Þjóðviljinn - 06.10.1985, Side 20

Þjóðviljinn - 06.10.1985, Side 20
Jarðskjálftar íslendingar lœra af reynslu Mexíkana JarðskjálftarniríMexíkó breyta hugmyndum manna um jarðskjálftavarnir húsa. íslenskir sérfrœðingar á leið til Mexíkó Örmagna í rústunum. Liösmaöur björgunarsveita í skammri hvíld frá björgunarstarfi. Jaröskjálftafræðingurinn Ragnar Stefánsson er nú ásamt þremur öðrum íslensk- um vísindamönnum á leið til Mexíkó, einsog Þjóðviljinn greindi frá í gær. Tilgangur með för þeirra félaga er að kanna hvernig byggingar í Mexíkóborg stóðust jarð- skjálftahrinuna sem gekk yfir borgina 19. september, og kostaði um 7 þúsund manns lífið. Heilir borgarhlutar hrundu einsog spilaborgir, en hins vegar sluppu mörg hús og hverfi ósködduð úr ham- förunum. ísland er á virku eldfjalla- svæði, skjálftar eru hér tíðir, þó stórir jarðskjálftar séu þó fá- heyrðir, sem betur fer. En hér á landi er lögð veruleg vinna í að gera byggingar svo traustar úr garði, að þær standist jarðskjálfta sem ganga yfir. Auðvitað er það vandasöm kúnst að byggja þann- i umferÓinnií GJEFÐU ÞÉR TIMA! ■' minni streita ■ betrilíöan ■■ öruggari akstur -■ minni áhætta ■■færrisiys ■■ lægri iogjöld ■■ þinn hagur! SÉRTUAKANDL ..VERTU VAKANDI Tryggingafélag bindindismanna Lágmúla 5 -108 Reykjavik - Sími 83533 ig, og því er það lofsvert framtak hjá íslenskum yfirvöldum að senda kunnáttumenn til Mexíkó, sem gætu lært af harmleiknum þar. Mexíkanski skjálftinn var feikiharður. Hann mældist 8,1 stig á Richterkvarða, sem er fá- heyrð stærðargráða. En jarðvís- indamenn og byggingahönnuðir höfðu ekki talið að skjálftar yfir 7 stig gætu orðið. Francisco Javier Serna, heimsþekktur verkfræðingur frá Mexíkó, hefur sagt að skjálftinn í Mexíkó hafi verið allt öðru vísi en aðrir skjálftar, og komið mönnum gersamlega í opna skjöldu. Að sögn hans, og Emilí- os Rosenblueth prófessors í jarð- vísindum við Mexíkóháskóla, þá sveiflast byggingar og jörðin sem þær standa á með mismunandi tíðni í jarðskjálftum. En í skjálft- anum 19. september var tíðnin sú sama, þannig að bæði húsin og undirstaða þeirra sveifluðust í takt. Við þetta mögnuðust bylgj- urnar sem gengu gegnum húsin og bókstaflega hristu þau í tætlur. Bylgjulengd Að sögn Serna var bylgjulengd jarðskjálftabylgjanna í Mexíkó- skjálftanum sömuleiðis um tvö- falt meiri en áður hafði mælst þar og það varð til að magna enn eyðilegginguna í borginni. Sérfræðingum ber saman um að hvergi í veröldinni séu hús eins jarðskjálftavarin og í miðborg Mexíkó, en eigi að síður varð tjón þar verulegt á mönnum og bygg- ingum. Nú eru komnar á kreik sögusagnir um spillingu, sem hafi leitt til þess að verktakar hafi stolið undan fé og lagt minna í jarðskjálftavarnir í byggingunum en áætlanir sögðu til um. Að sögn sérfræðinga mexí- kanskra munu þeir lærdómar sem draga má af jarðskjálftanum verða til þess að breyta verulega hugmyndum manna um hvernig beri að standa að jarðskjálfta- vörnum í framtíðinni. Forseti Mexíkó, de la Madrid, hefur fyrirskipað gagngera endurskoðun á fyrirkomulagi jarðskjálftavarna í Mexíkó og sömuleiðis gert að skyldu, að stöðugt eftirlit verði sett upp til að fyrirbyggja að kæruleysi leiði til manntjóns í skjálftum framtíð- ar. ÖS/Reuter ■ í Kína er nú heillastoðin Deng- Hsiao-Peng búinn að sjá til þess að gömlu skörfunum í flokksfor- ystunni er sparkað á kurteisan máta, og gætu margir lært af annars staðar í heiminum. Sjálfur situr hann auðvitað á valdatróni áfram, enda enn á besta aldri, rétt 80 ára. Með honum á toppn- um eru ennþá tveir aðrir áttræðir skörungar sem bak við tjöldin ráða miklu, hagfræðitröllið Chen Yun og ríkisforsetinn Lin Xinni- an. í staðinn hafa komið yngri menn. Einn þeirra, sem vakið hefur mikla virðingu þeirra sem átt hafa við hann skipti, einkum Amríkana, er til dæmis varafor- sætisráðherrann Li Peng. Nú er komið á daginn, að Li Peng er að líkindum ekki mjög óvanur valda- mönnum. Hann er nefnilega ta- linn vera uppeldissonur gamla • Ijónsins Sjú-en-læ. Segiði svo að Þjóðviljinn sé ekki sósíalískt fréttablað...*

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.