Þjóðviljinn - 06.12.1985, Qupperneq 4
LEIÐARI
Hafskip og Sjálfstæöisflokkur
Fjármálahneyksli Útvegsbankans og Haf-
skips varpar skýru Ijósi á þá spillingu sem viö-
gengst í þjóðfélaginu og gengur aö verulegu
leyti fyrir óheilbrigöum tengslum á milli fyrir-
tækja og stjórnmálaflokka. Gjaldþrot Hafskips
og ótrúlegur austur á almannafé úr Útvegs-
bankanum í hít skipafélagsins á undanförnum
árum er aö vísu svo stórbrotið dæmi um þetta,
aö önnur standast engan samjöfnuö.
Þjóöviljinn upplýsti fyrstur fjölmiöla, aö allt
upp frá árinu 1975 hefur bankaeftirlitiö gert at-
hugasemdir meö reglulegu millibili viö lán Út-
vegsbankans til Hafskips. En þaö viröist engan
árangur hafa boriö. Fé úr sjóöum, sem íslenskir
skattgreiöendur ábyrgjast, hefur haldiö áfram
aö flæöa í stríðum straumum yfir í botnlausan
rekstur skipafélagsins. Hvers vegna? Hvernig
stendur á þessu?
Nærtækastaskýringin er sú, aö milli Hafskips
og hins volduga Sjálfstæðisflokks eru giska
sterk tengsl. Áhrifamiklir aöilar innan Sjálfstæö-
isflokksins, allt upp í ráöherra, hafa verið í for-
ystu fyrirtækisins, og þaö er ekki hægt aö finna
neina aöra ástæöu fyrir ótrúlegum lánveitingum
Útvegsbankans til Hafskips en einmitt þessi
tengsl. Hafskipshneyksliö kastar löngum
skugga yfir allan Sjálfstæðisflokkinn.
Fyrst skal telja frægan Albert Guðmunds-
son, borgarfulltrúa Sjálfstæöisflokksins í
Reykjavík, þingmann Sjálfstæðisflokksins, fyrr-
verandi fjármálaráöherra og núverandi iðnaö-
arráðherra. Morgunblaöiö sá ástæöu til þess aö
benda í rammafrétt á baksíðu síöastliðinn laug-
ardag á aö Albert var stjómarformaöur Hafskips
frá 1978 til miðs árs 1983. En Albert var hluta af
þessu tímabili einnig stjórnarformaöur banka-
ráös Útvegsbankans, eöa frá 1980 til þess aö
hann tók við embætti fjármálaráðherra. Þaö er
vert að undirstrika, að fyrsti þingmaður Reykvík-
inga var meö öörum orðum samtímis formaöur
bankaráös Útvegsbankans og stjórnarformað-
ur Hafskips. í öllum siöuöum löndum væri Al-
bert nú búinn aö segja af sér ráðherradómi og
þingmennsku. Þess í staö heyrist ekkert frá
manninum. Hvaö veldur?
Ragnar Kjartansson var framkvæmdastjóri
Hafskips frá árinu 1978 til miös árs 1983, þegar
hann tók viö stjórnarformennsku í Hafskip af
Albert Guömundssyni. Tengslin milli Ragnars
og Sjálfstæöisflokksins gætu ekki verið skýrari,
hann var um tíma, framkvæmdastjóri
Heimdallar og Fulltrúaráös Sjálfstæðisfélag-
anna.
Björgólfur Guðmundsson, forstjóri Haf-
skips, er einnig í góðu sambandi viö Sjálfstæö-
isflokkinn. Hann var formaður fulltrúaráös
Sjálfstæöisfélaganna í Reykjavík á sinni tíö.
Hörður Einarsson er stjórnarmaöur í „ís-
lenska skipafélaginu", sem frá því fyrir einum tíu
dögum er hin nýja mynd Hafskips. Höröur var
einnig formaöur fulltrúaráös Sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavík, og er nú einna gildastur
áhrifamanna sem ráöa DV.
Sveinn R. Eyjólfsson, félagi Harðarúrstjórn
DV, var sömuleiðis í stjórn Hafskips og er meö
kumpána sínum í stjórn „íslenska skipafélags-
ins“. Og það er vert aö ítreka, aö þrátt fyrir aö
DV sé „frjáls og óháöur" fjölmiðill, þá hefur
blaöiö fráleitt reynt nokkuð til að fletta ofan af
spillingunni í málinu. Eina finnanlega skýringin
á áhugaleysi DV á hneykslinu er auövitaö
tengsl Sveins og Haröar viö Hafskip. En slík
vinnubrögö eru auövitaö hin versta spilling og
sóðaskapur í sjálfu sér, engu betra en fjármála-
sukkið kringum Hafskip.
Jónatan Einarsson úr Bolungarvík er í stjórn
Hafskips og var einnig formaður kjördæmisráðs
Sjálfstæöisfélaganna á Vestfjöröum fyrir
nokkru.
Þessari upptalningu væri hægt aö halda
áfram og benda á fleiri peningamenn sem hafa
komið viö sögu Hafskips á undanförnum árum
og sömuleiöis haft áhrif innan Sjálfstæöis-
flokksins.
Þaö er einmitt í skjóli þessara tengsla sem
Hafskipshneykslið hefur vaxið. Og menn skulu
ekki láta sér detta í hug aö þaö sé hiö eina á
syndaregistri Sjálfstæðisflokksins, þó eflaust
sé það hiö stærsta. Þaö dafna nefnilega margar
spilltar smáfjólur í skugga hinnar öldnu eikur.
Þaö er einfaldlega staöreynd aö í Sjálfstæðis-
flokknum eru menn sem hafa komist til áhrifa,
og hika ekki viö aö maka krókinn í skjóli flokks-
tengsla.
Þaö er þetta Hafskipssiðferði, þar sem sorinn
þrífst í skjóli spilltra flokkstengsla, sem þarf aö
uppræta úr þjóðfélaginu í dag.
-ÖS
KUPPT OG SKORIÐ
KRISTMENN
■rnnsSMENNl
Gjaldþrota-
skriða
Það bullar og sýður í auðvalds-
heiminum þessa dagana. Hafskip
gjaldþrota í gær, Arnarflug með
vonda stöðu og hvert stórfyrir-
tækiö á fætur öðru fer fram á
greiðslustöðvun. Gjaldþrot og
nauðungaruppboð hafa víst
sjaldan verið jafn mörg og ein-
mitt um þessar mundir.
Miðað við sukkið í kringum
Hafskip, ofboðslega einkaneyslu
sem fyrirtækið hefur greitt, virð-
ist að minnsta kosti sem vondir
kapítalistar og slæmur rekstur
hljóti að vera gildur þáttur í
gjaldþrotaskriðunni. Það er ekki
bara illt árferði í heimum pening-
anna sem veldur.
Þetta kemur nokkuð skýrt
fram í úttekt HP frá í gær um
Hafskip og dótturfyrirtæki þess,
Cosmos. I viðtali við Gunnar
Andersen greinir frá því þegar
Gunnar kemur heim og kynnir
Hafskipsmönnum skýrslu, sem
sýnir að rekstur fyrirtækisins er á
meira en hálu svelli. Viðbrögðin
voru ekki góð:
Gusur
„Rekstur Cosmos var á þessum
tíma mjög erfiður enda ekki að
honum staðið eins og menn
höfðu hugsað sér.
í janúar 1985 fór ég heim til
íslands og kynnti þar skýrslu sem
ég hafði tekið saman um stöðu
Cosmos og benti forráða-
mönnum Hafskips á, að dæmið
gengi ekki upp; að það þýddi ekki
að reka Cosmos eins og það var
rekið áður, en það var keypt án
breytinga, sem höfðu verið fyrir-
hugaðar en voru aldrei fram-
kvæmdar. Eftir þriggja daga
fundahöld og endalausar „plast-
íkformúlur“ frá framkvæmda-
stjórn fyrirtækisins fengust engin
skýr svör eða ákvarðanir fyrir
utan eina sem gekk út á það að
blekkja fyrrverandi eiganda
Cosmos sem var enn starfandi
innan fyrirtækisins. Mér ofbuðu
þessi vinnubrögð, varóhressmeð
allt þetta mál og mótmælti þessari
ráðstöfun ásamt öðru en fékk
eingöngu gagnrýni fyrir það. Ég
kvartaði m.a. yfir samstarfinu við
Hafskip USA og frammistöðu
Baldvins Berndsen forstjóra
þess, og fékk þá heldur betur
gusu yfir mig fyrir að virða ekki
Baldvin og hans mörgu góðu verk
sem hann hefði unnið í þágu fé-
lagsins.“
Áfram
kristmenn ...
Miðað við frásögn Gunnars, þá
virðast framámenn íslenskra
stórfyrirtækja stappa nærri því að
vera röngu megin við línu hinnar
léttu geggjunar:
„Þessi fundahöld enduðu með
því að á síðasta fundinum stóðu
þeir Björgólfur Guðmundsson,
Páll Bragi Kristjánsson og Jón
Hákon Magnússon, fram-
kvæmdastjóri markaðs- og flutn-
ingadeildar, upp og sungu sálm-
inn „Áfram Kristmenn kross-
menn“. Ragnar Kjartansson
stjórnarformaður, Sigtryggur
Jónsson, þáverandi forstjóri
Cosmos á Islandi, og ég, sátum
stjarfir í sætum okkar og vissum
aldeilis ekki hvaðan á okkur stóð
veðrið.
Guð forstjóri
En kannski skýrast áföll hins
íslenska stórauðvalds, þegar í ljós
kemur, að íslenskir forstjórar
virðast halda að það sé sama hvað
þeir geri, forlögin og yfirnáttúru-
leg hönd hjálpi þeim nefnilega.
Gefum enn Gunnari orðið:
„... Björgólfur var oft búinn að
segja við mig haustið 1984 að
njaður ætti ekki að vera svart-
sýnn; æðri máttarvöld myndu
alltaf hjálpa manni.“
- Ertu að gefa í skyn að Haf-
skip hafi verið rekið á einhverj-
um slíkum forsendum?
„Já, á forsendum forlagatrúar
og sú trú var undirstrikuð."
En vafalaust eru það ekki bara
bísarnir í forstjórastólunum sem
halda að hönd Guðs leiði þá.
Margir ráðherranna virðast halda
að þeir geti treyst á leiðslu að
handan, því það er að minnsta
kosti Ijóst, að verkum þeirra stýr-
ir ekki mannleg skynsemi.
Sukk og svínarí
Frásögn Gunnars og Björgvins
Björgvinssonar í HP er raunar al-
veg makalaus lesning. Þar kemur
fram að golfóður forstjóri Haf-
skips í Ameríku, Baldvin Bernd-
sen, flýgur milli landa í golftúra,
lætur búa til golfkúlur með merki
Hafskips á, og hafi raunar ráðið á
tíma yfir fjórum bílum. Hann
hafði meðal annars til umráða
sérstaklega lengdan kádilják með
sjónvarpi, bar og borðalögðum
bílstjóra!
Hins vegar skulu menn varast
að dæma forstjóra Hafskips og
yfirmenn of hart. Þeir eru nefni-
lega ekkert einsdæmi. Það er ein-
faldlega staðreynd, að lífsstíll
þeirra heima og erlendis er sá
hinn sami og allra annarra sem
reka fyrirtæki á íslandi. Einka-
neyslan er ofboðsleg, og á þann
hátt er stolið undan miljörðum
króna. Skíðaferðalög til Áustur-
ríkis með konu og börn, ferðalög
suður í heim, hótelsvítur og dýr-
ustu vín eru fastir liðir á dag-
skrám bísanna.
Að því leyti til er sukkið í
kringum Hafskip ekkert eins-
dæmi. Allir sjálfstæðir atvinnu-
rekendur sem eitthvað hafa um-
leikis leika þennan sama leik. Og
þeir sem eru í viðskiptum við út-
lönd eru langverstir. Þeir stela
undan af umboðslaunum, setja fé
með þeim hætti á erlenda banka-
reikninga og nota síðan til einka-
eyðslu. Og hverjir borga?
Við - fólkið á götunni!
-ÖS.
DJOÐVIIJINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
i Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Rltstjórar: Árni Bergman, össur Skarphéðinsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Öskar Guðmundsson.
Fréttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Aðalbjörg Óskarsdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Garðar
Guðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gísla-
son, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Víðir Sigurðsson, Þór-
unn Sigurðardóttir, Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndir: Einar ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útltt: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Sfmvarsla: Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmæöur: Agústa Þórisdóttir, Olöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrlf8tofustjórl: Jóhannes Harðarson.
Skrif8tofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Útbreiöslustjóri: Sigríður Pétursdóttir.
Auglýsingastjóri: Ragnheiður Óladóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson,
Olga Clausen.
Afgreiöslustjóri: Baldur Jónasson.
Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Bjömsson.
Útkeyrsla, afgreiösla, auglýsingar, ritstjórn:
Síöumúla 6, Reykjavík, síml 81333.
Umbrot og setning: Prentsmiöja Þjóöviljans hf.
Prentun: Blaöaprent hf.
Verö í lausasölu: 35 kr.
Sunnudagsblað: 40 kr.
Áskrlft * mánuAI: 400 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 6. desember 1985