigi til skiptanna? -jg Sunnudagur 6. október 1985 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.