Þjóðviljinn - 04.03.1986, Page 3
FRETTIR
Atvinnulíf
Togskip á Hvammstanga?
Fjölsótturfundur um atvinnumál á Hvammstanga sl. sunnudagskvöld: Sporna verðurgegn
fólksflóttanum til Reykjavíkur. Undirbúa stofnun hlutafélags um útgerð togskips
Frá fréttaritara Þjóðviljans á
Hvammstanga:
Sunnudaginn 2. mars voru v-
húnvetningar boðaðir til al-
menns fundar um atvinnu- og út-
gerðarmál í félagsheimilinu á
Hvammstanga. Var fundurinn
Ijölsóttur og mættu m.a. sveitar-
stjórnarmenn úr öllum hreppum
sýslunnar.
Frummælendur á fundinum
voru Magnús Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri og Eyjólfur R.
Eyjólfsson sem talaði fyrir hönd
verkalýðsfélagsins Hvatar.
Bentu þeir á nauðsyn þess að
sporna fæti við þeirri óheillalþró-
un, sem fælist í fólksflótta utan af
landsbyggðinni til höfuðborgar-
svæðisins. í þeim málum yrðu
landsbyggðarmenn fyrst og
fremst'að treysta á sjálfa sig. Það
kæmi enginn með atvinnutæki-
færin í hendurnar á þeim.
Eftir ræður frummælenda voru
almennar umræður. Kom greini-
lega fram í máli manna að eins og
komið væri í landbúnaðarmálum
bæri brýna nauðsyn til að styrkja
þann þéttbýliskjarna sem næstir
væru og þá í þessu tilfelli
Hvammstanga, enda vegir orðnir
góðir og vegalengdir stuttar að
lítið mál væri að sækja þangað
atvinnu.
Á fundinum var samþykkt
eftirfarandi tillaga: „Fundur
áhugamanna um útgerðarmál,
haldinn á Hvammstanga 2. mars
1986 samþykkir að kjósa fimm
menn til að undirbúa stofnun
hlutafélags um útgerð togskips á
Hvammstanga. Skal nefndin
ljúka störfum með almennum
fundi fyrir miðjan maí. Nefndin
starfi launalaust." - ere
Dagsbrúnarforystan
Þjóðviljinn
fordæmdur
Á stjórnarfundir í Verkamannafé-
laginu Dagsbrún í dag 03.03. 1986,
var eftirfarandi bókun samþykkt:
„Stjórn Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar fordæmir fréttaflutning
og upplýsingaþjónustu Þjóðviljans
vegna nýgerðra kjarasamninga
verkalýðshreyfingarinnar.
Frá því að samningaviðræður hóf-
ust fyrir alvöru, hefur umfjöllun
blaðsins um efni og niðurstöður
samninganna verið bæði röng og vil-
landi.
Stjórn félagsins harmar að blað
sem kennir sig við verkalýðshreyf-
ingu og sósíalisma sýni íslenskri
verkalýðshreyfingu í reynd slíkt virð-
ingarleysi með hlutdrægum og röng-
um fréttaflutningi."
F.h Verkamannafél. Dagsbrúnar
Þröstur Olafsson.
Svar
Þjóðviljans
Þjóðviljinn vísar algerlega á bug
órökstuddum ásökunum um rangan,
villandi og hlutdrægan fréttaflutning
af samningunum. Þvert á móti hefur
blaðið kappkostað að fylgjast með
framvindu samningana, og vert er að
nefna að á stundum var Þjóðviljinn á
undan öðrum fjölmiðlum með mikil-
væg atriði úr gangi samninganna. Hitt
er svo annað mál, að í ritstjórnar-
greinum hefur Þjóðviljinn bent á
kosti og lesti samninganna, og ekki
tekið þátt í þeim fagnaðarlátum sem
víða hafa orðið útaf þeim. En það er
ekki tilefni til að veitast að einstökum
fréttamönnum blaðsins, sem hafa
reynt að leggja sig fram um að fylgjast
með framvindu samninganna og átt
ágætt samstarf við marga í samninga-
nefndum beggja aðila.
Ritstj.
Mikil aðsókn hefur verið að Grænlandskynningunni á Kjarvalsstöðum. Á sunnudag komu yfir 2000 manns á sýninguna
sem er hin fróðlegasta og þegar fréttamenn Þjóðviljans litu við á Kjarvalsstöðum í gær var þar mikið fjölmenni aö kynna
sér sögu, menningu, framleiðsluhætti og matargerðarlist hjá nágrönnum okkar í vestri. Mynd - Sig.
REYKJAVÍK
1786-1986
Þriðjudagur 4. mars kl. 21:
TÓNLISTARDAGSKRÁ
(í safninu við Menningarmiðstöðina,
Gerðubergi, sem á þriggja ára starfs-
afmælí þennan dag)
ATLI HEIMIR SVEINSSON:
„GUÐSBARNALJÓÐ"
tónlist við samnefnt Ijóð Jóhannesar
úr Kötlum um Guðmund Thorsteins-
son, Mugg.
Flytjendur: Bernharður Wilkinson
flauta, Einar Jóhannesson klarin-
ett, Hafsteinn Guðmundsson fag-
ott, Monika Abendroth harpa,
Szymon Kuran fiðla, Carmel Rus-
sill selló.
Friörik Guðni Þórleifsson
Vilborg Dagbjartsdóttir
Einsöngur: Kristinn Sigmundsson
Undirleikari: Jónas Ingimundarson
Miðvikudagur 5. mars kl. 14:
LITLA BRÚÐULEIKHÚSIÐ
flytur
RAUÐHETTU
kl. 20:
TÓNLISTARDEILD
safnsins kynnt í umsjá Friðriks
Guðna Þórleifssonar.
Fimmtudagur 6. mars kl. 10:30:
RAUÐHETTA endurtekin
kl. 21:
UNGLINGADAGSKRÁ
í umsjá Fellahellis
Efni:
Ástin í unglingabókum
Skemmtiatriði og kvikmynd
Spurningakeppni Diskóráðs
Laugardagur 5. mars kl. 16:
BÓKMENNTADAGSKRÁ
„MANNLÍF í REYKJAVÍK
I 200 ÁR“
Frá Jóni Espólín til vorra daga. Sam-
felld dagskrá í Ijóðum og lausu máli í
umsjá Eiríks Hreins Finnbogasonar.
Flytjendur:
Helga Bachmann
Erlingur Gíslason ofl.
Sunnudagur 9. mars
kl. 14:
SKOTTURNAR úr Breiðholts-
skóla koma í heimsókn, kíkja í bækur
safnsins og kynna sig.
Höfundur: Brynja Benediktsdóttir
Skottur:
Fína Skotta Saga Jónsdóttir
Litla Skotta Guðrún Alfreðsdóttir
Stóra Skotta Guðrún Þórðardóttir
kl. 16: Endurtekin
TÓNLISTARDAGSKRÁ
frá þriðjudeginum 4. mars.
Lýkur þar með kynningardagskrá
bókasafnsins.
MYNDLISTARSÝNING
JÓN REYKDAL sýnir verk sín í
bókasafninu
Á 200. afmælisári Reykjavíkur verður nýtt útibú Borgarbókasafns Reykjavíkur opnað í
Gerðubergi 3-5 þriðjudaginn 4. mars. Borgarstjórinn í Reykjavík, Davíð Oddsson, opnar það
með viðhöfn kl. 16:30.
Borgarbóksafn í Gerðubergi
hefur almenna starfsemi sína kl. 19 í dag, þriðjudaginn 4.
mars. í safninu er útlánsdeild fyrir börn og fullorðna, upplýs-
ingaþjónusta, tímaritadeild og tónlistardeild með góðri að-
stöðu til að hlýða á hljómplötur úr tónlistardeild safnsins.
Safnið verður opið mánudaga-föstudaga kl. 9-21 og laugar-
daga kl. 13-16. Einnig verður opið þar næstu þrjá sunnudaga
í mars kl. 13-17. Um opnunartíma í sumar verður nánar
ákveðið síðar.
Boðið er til sérstakrar kynn-
ingardagskrár fyrstu starfs-
daga bókasafnsins og er hún
öllum opin og aðgangseyrir
enginn. Dagskráin er sem hér
fer á eftir:
BREIÐHYL TINGAR OG AÐRIR BORGARBÚAR!
BORGARSTJÓRN REYKJA VÍKUR BÝÐUR YÐUR
VELKOMNA í BORGARBÓKASAFN í GERÐUBERGI!
Geymið auglýsinguna