Þjóðviljinn - 06.12.1985, Page 13
Þrjú forgangsverkefni
EftirÁsmund Stefánsson, forseta ASÍ. Ávarp forseta ASÍ á þingum VMSÍog LÍV, 2. hluti af þremur
í komandi samningum eiga
forgangsverkefnin að mínu mati
að vera þessi.
1. Aukinn kaupmáttur. Við
gerum okkur grein fyrir því, að
við vinnum ekki allt sem tapast
eftirÁsmund
Stefánsson,
forsetaASI
2. grein
hefur í einu stökki og við verðum
að leggja niður fyrir okkur skýr
skref um hvernig það megi tak-
ast. Við vitum að hvort sem
lægsta kaup hækkar um 10%,
20%, 30% eða 40% vantar mikið
á að það sé fullnægjandi til fram-
færis. En við vitum líka, að hvert
skref skiptir máli.
Um leið og sótt er til aukins
kaupmáttar verður að ná betra
samræmi en nú er milli taxtanna
og þess kaups sem greitt er. Þær
miklu yfirborganir sem tíðkast
víða valda alvarlegu misræmi í
kjörum og veikja samheldni og
styrk verkalýðshreyfingarinnar.
2. Traust kaupmáttartrygging.
Verkalýðshreyfingin hefur lýst
sig reiðubúna til þess að skoða
allar leiðir til þess að tryggja
kaupið, aðferðin er ekki heilög.
Það er kaupmátturinn en ekki
kauphækkunin í krónutölu sem
máli skiptir. Ég hef sagt að
vandamál fyrra vísitölukerfis hafi
ekki verið að kaup hækkaði í
kjölfar þegar áorðinna verð-
hækkana, heldur að atvinnurek-
endur og stjórnvöld hafi umsvifa-
laust velt kauphækkunum út í
verðlagið. En ég hef einnig ítrek-
að, að það kerfi sé ekki eina
leiðin. Eg tel sjálfsagt að allt sé
gert til þess að hamla verðhækk-
unum. Það er sjálfsagt eins og
gert var í síðustu samningum, að
knýja á um að stjórnvöld axli
ábyrgð á verðlagsþróuninni.
Fyrirfram umsamdar kauphækk-
anir og spá um verðlag gefa
ákveðinn kaupmátt. Sá kaup-
máttur stenst hins vegar því að-
eins að verðlágsspáin haldist.
Bresti sú forsenda brestur kaup-
máttarforsendan um leið. Ég ár-
étta að yfirlýsing forsætisráð-
herra í áramótaávarpi er ekki
nægileg trygging. Það verður óf-
rávíkjanlega að ná fram skýrum
ákvæðum um það hvernig launa-
fólki verði bættur skaðinn ef
stjórnvöld standa ekki við sitt.
Útreikningar nú gefa til kynna,
að kaupmáttur standist nokkurn
veginn eins og gert var ráð fyrir í
júnísamningunum. Á það er hins
vegar vart að treysta, að fjár-
málaráðherra leiðrétti hverju
sinni slíkt frávik eins og gerðist
núna í október. Kaupmáttur í
júní-desember verður um fjórð-
ungi úr prósenti lakari en gert var
ráð fyrir í spá okkar í sumar.
Reynslan sýnir, að sé farin leið af
þessu tagi er nauðsynlegt að
endurskoðun sé trygg ef á reynir.
3. Urlausn ákvcðinna félags-
legra atriða. Ég ætla ekki að fara
mörgum orðum um þennan lið,
aðeins nefna þau mál sem ég tel
svo brennandi að á þeim verði að
taka:
1. Húsnæðismál
2. Vextir og lánstími.
3. Lífeyrismál.
4. Frávera vegna veikinda barna.
5. Skilvís innheimta sjúkra- og
orlofsheimilasj óðsgj alda.
Ég vek athygli á því, að ég
nefni hér ekki fastráðningu
verkafólks í fiskvinnu, enda
treysti ég því, að viðræður VMSÍ
og VSÍ séu í þann mund að skila
því máli í höfn.
Öll eru mál þessi brýn. Ekkert
er þó jafn brennandi og ástandið í
húsnæðismáluunm, sem annars
vegar má rekja til hinnar
geigvænlegu kjaraskerðingar
sem yfir hefur dunið og endur-
speglar hins vegar þau rangindi
og ójöfnuð, sem beint má rekja
tii yfirdrifinnar vaxtastefnu og
hreinnar okurstarfsemi, sem
flokkast þó ekki undir lagabrot.
Samfélagið verður með einhverj-
um hætti að bregðast við því ást-
andi sem nú ríkir. Við viljum ekki
búa í þjóðfélagi sem tryggir þeim
ríku ofboðslega ávöxtum auðs og
kemur venjulegu fólki sem vinn-
ur hörðum höndum á vonarvöl.
Spurningin um aðgerðir í hús-
næðismálum er spurning um
hvort við viljum búa í harð-
neskjulegu peningaþjóðfélagi
eða í samfélagi jafnaðar og frels-
is. Tiltekinn hópur fólks þarf á
aðstoð að halda og við verðum að
tryggja að hlutur þessa fólks
verði leiðréttur.
B/EKUR
ÍSLENSKI
iLSKHUGAR
átján karlmenn ræða urn
kynlíflö, konuna og karlmennskuna
íslenskir
elskhugar
Forlagið hefur gefið út bókina
Islenskir elskhugar eftir Jóhönnu
Sveinsdóttur blaðamann. í henni
ræðir Jóhanna við 18 karlmenn á
aldrinum 20-75 ára um ástir
þeirra og tilfinningamál.
í frétt frá Forlaginu segir svo
um viðmælendur Jóhönnu:
„Karlmanneirnir átján eru úr
ýmsum áttum. Skólapiltur, sjó-
maður, framkvæmdastjóri, bíl-
stjóri, skáld og lögfræðingur svo
nokkrir séu nefndir. Með sanni
má segja að allar stéttir eigi hér
fulltrúa sinn. Hér tala hreinir
sveinar og flekkaðir, fráskildir
karlmenn og skemmtistaðafolar í
ævintýraleit, hommar og ráðsett-
ir margra barna feður.“
Islenskir elskhugar er 212 bls.
að stærð og fæst bæði bundin og
sem kilja. Oddi prentaði.
Heimsmeta-
bók
Guinness
Út er komin hjá Erni og Örlygi
þriðja íslenska útgáfan af Heims-
mctabók Guinness. Bókin kom út
fyrst 1977 og síðan 1980 en hefur
verið ófáanleg um nokkurt skeið.
Heimsmetabók Guinness á 30
ára afmæli urn þessar mundir og
af því tilefni er í nýju útgáfunni
birt yfirlit um þróun heimsmeta
sl. 30 ár og einnig heimskort til
glöggvunar á yfirlitinu. Ýmsar
aðrar nýjungar eru í nýju útgáf-
unni, td. eru flestar myndir nú
prentaðar í litum. Að vanda er
þar einnig að finna kafla um ís-
lensk met, ný og gömul.
Heimsmetabók Guinness er
sett og prentuð í Prentstofu G.
Ben. en bundin í Arnarfelli.
Hvernig elska
á karlmann
Hvernig elska á karlmann er
heitið á nýrri bók sem Frjálst
tramtak hefur gefið út. Bókin er
bandarísk að uppruna, eftir Al-
exöndru Panney en Sigurður
Hjartarson hefur snúið henni á
íslensku.
í frétt frá útgefanda segir að
bókin fjalli um „unað ástarlífsins
og hvernig unnt er að bæta það
bæði tilfinningalega og líkam-
lega“. Þar segir einnig „að ekki sé
langt síðan að þau viðhorf hafi
verið ríkjandi að konan ætti að
vera hlutlaus og undirgefin í ást-
arlífinu, en sá tími sé liðinn“.
Höfundur byggir á viðtölum við
fjölda karla og kvenna.
Hvernig elska á karlmann er
sett og prentuð í Prentstofu G.
Ben. en bundin hjá Arnarfelli.
Heimslns mestu
FURÐUFUGLAR
Heimslns mestu
furðufuglar
Heimsins mestu furðufuglar
nefnist bók sem Frjálst framtak
hefur gefið út. Bókin er bresk,
höfundur Mike Parker en þýð-
andi Karl Birgisson.
í frétt frá útgefanda segir að í
bókinni sé fjallað um „fólk sem
hefur á einhvern hátt skorið sig
rækilega úr fjöldanum". Þar er
sagt frá John Merricks, öðru
nafni Fílamanninum, síamství-
burunum Eng og Chang, fólki
nteð afbrigðilegt minni, þeim
sterkustu, feitustu, hávöxnustu,
lágvöxnustu, hár- og skeggprúð-
ustu, úlfabörnum og uppvakn-
ingum.
Heimsins mestu furðufuglar er
sett og prentuð í Prentstofu G.
Ben. en bundin hjá Bókfelli.
Hugsaðu um
heilsuna
Bókaklúbburinn Veröld hefur
gefið út bókina Hugsaðu um
heilsuna. Bókin er unnin af hópi
höfunda undir stjórn svíans Ulf
Nicolausson en Örnólfur Thorl-
acius hefur haft umsjón með ís-
lensku útgáfunni og þýtt í sam-
vinnu við Andrés Kristjánsson og
Arngrím Thorlacius.
Bókin er prýdd fjölda litprent-
aðra skýringamynda en í henni er
fjallað um hvernig komast megi
hjá vanheilsu með skynsam-
legum lifnaðarháttum, hvernig
læknisskoðun fer fram, hvað ger-
ist á hinum ýmsu deildum sjúkra-
húsa, greint frá læknislyfjum og
skipan heilsugæslu á íslandi. Auk
þess eru sérstakir kaflar um barn-
asjúkdóma, heilsuvernd aldr-
aðra, geðsjúkdóma og aðrar sál-
rænar truflanir.
Bókin Hugsaðu um heilsuna er
á fjórða hundrað blaðsíður,
prentuð í Odda.
Réttur dagsins
Hörpuútgáfan á Akranesi hef-
ur sent frá sér matreiðslubókina
Réttur dagsins eftir Margréti Þor-
valdsdóttur, og eru uppskriftir í
bókinni byggðar á samnefndum
þáttum höfundar í einu dagblað-
anna.
„Höfundur hefur dvalið vfða
erlendis og kynnst þar matargerð
og matarvenjum ýmissa þjóða“
segir í frétt frá útgáfunni, og eru
sumar uppskriftirnar frum-
samdar en aðrar af erlendum
stofni, „aðlagaðar íslenskum að-
stæðum og innlendu hráefni.
Áhersla er lögð á að uppskriftirn-
ar séu auðveldar fyrir alla til
matargerðar. Gætt er hófs í hrá-
efniskostnaði. Þá hefur verið
lögð áhersla á að réttirnir falli að
smekk barna,“ segir í formála.
Réttur dagsins er 112 bls. í
stóru broti. Bókin er prýdd lit-
myndum, sem Magnús Hjörleifs-
son ljósmyndari tók.
Föstudagur 6. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13