Þjóðviljinn - 06.04.1986, Page 4
Flugrán
14 ár í útlegð á Kúbu
Bandaríski blökkumaðurinn
Michael Finley hefur
búið íHavana frá því hann
kom þangað sem
flugrœningi ídesember 1971
Hérí Havana hefur Michael Finley búið í rúmlega 14 ár, lengst af á hóteli, en nú
hefur hann fengið eigin íbúð og er farinn að sætta sig við lífið á Kúbu.
í byrjun síöasta áratugar var
tugum eða hundruðum flug-
véla rænt í áætlunarflugi yfir
Bandaríkjunum og snúiðtil
Havana á Kúbu. Um miðjan
áttunda áratuginn höfðu kúb-
önsk yfirvöld fengið nóg af að
taka við flugræningjum og
gerðu samning við bandarísk
yfirvöld um að senda þá heim
sem freistuðu þess að lenda í
Havana.
Nú eru flestir flugræningjarnir
farnir heim til Bandaríkjanna þar
sem þeir hafa tekið út sinn dóm.
Ekki þó allir. Enn eru fimm slíkir
eftir í Havana. Einn þeirra er
blökkumaðurinn Michael Finley.
Róttœkur
blökkumaður
Finley er sonur lögreglumanns
í San Francisco og hóf nám í
Berkeley háskólanum rétt fyrir
1970. Hann gaf námið fljótlega
upp á bátinn en uppgötvaði þá að
atvinna var ekki á hverju strái,
síst af öllu fyrir blökkumenn.
Hann varð róttækur, gerðist liðs-
maður Svörtu hlébarðanna og
síðar félagi í enn róttækari sam-
tökum blökkumanna, The Repu-
blic of New Africa. Nokkrir fé-
lagar hans lentu í skotbardaga við
lögreglu í Jackson í Mississippi
sumarið 1971, einn lögreglumað-
ur lést og 11 blökkuinenn voru
handteknir.
Finley hugðist vera við réttar-
höldin og ók af stað ásamt veimur
félögum sínum, Charles Hill og
Ralph Goodwin. Austan við bæ-
inn Albuquerque voru þeir
stöðvaðir af lögregluþjóni sem
ætlaði að taka þá fasta. Peir skutu
lögregluþjóninn til bana og forð-
uðu sér inn í borgina. Þar földu
þeir sig en smám saman þrengdist
hringur lögreglunnar um þá og
þeir urðu að grípa til örþrifaráða.
Þeir töldu fullvíst að þeir yrðu
ekki dregnir fyrir rétt heldur
drepnir á staðnum ef þeir fynd-
ust. Þeir brugðu á það ráð að flýj a
dulbúnir út í eyðimörkina þar
sem þeir létu fyrirberast fram í
myrkur. Þegar rökkvaði fundu
þeir símasjálfsala og hringdu í
bifreiðaverkstæði og báðu um að
sendur yrði bíll eftir þeim því
farkostur þeirra hefði brætt úr
sér.
Til Havana
Þegar kranabíllinn kom mið-
uðu þeir byssu á bílstjórann og
skipuðu honum að aka á næsta
flugvöll. Við flugvallargirðing-
una skipuðu þeir bílstjóranum að
setja neyðarljósin á og aka upp
að Boeing 707 þotu sem virtist
vera að fara í loftið. Herbragðið
gekk upp og þeir komust um
borð. Skipuðu þeir flugstjóran-
um að fljúga til Flórída þar sem
farþegarnir fengu að fara frá
borði. Síðan var flogið til Ha-
vana.
Finley segist enn muna hvernig
honum var innanbrjósts við kom-
una til Havana. Þá eygði hann í
fyrsta sinn í margar vikur vonar-
glætu um að hann slyppi lifandi úr
þessu ævintýri. „En ég hafði ekki
hugmynd um hvað byði mín á
Kúbu, einfaldlega vegna þess að
ég hafði aldrei leitt hugann að
því.“
Hús
flugrœningjanna
Flugræningjarnir þrír bjuggust
við að þurfa að dúsa í fangelsi í
tvær vikur. Þess í stað voru þeir
settir í notalegt stofufangelsi í sex
vikur og yfirheyrðir í tvo tíma á
hverjum degi. Að því loknu voru
þeir fluttir inn í stóra villu sem
fyrir byltingu hafði verið í eigu
vellauðugs verktaka. Húsinu
hafði verið breytt í heimili fyrir
flugræningja og í því bjuggu 35
bandarískir flugræningjar.
Margir flugræningjar fóru
heim næstu árin til að taka út sinn
dóm en aðrir komu í þeirra stað.
Finley segir að flestir hafi þeir
orðið 60 í húsinu og svo til allir
blökkumenn. Eftir því sem árin
liðu fór Finley að lítast æ verr á
kollega sína sem bættust í hóp-
inn. Æ færri höfðu framið flugrán
af pólitískum ástæðum. „Nokkrir
voru geðsjúklingar, aðrir venju-
legir glæpamenn og nokkrir voru
réttir og sléttir óþverrar,“ segir
Finley. Kúbönsk yfirvöld komust
greinilega að sömu niðurstöðu
því þau tóku upp samningavið-
ræður við bandarísk yfirvöld,
hættu að taka við flugræningjum
og föru að tæma hús flugræningj-
anna. Og eins og áður sagði eru
nú aðeins fimm eftir, þám. Finley
og félagi hans Charles Hiil. Þriðji
félaginn lést af slysförum árið
1973.
10 ór á hóteli
Finley segist hafa notað mest af
tíma sínum til að reyna að komast
íburtufrá Kúbu. Hann hefurgælt
við hugmyndir um að komast til
Tanzaníu og Gíneu-Bissau og
árið 1983 gerðu þeir Hill alvöru
úr því að fara til Jamaíku. Kúb-
önsk yfirvöld létu þá fá 300 doll-
ara og settu þá um borð í flugvél
til Kingston. Þar reyndu þeir að
leika ferðamenn frá Mexíkó sem
hefðu týnt skilríkjum sínum en
yfirvöld sáu við þeim og höfðu
samband við bandaríska sendi-
ráðið. Þá fór um Finley. En
bandarísk yfirvöld sögðust engan
áhuga hafa á þeim félögum og
kváðu best að senda þá aftur til
Kúbu. Það vargert og síðan hefur
Finley ekki gert fleiri tilraunir til
að yfirgefa Kúbu.
Fjölskylduböndin
rofin
Undanfarin 10 ár hefur Finley
búið á hótelum en í janúar sl.
fékk hann íbúð í gamla borgar-
hlutanum í Havana. Þeir félagar
hafa tekið próf sem túlkar og
vonast til að festa sig í sessi sem
slíkir.
Finley segist loksins núna vera
farinn að sætta sig við að búa á
Kúbu. Hann er jákvæður í garð
Kúbu en segir þó að hann verði
var við kynþáttamun. Hann seg-
ist sakna fjölskyldu sinnar, tón-
Iistarinnar og lífsins meðal
blökkumanna í Bandaríkjunum.
Hann hefur átt mjög erfitt með
að halda uppi samskiptum við
fjölskyldu sína og aðeins einu
sinni hefur móðir hans fengið
vegabréfaáritun til stuttrar heim-
sóknar. Hann var giftur í Banda-
ríkjunum og átti eina dóttur.
Árið 1975 urðu hjónin ásátt um
að skilja og 6 árum síðar giftist
hann kúbanskri konu. Það hjóna-
band stóð aðeins í tvö ár.
Bandaríska blaðamanninum
sem ræddi við Finley fannst hann
ekki óhamingjusamur. Hins veg-
ar sagði Finley að ef hann ætti yfir
höfði sér fimm ára fangelsisdóm
eða minna ef hann snéri aftur
heim. En hann getur reiknað
með mun þyngri dóm svo þann
möguleika hefur hann afskrifað.
Ekki skipt um skoðun
Þegar hann rifjar upp æskuár
sín í Bandaríkjunum segist hann
oft hafa hugsað um dauðann en
það hafi aldrei hvarflað að sér að
hann ætti eftir að búa annars
staðar en í Bandaríkjunum, hvað
þá að hann ætti ekki afturkvæmt
þangað. Hann segist ekki hafa
skipt um stjórnmálaskoðun. „Þá
var ég ekki nógu vel að mér til að
taka þátt í pólitík með jafn afger-
andi hætti og ég gerði. Hefði ég
haft meiri yfirsýn hefði ég fundið
betri aðferðir til að tjá skoðanir
mínar. Þá hefði ég komist hjá því
að valda fjölskyldu minni svo
mikilli armæðu og ekki skilið
barnið mitt eftir föðurlaust. Til
að berjast fyrir pólitískum mál-
stað verður maður að vera skap-
andi. Ég var allt of skammsýnn
hér áður fyrr,“ segir hann.
Samt heldur hann því fram að
hann og aðrir félagar hans sem nú
eru ýmist dauðir eða í fangelsum
hafi komið ýmsu til leiðar. „Það
flaut mikið blóð, en ég hef komist
að þeirri niðurstöðu að þannig
varð það að vera,“ segir Michael
Finley sem verður etv. einn dag-
inn kúbanskur ríkisborgari en
aldrei kúbani að eigin sögn.
—ÞH endursagði úr Press
4 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 6. apríl 1986