Þjóðviljinn - 04.03.1986, Qupperneq 1
VIÐHORF
HEIMURINN
ÍÞRÓTHR
ÞJÓÐMÁL
Sjóslys
Tveir bjargast eins saknað
Ás RE 112fórst á Breiðafirði. Árni Reynisson háseti: Reynsla okkar úr björgunarsveitinni
varð okkur til lífs. Vaknaði viðþað að ég kastaðistframúr kojunni
Um kl. 10 í gærmorgun fórst 10
tonna trilla Ás RE 112 út af
Búlandshöfða. Þrír menn voru í
bátnum og björguðust tveir
þeirra, en skipstjórans Skúla
Kristjánssonar er saknað. Var
hans leitað í allan gærdag án ár-
angurs.
„Ég veit ekki hvað gerðist í
raun og veru, hvers vegna bátur-
inn fór á hliðina. Ég var sofandi,
eins og félagi minn Valgeir
Magnússon og vaknaði við það
að ég kastaðist framúr kojunni.
Um leið tók sjór að flæða niður í
lúkarinn og þegar við komum
upp var báturinn á hliðinni.
Skipstjórinn var meðvitundar-
laus en ég veit ekki hvað olli því.
Okkur tókst að koma gúmmbát á
flot, en honum hvolfdi og meðan
við vorum að rétta hann við
misstum við af skipstjóranum. Ég
tel það kraftaverk að við skyldum
bjargast og mest eigum við að
þakka þeim æfingum og þeirri
kunnáttu í björgunarmálum, sem
við höfum fengið í björgunar-
sveitinni hér, en þar höfum við
verið félagar,“ sagði Árni
Reynisson 23ja ára gamall háseti
úr Grundarfirði í samtali við
Þjóðviljann í gær.
Það var svo Kristján S. frá
Grundarfirði sem bjargaði þeim
Árna og Valgeiri, eftir að þeim
tókst að skjóta upp neyðarblysi
frá gúmmbátnum og brak tók að
reka úr Ás RE og trossan sem
Kristján S. var að draga stóð allt í
einu föst. Er talið að Ás RE hafi
festst í henni.
„Við blotnuðum og okkur var
alveg ógurlega kalt, en erum ó-
meiddir, aðeins skrámaðir,“
sagði Árni, sem er að byrja sjó-
mennskuferil sinn og sagðist ekki
vilja segja til um það strax hvort
hann héldi áfram. Ás RE var
gerður út frá Grundarfirði í vet-
ur.
- S.dór
Á stærri myndinni sjást þeir Árni og Valgeir koma frá borði á
Helga S. í Grundarfirði í gær. Það voru margar hendur á lofti
þeim til aðstoðar. Á innfelldu myndinni sést hvar verið er að
taka gúmmbátinn sem þeir félagar komust í, á land.
Þjóðhagsstofnun
Svipaður kaupmáttur
Þjóðhagsstofnun: Kaupmáttur kauptaxta án launabóta rýrnar um 0.5%
Með láglaunabótunum hærri kaupmáttur fyrir hluta launafólks
ABR
Ustinn
kominn
Framboðslisti Alþýðubanda-
lagsins vegna borgarstjórnar-
kosninganna í Reykjavík var
samþykktur á félagsfundi sl.
fimmtudagskvöld. Varðandi 7
efstu sæti var farið að niðurstöðu
forvals utan að þeir sem hrepptu
þar 7. og 8. sæti skiptust á sætum.
Framboðslistinn í heild er birtur
inni í blaðinu.
Efstu sæti listans eru skipuð í
samræmi við niðurstöðu forvals-
ins: Sigurjón Pétursson, Kristín
Á. Ólafsdóttir, Guðrún Ágústs-
dóttir, Össur Skarphéðinsson,
Tryggvi Þór Aðalsteinsson og
Skúli Thoroddsen.
Sjá bls. 19
Kaupmáttur kauptaxta rýrnar
um 0.5% milli áranna 1985 og
1986, samkvæmt endurskoðaðri
þjóðhagsspá fyrir 1986, sem
Þjóðhagsstofnun hefur tekið sam-
an eftir samningana. Er þá ekki
tekið tillit til sérstakra launabóta
sem hluti launafólks á rétt á. Sé
tekið tillit til bótanna telur Þjóð-
hagsstofnun að kaupmátturinn
verði svipaður og í fyrra.
Ari Skúlason hjá Kjararann-
sóknarnefnd staðfesti að
kaupmáttur taxtakaups yrði sam-
kvæmt samningnum því sem næst
óbreyttur frá því í fyrra að með-
altali, eða rúmlega 73 miðað við
100 árið 1980.
„Það er rétt að við gerum ráð
fyrir 0.5% kaupmáttarrýrnun en
meira skiptir að með launabótun-
um verði kaupmátturinn svipað-
ur eða jafnvel ívið hærri,“ sagði
Jón Sigurðsson. Hann kvað um
svo lítinn mun að ræða að hann
væri ekki marktækur, enda kynni
að koma til kasta launanefndar i
þessu sambandi. Samkvæmt út-
reikningum ASÍ/VSÍ sem fram
eru komnir er gert ráð fyrir 0.4%
kaupmáttaraukningu. en þeir
sem Þjóðviljinn ræddi við í gær,
sögðu þennan mun m.a. stafa af
því að í forsendur spár ASÍ/VSÍ
vanti um 1% gengissig í febrú-
armánuði.
-óg
Skák
Helgi hættir við Moskvuför
Helgi Ólafsson stórmeistari hef-
ur hætt við að taka þátt í stór-
meistaramótinu í skák, sem hefst í
Moskvu i dag. Eins og Þjóðviljinn
skýrði frá í síðustu viku fékk
Skáksamband íslands boð um að
senda einn íslenskan stórmeistara
á þetta mót og var ákveðið að
Helgi færi.
Þegar svo til átti að taka vildu
Sovétmenn ekki greiða ferða- og
uppihaldskostnað eins og venja
er á svona boðsmóti og ákvað
Helgi þá að hætta við þátttöku.
En á síðustu stundu snerist Sovét-
mönnum hugur, en bara of seint,
Helgi var hættur við og sat við
sinn keip.
Þorsteinn Þorsteinsson forseti
Skáksambands fslands sagði í gær
að það hefði algerlega verið mál
Helga hvað hann gerði í málinu,
Skáksambandið hefði ekki haft
afskipti af þessari ákvörðun.
- S.dór