Þjóðviljinn - 06.12.1985, Side 2
FRETTIR
Fiskeldi
Norðmenn sýna áhuga
Hópur norskra fiskeldisfrœðinga, bankamanna og
fiskifrœðinga könnuðu aðstœður tilfiskeldis á Islandi.
Ummœliþeirra voru: Jarðhitinn erykkar olíuauður
Igær hélt af landi brott 11
manna hópur norskra fiskeldis-
fræðinga, bankamanna og fiski-
fræðinga eftir að hafa kynnt sér
allar aðstæður til fiskeldis á Is-
landi. Fyrir milligöngu Arna
Gíslasonar hjá Isco ræddu Norð-
mennirnir við alla þá er málið
varðar hér á landi. Norðmenn-
irnir sýndu áhuga á að taka þátt í
fískeldi hér á landi með eignar-
aðild að fískeldisstöðvum og virð-
ast tiibúnir til að leggja fram fjár-
magn í slíka uppbyggingu en Ijár-
magn til uppbyggingar fískeldi-
sstöðva er ekki fáanlegt á íslandi
um þessar mundir.
Norðmennirnir voru mjög
hrifnir af öllum aðstæðum til fisk-
eldis hér á landi og sérstaklega
var það jarðhitinn og þeir mögu-
leikar sem hann gefur sem
heillaði þá. Höfðu þeir á orði, að
sögn Árna Gíslasonar, að ef rétt
væri á málum haldið væri jarðhit-
inn okkar „olíulind" og að þá
væru okkar samkeppnisaðstæður
betri en Norðmanna. Sem kunn-
ugt er eru Norðmenn komnir
manna lengst í fiskeldi.
Árni tók fram, að hér hafi ein-
göngu verið um könnunarferð að
ræða hjá Norðmönnum, en eftir
viðbrögðum þeirra að dæma
mætti gera ráð fyrir því að þeir
hefðu áhuga á alvöruviðræðum
um málið.
- S.dór.
Næst syngjum við „ Allt eins og
blómstrið eina“!
Yfirlögregla Hafnarfirði
14
Lögreglubúningar frá 180 þjóðlöndum eru á meðal gripa sem sýndir verða á mikilli sýningu sem hetst í dag á Hótel Loftleiðum. Ljósm.: E.ÓI.
Sýning
Lögreglubúningar frá 180 löndum
Lögreglufélag Reykjavíkur 50 ára 16. desember. Sett upp alþjóðleg
lögreglusýning í tilefni þess.
Edouard Kries: Dýrt en gaman. Vísir að íslensku lögregluminjasafni
Hugmyndin að því að halda
þessa sýningu fæddist þegar
Kries var hér á ferð í febrúar sl.
og nú, þegar þetta er komið upp,
vonum við að þetta verði vísir að
íslensku lögregluminjasafni. Það
er margt muna sem þarf að varð-
veita, sagði Kristján Kristjánsson
flokksstjóri í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær þar sem verið var að
setja upp lögreglusýningu á Hótel
Loftleiðum í tilefni af 50 ára af-
mæli Lögreglufélags Reykjavfkur
16. desember.
Umræddur Edouard Kries er
lögreglumaður í Lúxemborg og
er kominn hingað til lands með
Vilmundarsaga
egt en siðlaust“
Halldórsson skrásetjari: Vilmundur ákaflega flókin og
misskilin persóna
„I.ögtegt en
rakipti er
Vilmuádar
að hann kpm
1973 o; '
og m-
lést suntáf-
bókarinnarter
fyrruin
forsætisráð-
erfitt að segja að ein-
niðurstaða um persónu
Vilmundar sé dregin upp í þessari
bók en almennt tel ég að hann
hafi verið ákfalega flókin persóna
og að landsmenn hafi .mjj^kilið
hann allan þann tíma sem hann
starfaði í stjórnmálum. Menn
voru oftast sammála eða ósam-
mála Vilmundi út frá röngum for-
if sendum. Þeir tóku yfirhöfuð af-
[- stöðu til mannsins en ekki þess
Sem hann hafði fram að færa“,
sagði Jón Ormur í stuttu spjalli
við blaðamann.
„Það er verulega erfitt að
skrifa bók sem þessa, einkum
vegna þess að það vantar hér-
lendis hefðina fyrir frásögnum af
þeim atburðum sem standa okk-
ur svo nálægt í tíma. Við efnis-
öflunina fékk maður eippig oft
fleiri en eina og fleiri en tvær út-
gáfur af sömu atburðunum og þá
varð ég að velja á milli. Ég þykist
viss um að margt í þessari bók
mun verða gagnrýnt og þá ekki
síst af fyrri félögum Vilmundar í
Alþýðuflokknum."
Jón Ormur sagði að saga Vil-
mundar væri skrifuð út frá pólitík
hans en oft yrði ekki skilið á milli
pólitíkur og persónu.
„Vilmundur var róttækasti
stjórnmálamaður sem hér hefur
verið uppi. Hann áleit undirlokin
að hann hefði tapað stríðinu en
ég er ekki sammála þeim dómi
hans“, sagði Jón Ormur.
- lg-
geysilega mikið safn lögreglu-
búninga og muna ýmiss konar.
Hann sagðist í gær hafa byrjað að
safna munum fyrir um átta árum
og á nú 500 lögreglubúninga frá
180 þjóðlöndum. Meðal muna í
safni Kries er búningur dönsku
landamæralögreglunnar frá árinu
1839, búningar og lögregluhúfur
landanna austan tjalds, sem hann
kveður mjög sjaldgæft að safnar-
ar eigi, búningar löggæslumanna
þriðja ríkisins o.fl.
„Þetta er gífurlega fjárfrekt og
það má segja að allt mitt fé fari í
þetta. En þetta er gaman“, segir
Kries sem ferðast hefur víða um
heim með safn sitt, og það má
reyndar geta þess að hann er að-
eins með hluta safnsins hér.
Hann sagðist einbeita sér að
munum frá Suður-Ameríku
þessa stundina, en mjög erfitt
væri að eignast muni þaðan.
íslenskir lögreglubúningar
verða einnig til sýnis, m.a. við-
hafnarbúningur Jóns Hermanns-
sonar sem var lögreglustjóri í
Reykjavík árin 1918-1928.
sóttu um
Dómsmálaráðherra
veitir stöðuna í dag.
Veitingin ákveðin löngu
fyrirfram. Óánœgja
meðal umsækjenda
14 lögreglumenn sóttu um
stöðu yfirlögregluþjóns í Hafnar-
firði en Steingrímur Atlason yfir-
lögregluþjónn lætur af störfum
um áramótin.
Samkvæmt upplýsingum
Hjalta Zophaníassonar deildar-
stjóra í dómsmálaráðuneytinu
hefur dómsmálaráðherra haft
umsóknirnar til athugunar og er
búist við að staðan verði veitt í
dag. Þeir sem sækja um eru: Egill
Bjarnason starfsmaður RLR,
Garðar Kristjánsson varðstjóri
Hafnarfirði, Guðlaugur Gíslason
aðstoðarvarðstjóri Hafnarfirði,
Guðfinnur Bergsson varðstjóri í
Grindavík, Guðmundur H. Jóns-
son RLR, Gylfi Jónsson lög-
reglufulltrúi Reykjavík, Ingólfur
Ingvarsson yfirlögregluþjónn í
Stykkishólmi, Jakob Sigmarsson
varðstjóri Hafnarfirði, Olafur G.
Emilsson aðstoðarvarðstjóri
Hafnarfirði, Sigfús G. Þorgríms-
son varðstjóri Keflavíkurflug-
velli, Sumarliði Guðbjörnsson
lögreglumaður Hafnarfirði, Sæ-
mundur Pálsson varðstjóri Sel-
tjarnarnesi, Þórður Sigurðsson
yfirlögregluþjónn Borgarnesi og
Valdimar Jónsson aðstoðaryfir-
lögregluþjónn í Kópavogi.
Þjóðviljinn hefur áreiðanlegar
heimildir fyrir því að Ingólfi Ing-
varssyni yfirlögregluþjóni í
Stykkishólmi verði veitt staðan
og hafi sú ákvörðun verið tekin
fýrir þó nokkru síðan. Er vitað að
töluverðrar óánægju gætir meðal
umsækjenda, ekki síst starfs-
manna lögreglunnar í Hafnarfirði
hvernig staðið er að þessari emb-
ættisveitingu af hálfu dómsmála-
ráðherra. - Ig.
Sýklar
Salmonella
í aligæsum
Að undanförnu hafa farið fram
víðtækar rannsóknir á aligæsum
og aliöndum. sem boðnar eru til
sölu. í fréttatilkynningu frá Holl-
ustuvernd ríkisins segir, að í ali-
gæsum frá einu búi, Vilmundar-
stöðum, hafí ræktast sýkillinn
Salmonella typhimurium. Slík
váfira se ósöluhæf og valdi matar-
sýkingu.
Sala á vörum frá búinu hefur
verið stöðvuð og fyrirmæli gefin
um innköllun^iennar. Er þeim,
sem eiga í fammfSinum endur,
. _ sem merktarj'erú Aliönd/Vil-
Sýningin verður opnuð kl. 16 í ^rnundarstaðá&ad, .þent á aö
dag að viðstöddum forseta Is- koma þeim ÆStiljanda. Ekkert
lands^en henni lýkur 16. desemb- athugavert héjEw: fundist við ali-
er. gæsir og aor.aj aliendur, sem
- gg* rannsakaðar þafa verið. - mhg.
t
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 6. desember 1985
1
V