Þjóðviljinn - 06.12.1985, Síða 9
Fálldin forsætisráðherra skyggnist um á íslandi fyrir tæpum áratug.
Svíþjóð
Falldin sparkað
HEIMURINN
Aramót
Bretland úr Unesco
Thatcher eltir Reagan
ingarmálastofnun Sameinuðu
þjóðanna, nú um næstu ára-
mót.
Thatcher forsætisráðherra
mun hafa tekið þessa ákvörðun á
ráðherrafundi í gær en hún var
tilkynnt í þingræðu þróunar-
ráðherrans Timothy Raison í
breska þinginu síðdegis við lítinn
fögnuð stjórnarandstöðuþing-
manna.
Raison kenndi því um að
Menningarmálastofnunin væri
illa rekin og notuð til framdráttar
pólitískum öflum andstæðum
bretum og vesturlandaríkjum
öðrum. Breska ríkisstjórnin gaf
um síðustu áramót yfirlýsingu um
úrsögn að ári liðnu ef Eyjólfur
tæki ekki að hressast og telur sig
nú ekki sjá á honurn næg bata-
merki. Reagan-stjórnin sagði
Bandaríkin úr samtökunum í
fyrra og olli það miklum usla í
starfi Unesco.
Bretar leggja nú til tæplega
fimm prósent starfsfjár samtak-
anna og nemur framlag þeirra um
360 miljónum íslenskra króna.
Innan samtakanna hafa menn
ekki miklar áhyggjur af þessu fé,
að minnsta kosti ekki þegar borið
er saman við þann fjórðung sem
kanar reiddu fram áður en þeir
ruku burt.
Hins vegar kynni bresk úrsögn
að draga vestrænan dilk á eftir sér
og verða einn af stærri nöglunum
í líkkistu samtakanna, sem flestir
eru sammála um að hafi innt
margt þarfastarf af höndum í
þriðjaheimsríkjum þrátt fyrir
skrifræði og stjórnmálaþras í
Parísar-höfuðstöðvunum.
„Kjaftshögg á þriðja heiminn“
hrópaði einn stjórnarandstöðu-
þingmanna að ráðherranum sem
tilkynnti um úrsögnina á þinginu í
gær, og víst er að hvorki í Bret-
landi sjálfu eða meðal helstu
bandamanna verður ákvörðun-
inni tekið með ofsagleði. Edward
Heath fyrrverandi forsætisráð-
herra er meðal þeirra sem barist
hafa gegn því að Bretar yfirgæfu
samtökin, - og meðal hinna 48
bresku samveldislanda eru fjöl-
mörg sem hafa átt talsverðan
hauk í horni þar sem Unesco er.
Þá hafa leiðtogar í Bonn og París
áður hvatt Thatcher til að halda
áfram að beita sér fyrir umbótum
innan samtakanna í stað þess að
rjúka út.
Stokkhólmur - Torbjörn Fáll-
din sagðist í dag hafa verið vik-
ið úr formannsstöðu sænska
Miðflokksins í kjölfar óskap-
legrar frammistöðu flokksins í
kosningunum í september.
„Kjörnefnd flokksins hefur
tjáð mér að hún líti ekki lengur á
mig sem heppilegasta mann til
forystu í flokknum" sagði Fálldin
á blaðamannafundi, „ég hef verið
rekinn“.
Þorbjörn Fálldin varð forsætis-
ráðherra Svíþjóðar árið 1976
þegar borgaraflokkarnir komust í
ríkisstjórn eftir 44 ára stjórnartíð
krata. Lífdögum fyrra ráðuneytis
Washington - I fyrrakvöld var
John Poindexter skipaður ör-
yggisráðgjafi Bandaríkjafor-
seta i stað Roberts McFarlane.
Poindexter þessi var áður
helsti undirmaður McFarlanes.
Hann er varaaðmíráll að hertign
og veit sitthvað urn tæknihlið á
vopnabúnaði. Mikið meira
kunna skýrendur ekki frá honum
að segja, en áhrifamenn úr röð-
unum hægramegin í bandarísku
stjórnarliði telja hann pólitískt
hans lauk 1978, en hann varð aft-
ur forsætisráðherra 1979 þangað
til Olof Palme og kratar hans
unnu kosningarnar 1982.
Miðflokkur Fálldins hefur ver-
ið á hraðri niðurleið síðasta ára-
tuginn þrátt fyrir aukna áherslu á
umhverfismáí og andstöðu við
kjarnorkuver í Svíþjóð, - og er
nú svo komið að flokkurinn kýs
að fórna leiðtoga sínum, sem
raunar hefur notið meiri vinsælda
en flokkurinn.
Fálldin hyggst draga sig í hlé
eftir fórtán ára flokksfor-
mennsku og hverfa norður í land
til fjárbús síns. Ekki hefur verið
valinn nýr flokksleiðtogi.
óreyndan og gagnrýna skípun
hans á þeim forsendum og kring-
um Reagan þurfi fleiri harðlínu-
menn í utanríkismálum.
Reagan og McFarlane hafa
báðir neitað því að brottför hins
síðarnefnda eigi sér skýringar í
deilum hans við starfsmanna-
stjórann David Reagan. McFar-
lane vilji barasta sinna fjölskyldu
sinni almennilega eftir 30 ára
annir á opinberum vegum. Þessu
er varlega trúað á fréttaskýring-
arvígstöðvum.
London - Breska ríkisstjórn-
in tilkynnti í dag að hún mundi
standa við hótun sína um að
segja landið úr Unesco, Menn-
ERLENDAR
FRÉTTIR
EBE
Dregið úr
þorskveiðum
Brussel - Efnahagsbanda-
lagsráð hefur gert tillögur um
að minnka þorsk- og makríl-
kvótann í Norðursjó vegna of-
veiði. Hins vegar verður síldar-
kvótinn aukinn.
Sjávarútvegsráðherrar þeirra
Efnahagsþjóða sem málið snertir
verða á næstunni að taka afstöðu
til tillagna frá Brússel um að
þorskkvótinn í Norðursjó minnki
um 28 prósent og makrílkvótinn
um 21 prósent. Asókn í þorsk og
makríl hefur aukist mjög eftir að
fækkað hefur veiðisvæðum og
fisktegundum sem sjómenn
Efnahagsbandalagsþjóðanna
mega sækja í.
Þorskur og makríll eru í útrým-
ingarhættu í Norðursjó ef sókn
heldur áfram eins og nú.
Við ákvörðun um að veiða
minna af þorsk og makríl yrðu
sjómenn og útgerðarmenn í Bret-
landi, Hollandi og Danmörku
fyrir umtalsverðum búsifjum.
Þeim getur þó verið huggun
harmi gegn að ein tillagnanna
gerir ráð fyrir að síldveiðar verði
auknar, um hérumbil þriðjung.
Moskva - Allar líkur benda til
þess að þeir Kasparoff og
Karpoff setjist enn einu sinni
niður til skákeinvígis í febrúar
næstkomandi.
Anatólí Karpoff tilkynnti í gær
með bréfi til FIDE að hann ætlaði
að nota rétt sinn til að skora á
Kasparoff heimsmeistara, og
Alþjóða-skáksambandið, eða
forseti þess Campomanes, hefur
ákveðið að það einvígi skuli hefj-
ast 1. febrúar.
Kasparoff hefur lýst óánægju
með að „hefndareinvígið" skuli
fara fram svo skömmu eftir síð-
ustu viðureign þeirra félaga.
Heimsmeistarinn hefur líka sagt
að það þurfi að breyta reglum um
heimsmeistaraeinvígin, en ólík-
legt er að á slíkt verði fallist fyrir
einvígið í febrúar.
Washington
Aðmíráll nýr ráðgjafi
Þjóðarmorð?
Kolsvört Afgan-skýrsla
Hernaðursovét- ogstjórnarhers beinist œ meir að almenningi
Sérlegur fulltrúi Sameinuðu
þjóðanna, Austurríkismaður-
inn Fellx Ermacora, lagði á
mánudag skýrslu sína um á-
standið í Afganistan fyrir
fastanefnd SÞ um félags-,
mannúðar- og menningarmál.
Ein niðurstaða skýrsiunnar er
að í fjórum fimmtu hlutum
landsins ríki „félagslegt
neyðarástand“, og að hernað-
ur stjórnarinnar og sovétliðs-
ins hafi á árinu beinst að al-
menningi í síauknum mæli.
Danska blaðið Information
spurði Ermacora um síðustu
helgi hvort orðið þjóðarmorð
ætti við í Afganistan, og svarið
var: „Sem lagaprófessor verð ég
að hika við að nota slíkt orð um
ástandið. Hinsvegar bendi ég á
að ef svo heldur fram sem nú
horfir er þess ekki langt að bíða
að allar forsendur fyrir að nota
það orð verði fyrir hendi“.
Ermacora hefur ekki fengið
leyfi til að koma til Afganistan.
Skýrsla hans byggist á tveimur
heimsóknum í flóttamannabúðir
í Pakistan, í desember í fyrra og
ágúst í haust. Hann segist ekki
hafa fellt inní skýrslu sfna nema
sæmilega staðfestar frásagnir á-
reiðanlegra vitna, og raunar ekki
tekið með frásagnir sem voru
þess eðlis að þeim yrði ekki trúað
utan hörmungarsvæðanna.
í skýrslu sinni rekur Ermacora
sögulegan bakgrunn átakanna og
nærveru sovéthersins, og setur
fram tillögur til pólitískrar
lausnar, - lausnar sem Sovét-
menn virðast nú vera farnir að
líta á sem einu færu leiðina, ef
marka má ummæli leiðtoga
þeirra á stórveldafundinum í
Genf. En meginhluti skýrslunnar
fjallar um hernaðinn í landinu og
ástandið þar. Hann segir flestar
vondar sögur sagðar um sovét-
herinn, - en tekur fram að þar
kunni að gæta tilhneigingar
flóttamannanna til að halda hlífi-
skildi yfir löndum sínum í stjórn-
arhernum.
Samkvæmt skýrslunni hefur
hernaður stjórnarhers og sovét-
liðs á þessu ári beinst æ meira að
almenningi, sem - ekki að ófyrir-
synju einsog í öðrum stríðum af
sama tæi - grunaður er um samúð
við skæruliða. Herinn virðist hafa
nokkurn veginn sama hátt á
„rannsóknum“ sínúm í þorpum.
Heilt hérað er tekið fyrir hverju
sinni, og byrjað á sprengjuárás-
um heilan dag. Um kvöldið er
hvert þorp umkringt skriðdrek-
um, og morguninn eftir ryðst
herliðið samtímis inní öll þorpin í
héraðinu. Leitað er í flestum hús-
um og fólk heimavið, konur,
börn og gamalmenni fyrst og
fremst, yfirheyrt, - einkum um
hvar karlarnir séu. í þessum yfir-
heyrslum eru mörg dæmi um að
fólk sé tekið af lífi á staðnum.
Fjölmargir eru til vitnis um af-
töku tólf karla og 8 kvenna án
dóms og laga á þorpstorginu í
Sandaly í Nagarhéraði 2. febrúar
síðastliðinn. I skýrslunni er talið
að herliðið hafi tekið af lífi um
þúsund manns í Qarghaj-sveit í
Laghna-héraði í sókn stjórnar- og
sovéthers þar í mars: auk þess
skorinn búsmali. konum
nauðgað, og sumar síðan drepn-
ar. Meðal látinna eru börn sem
brennd voru inni í læstu húsi. í
lok mars létust á sama hátt milli
700 og 1200 manns í Kunduz-
sveit í Khnabad-héraði.
Þrjú til fjögur af tíu
Vitnin nefna að sovétmenn
beiti nýjum tegundum eldflauga,
og einnig hafi þeir tekið í notkun
efnavopn skyld napalm-
sprengjum kana í Víetnam. Þá er
talað um jarðsprengjur til að
drepa einn og einn, og
manngildrur til örkumla, - þessi
vopn séu notuð á svæðum þar
sem ætlunin sé að hefja aðgerðir
gegn skæruliðum.
Samkvæmt upplýsingum sem
höfundur skýrslunnar telur áreið-
anlegar hafa á þessu ári látist um
33 þúsund manns af afgönskum
almenningi. Rúmlega 1800 hús
og 74 þorp hafa verið jöfnuð við
jörðu í hernaðaraðgerðum sovét-
og stjórnarhers. Þá er ófagur
kafli um meðferð stríðsfanga
beggja megin víglínunnar: á þess-
um slóðum er Genfarsáttmálinn
um þá hluti óþekktur með öllu.
í fjórum fimmtu hlutum
Fréttaskýringarmynd um ástandið í
Afganistan. Ur Information.
Afganistan ríkir félagslegt neyð-
arástand, segir Felix Ermacora í
skýrslu sinni. Landbúnaður hefur
lagst niður í víðlendum héruðum,
og auk flóttamannastraums yfir
landamærin til Pakistan rekur
skýrsluhöfundur „innri flótta-
mannavanda" þegar fólk hefur
flúið heimahéruð sín. Heilbrigð-
isþjónusta er lítil sem engin í stór-
um hluta landsins, og má til
marks um þær hörmungar nefna
að barnadauði er talinn milli 300
og 400 af 1000; þrjú til fjögur
börn af hverjum tíu fæddum
deyja á fyrsta ári. Til saman-
burðar má nefna nýlegar tölur
fyrirísland: 1,94 af 1000, fyrirhið
stríðshrjáða Angóla: 182 af 1000,
nágrannaríkin lran (1975): 108,
og Pakistan: 142.
í leiðara um síðustu helgi fjall-
ar Information um þessa skýrslu.
Þar segir meðal annars að eftir
hana verði ekki lengur spurt
hvort hið austræna stórveldi hafi
komið sér upp svínaríi svipuðu og
hið vestræna á síðasta áratug;
skýrslan sanni að Afganistan sé
hið sovéska Víetnam.
(Byggt á Information)
Föstudagur 6. desember 19*5 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 9