Þjóðviljinn - 30.05.1986, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 30.05.1986, Qupperneq 7
Umsjón Sigurður Á. Friðþjófsson Myndir úr Eyjum i Vestmannaeyjum þrífst fjölskrúðugt mannlíf og athafnasemi mikil. Á ferð okkar um Eyjar fyrir skömmu hittum við fyrir þessa kátu krakka í leikskólanum við Kirkjugerði. Og dæmigerð mynd, Klifið yfir skipalyft- unni fær að fljóta með. Ljósm. ráa Hjalti Pálsson forstööumaður Safnahússins. Meö ritvinnslukerfinu hefur okkur tekist að lækka útgáfukostnað bóka verulega. Mynd -Ing. Sauöárkrókur BÓKASAFNIÐ í blómlegri útgáfu Mikil starfsemi í safnahúsi Skagfirðinga Safnahus Skagfirðinga var tekið í notkun 1970 og hefur að geyma margháttaða starfsemi. Þrjú söfn eru þar til húsa. í fyrsta lagi er þar Héraðsbóka- safnið, sem að stofni til er frá 1904, en þá samþykkti sýslu- nefnd Skagafjarðar að stofna Sýslubókasafn á Sauðárkróki. Safnið telur nú um 20.000 bindi, og í útláni á síðasta ári voru um 35.000 bindi. Tala útlánsbóka hefur dregist nokkuð saman frá því er hún komst hæst 1982. Að öllum líkindum hefur videóvæð- ingin tekið sinn toll þar sem ann- arsstaðar. Héraðsskjalasafn Skagfirðinga er í húsinu, en yfir- maður þess er Kristmundur Bjarnason. Þar er um að ræða elsta héraðsskjalasafn á lands- byggðinni, stofnað 1947. Skjala- safnið er mikið og gott að vöxtum og er miðstöð fræðastarfsemi í héraðinu. Loks er Listasafn Skagfirðinga í Safnahúsinu. Það er stofnað 1968 og á nú um 80 myndverk, og bætast því árlega nokkur verk, keypt eða gefin. Þrátt fyrir lítil fjárráð hefur Lista- safnið staðið fyrir einni myndlist- arsýningu í Sæluviku ár hvert. Sögufélag Skagfirðinga á og heimili í Safnahúsinu. Hjalti Pálsson er forstöðumað- ur Safnahússins á Sauðárkróki og bókavörður við Héraðsbókasafn- ið ásamt því að vera formaður Sögufélags Skagfirðinga. Hjalti tók til starfa við Safnahúsið haustið 1976 að afloknu íslensku- og sögunámi við Háskóla íslands. Er hann var spurður um kvað helst væri á döfinni, hvað Hjalti undirbúning að útgáfu bóka fé- lagsins í ár vera í fullum gangi. „Á síðasta ári gaf félagið út 3 bækur og verður svo einnig í ár. Á næstu vikum kemur út 15. hefti ársrits félagsins, Skagfirðingabókar, en hún hefur að geyma margskonar sögulegt efni og þjóðlegan fróð- leik úr héraðinu. Síðan kemur út í haust 3. bind- ið í ritsafni Stefáns Jónssonar fræðimanns frá Höskuldsstöð- um. Það hefur að geyma sagna- þætti með ættfræðiíegu ívafi. Loks er væntanlegt á árinu 4. bindið af Skagfirskum æviskrám fyrir tímabilið 1850-1890. Félagið hefur ungan ætt- fræðing, Guðmund Jóhannsson í starfi yfir veturinn við æviskrár- ritun. Sögufélagið hefur fengið styrki frá ýmsum fyrirtækjum og opinberum aðilum heima í héraði til að kosta æviskrárritunina. Á síðastliðnum vetri festi félagið kaup á ritvinnslutölvu. Hún gerir félaginu kleift að annast sjálft setningu á bókum sínurn og lækka þannig útgáfukostnað í framtíðinni. Auk þessa eykur þessi tækni hagkvæmni við ævi- skrárritun," sagði Hjalti að lok- um. -Ing Föstudagur 30. maí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.