Þjóðviljinn - 06.04.1986, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 06.04.1986, Blaðsíða 7
Ríkharður þriðji, málverk eftir ókunnan málara. Játvarður fjórði sem Ríkharður leysti af hólmi ásamt Elísabetu drottningu og Játvarði prins. ... og veginn Woodvillar héldu áfram ráða- bruggi og fengu Hinrik Tudor til liðs við sig. Hinrik var í útlegð á Bretagne og var af konungum kominn að langfeðgatali. Eftir nokkrar sviptingar felldu þeir fé- lagar Ríkharð þriðja í orustu í ág- úst 1485 og Hinrik komst til valda, talinn sjöundi. Staða Hinriks var fráleitt traust og til að festa sig í sessi kvæntist hann Elísabetu, dóttur Játvarðar fjórða og Elísabetar»Woodville, í janúar 1486. En til að Elísabet yrði að haldi mátti hún ekki vera óskilgetin. Fyrstu verk Hinriks voru því að afmá allar heimildir um ólögmæta giftingu foreldra hennar, handtaka Stillington eina ferðina enn og handtaka og líklega að taka af lífi syni Rík- harðs þriðja og Georgs bróður hans (Ríkharður hafði endurreist son Georgs og þar með gert hann að lögmætum erfingja). Gallinn við sögufölsunina var sá að með því að gera Elísabetu konu sína að hjónabandsbarni, veikti Hinr- ik stöðu sína til muna því þá sat hann uppi með strákana tvo, i'f. Hinrik sjöundi sem tók við að Ríkharði föllnum. bræður hennar, sem löggilta arf- taka krúnunnar. Hér er komin eina sýnilega ástæðan til þess að nokkur hafi viljað drepa prinsana tvo í Turn- inum. Ríkharði þriðja stafaði engin hætta af tilvist þeirra, hann stóð næst krúninni - átakalaust - en Hinrik sjöundi varð að ryðja þeim úr vegi til að geta setið sjálf- ur. Nokkuð undarleg er líka hegð- un Hinriks gagnvart tengdamóð- ur sinni. í febrúar 1487 gerir hann eignir hennar upptækar og sendir hana í klaustur. Pessi aðgerð þótti nokkuð hörkuleg en vel má vera að gömlu konunni hafi mis- líkað við tengdasoninn, þegar hún frétti að hann hafði látið drepa syni hennar tvo í Turninum og hún ekki kært sig um að sitja þögul undir því. Hin opinbera útgáfa Fyrir utan vafasamar heimildir um að Ríkharður hafi framið ódæðið og það að hann skorti all- ar forsendur sem Hinrik hafði má benda á að í ákæruskjali sem Hinrik gaf út á hendur Ríkharði eftir sigurinn í ágúst 1485 er hvergi minnst á að hann hafi drepið bróðursyni sína. f skjali þessu er mikill óhróður á Rík- harð borinn og ólíklegt að því hefði verið sleppt nema fyrir það að strákarnir voru ennþá á lífi. Það er ekki fyrr en í júlí, tæpu ári síðar, sem sá orðrómur kemst á kreik að Ríkharður hafi komið prinsunum fyrir kattarnef. Árið 1502 kemur fyrst fram skrifleg yfirlýsing frá „blaðafull- trúa“ Hinriks um að Ríkharður þriðji hafi fyrirskipað aftöku frænda sinna og fengið til verks- ins James nokkurn Tyrrel. James þessum höfðu af einhverjum ástæðum verið gefnar upp sakir 16. júní 1486 ög aftur 16. júlí sama ár. Hann hraktist nokkru síðar til Frakklands þar sem Hinrik lét handtaka hann 1502 undir því yfirskini að hann vildi fá hann til samningaviðræðna í Lundúnum. Hinrik ræddi þó við hann fátt, lét drepa hann án dóms og laga og skömmu síðar birtist hin opinbera útgáfa um örlög prinsanna í Turninum. Nútímasagnfræðingum þykir ekki ólíklegt að það sé í sjálfu sér rétt að James Tyrreí hafi verið framkvæmdaaðilinn við aftöku sveinanna. En hann fékk fyrir- skipanir sínar frá Hinrik sjöunda, að öllum líkindum í júlí 1486. Gísli Sigurðsson tók saman að mestu úr Historical Whodunits eftir H.R. Williamsson, London 1955. Einnig má benda á ágæta skáldsögu eftir J. Tey, Thc Daughter of Time, 1951, sem segir af ungum sagnfræö- ingi í skjalaleit á British Museum og uppgötvunum hans í sambandi viö þessi mál öll, bók P. Kendall, Ric- hard the third, 1955, og ef sjónvarpið hefur einhvern áhuga á svona nokkru þá er til nýlegur þáttur hjá breska sjónvarpinu þar sem mál Ríkharðs er tekið fyrir í formi réttarhalda. Niður- staðan úr því „dómsmáli“ var sú að Ríkharður væri „ekki sekur“. Verkamannafélagið Dagsbrún Orðsending Tekiö veröur á móti umsóknum um dvöl í orlofs- húsum félagsins í sumar, frá og meö mánudegin- um 7. apríl 1986, á skrifstofu félagsins aö Lind- argötu 9, 2. hæð. Þeir sem ekki hafa áöur dvalið í húsunum ganga fyrir með úthlutun til og meö 11. apríl. Húsin eru: 5 hús í Ölfusborgum 1 hús í Svignaskarði 1 hús í Vatnsfirði 2 hús á lllugastöðum 2 hús á Einarsstöðum Vikuleigan er kr. 2.500,- sem greiðist viö pöntun. Stjórnin. Staða námstjóra í tölvufræðum á grunnskóla- og framhaldsskólastigi er laus til umsóknar. Starfið er m.a. fólgið í því að leiðbeina kennurum um notkun tölva í skólastarfi og hafa umsjón með gerð námskrár í greininni. Umsækjendur skulu hafa reynslu á sviði tölvunotkunar og réttindi til kennslu. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skulu sendar Menntamálaráðuneytinu fyrir 20. apríl nk. LÍS UKEX 240 g ÞVOTTADUFT 2,3 kg FRIGG LENI SALERNISPAPPÍR 8 rl í pk Sunnudagur 6. apríl 1986 PJÓÐVILJINN - SIÐA 7 SAMVINNUSOlUBOÐ NR 5

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.