Þjóðviljinn - 06.12.1985, Page 14
ÞJÓÐMÁL
Spurt
um...
...sláturkostnað
Stelngrímur J. Sigfússon spyr
landbúnaðarráðherra hvernig
sláturkostnaður einstakra slátur-
leyfíshafa í landinu skiptist á
eftirtalda kostnaðarliði s.l. 3 ár
reiknað á núverandi verðlagi í
krónum á hvert kíló: a) vinnu-
laun, b) fjármagnskostnaður, c)
umboðs- og sölulaun, d) pökkun
og umbúðir, e) annað. Þá spyr
hann hver heildarkostnaður
vegna geymslu kjöts s.l. 3 ár sé og
hvernig geymslugjald skiptist
milli einstakra geymsluaðila.
Óskað er skriflegs svars við fyrir-
spurninni.
...Hollustuvernd ríkis-
ins
Svavar Gestsson spyr
heilbrigðisráðherra hvenær hann
hyggist ljúka endurskoðun laga
um hollustuhætti og hollustu-
vernd.
...hvalveiðiráð
Eiður Guðnason hefur lagt
fram fyrirspurn til sjávarútvegs-
ráðherra hvort ríkisstjórnin hafí
rætt þann möguleika að ísland
segi sig úr Alþjóðahvalveiði-
ráðinu og beiti sér ásamt öðrum
fyrir því að komið verði á fót
nýrri alþjóðastofnun á þessu
sviði.
...bifreiðamál ráðherra
Jóhanna Sigurðardóttir spyr.
fjármálaráðherra hversu há gjöld
hafi verið felld niður af bifreiðum
ráðherra á tímabilinu janúar 1982
til 30. apríl 1985 og hversu oft
ráðherrar hafi getað nýtt sér
heimild um niðurfellingu gjalda
af bifreiðum. Þá spyr Jóhanna
hver rekstrarkostnaður ríkisbifr-
eiða sem ráðherrar höfðu til um-
ráða á þessu tímabili hafi verið
annars vegar og hins vegar hver
rekstrarkostnaður eigin bifreiða
þeirra hafi verið. Jóhanna spyr
einnig hversu margar ríkisbif-
reiðir hafi verið keyptar fyrir ráð-
herra á tíma frá 1. janúar 1982 til
1. nóvember á þessu ári og hversu
oft ráðherrar sem látið hafa af
störfum hafi keypt þá bifreið sem
þeir höfðu til umráða í embætti
sínu og fyrir hvaða kaupverð.
Skriflegs svars er óskað.
Styrkir til háskólanáms
í Hollandi
Hollensk stjórnvöld bjóöa fram tvo styrki handa íslendingum til háskólanáms í
Hollandi skólaáriö 1986-87. Annar styrkurinn er ætlaöur stúdent sem kominn
er nokkuö áleiöis í háskólanámi eöa kandídat til framhaldsnáms en hinn
styrkurinn er ætlaður til náms við listaháskóla eöa tónlistarháskóla. Styrfjár-
hæðin er 1.100 fls. á mánuði í 9 mánuði.
Umsóknum um styrkina skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu
6, 101 Reykjavik, fyrir 15. janúar n.k. og fylgi staöfest afrit prófskírteina
ásamt meÓmælum. Sérstök umsóknareyöublöö fást í ráöuneytinu.
Menntamálaráöuneytið,
3. desember 1985.
Blaðburðarfólk \ r 4 ^ ÍJv ^ ress.'
Ef þú ert morgunh
Haföu þá samband viö afgreiðslu Þjoðviljans, sími 81333
Laus hverfi:
í Fossvogi, Tjarnarbóli og Kópavogi - vesturbæ.
Það bætir heilsu að bera út Þjóði oghag iqann
Styrkir til náms
við lýðháskóla eða
menntaskóia í Noregi
Norsk stjórnvöld bjóöa fram styrki handa erlendum ungmennum til námsdval-
ar viö norska lýðháskóla eða menntaskóla skólaáriö 1986-87. Ekki er vitað
fyrirfram hvort nokkur styrkjanna kemur í hlut Islendinga. Styrkfjáræöin á að
nægja fyrir fæö, húsnæöi, bókakaupum og einhverjum vasapeningum. -
Umsækjendur skulu eigi vera yngri en 18 ára og ganga þeir að ööru jöfnu fyrir
sem geta lagt fram gögn um starfsreynslu á sviöi félags- og menningarmála.
Umsóknum um styrki þessa skal komið til menntamálaráðuneytisins, Hverf-
isgötu 6, 101 Reykjavik, fyrir 20. janúar n.k. -
Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráöuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
3. desember 1985.
Orion-P-3 flugvél á sveimi yfir flugstöðvarbyggingunni á Keflavíkurflugvelli. Ólafur
Ragnar: Alvarlegt að íslendingar skuli í fyrsta sinn gerast formlegir aðilar að
samkomulagi um hernaðaruppbyggingu Nató án þess að alþingi sé spurt.
HoUendmgarnir fljúgandi
Gat í stjómskipun landsins
Geir Hallgrímsson leitaði ekki samþykkis ríkisstjórnarinnar fyrir komu
hollensku flugsveitarinnar og lagði málið ekkifyrir utanríkismálanefnd
Utanríkisráðherra er ekki
reiðubúinn til að birta
opinberlega samkomulag sem
hann gerði í sumar við
Hollcndinga um varanlegt
aðsetur hollenskrar Orion-
flugsveitar á Keflavíkurflugvelli.
Þetta kom m.a. fram í umræðum
á alþingi s.l. þriðjudag í
framhaldi af ýtarlegum
spurningum Ólafs Ragnars
Grímssonar um komu hollenska
herliðsins hingað til lands.
íslenska ríkisstjórnin sam-
þykkti aldrei komu flugsveitar-
innar hingað og ræddi málið ekki
einu sinni eftir að Geir Hall-
grímsson hafði átt viðræður við
Hollendinga þar um.
Ráðherrann skýrði
ríkisstjórninni aðeins frá óskum
Hollendinganna skömmu eftir að
þær bárust og sagði að engar at-
hugasemdir hefðu verið gerðar
þar. Málið var heldur aldrei rætt
formlega í utanríkismálanefnd og
ekki bókað þar inn, heldur sagð-
ist ráðherrann hafa sagt nefnd-
armönnum frá beiðni Hollend-
inga þar sem þeir voru í
skoðunarferð á
Keflavíkurflugvelli í byrjun árs.
Taldi ráðherrann að enga
lagalega skyldu bæri til að alþingi
eða ríkisstjórn samþykkti slíkar
breytingar en hins vegar taldi
hann siðferðilega skyldu að skýra
sömu aðilum frá ákvörðunum
sínum.
„Þetta sýnir“, sagði Ólafur
Ragnar Grímsson, „að það er
mjög alvarlegt gat í stjórnskipun
íslenska lýðveldisins. Þetta þýðir
að einn ráðherra getur nánast
gert þær breytingar á herliðinu
sem honum þykja henta án þess
að alþingi, utanríkismálanefnd
og ríkisstjórn þurfi að samþykkja
þær. Samkvæmt þessu gæti annar
utanríkisráðherra gerbreytt
samsetningu herliðsins“.
Samningar
um íslands
Þá upplýsti Geir Hallgrímsson
að Bandaríkjamenn og
Hollendingar hefðu gert
samkomulag um að hollenska
ríkið stæði undir öllum kostnaði
við dvöl herliðsins hér á landi. Er
hann greiddur beint til
Bandaríkjamanna nema hvað
lendingargjöld eru greidd til
Flugmálastjórnar samkvæmt
sérstöku samkomulagi við Hol-
lendinga.
„Hér hefur verið brotið blað í
sögu hersetunnar", sagði Ólafur.
„Tvö erlend ríki hafa rekið upp
fjármálaviðskipti sín á milli
vegna hernaðarumsvifanna hér á
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
landi. Við leigjum
Bandaríkjamönnum land undir
herstöðvar og þeir taka síðan upp
samninga við 3ja landið og taka
við greiðslum fyrir aðstöðu þess
hér á landi. Ég óska eftir nánari
skýringum á því „samkomulagi“
sem ráðherrann hefur gert við
Hollendinga og spyr hvort hann
er tilbúinn til að birta það opin-
berlega.“
En það var ráðherrann ekki.
Hann sagðist reiðubúinn að
leggja bréfaskipti sín um þetta
mál fram í utanríkismálanefnd en
það er ekki nóg, sagði Ólafur.
„Þar ríkir þagnarskylda og leynd.
Samkomulagið þarf að birta
opinberlega!“.
Hernaðar-
hagsmunir Nató
Rökin sem ráðherrann sagði
að legið hefðu að baki beiðni
Hollendinga, voru að þeir þyrftu
betri aðstöðu til þjálfunar í
kafbátaleit. Sömu rök lágu fyrir
jáyrði ráðherrans, sem sagði slíka
samvinnu bandalagsþjóða
eðlilega og sjálfsagða. Hún væri í
þágu sameiginlegra hagsmuna
þjóðanna og í þágu sjálfstæðis
okkar íslendinga. í svari hans við
þessari spurningu kom einnig
fram að Bandaríkjamenn voru
sérstaklega áhugasamir um komu
Hollendinganna hingað.
Ólafur gagnrýndi þessi
hernaðarrök harðlega. „Þetta er í
fyrsta sinn sem íslensk stjórnvöld
gerast formlega aðilar að
samkomulagi um
hernaðaruppbyggingu Nató“,
sagði hann. „Það er gert án þess
að utanríkismálanefnd komi þar
nærri. Með þessum sömu
hernaðarrökum geta komið fram
aðrar óskir frá öðrum aðilum
innan Nató og hvað þá.
Þannig taka íslendingar með
nýjum hætti þátt í samhæfingu
herafla Nató og því er
nauðsynlegt að fá skýr svör um
það hvort þessi Orion-flugvél
tilheyrir þeim flota Hollendinga
sem til stóð að yrði hluti af
kjarnorkuflota Nató.“
Við þessari spurningu fengust
engin svör. Ráðherrann sagði
aðeins að vélin bæri ekki
kjarnorkuvopn meðan hún væri
hér á landi en það væri ekki
leyndarmál að Orion-vélarnar
gætu borið slík vopn. Hann
fullyrti einnig að á íslandi og í
Hollandi væru ekki
kjarnorkuvopn. - ÁI.
Práhyggja
Enn komið fmmvaip
gegn fóstureyðingum
4 þingmenn Sjálfstœðismanna með Þorvald Garðar í
broddifylkingar vilja bannafóstureyðingaraffélags-
legum ástœðum
Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son hefur enn á ný lagt fram á
alþingi frumvarp um að banna
fóstureyðingar af félagslegum
ástæðum en þingmaðurinn hefur
flutt slík frumvörp með reglu-
bundnu millibili frá því ný lög
voru sett um fóstureyðingar á ár-
inu 1975.
Meðflutningsmenn hans að
þessu sinni eru Salóme Þorkels-
dóttir, Egill Jónsson og Árni Jo-
hnsen og leggja fjórmenningarnir
einnig fram fylgifrumvaip um
aukna félagslega aðstoð við ein-
stæðar mæður „til að bæta úr
þeim félagslegu ástæðum sem nú
geta samkvæmt lögum heimilað
fóstureyðingu". Eins og skýrt var
frá í Þjóðviljanum í gær er sá
formgalli á framlagningu þessara
frumvarpa að einn flutnings-
manna, Salóme Þorkelsdóttir, er
ekki inni á þinginu þessa dagana.
í gær var nýjum texta þessara
frumvarpa dreift á alþingi og
hafði nafn Salóme þá verið tekið
út. Mun skýringin á þessum mis-
tökum fólgin í því að frumvarp-
inu var dreift fyrr en til stóð en
Salóme er væntanleg til landsins
um helgina.
í greinargerð er fullyrt m.a. að
fóstureyðingum hafi fjölgað í-
skyggilega hér á landi frá árinu
1965 og eru birtar töflur því til
staðfestingar. Þar er algerlega
litið framhjá þeirri staðreynd að
engar tölur eru til um þann fjölda
ólöglegra fóstureyðinga sem ís-
lenskar konur gengu í gegnum á
árunum fyrir 1975 bæði hér
heima og erlendis.
-ÁI