Þjóðviljinn - 06.12.1985, Qupperneq 16
Aðalsíml; 81333. Kvðldsími: 81348, Helgarsími: 81663.
DJOÐVIUINN
Borgarafmœli
Fðstudaour 6. desember 1985 282. tölublað 50. örgangur
Innihaldslaus skrautsýning
Kostnaður við afmœlisár borgarinnar hátt í 100 miljónir. Tœknisýning á 24 miljónir. Laun Baldurs Hermannssonar
og aðstoðarmanns tœpar 2 miljónir. Kvennaframboð hótar úrsögn úr undirbúningsnefnd. Öndvegissúlur á 2 miljónir.
Laun Baldurs Hermannssonar
og aðstoðarmanns hans við
undirbúning tæknisýningar
Reykjavíkurborgar munu verða
tæpar tvær miljónir króna. Sýn-
ingin sjálf á samkvæmt áætlun
Baldurs að kosta hátt á þriðja tug
Laugavegurinn
Vanhugsud
framkvæmd
Albert Guðmundsson:
Fráleitt aðflytja inn grjót
Breytingarnar sem gerðar hafa
verið á Laugaveginum neðan-
verðum hafa skapað ófremdará-
stand í umferðinni þar og að sögn
Guðrúnar Agústsdóttur borgar-
fulltrúar hefur þetta haft í för
með sér mikinn kostnaðarauka
fyrlr SVR og óþægindi fyrir farþ-
ega þar sem tímaáætlun strætó
hefur raskast verulega.
Sveinn Björnsson forstjóri
SVR lagði til í umferðarnefnd
fyrir skömmu að umferð einka-
bifreiða yrði bönnuð á ákveðnum
tímum dagsins framað jólum og á
sama fundi var samþykkt að nú
þegar yrði gripið til aðgerða til að
greiða fyrir för SVR á Laugaveg-
inum, með lögregluaðgerðum.
„Þetta er gjörsamlega van-
hugsað", sagði Albert Guð-
mundsson á borgarstjórnarfundi
ígærkvöldi. Deildi borgarfulltrú-
inn nokkuð á breytingarnar og
sérstaklega á innflutning á grjóti
frá Portúgal. Guðrún Ágústs-
dóttir benti á að endurskipu-
leggja þyrfti alla umferð um þetta
svæði. - gg-
miljóna, en auk þess verða
sýningargestir að greiða 200
krónur fyrir að sjá herlegheitin.
Líkur eru á að heildarkostnað-
ur við 200 ára afmælisár borgar-
innar verði hátt í 100 miljónir en
þar á móti koma nokkrar tekjur
sem aflað verður með ýmsu móti,
t.d. með sölu minjagripa.
Inni í kostnaðaráætlun sem á
eftir að koma til afgreiðslu borg-
arstjórnar er svo dæmi séu tekin
gert ráð fyrir öndvegissúlum við
borgarmörkin og eiga þær að
kosta 2 miljónir króna. „Eiga þær
að vera úr fílabeini" varð Guð-
rúnu Ágústsdóttur að orði á
borgarstjórnarfundi í gærkvöldi.
Hátíðahöld á Arnarhól 18. ágúst
á næsta ári eiga að kosta tæpar 10
miljónir. Á tæknisýningunni ger-
ir Baldur Hermannsson fram-
kvæmdastjóri ráð fyrir að verði
rænigjaborg fyrir börnin og á hún
að kosta 400 þúsund krónur.
Þetta og margt fleira varð til-
efni mikilla deilna á borgar-
stjórnarfundi í gærkvöldi. Mörg-
um borgarfulltrúum þótti fjár-
austurinn heldur mikill í einstaka
liði og sérstaklega tæknisýning-
una. Fulltrúar Kvennaframboðs
deildu hart á störf undirbúnings-
nefndar afmælisársins og í bókun
sem þær gerðu á fundinum segir
m.a. að verði þessi mikli kostnað-
ur samþykktur á næstu fjárhags-
áætlun muni þær hætta þátttöku í
undirbúningsnefndinni. „Sá
kostnaður sem fyrirsjáanlegur er
er að stórum hluta vegna inni-
haldslausra skrautsýninga sem
munu skilja lítið eftir að árinu
loknu.“
Guðrún Ágústsdóttir og fleiri
lýstu því yfir að minnast mætti
afmælisins með öðrum hætti en
þessum. -gg
Hönnun bílastæðanna á Laugaveginum veldur ófremdarástandi og eru þrengslin beinlínis hættuleg á stundum. Ljósm.: Sig.
Hollenska flugsveitin
Hluti af kjamorkuher Nató
Geir Hallgrímsson svaraði ekki þessari spurningu á alþingi.
Geir Hallgrímsson utanríkis-
ráðherra svaraði ekki spurn-
ingum um raunverulegt hlutverk
hollensku Orion-flugsveitarinnar
á Keflavíkurflugvelli á alþingi á
þriðjudag, þrátt fyrir ítrekaðar
spurningar þar um.
Eins og skýrt hefur verið frá í
Þjóðviljanum hafa Hollendingar
nú neitað þeirri ósk Nató að
Orion-flugsveitir þeirra verði
Ráðgert er að Reykjavíkurborg
reisi á næsta ári 250 fermetra
hús undir tilraunaframleiðslu á
sviði líftækni og efnaiðnaðar.
Kostnaður er áætlaður 6,5-7
miljónir króna og á húsið að rísa í
Keldnaholti.
Háskóli íslands mun sjá um
hluti af kjarnorkuflugflota
bandalagsins á hættu- og ófriðar-
tímum og hefur þessi neitun
greinilega valdið Nató miklum
vonbrigðum. Á alþingi á þriðju-
dag spurði Ólafur Ragnar Gríms-
son ráðherrann hvort Orion-
flugsveitin hollenska, sem nú er
komin á Keflavíkurflugvöll, væri
hluti af umræddum flugsveitum
eða hvort hún væri hluti af ein-
rekstur starfseminnar og í máli
Magnúsar L. Sveinssonar borgar-
fulltrúa á borgarstjórnarfundi í
gærkvöldi kom fram að vonast er
til að reksturinn mun&aftanda
undir sér og jafnvel skiia hagn-
aði. Með byggingu hússins verð-
ur bætt að nokkru úr verulegum
hverjum öðrum flugsveitum hol-
lenska hersins.
Geir Hallgrímsson svaraði
þessu engu. Hann sagði aðeins að
hollenska Orion-vélin bæri ekki
kjarnorkuvopn meðan hún væri
hér á landi en hins vegar væri það
ekki leyndarmál að vélarnar væru
gerðar til þess að bera kjarnorku-
vopn. Þau þyrftu hins vegar að
vera til staðar til að svo væri, en
húsnæðisskorti Hl undir starf-
semi á borð við þessa.
„Það er skylda okkar að skapa
þessari atvinnugrein lífvænleg
skilyrði, því gildi hennar fyrir
framtíðina er ómetanlegt", sagði
Guðmundur Þ. Jónsson borgar-
fulltrúi Abl. í gærkvöldi. - gg.
kjarnorkuvopn væru ekki á ís-
landi og ekki í Hollandi.
-ÁI
Sjá bls. 14
Sjálfstœðismenn
Vantraust
á skólafólk
Sjálfstæðismenn í borgarstjórn
treystu sér ekki í gær til að sam-
þykkja tillögu þess efnis að borg-
arstjórn lýsti því yfir að hún
treysti skólafólki til að kaupa
bækur til skólasafna og ákveða
meðferð þeirra.
Tillagan var borin upp vegna
þess fjaðrafoks sem orðið hefur
út af kynfræðslubókinni Þú og ég
sem Mál og menning gefur út.
Áður hafði borgarstjórn fellt til-
lögur Öddu Báru Sigfúsdóttur
um að aðeins skólamenn gætu á-
kvarðað um kaup á bókum og
notkun þeirra. -gg
Ný sókn
Byggt yfir líftæknina
Reykjavíkurborg byggir250fermetra húsfyrir tilraunaframleiðslu á sviði líftœkni
Stuldur
Engin
vísbending
Á rásarmaðurinn sem
rœndi 107 þúsund
krónum afgjaldkera Fé-
lagsmálastofnunar enn
ófundinn. Lögreglan
hefur lítið til að styðjast
við
Rannsóknarlögreglan hefur
enn ekki fengið neinar vísbend-
ingar sem geta leitt hana á spor
árásarmannsins sem réðst á og
rændi gjaldkera Féiagsmála-
stofnunar Reykjavíkurborgar
107 þúsund krónum fyrir utan
skrifstofu stofnunarinnar í há-
deginu í fyrradag. Árásarmaður-
inn komst óhindraður í burt um
hábjartan dag og engin vitni hafa
gefið sig fram sem geta lýst mann-
inum nánar.
Að sögn Helga Daníelssonar
hjá Rannsóknarlögreglunni telur
maður sig hafa séð ræningjann
koma út úr skrifstofubyggingunni
en sá ekki hvert hann hélt. Einu
sem lögreglan hefur
eftir eru frá gjaldkeran-
varð fyrir árásinni. Að
var ræninginn klæddur
úlpu með skinnkraga og
fyrir andlitinu. - lg.