Þjóðviljinn - 06.12.1985, Qupperneq 8
GLÆTAN
Pá og nú
Hverer litli
snáðinn?
Hér koma myndir úr popp-
myndaalbúminu. Efst eru tveir
kumpánar aö spjalla árið 1978,
áður en nokkur sála á íslandi vissi
um tilveru þeirra. Sá með hattinn
er Holly Johnson söngvari Fra-
nkie Goes to Hollywood og sá
með ennislokkinn Pete Burns
söngvari Dead or Alive. Nú hefur
Holly lagt hattinn á hilluna að
mestu, en Pete á hinn bóginn
leggur enn meiri áherslu á höfuð-
búnað sinn, eins og sést á tveggja
dálka myndinni háu hérna yst á
síðunni. Á tveggja dálka mynd-
inni þar við hliðina slappar Holly
af með Paul vini sínum úr
Hollywood-Frankie. En hver
skyldi nú litli snáðinn á eindálk-
amyndinni fyrir miðri síðu
vera?... Ja, getiði nú (það er að
segja ef þið hafið ekki séð þessa
mynd í útlenska blaðinu sem hún
er fengin að láni úr)! ...Jú, þetta
er sko Simon LeBon, og við hlið-
ina á sjálfum sér litlum er hann
grafalvarlegur á mynd með John
Taylor sem er í stuði. Þá er ein
mynd óskýrð. Hún er af
Ladda, sem var að senda frá sér
12 laga plötuna EINN VOÐA
VITLAUS. Margir fleiri koma
þó við þá sögu, kannski ekki eins
vitlausir... t.d. hefur Björgvin
Halldórsson verið alveg óvitlaus
þegar hann útsetti músikina með
Ladda og ágæta músikmeðreið-
arsveina hafa þeir fengið.
Og hvurnig er svo platan? Jú,
þarna eru leikskólabrandarar,
smástrákabrandarar fyrir alla
aldurshópa og bjórkarlabrandar-
ar. Merkilegt hvað Laddi nær til
breiðs aldurshóps með bulli sínu,
sem hefur reyndar hitt betur í
mark en gerist hér... Tóti tölvu-
kall hefur reyndar hitt.
Lögin eru flest erlend. Af þeim
sem Laddi gerir sjálfur finnst
manni hann ofnota heldur og
jafnvel endurnota gömul stef sín.
En Laddi bjargar sér oft fyrir
hom með óvæntum uppátækjum
og ekki verður af honum skafið
að vel tekst honum að bregða sér
í margra kvikinda líki og halda
karakter-einkennum þeirra að-
skildum og eftirminnilegum.
Hins vegar er þetta ekki besta
platan hans efnislega séð. A
Vinsældalistar Þjóðviljans
FellaheHir 1. Waltlng for an answer - Cosa Nostra 2. Nlklta - Elton John 3. A good heart - Feargal Sharkey 4. Baby you left me - Marilyn 5. Say l’m no. 1 - Princess 6. White wedding - Billy Idol 7. My hearts goes bang - Dead or alive 8. A life and kicklng - Simple minds 9. Never surrender - Currey Hard 10. Cherish - Kool and the gang. Grammið 1. Simple minds -Once upon a time 2. Smiths - The boy with the thorn in his side 3. Tom Waits - Rain dogs 4. Robert Wyatt with the Swabosingers- The wind of change 5. The Fall - This nation saving grace 6. Clannad- Mcalla 7. New order- Love life 8. Einsturzende neubauten - 1/2 mensch 9. Fergall Sharkey- Fergall Sharkey 10. Long raiders- Long Raiders Rás 2 1. (1.) Can’t walk away- Herbert Guðmundsson 2. (2.) 1 am your man - Wham 3. (7.) Tóti tölvukall- Laddi 4. (3.) Nikita - Elton John 5. (8.) In to the burning moon -Rikshaw 6. (4) Waiting for an answer- Cosa Nostra 7. (9) A good heart- Fergal Sharkey 8. (5) The power of love - Jennifer Russ 9. (6.) We built this city- Starship 10. (19.) Say you say me- Lionel Richie
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJtNN Föstudagur 6. desember 198S