Þjóðviljinn - 06.12.1985, Page 1
--— .. - —.... 1 T—.
s
Utvegsbankinnl Hafskip
GLÆTAN
JÓLAGJAFA-
HANDBÓK
Spilin á borðið!
™ Þingflokkur Alþýðubandalagsins leggurfram tillögu í dag:
Opin rannsóknarnefnd alþingis. Viðskipti Hafskips og Utvegsbankans könnuð. Afskipti
stjórnmálamanna rannsökuð. Fundir verði íheyranda hljóði. Almenningur og fjölmiðlarfylgistmeð.
Tillaga um rannsóknarnefnd
um Útvegsbanka/Hafskips-
hneyksiið verður lögð fram á al-
þingi í dag. „Rannsóknin á að
beinast að viðskiptum Hafskips
og Útvegsbankans og rekstri Haf-
skips og samskiptum þess við
önnur fyrirtæki hérlendis og er-
lendis“. Þessi tillaga þingflokks
Alþýðubandalagsins er lögð fram
í samræmi við 39. grein stjórnar-
skrárinnar um rannsóknarnefnd-
ir“, sagði Ólafur Ragnar Gríms-
son í samtali við Þjóðviljann í
gær. Rannsóknarnefndin á að
kanna m.a. afskipti stjórnmála-
manna af málinu, - og nefndar-
störf eiga að vera opin almennmgi
og íjöliniðlum.
- Efnislega segir einnig að
fjalla eigi um samskipti banka-
kerfisins við önnur stórfyrirtæki
sem skulda bankakerfinu miklar
upphæðir. Og rannsóknarnefnd-
in á í störfum sínum að hafa rétt á
að fá allar upplýsingar frá opin-
berum aðiljum og einstaklingum.
Fundir nefndarinnar skulu
haldnir í heyranda hljóði svo al-
menningur og fjölmiðlar hafi full-
an aðgang að öllu því sem fram
kemur í málinu.
- Þá tekur tiilagan til viðskipta
Útvegsbankans og Hafskips sem
og afskipta einstakra pólitískra
forustumanna af rekstri Hafskips
og fyrirgreiðslu við það fyrirtæki
bæði í bankakerfinu og annars
staðar í stjórnkerfinu; athugun á
þeim umræðum sem fram hafa
farið um lánveitingar til fyrirtæk-
isins á síðustu tíu árum. Jafn-
framt er ljóst að þótt lánveitingar
til Hafskips séu vafasamastar,
18dagartiljóla!
Tðiknfng: Freydís Þ. Aradóttir 8 ára,
Helgamagrastræti 50 Akureyri.
þá eru fjölmörg önnur fyrirtæki
sem skulda bankakerfinu stórar
upphæðir og vafi leikur á að séu
tryggðar, segir í greinargerð með
tillögunni.
Þess vegna eigi rannsókn
nefndarinnar ekki eingöngu að
beinast að Hafskipi, heldur öðr-
um málum sem eru að koma upp-
úr kafinu og munu koma uppúr
kafinu á næstunni, sagði Ólafur
Ragnar Grímsson í samtali við
Þjóðviljann í gær.
í fyrradag tilkynnti Guðrún
Helgadóttir á þingi að þingflokk-
ur Alþýðubandalagsins hygðist
leggja fram lagafrumvarp um
sjálfstætt Bankaeftirlit en það
heyrir nú undir Seðlabankann.
Margar fleiri tillögur vegna
hneykslismálanna eru nú sagðar í
burðarliðnum á alþingi. Beðið er
með óþeyju eftir utandagskrár-
umræðu um málið á alþingi n.k.
þriðjudag. Ríkisstjórnin fjallaði í
fyrsta sinn í gær um samskipti Út-
vegsbankans og Hafskips eftir að
forsætis- og fjármálaráðherra
höfðu rætt við bankastjóra Út-
vegsbankans. Að sögn Magnúsar
Torfa Ólafssonar blaðafulltrúa
var engin formleg samþykkt gerð
á fundinum.
___________________________^óg
Sjá bls. 3,4 og 16.
Hafskip bundið við bryggju. Leiknum lokið en forráðamenn fyrirtækisins og
pólitíska valdsins bíða síns dóms. Albert Guðmundsson, Björgúlfur Guð-
mundsson og Ragnar Kjartansson hafa mjög komið við sögu málsins en
eflaust munu fleiri verða kallaðir fyrir rannsóknarnefnd alþingis nái tillaga
Alþýðubandalagsins fram að ganga. Ljósm. E.ÓI.
Frysting kjarnavopna
Skerst ísland eitt úr leik?
Utanríkisráðherra gaffyrirmœli um hjásetu íslands á þingi Sameinuðu þjóðanna.
Allar hinar Norðurlandaþjóðirnar styðja tillögu Svía og Mexíkana.
Tekur alþingi af skarið og lætur Geir breyta afstöðu sinni?
vert ofaní einróma stuðnings-
yfirlýsingu alþingis s.I. vor
við þá leið í afvopnunarmálum,
sem kennd er við frystingu kjarn-
avopna, gaf Geir Hallgrímsson
fyrirmæli um að fulltrúar íslands
hjá Sameinuðu þjóðunum sætu
hjá 20. nóvember s.l. þegar
greidd voru atkvæði í nefnd um
frystingartillögu sem kennd er við
Svía og Mexíkana. Þannig hefur
ísland eitt Norðurlandanna
skorist úr leik því hinar þjóðirnar
4 ásamt 109 öðrum þjóðum
studdu tillöguna. 11 greiddu at-
kvæði á móti, 6 sátu hjá. Eftir
harðar deilur á alþingi í gær er
útlit fyrir að þingheimur sam-
þykki að Island skuli styðja þessa
sömu tiilögu þegar hún verður
borin upp í allsherjarþinginu
sjáifu í næstu viku.
Það var Hjörleifur Guttorms-
son sem hóf umræðu á alþingi í
gær vegna þessara tíðinda. Hann
sagði enn hægt að bæta úr því
hneyksli sem hjáseta íslands væri
og þeirri vanvirðu sem utanríkis-
ráðherra hefði með fyrirmælum
sínum sýnt alþingi. Hjörleifur
upplýsti að ráðherra hefði að-
spurður í utanríkismálanefnd s.l.
mánudag sagt að ísland hefði set-
ið hjá í nefndinni eins og í fyrra
þegar sama tillaga var þar til af-
greiðslu. Hann hefði hins yegar
þagað um það að Norðmenn,
sem líka sátu hjá í fyrra, hefðu nú
stutt tillöguna. Skoraði hann á
Geir: Gaf fyrirmæli um hjásetu Is-
lands þvert á samþykkt alþingis um
stefnu í afvopnunarmálum.
ráðherra að breyta afstöðu sinni
og gefa fyrirmæli um að ísland
skuli styðja tillöguna á vettvangi
allsherjarþingsins.
Ástæðan fyrir sinnaskiptum
Norðmanna er hin sama og ræður
afstöðu Dana: Þjóðþing þessara
ianda hafa tekið af skarið og sjálf
ákveðið hvernig atkvæðum
Norðmanna og Dana skuli beitt
hjá Sameinuðu þjóðunum. Eftir
helgi mun væntanlega koma fram
tillaga sama efnis á alþingi og er
útlit fyrir að Geir verði í minni-
hluta.
»
Sjá bls. 3.