Þjóðviljinn - 04.03.1986, Page 14
Starfsréttindi
Kennara-
starfið
lögverndað
Fulltrúaráð Kennarasam-
bands íslands hefur fagnað frum-
varpi menntamálaráðherra um
lögverndun á starfsheiti og starfs-
réttindum kennara og skóla-
stjóra, og skorað á alþingi að
samþvkkja það óbreytt.
í ályktun fulltrúaráðsins segir
m.a.: „Á undanförnum árum
hefur það orðið æ erfiðara að fá
menntaða kennara til starfa í
skólum, einkum á landsbyggð-
inni og nú er svo komið að í fyrsta
sinn í vetur var erfitt að fá kenn-
ara til starfa á höfuðborgarsvæð-
inu. Samþykkt þessa frumvarps
mun ótvírætt stuðla að því að
snúa þessari þróun við og þar
með bæta skólastarf í landinu.“
Meginbreyting með frumvarp-
inu er að eftir samþykkt þess
verður óheimilt að skipa, setja
eða ráða til kennslustarfa annan
en þann sem uppfyllir þau
menntunarskilyrði sem nú er
krafist til skipunar. Hins vegar er
gert ráð fyrir að heimilt sé að
sækja um undanþágu til að ráða
réttindalausan mann til kennslu-
starfa ef ókleift reynist að fá rétt-
indamann í kennslustarf. Gert er
ráð fyrir að þeir sem unnið hafa
við kennslu undanfarin ár án rétt-
inda fái tækifæri til að afla þeirra
á næstu árum. Leiki vafi á hvort
umsækjandi um starf uppfylli sett
skilyrði kemur til kasta
matsnefndar eins og verið hefur,
nema hvað frumvarpið veitir
kennarafélögum aðild að henni.
Frumvarpið er afrakstur
nefndar sem Ragnhildur Helga-
dóttir þáverandi menntamála-
ráðherra skipaði haustið 1984 og
hefur málið því verið hálft annað
ár í umþóttun hjá yfirvöldum
menntamála. Lögverndun starfs-
heitis hefur lengi verið eitt af
megin baráttumálum kennara.
-ÁI
ÞJOÐMAL
Brotajárnið
Stálfélagið strand
Ragnar Arnalds skorar á ríkisstjórnina að endurskoða afstöðu sína tilþessa
þjóðþrifafyrirtœkis. Mikil breytingá afstöðu ríkisstjórnarinnar
Meðferð stjórnvalda á þessu
máli er heldur ófagur minn-
isvarði um lítið frumkvæði og
litla forystu núverandi ríkis-
stjórnar í atvinnumálum, sagði
Ragnar Arnalds m.a. á alþingi
þegar Albert Guðmundsson hafði
svarað fyrirspurn hans um mál-
efni Stálfélagsins.
Þeir Ragnar Arnalds og Hjör-
leifur Guttormsson spurðu
hvernig ríkisstjórnin hygðist
koma til móts við Stálfélagið í
viðleitni þess til að koma á fót
stálbræðslu hér á landi en fram
hefur komið að gjaldþrot blasir
við félaginu ef ekkert verður að
gert, þrátt fyrir að grundvöllur sé
talinn fyrir rekstri stálbræðslu
hér.
Albert Guðmundsson iðnaðar-
ráðherra sagði ríkisstjórnina hafa
komið til móts við forsvarsmenn
Stálfélagsins eins og kostur hefði
verið. Hins vegar hefði félagið
ekki getað uppfyllt þau skilyrði
sem eru í lögum um þátttöku rík-
issjóðs og því væri það ekki á
valdi ríkisstjórnarinnar hvað úr
yrði. í lögunum frá 1981 um
stálbræðslu er hlutafjárloforð
ríkisins m.a. skilyrt því að hlutur
ríkisins fari ekki yfir 40% af hlut-
afé félagsins og að hlutafé félags-
ins verði minnst 30% af
stofnkostnaði stálbræðslunnar.
f>á er bráðabirgðaákvæði í lögun-
um þar sem segir að ekki sé heim-
ilt fyrir ríkið að leggja fram hlut-
afé eða ábyrgjast lán fyrr en
tryggð hafi verið hlutafé frá öðr-
um fyrri 60% hlutafjárins. „Þrátt
fyrir að hluthafar séu um 1000
talsins þá er hlutafé og hlutafjár-
framlög og innborgað hlutafé
ekki nægilegt til þess að fullnægja
þeim skilyrðum sem gera ríkis-
stjórninni kleift að koma inn í fyr-
irtækið“, sagði Albert.
Ragnar minnti á að viðhorf
Ótrúlegt magn brotajárns hrannast upp í landinu eins og þessi mynd frá athafnasvæði Stálfélagsins í Straumi sýnir.
Ljósm.: eik.
stjórnvalda til uppbyggingar
fyrirtækisins voru allt aðrar og
jákvæðari fyrir 2 árum þegar þá-
verandi iðnaðarráðherra hvatti
forráðamenn eindregið til að
halda áfram af fullum krafti upp-
byggingu stálbræðslu. í ljósi þess
voru hafnar framkvæmdir á veg-
um félagsins um áramótin 1983-
1984, gerður samningur um kaup
á lóð, hafnar byggingafram-
kvæmdir og starfsmenn seudir út
til þjálfunar erlendis. „Síðan hef-
ur þetta allt breyst mjög og færst
til verri vegar og það ber að
harma“, sagði Ragnar. „Ég álít
að þetta fyrirtæki sé nauðsynja-
fyrirtæki, það sé þjóðþrifafyrir-
tæki og allar líkur bendi til þess
að það væri þjóðhagslega hag-
kvæmt að reisa það og reka hér á
landi.“
Hjörleifur Guttormsson tók
undir þessi orð og minnti á þau
orð forsætisráðherra nýlega að
ríkisstjórnin væri siðferðilega
skuldbundin í þessu máli. Það
væri einnig upplýst af hálfu tals-
manna Stálfélagsins að sá mikli
dráttur sem varð á eðlilegum
svörum frá stjórnvöldum í þessu
máli hafi orðið til þess að fjár-
sterkir aðilar, sem höfðu lofað
hlutafjárframlagi drógu það lof-
orð til baka og ráðstöfuðu fjár-
magni sínu í annað.
Albert Guðmundsson iðnaðar-
ráðherra sagði að ekkert væri til
að endurskoða í þessu efni.
Ríkisstjórnin hefði staðið við sitt,
hún yrði að hlíta skilyrðum lag-
anna frá 1981 og gæti ekkert gert
fyrr en Stálfélagið uppfyllti þau.
-ÁI.
Drætti frestað
í KÍNA-happdrætti ÆFAB
Við hvertjum fólk til að gera upp heimsenda gíróseðla sem fyrst.
Dregið verður 1. apríl 1986
Miðar fást á Hverfisgötu 105 4. hæð, í Gramminu Laugavegi og hjá ÆF-fé-
lögum vítt og breitt. Æskulýðsfylkingin
HVAÐ ER AÐ GERAST IALÞYÐUBANDALAGINU?
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Viðtalstímar
borgarfulltrúa ABR eru á þriðjudögum í
Miðgarði Hverfisgötu 105, 4. hæð. Þriðju-
daginn 4. mars verður Guðrún Ágústs-
dóttir borgarfulltrúi til viðtals frá kl. 17.30-
18.30. ABR
Guðrún
AB Selfoss og nágrennis
Félagsmála-
námskeið
Fimmtudaginn 13.
mars hefst 5 kvölda
námskeið í ræðu-
flutningi og fund-
arsköpum sem opið
er öllum félögum og
stuðningsmönnum
Alþýðubandalags-
ins. Kristín Margrét
Leiðbeinendur verða Margrét Frímannsdóttir og Kristín Á.
Ólafsdóttir. Þátttaka tilkynnist til Önnu Kristínar í s. 2189 fyrir 9.
mars.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið í Reykjavík
Spilakvöld
verður í kvöld þriðjudaginn 4. mars I Mið-
garði Hverfisgötu 105. Hefst það kl. 20.00
stundvíslega. Helgi Seljan alþingismaður
er gestur kvöldsins og ræðir við þátttak-
endur í kaffihléi.
AB Keflavíkur og Njarðvíkur
Félagsfundur
verður haldinn fimmtudaginn 6. mars kl. 20.30 í húsi Verslunar-
mannafélagsins Hafnargötu 28. Frummælendur verða: Svavar
Gestsson formaður Alþýðubandalagsins sem ræðir um
stjórnmálaástandið og kosningarnar í vor og Tryggvi Þór Aðal-
steinsson framkvæmdastjóri MFA sem ræðir um fræðslu- og
félagsmál verkalýðshreyfingarinnar.
Stjórnin
Málefnahópar Alþýðubandalagsins
Hafið áhrif!
Fjárhags- og viðskiptamál:
Næsti fundur verður haldinn í kvöld þriðjudaginn 4. mars kl.
20.30. Á dagskrá: 1) Seðlabankinn, 2) verðlags- og neytend-
amál.
Valddreifing - Lýðræði:
1. fundur miðvikudaginn 5. mars kl. 20.30. Rætt m.a. um at-
vinnulýðræði, launamannasjóði og dreifingu valds um landið.
Sjávarútvegsmál:
2. fundur haldinn miðvikudaginn 5. mars kl. 17.30. Rætt um
fiskistofna og fiskveiðistjórnun.
Allir hóparnir koma saman í Miðgarði, Hverfisgötu 105. Hóparnir
eru opnir öllum félögum AB og stuðningsfólki.
Alþýðubandalagið
AB Selfoss og nágrennis
Starfshópar um bæjarmál
Nú er að hefjast vinna starfshópa um málefni bæjarins. Fyrstu
fundir hópanna verða sem hér segir:
2. Fræðslu- og menn-
ingarmal og æskulýðs- og íþróttamái þriðjudaginn 4. mars, 3.
Almennar tryggingar, félagshjálp, heilbrigðis- og húsnæð-
ismál miðvikudaginn 5. mars, 4. Umhverfis- og skipulagsmál
fimmtudaginn 6. mars.
Allir fundirnir verða að Kirkjuvegi 7 og hefjast kl. 20.00. Félagar
og stuðningsfólk er hvatt til að mæta og taka þátt í mótun stefnu-
skrár félagsins fyrir bæjarstjórnarkostningarnar í vor.
Listafólk
AB Norðurlandi vestra
Almennir fundir
Kristín Á Ólafsdóttir,
varaformaður Alþýðu-
bandalagsins, og Ragn-
ar Arnalds alþingismað-
ur mæta á almennum
fundum:
Á Sauðárkróki
(Villa Nova)
laugardag 8. mars kl. 16:00
Á Siglufirði
(Alþýðuhúsinu)
sunnudag 9. mars kl. 16:00
Kristín
AB Selfoss og nágrennis
Opið hús
að Kirkjuvegi 7, Selfossi laugardaginn 8. mars kl. 15-18. Um-
ræður um bæjarmál, kaffi og með því. Allir velkomnir.
Nefndin.
AB Vestmannaeyjar
Félagsmálanámskeið
verður haldið í Alþýðuhúsinu dagana 7. - 9.
mars nk.
Námskeiðið hefst fyrri daginn kl. 20.00.
Allir félagar og stuðningsfólk velkomið.
Leiðbeinandi verður Baldur Óskarsson.
18 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 4. mars 1986