Þjóðviljinn - 30.05.1986, Qupperneq 2
_________________FRÉTTIR______________
Laugardalsskipulagið
Enn ein draumsýnin?
Fyrir borgarstjórnarkosningar 1974 var lagtfram skipulag að
Klambratúni. Enn aðeins ápappír. Ekki ósvipað kosninga-
bombu Sjálfstœðisflokksins í Laugardalnum
r
Ameðan Sjálfstæðisflokkurinn
blæs nýtt skipulag að Laugar-
dalnum út og lofar þar vin í borg-
inni, er til ekki ósvipað skipulag
að Klambratúni síðan árið 1974.
Þar sem það er enn einungis á
teikningu vaknar vitaskuld sú
spurning hvort ekki fari eins fyrir
Laugardalsskipulaginu, sagði
Sigurður Harðarson arkitekt í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Samkvæmt skipulagi að
Klambratúni (Miklatúni) sem
gert var fyrir borgarstjórnarkosn-
ingarnar 1974 er þar gert ráð fyrir
minigolfi, tjörn, gæsluvelli, sam-
komusvæði, leiksviði, garði sér-
hönnuðum fyrir blinda og svo
framvegis, en þrátt fyrir að síðan
hafi liðið ein tólf ár bólar enn
ekki á neinu af þessu á túninu.
„Þarna er ramminn tilbúinn,
en enn vantar „húsgögnin". Ég er
ansi hræddur um að með þessu
skipulagi að Laugardalnum sé
Sjálfstæðisflokkurinn að búa til
enn eina draumsýn, sem allt of
margir láta blekkjast af.
Vitaskuld ber að fagna því að
Laugardalurinn verði útivistar-
og íþróttasvæði borgarbúa en
hefur það ekki alltaf legið í
augum uppi? Og hvað er það sem
er svo stórkostlegt við þetta nýja
skipulag annað en að þar verði
komið upp dýragarði, tjörn og
stóru gróðurhúsi? Það er svolítið
kyndugt að fylgjast með því
hvernig Sjálfstæðisflokkurinn
blæs það út að gerð verði limgerði
við tjaldstæðið og það flutt til svo
það sé ekki á floti, eða að gengið
verði snyrtilega frá bílastæðum
við íþróttamannvirkin. Annað er
ekki nýtt í þessu skipulagi,“ sagði
Sigurður Harðarson í gær.
—gg
Maður var hálf einmana á torg-
inu í gær...
Kosningaútvarp
Útvarpað
alla
Sjónvarpið
Laxness
snuprar
Hrafh
Forráðamönnum sjónvarpsins
hefur borist bréf frá lögfræð-
ingi Halldórs Laxness þar sem
þess er kraflst að styttri útgáfu
Silfurtúngisins verði eytt.
Hrafn Gunnlaugsson kvik-
myndaði leikrit Halldórs, Silfur-
túnglið, fyrir nokkrum árum, og
var það endursýnt nú í mánuðin-
um, en þá í styttri útgáfu og
breýttri, án þess að samráð væri
haft við skáldið á Gljúfrasteini.
Von er á skýrslu frá Hrafni til
framkvæmdastjóra siónvarpsins
um málið, og líklegt er að út-
varpsráð ræði snuprurnar á fundi
sínum í dag.
I ýmsu að snúast; Hrafn Gunnlaugsson formaður framkvæmdanefndar Listahátíðar tekur á móti erlendu stórmenni í
límúsínum, en Hrafn Gunnlaugsson kvikmyndaleikstióri sætir snuprum Nóbelsskáldsins fyrir meðferð sína á Silfurtúngl-
inu. (Mynd: Sig.)
nóttina
Beinar útsend-
ingar víða að af
landinu
Ríkisfjölmiðlarnir hafa mikinn
viðbúnað vegna kosninganna
að venju og verður mikið um
dýrðir kosninganóttina. Kosning-
aútvarp á rás eitt og rás tvö hefst
klukkan 22 á laugardagskvöldið
og er áætlað að útvarpa á gömlu
rásinni þar til talningu er alls
staðar lokið.
Sjónvarpið lætur ekki sitt eftir
liggja og í Reykjavík verður sam-
eiginleg útsending sjónvarps og
útvarps.
í útvarpi verða tölur lesnar
jafnóðum og þær berast og með
hjálp tölvu geta fréttamenn og
sérlegir reiknimeistarar spáð í
tölur og sagt hvað þær þýða. Auk
þess verður leikin tónlist og
spjallað við frambjóðendur.
Fréttamenn verða á ferðinni víða
um land um nóttina og verður út-
varpað beint frá mörgum stöð-
um. —gg
Hafnarfjörður
Bræðravíg hjá íhaldinu
Einar Th. Mathiesen rœðstharðlega að flokksbrœðrum sínum og bróður sínum
Matthíasi utanríkisráðherra. Hefur ekkertgertfyrir Hafnfirðinga íráðherradómi
Ferðalög
Geðdeild 11
í tvær
vikur til
Hollands
Einsdœmi að heil deild
taki sig svona upp
r
Imorgun snemma fór óvenju-
legur hópur í sumarfrí til Hol-
Iands en þar fór Geðdeild 11 af
Kleppsspítala til hálfs mánaðar
dvalar í sumarhúsum. Mun það
einsdæmi að heil deild taki sig öll
upp og fari í slíka ferð, þó farið
hafi verið áður í ferðir á vegum
spítalans. Hafa þær ferðir ætíð
verið styrktar af stjórn spítalans.
Enginn styrkur fékkst til þessarar
ferðar annar en hluti fæðiskostn-
aðar vistmanna og er ferðin því
kostuð af deildinni, vistmönnum
og ættingjum þeirra og starfs-
mönnum.
Ákveðið var síðastliðið haust
að reyna að fara þessa ferð og
hafin söfnun. Hafa starfsmenn og
vistmenn deildarinnar unnið að
ýmis konar verkefnum í því
skyni, seldir voru áramótahattar,
bakaðar pizzur og kökur og seld-
ar, flóamarkaðir haldnir og fleira
þess háttar.
Fjöldi þeirra sem fara í sumar-
húsin eru 16 vistmenn og 8 starfs-
menn. Ing.
Inýjasta tölublaði Frjáls Fram-
boðs málgagni sérframboðs
Einars Þ. Mathiesen núverandi
bæjarfulltrúa og bæjarráðs-
manns Sjálfstæðisflokksins í
Hafnarfirði er harðlega sótt að
forystumönnum Sjálfstæðis-
flokksins í bænum og jafnframt er
veist að Matthíasi A. Mathiesen
Félag einstæðra foreldra verð-
ur með merkjasölu á kjördag -
verður sölufólk við kjörstaði og
að líkindum víðar.
14. júní verður kosið í
sveitarfélögum þarsem íbúar eru
500 eða færri. I Laxárdalshreppi
ætlar Alþýðubandalagið að
bjóða fram sérstakan lista í fyrsta
sinn og eru öll efstu sætin skipuð
utanríkisráðherra og bróður Ein-
ars.
Bendir blaðið á ýmis óeðlileg
fjármuna og hagsmunatengsl for-
ystumanna Sjálfstæðisflokksins í
gegnum bæjarkerfið og lýst undr-
un á því að utanríkisráðherra sé
dreginn inn í kosningabaráttuna
Merkjasalan er til að koma fé-
laginu yfir afborganir og kostnað
við breytingar á húsinu við Öldu-
götu lí, sem keypt var í fyrra,
konum. Fimm efstu: Sigurjóna
Valdimarsdóttir, Svala Valdi-
marsdóttir, Sólveig Ingvadóttir,
Björg Ríkharðsdóttir, Valdís
Óskarsdóttir.
-S.dór
þar sem “ráðherrann hefur hing-
að til ekki fengist til að skipta sér
af málefnum bæjarins. Nú er
samt svo komið hjá núverandi
bæjarmálaforystu Sjálfstæðis-
flokksins að fokið er í flest skjól
og pilsfaldur ráðherrans á að
duga en menn verða nú samt að
athuga það að það gustar nú líka
sagði Jóhanna Kristjónsdóttir,
formaður Félags einstæðra for-
eldra í stuttu spjalli við blaðið.
Þar hefur verið tekið í notkun
neyðar- og bráðabirgðahúsnæði
fyrir einstæða foreldra og börn
þeirra, sem eiga í tímabundnum
vandræðum.
Nú eru tíu fjölskyldur á Öldu-
götunni og margir á biðlista. I
húsi félagsins að Skeljabrekku 6
eru ellefu fjölskyldur og láta mun
nærri að um 50 manns eigi nú at-
hvarf í húsum félagsins. Guðný
Kristjánsdóttir teiknaði merki
það sem selt er á kjördag.
um ráðherra eins og aðra þessa
stundina," segir m.a. í blaðinu en
ábyrgðarmaður þess er Einar Þ.
Mathiesen.
Hafskipsmálið
Gæslu -
varðhald
staðfest
Hœstiréttur stytti
varðhaldið
Hæstiréttur staðfesti í gær
gæsluvarðhaldsúrskurð undir-
réttar yfir forráðamönnum Haf-
skips.
Undirréttur í Reykjavík
dæmdi fimmmenningana í Haf-
skipsmálinu í gæsluvarðhald til
25. júní, og áfrýjuðu þeir til
Hæstaréttar. í gær staðfesti
Hæstiréttur úrskurðinn um gæsl-
uvarðhald en stytti hann til 11.
júní.
Merkjasala
Félag einstæðra foreldra
Laxárdalshreppur
G-listí í fyrsta sinn
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 30. mai 1986