Þjóðviljinn - 04.03.1986, Page 16
Aðalsími: 681333. Kvðldsfmi: 681348. Helgarsími: 81663.
Þriðjudagur 4. mars 1986 52. tölublað 51. örgangur.
Ef þetta á allt að gerast með
lántöku innanlands, þá þýðir
þetta aukna samkeppni um spa-
riféð - og það hlýtur að ýta undir
hækkun raunvaxta, sagði Jón
Sigurðsson forstöðumaður Þjóð-
hagsstofnunar í samtali við Þjóð-
viljann í gær, er leitað var ítar-
legra álits hans á umsögn í endur-
skoðaðri þjóðhagsspá um þetta
atriði.
í þjóðhagsspá eftir samning-
ana segir: „Ríkisstjórnin stefnir
að því að afla aukins fjár með
lántöku innanlands, sem mun
draga úr útgjöldum annarra aðila
í hagkerfinu, en jafnframt ýta
undir hækkun raunvaxta".
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra kvaðst á dögunum
líta svo á, að raunvextir hækkuðu
ekki eftir samningana og frum-
varpsbandorminn á alþingi, en
Jóhannes Nordal kvaðst telja lík-
ur á því, að raunvextir yrðu hærri
á árinu en þeir hefðu verið.
Jón Sigurðsson kvað minni lík-
ur á því að raunvextir hefðu
hækkað ef fjárins hefði verið
aflað með sköttum, eða þeim
haldið sem búið var að koma á
eða með frekari niðurskurði út-
gjalda. f lögum ríkisstjórnarinnar
væri beinlínis gert ráð fyrir að
fjárins sé aflað á almennum láns-
fjármarkaði innan lands. -óg,
Vaxtabyrðin
Græðum 200
miljónir
íslendingar þurfa að greiða 200
miljón krónum minna í erlenda
vexti á þessu ári en áður hafði
verið spáð.
Samkvæmt upplýsingum Þjóð-
viljans frá Þjóðhagsstofnun er
um helmingur erlendra skulda ís-
lendinga á svokölluðum Libor-
vöxtum sem hafa verið um 8.5%
hafi lækkað um 0.5% og verði um
8% á þessu ári.
Samkvæmt Hagtölum mánað-
arins í febrúarhefti voru Libor-
vextir í lok janúar 8.06%.
Heildarskuldir íslendinga voru í
lok desember áætlaðar 65 milj-
arðar króna og er um helmingur
þeirra á breytilegum vöxtum,
þ.e. fylgja Libor á alþjóðlegum
peningamarkaði. _ó„_
DJOÐVIUINN
Útlitið
Hækkun raunvaxta
Þjóðhagsstofnun og Seðlabankinn á einu máli um að
raunvextir hœkki á árinu. Jón Sigurðsson: Lántaka
ríkisstjórnar á innanlandsmarkaði eykursamkeppni
um spariféð - hœrri raunvextir
Norðurlandaráð
Norðurlönd
Máttvana reiði
í Svíþjóð
Minningarathöfn um Olof Palme við setningu
Norðurlandaráðs í gær.
Máttvana reiði yfir ódæðinu,
segir Björn Guðbrandur Jóns-
son, fréttaritari Þjóðviljans í Sví-
þjóð. I pistli um viðbrögð við
morðinu á Olof Palme forsætis-
ráðherra segir hann að sænska
lögreglan vinni eftir þeirri tilgátu
að ódæðið sé þrautskipulagt og
unnið af kaldri rökvísi.
Hann segir: „Til að þetta geti
verið fálmkenndur verknaður
eru tilviljanirnar of margar.
Palme er veginn á aðalgötu
Stokkhólms, á eina staðnum þar
sem morðinginn getur komist
undan inn í hliðargötu án þess að
hægt sé að elta hann á bíl. í raun
eru aðstæður allar þarna mjög
hagstæðar fyrir ráðgerðan flótta
ódæðismannsins. Þetta, og margt
annað, bendir til að staður og
stund hafi verið vandlega valiyi.“
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, sagði í ræðu
sinni við minningarathöfn um
Olof Palme á þingi Norðurland-
aráðs m.a.: „Heimurinn hefur
misst mikinn stjórnmálamann og
mannvin, Norðurlöndin hafa
misst einn af sínum bestu sonum
en mestur er missir sænsku þjóð-
arinnar. Þótt sagt sé að maður
komi í manns stað hygg ég að
seint verði það skarð fyllt sem
Olof Palme skilur eftir sig.
íslenska þjóðin sendir sænskri
vinaþjóð hugheilar samúðar-
kveðjur."
Mikill mannfjöldi kom í
sænska sendiráðið í Reykjavík á
laugardaginn til að votta minn-
ingu Palme virðingu sína. f dag
verður sendiráðið að Fjólugötu 9
opið frá kl. 10 til 12 og á morgun
frá kl. 14 til 16 þar sem fólk getur
komið og ritað nöfn sín í sérstaka
samúðarbók.
Sjá bls. 7
Vilborg Ingólfsdóttir og Knut Ödegard rita nöfn sín í minningabók þá sem lá frammi í sænska sendiráðinu við Fjólugötu
laugardaginn. Mynd E.ÓI.
Líftæknistofnun til afgreiðslu
Fjölmargar fyrirspurnir og tillögurfrá íslensku þingfulltrúunum á 34.
Norðurlandaráðsþinginu sem hófst í Kaupmannahöfn í gær
Ávísanahefti
Hækkuðu
í gær
Ávísanahefti hjá Búnaðar-
bankanum, einunt ríkisbank-
anna, hækkaði í gær úr 100 kr. í
140 kr. Síðast breyttist verð á
ávísanaheftum 1. maí 1985 úr 65
kr. í 100 kr. og hefur verð heft-
anna því hækkað um 115% á
þeim tíma.
Kristján Gunnarsson í hag-
deild Búnaðarbankans sagði í
samtali við Þjóðviljann í gær að
tilkostnaður við gerð heftanna
hefði hækkað mjög að undan-
förnu og því hefði bankinn orðið
að hækka verð þeirra. Verð heft-
anna hefði verið ákveðið 100 kr.
1. maí 1985 en þá hefði það ekki
hækkað síðan 1. september 1983
er það var ákveðið 65 kr.
Samkvæmt ákvæðum verðlags-
laga mega bankarnir ekki ákveða
samtímis eða í samráði verð á
vöru sinni og þjónustu en búast
má við að aðrir bankar fylgi í
kjölfar Búnaðarbankans og
hækki verð á sínum ávísanaheft-
um.
þing Norðurlandaráðs
■ var sett i Kaupmanna-
höfn í gær og stendur þingið fram
á föstudag. Alls sitja 7 íslenskir
þingmenn þingið að þessu sinni
auk þess sem flestir ráðherranna
munu sitja þingið mcira eða
minna.
Að þessu sinni verða tekin til
lokaafgreiðslu á Norðurlanda-
ráðsþingi tvær sameiginlegar til-
lögur íslensku þingmannanefnd-
arinnar. Fjallár önnur þeirra um
stofnun norrænna líftæknistofn-
unar á íslandi en hin um gagn-
kvæm réttindi og samræmdar
reglur varðandi búferlaflutninga
á milli Norðurlandanna.
Þá bera einstakir þingmenn
fram fyrirspurnir á þinginu. Guð-
rún Helgadóttir spyr m.a. ráð-
herranefnd Norðurlandaráðs til
hvaða ráða hún hyggist grípa, til
að koma í veg fyrir mengun sjáv-
ar af kjarnorkuúrgangi frá
fullvinnslustöðvum. Einnig spyr
Guðrún hvort ráðið sé tilbúið að
grípa til víðtækra samræmdra að-
gerða til að vinna gegn eyðingu
skóga. Eiður Guðnason spyr um
norræna menningarmiðstöð í
París og Páll Pétursson fráfarandi
forseti Norðurlandaráðs mun á
þinginu mæla fyrir sameiginlegri
tillögu íslensku þingfulltrúanna
um samræmdar aðgerðir gegn
krabbameini á Norðurlöndum.
-Ig-
hvorki meira né minna en um 100
krakka í skólann, en alls eru nem-
endur í Réttarholtsskóla 380 tals-
ins, svo raðir þeirra hafa heldur
en ekki riðlast.
„Þetta er vonandi eitthvað í
rénum, þótt enn hafi 50 nemend-
ur setið heima í morgun," sagði
Haraldur í gær.“ -gg.
Réttarholtsskóli
Heiftarlegur veikindafaraldur
Pað kvað svo rammt að þessum
veikindum að við urðum að
fella niður kennslu í einum
bekknum meira og minna í tvo
daga, sagði Haraldur Finnsson
skólastjóri í Réttarholtsskóla í
Reykjavík í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær.
Ósköpin byrjuðu í upphafi síð-
ustu viku og urðu þá um 50 nem-
endur að sitja heima vegna
veikinda. Haraldur sagðist ekki
hafa haft spurnir af hvað þetta
væri sem svo heiftarlega hefur
gripið um sig í skólanum, en
margir hafa verið með rnikinn
hita og talsvert illa haldnir. Mið-
vikudag og fimmtudag vantaði