Þjóðviljinn - 23.01.1986, Qupperneq 2
FRETTIR
Sláturfélagshöllin
Hagvirki yfirtekur
smíði hússins
Byggingaverktakinn Hamarinn kominn ífjárþröng.
Verktakafyritækið Hagvirki
hefur tekið yfir smíði nýbygg-
ingar Sláturfélags Suðurlands á
Lauganesi af byggingaverktakan-
um Hamrinum í Hafnarfirði sem
kominn var í greiðsluþrot. Bygg-
ingin er nær fulluppsteypt en eftir
á að vinna fyrir um 30 miljónir í
þessum verkáfanga af þcim 49
sem Hamarinn bauð í verkið.
Að sögn Jóhanns G. Bergþórs-
sonar forstjóra Hagvirkis var
fyrirtækinu boðið að taka verkið
sem næstbjóðanda en 500 þús.
kr. skildu að tilboð Hagvirkis og
Hamarsins á sínum tíma. Jóhann
sagði að Hagvirki hyggðist ekki
kaupa eignir Hamarsins. „Við yf-
irtökum verkefnið og ráðum til
starfa stærstan hluta þess starfs-
fólks sem unnið hefur við bygg-
inguna og reynum að forða því
tjóni sem yrði ef verkið stopp-
aði“, sagði Jóhann.
Bjart er yfir byggingadeild
Hagvirkis þessar vikurnar, því
Birgir og Vilhjálmur. Félagshyggjan er farin að safna vindi í seglin á ný. Mynd - Sig Mar.
Leghálskrabbi
Kvenfélögin safna
fyrir geislatæki
Kvenfélögin sameinast um kaup á eftirhleðslutæki fyrir krabbameins-
deildina. Kostar3,5 miljónir. Búið að safna um2 miljónum.
Kvenfélagið og hin ýmsu
kvenfélög í landinu hafa safn-
að nær 2 miljónum til kaupa á
Utanríkisráðherra
Fráleitt rétt
Frétt Pjóðviljans um að tilgreina hafi komið að Geir
fengi starfhjá Nató vísað á bug
Pað er af og frá að til greina
hafi komið að ég fengi starf
hjá Nató og það er ekki flugufótur
fyrir þessari frétt, sagði Geir
Hallgrímsson utanríkisráðherra í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Geir kvaðst ekki geta ályktað
eftirhleðslutæki fyrir innrigeislun ar Landsspítalans. Tækið kostar
leghálskrabbamcins fyrir samtals 3,5 miljónir og vantar því
krabbameinsdeild Kvennadeild- enn nokkuð á að safnast hafi fyrir
tækinu.
Á síðustu 5 árum hefur legháls-
krabbameinum fjölgað á ný, en
þá greindust alls 77 tilfelli. Af
þessum konum þurftu 52 á geisla-
meðferð að halda og voru 24
þeirra undir 45 ára aldri.
Tækið sem fyrirhugað er að
kaupa sér um að sem mest geislun
verði í æxlinu og sem minnst í
aðliggjandi líffærum og þannig
má minnka hliðarverkanir. Þessi
meðferð er nú notuð víðast í Evr-
ópu og jafnframt er búið að út-
rýma þeirri radiummeðferð sem
enn er notuð hérlendis.
Framlög til tækjakaupa má
senda á gíróreikning nr. 528005.
öðruvísi en svo að bakvið fréttina
væri illkvittni og rætni í hans
garð, - en heimildir blaðsins aðr-
ar hermdu, að ráðherrann hefði
sótst eftir virðingarstarfi hjá Nató
eins og fram kom í forsíðufrétt í
gær.
-óg
auk Sláturfélagshússins er Hag-
virki að byggja Fiskvinnsluskóla
í Hafnarfirði, og viðbyggingu við
Digranesskóla í Kópavogi, auk
frágangs. Flugstöðin á Keflavík-
urflugvelli og framkvæmdir í
Helguvík.
->g-
■TORGIÐi
Eg hélt að það væri frekar þörf
á prenturum en pólitíkusum
í Seðlabankann.
Félagshyggja
Hugmyndaþing
í Odda
Ráðstefnur umfélagshyggju á laugardaginn. Undir-
búningur fyrir bók sem kemur út nœsta vetur.
Við viljum gera tilraun til þess
að koma af stað endurnýjun í
stefnu og málflutningi, sem farið
hefur nokkuð halloka í pólitískri
umræðu síðustu árin“, sagði
Birgir Árnason í spjalli við Þjóð-
viljann í gær, en hann cr meðal
aðstandenda hugmyndaþings um
félagshyggju sem haldin verður í
Odda, félagsvísindahúsi Háskóla
íslands á laugardaginn.
Þeir Birgir Arnason hag-
fræðingur og Vilhjálmur Árna-
son heimspekingur hafa haft veg
og vanda að undirbúningi ráð-
stefnunnar á laugardaginn sem
efnt er til af Málfundafélagi fél-
agshyggjufólks. Þar verða haldn-
ar stuttar framsögur um fjöl-
marga málaflokka tengda félags-
hyggju.
Hugmyndaþingið hefst kl.
10.00 árdegis og stendur til
klukkan 18.00 síðdegis á laugar-
dag. Gert er ráð fyrir að fram-
söguerindin verði stutt, og að
umræður verði rnilli einstakra
málaflokka.
„Þetta hugmyndaþing er hluti
af undirbúningi fyrir bók, sem við
hyggjumst koma út næsta haust.
Við viljum viðra nýjar hugmynd-
ir með þessum hætti og bjóðum
alla félagshyggjumenn vel-
komna“, sagði Birgir að lokum.
-óg
FASTEIGNAVmSKIPTl
Kynning á sameiginlegu átaki um
ISÝ OG BREYTT tiJÖR
tlandbók fyrir kaupendur og
seljendur fasteigna
FÉLAQ FASTEIGNASALA /
FÉLAQSMÁLARÁÐUMEYTIÐ
Fasteignamarkaðurinn
Sýnið aðgát
Félagsmálaráðuneyti og fasteignasalar gefa út ítar-
legan upplýsingabœklingfyrir kaupendur ogseljend-
urfasteigna.
Ýmsar fróðlegar upplýsingar
Félag fasteignasala og fél-
agsmálaráðuneytið hafa gefið
út sérstakan kynningarbækling
um fasteignarviðskipti, handbók
jafnt fyrir kaupendur sem selj-
endur fasteigna.
í þessum bæklingi, sem dreift
verður ókeypis á öllum fast-
eignasölum og víðar, er m.a.
kynnt hin nýju greiðslukjör um
lækkun útborgunar og verðtrygg-
ingu eftirstöðva.
koma fram í bæklingnum sem er
myndskreyttur og 16 síður að
stærð. Þetta er í fyrsta skipti sem
gefnar eru út sérstakar
leiðbeiningar fyrir þá sem standa
í fasteignaviðskiptum. Lögð er
rík áhersla í bæklingnum á, að
fólk sýni aðgát, afli sér ítarlegra
upplýsinga, gefi sér góðan tíma
og leiti aðstoðar sérfræðinga við
kaup og sölu á fasteignum. -Ig.
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 23. janúar 1986