Þjóðviljinn - 06.10.1985, Síða 17
LEHDARAOPNA
og lesbíur
Þorvaldur Kristinssori:
Vernd sem enginn vill þiggja
Þorvaldur Kristins-
son Samtökunum
78. - mynd sig.
„Útvarpsstjóra verður tíðrætt
um að hann vilji verndaokkur. En
hann skilur ekki það hlægilega
við að vera sífellt að bjóða upp á
vernd sem enginn vill þiggja,"
sagði Þorvaldur Kristinsson úr
Samtökunum 78 þegar Þjóðvilj-
inn ræddi við hann. Við báðum
hann að segja okkur frá baksviði
þeirrar baráttu sem hommar og
lesbíur heyja hér gegn útvarps-
ráði.
„Það hefur verið liður í frelsis-
baráttu nýju hommahreyfingar-
innar að hætta að nota orð eins og
„homosexúel“ sem er í raun
læknisfræðilegt hugtak og nota í
þess stað þau orð úr alþýðumáli
sem okkur eru tömust t.d. b0sse á
dönsku, bög á sænsku eða Schi-
vule á þýsku. Þessi orð hafa verið
hlaðin neiðkvæðu gildismati en
það er okkar trú að mennirnir
gefi orðunum merkingu og með
því að nota þessi orð í dagsbirtu
og án minnstu blygðunar breyti
þau um merkingu.
Þetta beinist bæði út á við,
gagnvart almenningi, og inn á
við, einskonar sjálfsuppeldi, að-
ferð til að horfast í augu við sjálf-
an sig. Meðan menn skammast
sín fyrir að taka sér orð eins og
hommi og lesbía í munn er
eitthvað að viðhorfunum, bæði
manns eigin og annarra."
- Hvernig hefur gengið að
breyta merkingu orðanna er-
lendis?
„í Danmörku og Þýskalandi er
hin niðrandi merking orðanna að
mestu horfin og borgaraleg blöð
á borð við Politiken nota orð eins
og bpsse og lesbisk í fyrirsögnum,
eins og Þjóðvilinn og NT gera hér
heima.“
„Þú og þínir líkar“
- En hvað með það sem snýr
inn á við að hommum sjálfum?
„Það hefur náðst mikill árang-
ur. Sjálfur var ég erlendis þegar
ég kom úr felum þannig að ég get
ekki alveg sagt til um hvernig á-
standið var áður. En sjálfum hef-
ur mér alltaf fundist að ég gæti
ekki kallað mig annað en hom-
ma, ég þekkist á því meðal vina
minna.
Ég get nefnt sem dæmi hvernig
foreldrar mínir brugðust við þeg-
ar ég skýrði þeim frá því að ég
væri hommi. í fyrstu áttu þau
mjög erfitt með að taka sér þetta
orð í munn. Þau sögðu alltaf „Þú
og þínir líkar“ eða „þessir
menn“. Það er býsna einkenn-
andi fyrir íslendinga að þegar þeir
tala um tilfinningamál eða önnur
viðkvæm málefni hætta þeir að
segja „ég“ og nota orðið „maður"
í staðinn. En eftir nokkurn tíma
fóru foreldrar mínir að nota orðið
hommi og við það urðu samskipti
okkar mun auðveldari. Þetta
skref táknaði að þau voru hætt að
skynja þá niðrandi merkingu
orðsins sem samfélagið rétti að
þeim, og lítu á ástarlíf mitt sem
sjálfsagðan hluta af lífi mínu og
persónu.
Auðvitað væri best ef ekki
þyrfti að setja ástir manna niður á
einhverja bása. En meðan ákveð-
in tegund ástar er þöguð í hel er
nauðsynlegt að gefa henni nafn.
Orðið homosexuel sem hommi er
dregið af er frá árinu 1869, það
var austurrískur læknir sem fann
það upp og framan af var það
einkum notað innan afbrotafræði
og geðsjúkdómafræði. Þetta
tengdist framþróun kapítalism-
ans þegar ekkert skúmaskot
mannlegs lífs var lengur óhult
fyrir kortlagningar- og eftirlits-
mönnum sem vildu ná betri
stjórn á tilfinningalífi fólks.
Hommar hafa hins vegar fundið
fyrir nauðsyn þess að halda í
sjálfsvitund sína með því að
nefna hana á nafn, sú tilfinning er
náskyld þjóðerniskennd, þe. sem
hluti af sjálfsvitund sérhvers
manns.“
,Að vera á línunni“
- Þú talar um nýju homma-
hreyfinguna, en hvernig hafa eldri
hommar takið þessari baráttu
ykkar?
„Mér skilst að þeir sem stóðu
að stofnun Samtakanna78 hafi
fundið talsvert fyrir óánægju
þeirra eldri í fyrstu. í gamla daga
notuðu menn allskyns slangur og
dulmál um sjálfan sig, t.d. „að
vera á línunni", sem er nánast
horfið núna. Þetta kann að
hljóma sniðuglega en lýsir í raun
mikilli sjálfskúgun. Það gleðilega
er hins vegar að yngri hommar,
þeir sem eru um tvítugt, skilja
ekki um hvað þessi deila snýst,
finnst hún bjánaleg. Þeim finnst
eldri kynslóðin hlægileg að vera
að standa í þessu þrefi um sjálf-
sagt mál.
Óupplýst gerrœði
- Hvaða lœrdóma finnst þér
mega draga af þeim deilum sem
nú eru uppi?
„Þær snúast ekki um orð held-
ur viðhorf. Hér kemur skýrt fram
að við búum í lýðræðisþjóðfélagi
sem hefur á að skipa embættis-
mönnum sem eru miklu blygðun-
arlausari og gerræðislegri í störf-
um sínum en tíðkast annars stað-
ar. Erlendis þyrftu þeir að segja
af sér fyrir ýmislegt sem þeir gera
hér daglega.
Þegar krafa um lýðréttindi
mætir þessu óupplýsta gerræði
verða menn að finna einhverja
lausn á vandanum. Og íslending-
ar eru snillingar í að leiða talið
inn á aðrar brautir til að leyna
eigin fordómum.
En það er umhugsunarefni
hvert á að leita þegar þjóðfélags-
hópi er meinað að miðla upplýs-
ingum. Kannski eru Neytenda-
samtökin einn vettvangur okkar.
En það er ekki alltaf auðvelt að
nýta sér lögin. Norðmenn hafa
verið fljótari að skilja þennan
vanda en aðrar þjóðir og árið
1981 settu þeir viðbótarákvæði í
hegningarlög sem banna að
hommum og lesbíum sé mismun-
að. Það er því refsivert að mis-
muna þeim á atvinnumarkaði,
húsnæðismarkaði eða í auglý-
singum í opinberum fjölmiðlum,
svo dæmi séu tekin. Svíar og dan-
ir hafa líka látið gera ítarlega
könnun á réttarstöðu homma og
lesbía og þar er laga setning í
undirbúningi. En hér á landi er
ekkert að gerast svo mér sé kunn-
ugt,“ sagði Þorvaldur. _þh
Elísabet Þorgeirsdóttir: Þögnin er okkar versti óvinur
„Ég er mjög ánægð með
frammistöðu Ingibjargar Hafstað
í útvarpsráði, hún hefur staðið sig
eins og hetja. En það er með ólík-
indum hvernig aörir ráðsmenn
hafa opinberað fordóma sína“,
sagði Élísabet Þorgeirsdóttir um
afstöðu til auglýsinga Samtak-
anna 78.
„Við höfum ekki viljað gefast
upp á að nota þessi orð, hommi
og lesbía, í augiýsingum okkar. í
auglýsingum er alltaf höfðað til
einhverra og að sjálfsögðu gerum
við það eins og aðrir. Þetta er
bara þáttur í því að reka okkar
félagsskap, við erum ekki að ögra
neinum. Við viljum ekki fara inn
á þá braut að nota óljósa orða-
leiki, enda óvíst hvort það
mæltist nokkuð betur fyrir.
Hvernig fyndist mönnum t.d.
ávarpsorð eins og „konur sem
elska konur“?
Málið hefur svo smátt og smátt
farið að snúast um einhver hug-
renningartengsl útvarpsmanna,
það gerist greinilega eitthvað ó-
geðslegt í kollinum á þeim þegar
þeir heyra þessi orð. Reyndar er
þetta mál okkar aðeins einn angi
af þeirri afturhaldsstefnu sem rík-
ir hjá meirihluta útvarpsráðs.
Hann virðist telja það sitt helsta
hlutverk að hafa vit fyrir öðrum".
- Hver er þá kjarni málsins að
þínu dómi?
„Hann er sá að við fáum að
vera það sem við erum. Við vilj-
um venja fólk við okkur eins og
við erum og ekki standa í neinum
feluleik. Málið snýst ekki bara
um kynlíf eins og margir virðast
halda. Við erum manneskjur eins
og aðrir og viljum að ást okkar sé
virt eins og önnur ást.
í þessari jafnréttisbaráttu gæti
maður í mikilvægri stöðu eins og
útvarpsstjóri veitt okkur stuðn-
ing en það gerir hann ekki. Hann
treystir fólki greinilega ekki til að
heyra þessi orð og gerir þess
vegna ráð fyrir að aðrir séu
haldnir sömu fordómum og hann
sjálfur. Hann vill að um okkur
ríki þögn en þögnin er okkar
versti óvinur“.
- Þið hafið líka auglýst í DV.
„Já, við höfum auglýst í einka-
máladálki DV en þaðan er búið
að úthýsa okkur. Við höfum eng-
ar skýringar fengið á því en þar á
bæ ríkir greinilega mikill tví-
skinnungur. Við erum bara að
auglýsa símatíma Samtakanna en
í þessum einkamáladálki getur
giftur maður auglýst eftir nánum
kynnum við konu. Og DV kemst
upp með það hjá útvarpinu, þ.e.
Rás 2, að láta íconu með tælandi
rödd auglýsa eftir karlmanni. Við
erum þó ekki að lýsa eftir fólki til
að sofa hjá.
Staðan er því sú að við höfum
engan almennan auglýsingavett-
vang, og það er að sjálfsögðu
bagalegt fyrir starfsemi samtak-
anna“, sagði Elísabet. -ÞH
Nýlega bannaði útvarps-
ráð notkun orðanna
hommi og lesbía í aug-
lýsingum. Þjóðviljinn
spurði fjóra vegfarendur
hvort þeir teldu það rétta
ákvörðun og þá hvaða
orð ætti að nota í staðinn
og hvort orðin hommi og
lesbía hefðu neikvæða
merkingu.
Guðrún Guðmundsdóttir:
Ég hef ekkert á móti þessum
orðum og það væri kannski til-
breyting að fá þau í útvarpsaug-
lýsingar. En það er ábyggilega í
fleiri auglýsingum sem má ekki
nota hvaða orð sem er en auðvit-
að ætti fólk að fá að ráða hvaða
orð það notar.
Friðrik Friðriksson:
Mér finnst alltflagi með orðin
hommi og lesbía og það ætti ekki
að vera bannað að nota þau í út-
varpinu. Ég veit ekkert betra orð
og orðin hafa ekki neikvæða
merkingu fyrir mig.
Gunnar Jóhannesson:
Það er allt í lagi með þessi orð
og alveg útí hött að banna þessi
orð frekar en einhver önnur í út-
varpinu og ég þekki engin orð
sem eru betri.
Sveinn Guðmundsson:
Þetta er dálítið snúið mál. En
sem útvarpshlustandi vil ég helst
vera laus við að hlusta á þetta.
Það eru ekki orðin sem slík, ég
hef ekkert við þau að athuga en
þetta er það mikið leiðindamál að
það á að vera einkamál og á ekki
erindi til almennings.
Sunnudagur 6. október 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17