Þjóðviljinn - 23.01.1986, Síða 17
______HEIMURINN__
r ebe
Ovissa ríkir
Bandarísku Prúðuleikararnir hafa lengi notið vinsælda sjónvarpsáhorfenda og nú er svo að sjá að þeir séu
að eignast arftaka víða um lönd. Franska sjónvarpið breytir stjórnmálamönnum og frægu fólki í brúður og í
breska sjónvarpinu hefur verið hleypt af stokkunum nýjum brúðuþætti þar sem málefni líðandi stundar eru
krufin til mergjar, ma. með „beinum" útsendingum af fundi bresku ríkisstjórnarinnar þar sem Michael
Heseltine ráðherra er rekinn við mikinn fögnuðsamráðherra sinna. Leiðtogarstórveldannafásinn skammt,
td. er valbráin á enni Gorbatsjofs búin að taka á sig mynd hamars og sigðar. Og á myndinni sem hér er birt
sést hvernig höfundarnir hafa handleikið bresku konungsfjölskylduna, Betu, Pusa, Kalla, Dí og litlu
prinsana tvo. Væri ekki athugandi fyrir íslenska sjónvarpið að sýna okkur þó ekki væri nema lítið sýnishorn
af þessum þáttum?
Suður-Jemen
Uppreisnatmenn treysta tökin
Kaupmannahöfn, Brussel —
Niðurstaða atkvæðagreiðsl-
unnar á danska þinginu í fyrra-
kvöld þegar tillögur um
breytingar á stofnskrá EBE
voru felldar af þingmönnum
stjórnarandstöðunnar hefur
valdið talsverðum áhyggjum í
öðrum EBE-ríkjum. í gær var
ákveðið að fresta undirskrift
hinnar nýju og breyttu stofn-
skrár til 17. febrúar en hún átti
að fara fram næsta mánudag.
Indland
Morðingjar
Indiru fengu
dauðadóm
Nýju Delhi — í gær dæmdi Ma-
hesh Chandra dómari þrjá
sikka til dauða fyrir morðið á
Indiru Gandhi forsætisráð-
herra Indlands haustið 1984.
Þar með lauk réttarhöldum
sem staðið hafa í rúma 8 mán-
uði en verjendur hinna dæmdu
sögðust munu áfrýja dómnum
til hæstaréttar.
Dómarinn komst að þeirri
niðurstöðu að fjórir sikkar hefðu
tekið þátt í morðinu og undirbún-
ingi þess. Af þessum fjórum til-
heyrðu þrír lífverði Gandhis og
lést einn þeirra í skothríðinni sem
varð milli þeirra og annarra ör-
yggisvarða. Fjórði maðurinn var
opinber starfsmaður.
Saksóknarinn hélt því fram að
sikkarnir hefðu hafið undirbún-
ing morðsins stuttu eftir að Indira
Gandhi lét hermenn ráðast inn i
Gyllta hofið í Amritsar þar sem
helstu leiðtogar sikka höfðu búið
um sig en hofið er einn helgasti
staður sikka.
Uffe Ellemann-Jensen utan-
ríkisráðherra dana fór í gær í
skotferð til höfuðborga sex EBE-
ríkja til að kynna stjórnvöldum
þar afgreiðslu þingsins á
breytingunum og kanna hvort
grundvöllur er fyrir endurskoðun
á þeim breytingartillögum sem
lagðar hafa verið fram og sam-
þykktar í öllum ríkjum EBE
nema Danmörku. Búist er við að
hann fái allsstaðar þau svör að
ekki sé ráðlegt að endurskoða til-
lögurnar þar sem þær eru afrakst-
ur langra og strangra samninga-
viðræðna og málamiðlana.
Verði það niðurstaðan að
beiðni dana um endurskoðun
verði hafnað mun Poul Schluter
forsætisráðherra leggja málið í
dóm kjósenda og efna til þjóðar-
atkvæðagreiðslu. Stjórnin vill að
hún fari fram eigi síðar en í lok
febrúar en jafnaðarmenn hafa
sagt að rétt sé að fresta henni
fram í mars eða apríl.
Dönsk blöð gagnrýndu í gær þá
ákvörðun stjórnarinnar að efna
til þjóðaratkvæðagreiðslu og
sögðu að henni hefði verið nær að
rjúfa þing og efna til nýrra kosn-
inga. Það væri fyrir löngu orðið
ljóst að stjórnin sem er í minni-
hluta gæti ekki framfylgt neinni
utanríkisstefnu.
Sendimenn EBE-ríkja í höfuð-
stöðvum bandalagsins í Brussel
sögðu í gær að Schluter hefði
tekið mikla áhættu með því að
ákveða að efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu. „Verði útkoman
„nei“ gæti það leitt til úrsagnar
dana úr EBE en það yrði mikið
áfall fyrir bandalagið," sagði einn
þeirra.
Forsætisnefnd EBE í Hollandi
gaf í gær í skyn að hægt væri að
samþykkja breytingarnar á
stofnskránni án samþykkis dana
en það var borið til baka í höfu-
ðstöðvunum í Brussel.
Bahrain — Borgarastríðið í
Suður-Jemen hefur nú staðið í
tíu daga og óttast margir að
það kunni að breiðast út um
allt land en hingað til hefur það
einkum verið háð í höfuðborg-
inni Aden. Uppreisnarmenn
virtust í gær hafa borgina að
mestu leyti á valdi sínu en þó
voru harðir bardagar í kringum
flugvöllinn og í hverfinu
Khormaksar þar sem eru
margar stjórnarbyggingar og
erlend sendiráð.
Erlendir sendimenn í ríkjum
Arabíuskaga sögðu í gær að upp-
reisnarmenn nytu stuðnings í
fjórum af sex héruðum landsins
og að forseti landsins, Nasser
Mohammed, væri einangraður í
heimahéraði sínu Abyan, 160 km
austur af Aden. Fréttir stangast
þó á og amk. eitt blað hélt því
fram að tveir helstu leiðtogar
uppreisnarmanna væru fallnir og
sá þriðji særður.
Eins og fleiri ríki er Suður-
Jemen skipt upp í ótal ættflokka
sem styðja sína menn án tillits til
hugmyndafræðinnar. Þess vegna
óttast margir að upp úr sjóði milli
ættflokkanna eins og oft hefur
gerst áður og úr verði allsherjar-
stríð um allt land. Stjórnvöld í
Norður-Jemen óttast slíkt stríð
því það gæti breiðst út og æst ætt-
flokka sem andvígir eru þeim til
óhæfuverka.
Búið er að flytja 4.500 erlenda
ríkisborgara frá Aden en enn eru
amk. 1.200 eftir. í gær átti að
flytja þá burt en bardagarnir
komu í veg fyrir að af því gæti
orðið. Sjónarvottar segja ljótar
sögur af ástandinu í borginni. Þar
liggja mannslík á víð og dreif og
einn sagðist hafa séð hermenn
hranna líkum upp í víggirðingar.
Erlend ríki hafa lítil sem engin
afskipti haft af átökunum í
Suður-Jemen þótt ýmislegt eigi
sér eflaust stað að tjaldabaki.
Bandarískir embættismenn
sögðu í gær að einu gilti hvor
deiluaðila færi með sigur af hólmi
í landinu, það hefði engin áhrif á
það að landið væri á sovésku
áhrifasvæði. Sovétmenn hafa
fengið aðstöðu fyrir viðhald her-
skipaflota síns í Aden og á eynni
Socotra og þeir starfrækja einnig
í landinu fjarskiptastöð sem fylg-
ist með skipaferðum og öðru sem
gerist á Rauðahafi og Indlands-
hafi vestanverðu.
Afganistan
Nicaragua
Gleðifréttir af kaffiekmnum
íbúar Nicaragua njóta góðs afhœkkandi kaffiverði, aukinni uppskeru og
verulega hefur dregið úr skemmdarverkum skæruliða
Mjög hefur dregið úr skemmdarverkum skæruliða á kaffiekrum og atvinnutækj-
um og er það að þakka gagnsókn stjórnarhersins í fyrra og traustari vörnum á
mikilvægustu stöðum.
Jinotega — Efnahagsástandið í
Nicaragua hefur ekki verið
beysið undanfarin ár. Efna-
hagsiegar refsiaðgerðir
Bandaríkjanna sem birtast ma.
í skorti á tækjum og varahlut-
um i þau hafa tekið sinn toll og
gífurlegur kostnaður við að
halda uppi fjöimennum her til
varnar gegn skæruliðum hefur
gert illt verra. Nú er uppskeru-
tími kaffis sem er mikilvæg
gjaldeyrislind Nicaragua og af
þeim vígstöðvum berast góð
tíðindi, uppskeran er góð og
verðið hátt.
Undanfarin ár hefur kaffið
skapað uþb. þriðjung allra gjald-
eyristekna landsins. Það hlutfall
mun vafalaust hækka í ár því upp-
skeran virðist ætla að verða 10%
meiri en í fyrra og verðið hefur
rokið upp úr öllu valdi á
heimsmarkaði í kjölfar mikilla
þurrka í Brasilíu.
Og það sem er kannski gleði-
legast: stjórnvöldum hefur tekist
að takmarka mjög þau skemmd-
arverk sem skæruliðar — Contras
— hafa unnið á kaffiekrum og
vinnslustöðvum undanfarin ár. I
fyrra hindruðu skæruliðarnir
verulega uppskerustörf í tveim
helstu kaffiræktarhéruðum Nic-
aragua, Jinotega og Matagalpa,
en í ár hafa þeir mætt mun meiri
mótspyrnu og segja embættis-
menn að skemmdarverk þeirra
séu mun minni.
12.000 sjálfboðaliðar
Fréttamaður Reuters heim-
sótti Sorpresa kaffiverksmiðjuna
í Jinotega en í nóvember 1984
réðust skæruliðar á verksmiðj-
una, unnu á henni verulegar
skemmdir og felldu 17 starfs-
menn. Nú er búið að endurnýja
vélakostinn og þar starfa 450
kaffitínslumenn auk 100 manna
vopnaðrar varðsveitar.
Margir þeirra sem fréttamað-
urinn ræddi við voru sjálfboðalið-
ar úr borgunum sem komnir voru
til að aðstoða við uppskeruna.
Stjórnin hefur lokað fjölmörgum
skrifstofum meðan á uppsker-
unni stendur, frá nóvember fram
í febrúar, og eru um 12 þúsund
sjálfboðaliðar að störfum á kaffi-
ekrunum. Á afskekktari stöðum
þar sem meiri hætta er á árásurn
skæruliða bera margir kaffitínslu-
menn vopn. Fréttamaðurinn hitti
nokkra slíka með riffla á bakinu
þar sem þeir tíndu skærrauð aldin
kaffitrjánna.
Auk innlendu sjálfboðalið-
anna starfa nokkur hundruð út-
lendra sjálfboðaliða við upp-
skeruna. Þeir koma frá ýmsum
löndum Austur- og Vestur-
Evrópu, Bandaríkjunum og
Suður-Ameríku. Vinnutíminn er
strangur, það er farið upp kl. 6 á
morgnana og verið að til 5 á dag-
>nn.
Varnirnar efldar
Auk sveitanna sem standa
vörð um einstakar verksmiðjur
og kaffiekrur hefur stjórnarher-
inn eflt mjög varnir helstu kaffi-
héraðanna. Fyrir bragðið hafa
skæruliðar ekki getað ráðist til at-
lögu á þessum slóðum og nú eru
2.200 hektarar af kaffiekrum
ræktaðar sem í fyrra varð að
hætta við að nýta vegna skemmd-
arverka.
Þetta allt þýðir að hægt verður
að flytja út 100 þúsund pokum
(46 kg) meira af kaffi í ár en í fyrra
sem er um 10% aukning. Þessi
aukning ásamt mun hærra kaffi-
verði verður kærkomin búbót
fyrir bágstaddan efnahag Nicar-
agua þar sem yfir 6 þúsund manns
féllu af völdum stríðsins 1985.
100 uppreisn-
armenn felidir
í sókn stjórn-
arhersins
Islamabad — Allt að 100 afgan-
skir uppreisnarmenn voru
felldir og 40 særðir í sókn af-
ganskra og sovéskra her-
manna í héraðinu Nangarhar
nærri landamærum Afganist-
an og Pakistan en hún hefur
staðið síðan á laugardag.
Að sögn uppreisnarmanna
sækir mikið lið afganskra og
sovéskra hermanna að stöðvum
skæruliða við landamæri Pakist-
an og hafa sér til stuðnings orr-
ustuþotur, skriðdreka og þyrlur.
Virðist markmið sóknarinnar
vera svipað og oft áður að loka
flutningaleiðum frá Pakistan til
stöðva skæruliða innan Afganist-
an.
Uppreisnarmenn kváðust hafa
skotið niður eina þotu og gert
önnur farartæki ógangfær.
ERLENDAR
FRÉTTIR
haraldsson/R EUIER
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17