Þjóðviljinn - 06.12.1985, Page 15
ÍÞRÓTTIR
Úrvalsdeildin
Haukar betri í
seinni hálfleik
✓
Níunda tap IR sem varyfir í hléi
Eftir slakan fyrri hálfleik og
stöðuna í háifleik 28-25 ÍR í hag
sneru Haukar blaðinu við í byrj-
un seinni hálfleiks. Þeir náðu
strax forystunni og héldu henni til
loka. ÍR skoraði grimmt í lokin,
Karl gerði tvær þriggja stiga
Stadan
í úrvalsdeildinni i körfuknattleik:
UMFN..............10 9 1 878-779 18
Haukar............ 11 7 4 873-835 14
Valur............. 10 5 5 781-756 10
KR................10 4 6 787-849 8
(BK...............10 4 6 740-783 8
|R................11 2 9 879-936 2
ÍBK og Valur mætast í Keflavík í
kvöld kl.20. Elleftu umferð lýkur svo
með leik KR og UMFN í Hagaskólan-
um kl. 14 á laugardaginn. A þriðju-
dagskvöld leika svo Valur-KR og IR-
ÍBK.
körfur, en það var of seint.
Haukar sigruðu 75-67.
Það var slök hittni beggja liða
sem réði hinu lága skori framanaf
og auk þess það að leikkerfi
Haukannna gengu ekki upp.
Þetta lagaðist í seinni hálfleik og
þá var leikurinn öllu meira fyrir
augað.
Henning átti mjög góðan leik
með Haukum, bæði í sókn og
vörn, og Pálmar skoraði grimmt
en var með mistækara móti. Hjá
ÍR kom Björn Steffensen mjög á
óvart í seinni hálfleiknum með
stórgóðum leik. Ragnar lék vel
og Karl stóð sig ágætlega.
Haukarnir stigu þarna skref nær
4-liða úrslitunum en ÍR tapaði í
níunda skiptið í ellefu leikjum.
-VS
Skíði
Zurbriggen
slasaðist
Pirmin Zurbriggen, heims-
meistarinn frá Sviss, slasaðist í
gær á æfingu fyrir brunkeppni
heimsbikarsins sem fram fer í Val
D ísere í Frakklandi um helgina.
Zurbriggen tókst á loft og
þeyttist 100 metra á um 140 hraða
og meiddist á mjöðm þegar hann
lenti. Hann slapp þó furðu vel og
ætti að geta keppt á Ítalíu um
næstu helgi. Óhappið varð á ná-
kvæmlega sama stað og landi
hans Roland Collombin, silfur-
verðlaunahafi á Ólympíuleikun-
um 1972, slasaðist svo illa að
hann hiaut varanleg örkuml.
-VS/Reuter
Hafnarfjöröur 5.des.
Haukar-ÍR 75-67 (25-28)
14-11,20-24, 25-28 - 30-28, 60-53,
71-59, 75-67. Stig Hauka: Pálmar
Sigurðsson29, Henning Henningsson
18 Ivar Webster 13, Viðar Vignisson
7, ívar Ásgrímsson 4, Ólafur Rafnsson
2, Eyþór Arnason 2.
Stig ÍR: Ragnar Torfason 20, Björn
Steffensen 16, Karl Guðlaugsson 15,
Jóhannes Sveinsson 7, Jón Örn Guð-
mundsson 4, Vignir Hilmarsson 2,
Bragi Reynisson2, HjörturOddsson 1.
Dómarar: Bergur Steingrímsson og
Ómar Scheving - ágætir.
Maður leiksins: Henning Henn-
ingsson, Haukum.
Þaft veitir kannski ekki af tveimur markvörðum gegn vestur-þýsku stórskyttunum I Laugardalshöllinni í kvöld. Kristján
Sigmundsson ákveður að láta boltann eiga sig og leyfir Ellert Vigfússyni að spreyta sig. E.ÓI. tók myndina á æfinau I
gærkvöldi.
Ísland-V. Þýskaland
Besta landsliöið í
Vestur-Evrópu
Fyrsti leikurinn í Höllinni í kvöld. Tólfvaldir ígærkvöldi
England
Fundað í
4 mínútur
í gær slitnaði uppúr viðræðum
fulltrúa deildaliðanna í knatt-
spyrnu og ensku sjónvarpsstöðv-
anna eftir aðeins 4 mínútna fund.
Engin lausn virðist enn í sjónmáli
og Englendingar verða því enn
um sinn án knattspyrnu í sjón-
varpi.
-VS/Reuter
„Það verður leikið til sigurs
eins og alltaf en þetta verða mjög
erfiðir leikir. Vestur-Þjóðverjar
eru með besta landslið í Vestur-
Evrópu og ég sá þá leika mjög vel
og sigra Sovétmenn og Rúmena
fyrir stuttu“, sagði Bogdan Kow-
alczyck landsliðsþjálfari í hand-
knattleik í samtali við Þjóðviljann
í gærkvöldi.
Eftir æfingu í gærkvöldi til-
kynnti Bogdan hvaða 12 leik-
menn myndu leika gegn Vestur-
Þjóðverjum í Laugardalshöllinni
í kvöld. Þeir eru eftirtaldir:
Einar Þorvarðarson, Tres de Mayo
Kristján Sigmundsson, Víkingi
Þorbjörn Jensson, Val
Þorgils Óttar Mathiesen, FH
Guðmundur Guðmundsson, Víkingi
Bjarni Guðmundsson, Wanne-Eickel
Steinar Birgisson, Víkingi
Sigurður Gunnarsson, Tres de Mayo
Atli Hilmarsson, Gunzburg
Páll Ólafsson, Dankersen
Kristján Arason, Hameln
Alfreð Gíslason, Essen
„Það er erfitt að undirbúa liðið
fyrir svona leiki þegar tíminn er
lítill en kosturinn er að leikmenn
gjörþekkja hverjir aðra og mín
vinnubrögð þannig að þetta er
einfaldara en áður. Heildarmark-
miðið er að sjálfsögðu að búa lið-
ið sem best undir heimsmeistar-
akeppnina og með þessum
leikjum reynum við að bæta við
það sem áður hefur verið unnið“,
sagði Bogdan
Fyrsti leikur þjóðanna er í
Laugardalshöllinni í kvöld kl.20.
A morgun verður leikið á Akur-
eyri kl. 13.30 og loks í Laugar-
dalshöllinni kl.20 á sunnudags-
kvöldið. -VS
Fimleikar
Knattspyrnubœkur
Islensk knattspyma 1985
og Saga West Ham
Gerplur til
V.Þýskalands
Sextán stúlkur frá Gerplu í
Kópavogi fara á laugardaginn til
Saarbrucken í Vestur-Þýskalandi
þar sem þær dveljast við æfíngar í
10 daga. Þjálfari stúlknanna og
fararstjóri er Valdimar Kárason
en aðstoðarþjálfari Áslaug Dís
Ásgeirsdóttir.
Bókhlaðan hefur gefið út tvær
knattspyrnubækur - íslensk
knattspyrna 1985 og Saga West
Ham.
íslensk knattspyrna kemur nú
út í fimmta skipti og er stærri og
efnismeiri, og jafnframt aðgengi-
legri en fyrr. Henni er að þessu
sinni skipt í kafla og er fjallað um
hverja deild fyrir sig, landsleiki,
Evrópukeppni, atvinnumenn og
bikarkeppni ofl. sér. Þá er í bók-
inni sérstakur kafli sem nefnist
Saga íslenskrar knattspyrnu. í
honum er saga knattspyrnunnar
hér á landi rakin frá árinu 1895 til
1934 og þá aðallega sagt frá ís-
landsmótinu. f næstu bók verður
þráðurinn tekinn upp árið 1935.
f bókinni eru skrár yfir alla
leikmenn í öllum deildum karla
sem léku á íslandsmótinu 1985 og
markaskor þeirra og er þetta í
fyrsta skipti sem slíkar upplýsing-
ar birtast á prenti hér á landi. Þá
er skrá og leikjafjöldi dómara
sem dæmdu í 1. og 2.deild karla
og listi yfir þá leikmenn sem eru í
leikbanni þegar næsta keppnis-
tímabil hefst. Hjá öllum félögum
sem þátt tóku í deildakeppninni
sl. sumar er yfirlit í tölum yfir
leiki þeirra á íslandsmótinu frá
upphafi. f bókinni eru tæplega
300 svart/hvítar myndir og lit-
myndir af öllum meisturum ís-
landsmótsins 1985. Höfundur
bókarinnar er Víðir Sigurðsson
og hún er 158 bls. að stærð.
Saga West Ham er fimmta
enska knattspyrnubókin sem
Bókhlaðan sendir frá sér. Hinar
eru Kevin Keegan, Saga Liverpo-
ol, Saga Manchester United og
Glenn Hoddle.
Sagpí'hiiis'kunna félags West
Ham*ér rakin allt firá því það var
stofpáð sem firmalið JAhafnar-
hverfi í London* á^ftg^.aldar.
Sagt er frá minii^œðþS^Sleik-
mönnum og atbjjTOum en^afn-
hliða er dregin upp skýr mynd af
þjóðfélagsaðstæðum í Englandi á
síðustu öld og fyrstu áratugum
þessarar aldar. West Ham á sér
marga aðdáendur hér á«landi og
þá eru þeir fjölmargir sem virða
og dá liðið fyrir þá léttu og
skemmtilegu knattspyrnu sem
það hefur ávallt lagt áherslu á að
sýna. Víðir Sigurðsson þýddi
bókina sem er 172 bls. að stærð
og prý^d fjölda mynda.
Föstudagur 6. desember 1985 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Knattspyrna
Þrír frá
Real
í banni
Þrír leikmenn spænska liðsins
Real Madrid hafa verið dæmdir í
leikbann fyrir síðari leikinn gegn
Borussia Mönchengladbach> í
UEFA-bikarnum sem fram fer í
næstu viku.
Rafael Gordillo var rekinn af
leikvelli og þeir Hugo Sanchez,
mexíkanski markakóngurinn, og
Miguel Chendo Porlan fengu að
líta gula spjaldið öðru sinni í
keppninni. Vestur-þýski lands-
liðsmaðurinn Hans-Gunter
Bruns fékk einnig gula spjaldið í
annað sinn og leikur ekki með
Gladbach. Vestur-Þjóðverjarnir
unnu fyrri leikinn 5-1 og með
leikmenn á borð við Gordillo og
Sanchez utan vallar verður erfitt
fyrir spænska liðið að vinna þann
mun upp.
—VS/Reuter